Morgunblaðið - 21.04.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
29
Pólýfónkórinn
heilsar sumri
með kaffisölu
Pólýfónkórinn efnir til kaffisölu
í súlnasal Hótel Sögu í dag,
sumardaginn fyrsta. Auk kaffi-
veitinganna verður hlutavelta með
fjölmörgum ágætisvinningum.
Að sjálfsögðu verða einnig
skemmtiatriði við allra hæfi, kór-
söngur, eingöngur, tvísöngur og
hljóðfæraleikur.
Meðal þeirra sem þarna koma
fram verða: Ásta Thorstensen alt,
Ásdís Gísladóttir sópran, Elsa
Waage sópran, Friðbjörn G. Jóns-
son, sem syngur lög Sigfúsar Hall-
dórssonar við undirleik höfundar,
tvær ungar stúlkur leika og syngja
í léttum dúr og Josef Fung leikur á
gítar. Fjölskylda Hjálmtýs
Hjálmtýssonar mun syngja, en
dóttirin í fjölskyldunni er betur
þekkt undir nafninu Diddú. Þá
mun hljómsveitin KOS leika lauf-
létta tónlist.
Starfsemi kórsins síðasta
starfsár var mjög umfangsmikil á
25 ára afmælisárinu. Tónleika-
haldið og Spánarförin var mikið
átak, sem ekki er auðvelt að
endurtaka á hverju ári. Auk þess
var ráðist í útgáfu á Matteusar-
passíunni í fullri lengd á fjórum
hljómplötum. Upptaka fór fram á
tónleikum um páskana 1982 í Há-
skólabíói. Hér er um mikið stór-
virki að ræða með svo fjölmennum
hópi flytjenda, en stjórnandi kórs-
ins hefur sjálfur borið mestan
htuta kostnaðarins við útgáfuna.
Starf kórsins í vetur hefur verið
minna í sniðum, en þótt engin
stórverk hafi verið flutt, hefur
kórinn unnið vel undir stjórn
Harðar Áskelssonar, sem er
organisti í Hallgrímskirkju. Fyrir
jólin voru tónleikar í Kristskirkju,
sem tókust vel og fengu mjög góða
umsögn gagnrýnenda. Á föstudag-
inn langa söng svo kórinn við
guðsþjónustu í Hallgrímskirkju
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Þar var m.a. sunginn kafli úr
þekktu verki eftir óperutónskáldið
Rossini, Stabat Mater. En kórinn
hefur mikinn áhuga á að flytja
það verk í heild síðar.
Annars hefur tilkostnaður við
tónleikahald vaxið gífurlega og
má nú heita að stóru kórunum sé
orðið um megn að fá hljóðfæra-
ieikara til liðs við sig og flytja
stærri verkin á eigin kostnað.
Er hætt við að mörgum þyki það
miður, ef ekki verður kostur á að
heyra verk Bachs og Hándels á
stórhátíðum eins og verið hefur
regla undanfarin 10—15 ár.
Pólýfónkórinn væntir góðra
undirtekta hjá almenningi eins og
alltaf áður og þakkar stuðning við
kórstarfið. Enginn verður svikinn
af því að drekka sumarkaffið í
Súlnasal Hótel Sögu og njóta fag-
urrar tónlistar um leið.
Gleðilegt sumar.
F.v. Gréta Guðnadóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir og Auður Hafsteinsdóttir.
Þrír ungir einleik-
arar með Sinfóníunni
Tónlistarskólinn í Keykjavík og Kinfóníuhljómsveit íslands halda tónleika f
Háskólabíói laugardaginn 23. apríl kl. 15. Á efnisskránni eru þrír af þekktustu
fiðlukonsertum tónbókmenntanna, fiðlukonsert Mendelsohns í e-moll, 2. fiðlu-
konsert Wieniawski í d-moll og Rruch fiðlukonsertinn í g-moll.
Einleikarar með Sinfóníuhljóm-
sveitinni eru þrjár ungar stúlkur,
Auður Hafsteinsdóttir, Gréta
Guðnadóttir og Sigurlaug Eðvalds-
dóttir, en þær eru allar nemendur í
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Þessir tónleikar eru hluti af
einleikaraprófi þeirra frá skólanum
núna í vor. \
Auður, Gréta og Sigurlaug eru all-
ar félagar í Stengjasveit Tónlist-
arskólans, sem starfar undir stjórn
Mark Reedmans. Á þessum tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar Islands
stjórnar hann hljómsveitinni.
Fiðlustúlkurnar þrjár hafa stund-
að fiðlunám hjá ýmsum kennurum,
en seinustu ár hafa Auður og Sigur-
laug verið nemendur Guðnýjar Guð-
mundsdóttur, konsertmeistara, en
Gréta stundað fiðlunám hjá Mark
Reedman.
Tónleikarnir í Háskólabíói á laug-
ardaginn hefjast kl. 15. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
ÓDÝRASTUR ALLRA
Vegna sérsamninga við Isuzu-verksmiðjurnar getum viö boðið
nokkra 1982 Isuzu pallbíla á ótrúlega hagstæöu verði.
Isuzu pickup, palllengd 1,85 m kr. 226.100.-.
Isuzu pickup, palllengd 2,30 m kr. 235.500.-. (gengi 8.4. ’83)
Búnaður: 1,8 L bensínvél — 4 gíra — beinskiptur — sportfelgur — grófmynstruö dekk — krómaðir
stuöarar aftan og framan — mjúk fjöðrun — De Lux búnaður — framdrifslokur — hæö undir
lægsta punkt 21,5 cm.
BÆNDUR — VERKTAKAR — FYRIRTÆKI
KYNNID YKKUR ÞETTA EINSTAKA VERÐ OG GREIDSLUKJOR
Bæklingar hjá kaupfélögunum um land allt.
S VÉIAMIID SAMBANDSINS
RiniiAáP Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
Já, ég vek
athygli ykkar
á nýju brauöunum
sem koma ylvolg
úr ofninum á hverjum
morgni.
Þá má ekki gleyma
kökuúrvalinu, vínarbrauðunum,
snúöunum og öllu hinu góögætinu
sem alltaf er ferskt
og fínt á hverjum degi.
Svo á ég ailtaf ilmandi kaffi á könnunni.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 8-18.
LAUGARDAGA KL. 8-16
OG SUNNUDAGA KL. 9-16.
VERID ÁVALLT
VELKOMIN í BAKARÍIÐ
iminnxflafcari 48
BAKARÍ — KONDITORI — KAFFI
Gleðilegt sumar!