Morgunblaðið - 21.04.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
41
(þar sem bæjarins bestu hamborgarar fást, þið vitið).
Starfsfólkið á nýja veitingastaðnum. Fri vinstri: Sigurður Ingason yfírmat-
reiðslumeistari, Þórður Sigurðsson eigandi og framkvæmdastjóri og fram-
reiðslustúlkur.
Nýr veitingastað-
ur opnaður í dag
í DAG opnar nýr kjúklingastaður,
„Southern fried“, við hliðina á Svörtu
pönnunni í Tryggvagötu.
„Southern fried" sérhæfir sig í
matreiðslu kjúklinga, en kjúkl-
ingarnir eru steiktir í háþrýstipott-
um í sérstakri kryddblöndu. „South-
ern fried“ rekur fjölda veitingastaða
í Ameríku, Evrópu og víðar og hefur
fengið mikla viðurkenningu fyrir
bragðgæði, vöruvöndun og hreinlæti.
Hinn nýi staður er útbúinn í sam-
ræmi við kröfur „Southern fried", en
hönnun annaðist Pétur Lúthersson
innanhússarkitekt.
Þórður Sigurðsson veitingamaður
rekur „Southern fried" í tengslum
við Svörtu pönnuna, sem allir bæj-
arbúar þekkja og hafa staðirnir
komið sér upp fullkomnu vinnslu-
eldhúsi. Starfsemi Svörtu pönnunn-
ar breytist ekki við tilkomu hins
nýja staðar.
í Tryggvagötu við hliðina á Svörtu pönnunni
TRYGGVAGÖTU SÍM116480
Komið við í álverinu og
nokkur atriði til umhugsunar
SOUTHERN FRIED
f.HIfKFN ?ó."lsæJir
VniUXCil bitakjuklmgar
opið alla daga kl. 11-23.30.
Við höfum ekki fleirí orð um þetta, drífið ykkur
á staðinn, bragð er sögu ríkara!
Kfttkíingastaótir
SOUTHERN
FRIED
CHICKEN
bwe^
2^
— eftir Einar Örn
Björnsson, Mýnesi
Árið 1966 var samningurinn við
Alusuisse samþykktur á alþingi og
stofnað íslenska álfélagið og
ákveðið að byggja álverksmiðjuna
við Straumsvík. Samhliða var
ákveðin virkjun Þjórsár við Búr-
fell og framkvæmdir hafnar. Ál-
verið tók til starfa 1969 og vinnsla
hafin með orku frá Búrfellsvirkj-
un. Þá var brotið blað í atvinnu-
málum landsins og stigin fyrstu
sporin til virkjunar Þjórsár.
Þessi framfarasókn kom á réttu
augnabliki, rétt áður en síldveiðar
við Norður- og Austurland brugð-
ust og norsk-íslenski síldarstofn-
inn hvarf af miðunum og var mik-
ið áfall fyrir íslensku þjóðina.
Nefndar orku- og iðnaðar-
framkvæmdir voru ákveðnar af
viðreisnarstjórninni undir forsæti
dr. Bjarna Benediktssonar. Iðnað-
arráðherra var Jóhann Hafstein
og orkuráðherra Ingólfur Jónsson.
Stjórnarandstaðan veitti harða
mótspyrnu gegn samningunum við
Svisslendingana og virkjun við
Búrfell, kommúnistar með sínum
hætti og þingflokkur framsóknar
að tveimur þingmönnum undan-
skildum þeim Jóni Skaftasyni og
Birni Pálssyni, er sátu hjá.
Þannig er í stuttu máli forsaga
þess að þrjár stórvirkjanir hafa
risið við Þjórsá með miklum
vatnsforða í Þórisvatni og vatna-
flutningum er tryggja rekstur
virkjananna og orkan flutt með
öflugum flutningalínum til þétt-
býlisins við Faxaflóa til almenn-
ingsnota og álversins, Áburðar-
verksmiðjunnar, Sementsverk-
smiðjunnar og járnblendi-
verksmiðjunnar. Flutningalínur
hafa verið byggðar um landið og
hringtengingu bráðum lokið. Það
er það sem við blasir um frekari
framkvæmdir í orkumálum.
Á árinu 1982 voru samþykkt lög
á alþingi um þrjár stórvirkjanir,
Blönduvirkjun, Fljótsdalsvirkjun
og virkjun við Sultartanga í þess-
ari röð. Einnig voru samþykkt iög
um að reisa kísilmálmverksmiðju
við Reyðarfjörð, land keypt og
stjórn verksmiðjunnar kosin.
Rannsóknir Orkustofnunar á
Fljótsdalshéraði eru á lokastigi,
en fjármagn vantar til að halda
„íslendingar þurfa að ná
endurskoðun á álsamn-
ingnum vegna þeirrar hol-
skeflu sem yfir gekk er
olía og benzín hækkuðu
upp úr öllu valdi, sem
skapaði mikla erfiðleika
og raunar kreppu, sem
enn sér ekki fyrir endann
á. Samningar við Alu-
suisse verða að byggjast á
því að ákveða stækkun ál-
versins og styrkja með
þeim hætti möguleikann
að fá eðlilega hækkun
orkuverðs og annarra
gjaida, sem tilheyra samn-
ingum við álver.“
áfram rannsóknum af fullum
krafti eins og fyrirhugað var á
þessu ári.
