Morgunblaðið - 21.04.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
35
Ég get nefnt tvennt sem gera
má til að bæta stöðu bænda hér í
grennd. Við búum við hátt raf-
orkuverð og húshitun, sem hjá
flestum er rafhitun, er mjög
kostnaðarsöm. Jarðhiti er þó
víða á þessu svæði. Og á Sauð-
árkróki er hitaveita sem hefur
töluvert heitt vatn umfram það
sem nýtt er. í Varmahlíð, þar
sem nú er að myndast þéttbýli,
og er í 26 km fjarlægð frá Sauð-
árkróki, er hitasvæði; einnig á
Reykjum, sem eru 12 km frá
Varmahlíð. Ég tel að virkja eigi
jarðvarmann í Varmahlíð og á
Reykjum, samtengja við Sauð-
árkrók og gefa bændum á þessu
svæði kost á að nýta heita vatn-
ið, bæði til húshitunar og yl-
ræktar.
í annan stað er það afleys-
ingaþjónusta í sveitum, en við
mjólkurframleiðendur þurfum
að ganga að störfum alla daga
öll ár. Erfiðlega hefur gengið að
fá fólk til þeirrar þjónustu og
hér um slóðir er hún nær ein-
göngu bundin við sjúkraforföll.
Búandfólk þarf að eiga kost á
orlofi eins og annað vinnandi
fólk í landinu.
Framboð á kjördag
af kaffi og kökum
ÞETTA framboð er öðrum framboðum laugardagsins betra, að því leyti
að hver og einn getur kosið það fyrir sig og sína, hvar í flokki sem hann
annars staðar stendur.
Konurnar í kvenfélagi Nes-
kirkju hafa lengi haft þennan
háttinn á, að bjóða fólki að veislu-
borði á kosningadögum og þær eru
þeirrar skoðunar að þó mikið sé
talað um bágborið efnahagsástand
um þessar mundir þá muni ennþá
taka því að hella upp á könnuna og
bjóða velunnurum kirkjunnar að
styrkja starfið með því að fá sér
kosningakaffi. En þó maður hafi á
orði að gott sé fyrir fjölskyldur að
koma og taka úr sér kosninga-
skjálftann eða kuldahrollinn með
því að fá sér kaffisopa í safnaðar-
heimilinu, þá verður vísast það
sem ræður úrslitum um það hvort
kaffisala heppnast vel eða miður,
hvort þeir mörgu sem bera hlýjar
tilfinningar til starfsins í kirkj-
unni, gefa sér tíma til að líta við á
laugardaginn frá kl. 3. Konurnar í
kvenfélagi Neskirkju hafa margar
hverjar verið að starfi fyrir kirkj-
una í áratugi og verk og búnaður í
helgidóminum bæru annan og rýr-
ari blæ, ef þeirra hefði ekki notið
við í fjölmörgu tilliti fram á þenn-
an dag og er skemmst að minnast
framlags þeirra til flygilskaupa á
liðnu ári.
Ég á því ekki betri ósk til þeirra
sem vilja sýna konunum þakklæt-
isvott fyrir allt þeirra starf á um-
liðnum árum til eflingar kristnu
starfi, en að líta við hjá þeim á
laugardaginn og kjósa kaffið
þeirra og meðlætið. Þess ber einn-
ig að geta að basarhornið þeirra er
á sínum stað að vanda, þar sem
selt verður sitt hvað á góðu verði,
sem að gagni má verða. Vonandi
berum við giftu til þess að verja
atkvæði okkar á þann veg á laug-
ardaginn kemur að til blessunar
verði fyrir land og þjóð, en við
skulum einnig muna að daglega
erum við að kjósa og velja það sem
til heilla eða vansældar leiðir. Og
þeir sem eiga þá sannfæring að
kristin boðun sé gæfuverk, þeir
eiga erindi í safnaðarheimili
Neskirkju á laugardaginn til að
velja þakklæti og stuðning við það
starf sem óeigingjarnt og af fórn-
fýsi einni er unnið.
Guðm. Óskar Ólafsson
Hver vill sitja
ogsauma
sumarnóttu á ?
tískuverslunm
Laugavegi118,
Sumarfagnaöur veröur aö Hamraborg 6, Kópavogi, í
dag, sumardaginn fyrsta frá kl. 14.00.
Dagskrá:
Eiöur Örn Eiðsson syngur.
Uppboö.
Tízkusýning.
Magnús Þór Sigmundsson syngur.
Kaffi, kökur, popp, söngur og fjör.
Mætum öll.
Kvennalistinn í Reykjaneskjördæmi.
GOLF I
SKOTLANDI
Hin árlega golfferð
Úrvals til Skotlands
verður farin 6. maí
— 11 dagar
Aðeins fáein
sæti laus
Gist á Marine Hotel/
North Berwick og
Golden Pond/Stirling
URVAL
vib Austurvöll 7726900
Umboðtmenn um aHt land
K R
BAGGATINAN
Kemur nú á markaöinn enn
þá fullkomnari og afkasta-
meiri en nokkru sinni fyrr.
Hún hleöur á vagn eöa bíl allt
aö 1000 böggum á klukku-
stund.
KR BAGGATÍNAN tekur
jafnt upp stutta bagga sem
langa, þunga sem létta og
vinnur sitt verk af öryggi
hvernig sem baggarnir liggja
á vellinum.
KR BAGGATÍNAN er hönnuö
fyrir íslenskar aöstæöur —
þaö gerir gæfumuninn.
Leitiö nánari upplýsinga
KAUPFÉLAG RANGÆINGA
Hvolsvelli. Símar 99—8121 og 99—8225.