Vonandi er að úr rætist svo
unnt reynist að ljúka rannsóknum
og athugunum svo útboð og hönn-
un verði að veruleika eigi síðar en
1985, svo öruggt sé að virkjun í
Fljótsdal verði að veruleika á
þessum áratugi.
Landsvirkjun hefur nú tekið við
byggðalínunum og fyrirhuguðum
virkjunum á Norður- og Austur-
landi og Akureyrarbær hefur
gerst eignaraðili í Landsvirkjun
ásamt ríkinu og Reykjavíkurborg
og þannig ætti Landsvirkjun loks-
ins að standa undir nafni.
Við nefndar aðstæður kom
brestur í stjórnarsamstarfið og
endaði með þingrofi og alþingis-
kosningum í þessum mánuði.
Stjórnmálaöflin þeysa um landið á
meðan dýrtíðarskrúfan æðir
áfram en minnkandi sjávarafli og
þar með hættuástand í atvinnu og
efnahagsmálum, sem ógnar öllu ef
þjóðarsamstaða næst ekki um við-
nám til varnar.
Aðför kommúnista að álverinu
eru þeirra aðferðir til þess að rífa
niður atvinnulífið í landinu og
telja alla aðra sakamenn og meira
að segja samstarfsráðherra þeirra
í ríkisstjórninni, samanber aðför
iðnaðarráðherra að forsætisráð-
herra um lélegan samning við
Alusuisse 1975 er hann var orku-
og iðnaðarráðherra í stjórn Geirs
Hallgrímssonar. Nefnd aðför var
gerð er forsætisráðherra var í
opinberri heimsókn í Danmörku.
Þetta er aðferð kommúnista sem
ekki fara eftir lýðræðislegum leið-
um í samstarfi og hika ekki við að
nota aðstöðu sem ráðherrar til að
koma af stað úlfúð og ósæmilegum
áróðri sem þjónar þeirra eðli og
afturhaldssjónarmiðum.
Þessi grein er skrifuð eftir að ég
hafði heimsótt álverið og skoðað
það með góðri leiðsögn og sann-
færðist um að íslendingar hafa
náð góðum tökum á rekstri og
starfrækslu fyrirtækisins. En
mikil tækni og iðnþekking er fyrir
hendi sem mun koma að góðu
gagni í rekstri á verksmiðjum er
nota hluta af raforku hér á landi í
framtíðinni.
Fólkið úti á landsbyggðinni
verður að halda vöku sinni og
knýja á um að næg orka verði
ávallt fyrir hendi á viðráðanlegu
verði.
Undirritaður skrifaði grein í
Mórgunblaðið 1966 er bar heitið
„Viðbrögð stjórnarandstöðu „þjóð-
frelsisást" undir leiðsögn komm-
únista". Þar er harðlega gagnrýnd
sú afstaða að vera á móti virkjun
við Búrfell og samningum við Alu-
suisse, vegna þess að ef ekki hefði
verið tekin ákvörðun um virkjun
við Búrfell og byggingu álversins
hefði verið myrkur um miðjan dag
í höfuðborginni og Þjórsá runnið
óbeysluð til sjávar.
íslendingar þurfa að ná endur-
skoðun á álsamningnum vegna
þeirrar holskeflu sem yfir gekk er
olía og benzín' hækkuðu upp úr
öllu valdi, sem skapaði mikla erf-
iðleika og raunar kreppu, sem enn
sér ekki fyrir endann á. Samning-
ar við Alusuisse verða að byggjast
á því að ákveða stækkun álversins
og styrkja með þeim hætti mögu-
leikann að fá eðlilega hækkun
orkuverðsins og annarra gjalda,
sem tilheyra samningum við álver.
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, hefur ekki stuðlað að
samningum við álverið með vinnu-
brögðum sínum. En sennilega ekki
getað ráðið vegna þess að harði
kommúnistakjarninn frá 1966 og
áður er lýst hefur ráðið ferðinni,
samanber sendiför Inga R. Helga-
sonar til Ástralíu. Þess vegna ætti
iðnaðarráðherra að snúa skeytum
sínum að þessum öflum ef hann og
hans flokkur vilja verða að liði ís-
lenskri þjóð og kasta fyrir borð
kreddunum um „isma" sem ekki
vísar á íslenska leið í þjóðmála-
starfi.
Hannes Hafstein, fyrsti ráð-
herra á íslandi, gott skáld og
framsýnn um málefni landsins,
kom á ritsímanum og talsímanum
sem var frábært afrek en mætti
mótspyrnu sumra íslendinga og
dæmigert um skammsýni.
Sænsk-íslenska frystihúsið sem
var byggt 1924 var upphafið að
frystingu matvæla og framfara-
spor en mætti andúð skammsýnis-
afla. Það er þetta hugarfar, sem
reynir að spilla samvinnu íslend-
inga við Alusuisse en mun ekki
takast. íslendingar munu halda
sínum rétti með reisn.