Morgunblaðið - 21.04.1983, Síða 42
46
MOltGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
Símamynd AP.
• Metþátttaka var í Maraþonhlaupinu í London um síðustu helgi.
18.700 tóku þátt í hlaupinu. Á myndinni hér aö ofan má sjá hvar veriö
er að ræsa þátttakendur. Um næstu helgi fer hiö fræga Boston mara-
þonhlaup fram og verður gaman aö vita hvort þátttakendur veröa fleiri
í því hlaupi. Keppnir í maraþonhlaupum víösvegar um heim eru mjög
vinsælar og eru þær mjög víöa árviss atburður. Eins og sjá má á
myndinni hefur ekki verið mjög auðvelt fyrir þá sem aftastir voru aö
reyna að taka forystuna í hlaupinu.
Vel heppnuð firmakeppni JSÍ:
28 fyrirtæki tóku þátt
Landsbankinn og Rafglit
báru sigur úr býtum
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fór
fram firmakeppni JSÍ í íþrótta-
húsi Kennaraháskóla íslands.
Tuttugu og átta stofnanir og fyrir-
tæki tóku þátt í þessari keppni,
en keppendur voru frá júdódeild-
um Ármanns, Gerplu, UMFK og
JFR. Var dregiö um hvaöa fyrir-
tæki hver keppandi keppti fyrir í
upphafi mótsins.
Keppni var jöfn og spennandi í
öllum flokkum. Keppt var í fjórum
þyngdarflokkum karla og opnum
flokki kvenna og karla. Úrslit uröu
sem hér segir:
OPINN FLOKKUR KVENNA:
1. Orkubót, keppandi Margrét Þráinsd.
2. Austurborg matvöruverzl. keppandi Eygló
Siguróard.
3. Svansprent, keppandi Sigrún Svsrrisd.
OPINN FLOKKUR KARLA:
1. Rafglit, keppandi Kolbeinn Gíslas.
2. Gúmmísteypa Þ. Kristjánssonar, kepp-
andi Bjarni Friórikss.
3.-4. Fönix sf., keppandi Siguróur Haukss.
3.-4. Neptúnus hf.
+ 70 KG:
1. Landsbanki ísl., keppandi Karl Erlings-
son.
2. Heimilistæki hf., keppandi Gunnar Jónss.
3. -4. Eimskip hf., keppandi Davíó Gunnarss.
3.-4. Marco hf., keppandi Þorsteinn L. Jo-
hanness.
+ 86 KG:
1. Teppasalan, keppandi Magnús Haukss.
2. Birgir sf., keppandi Níels Hermannsson.
3. -4. Samv.banki ísl., kepp. Jóhann Óli
Jónss.
3.-4. Morgunbl., kspp. Rögnv. Guómundss.
+ 95KG:
1. Klif hf., ksppandi Bjarni Friórikss.
2. Sksljungur hf. ksppandi Viöar Guójónss.
3. Gíslí Fsrdinands hf. keppandi, Siguróur
Haukss.
4. Milupa, barnam. kspp., Kristján Valdsm-
+ 95KG:
1. Landsbanki Itl Hákon Örn Halldórwon.
7. SoOtabanki fal. Kolbeinn Oíalaaon.
3. Sportv.v. Ingótla Óakaraa. Runóllur
Gunnlaugsson.
Prjú hlutu tvenn
gullverólaun hvert
Leikió var í flokki 16 til 18 ára á
Unglingameistaramóti íslands í
badminton um helgina. Indriöi
Björnsson, Þórdís Edwald og
Ólafur Ingþórsson hlutu þar tvö
gullverölaun hvert.
Þórdís sigraöi í einiiöaleik
stúlkna — sigraöi Elísabet Þórö-
ardóttur 12:10, 11:3 í úrslitum. Þá
vann hún tvíliöaleikinn ásamt
Elísabetu. Þær sigruöu Ingunni
Viöarsdóttur og Elínu H. Bjarna-
dóttur 15:1, 15:4 í úrslitaleiknum.
Indriði sigraöi Pétur Hjálmtýs-
son í úrslitaleik í drengjaflokki
17:14, 17:15. Indriöi vann svo tví-
liöaleikinn ásamt Ólafi Ingþórssyni.
Þeir unnu Pétur Hjálmtýsson og
Snorra ingvarsson 17:15, 15:18,
15:13. I tvenndarleik sigruöu svo
Ólafur Ingþórsson og Elísabet
Þóröardóttir. Þau unni Indriöa og
Þórdísi 15:10, 15:7.
Víðavangshlaup ÍR í 68. sinn í dag:
Spáð er tvísýnni
Víóavangshlaup ÍR veröur háö í
dag, fyrsta sumardag, og fer
hlaupiö nú fram í 68. sinn, en þaö
hefur veriö árviss atburöur frá
1916 og alltaf farið fram fyrsta
sumardag, nema tvisvar þegar
fresta varö því vegna veöurs. Góö
þátttaka er í hlaupinu yfir 100
skráöir og allt útlit fyrir tvísýna
keppni um fyrsta sæti.
Hlaupið hefst klukkan 14 (
Hljómskálagarði og lýkur viö Al-
þíngíshúsið eftir að hlaupinn haf-
ur veriö hringur í Hljómskála-
garðinum, um Vatnsmýri og
Tjarnargötu. Vegalengdin er um
fjórir kílómetrar.
Keppnin stendur fyrst og fremst
um l.sætiö í hlaupinu, en einnig
hefur sveitakeppnin jafnan verið
spennandi. Mjög erfitt er aö spá
fyrir um líklegan sigurvegara nú,
því fleiri koma til greina en oft áö-
ur. Mestar líkur er taldar á aö bar-
keppni
ÍR-ingarnir Agúst Ásgeirsson og
Gunnar Páll Jóakimsson hafa
báóir veriö sigursælir í Víöa-
vangshlaupi ÍR.
átta standi milli IR-inganna Sig-
hvats Dýra Guömundssonar,
Steinars Friögeirssonar og Haf-
steins Óskarssonar og Einars Sig-
urössonar UBK.
Eins og áöur segir fer hlaupiö nú
fram í 68. sinn. Þaö hefur fyrir
löngu skapaö sér vissa hefö og
veriö hluti af hátíöahöldum í tilefni
sumarkomunnar. Jafnan hafa
beztu hlauparar landsins veriö
meöal keppenda. Oftast hefur
sigraö í því Ágúst Ásgeirsson ÍR,
eöa sjö sinnum. Kristleifur Guö-
björnsson, KR, vann þaö fimm
sinnum og fjórum sinnum unnu
Geir Gígja KR, Sverrir Jóhannes-
son KR, og Stefán Gunnarsson Á,
Kristján Jóhannesson |R og Hall-
dór Guöbjörnsson KR. Ljóst er aö
í hlaupinu í dag bætist nýtt nafn á
sigurvegaraskrána, því ekki eru
meöal þátttakenda neinir fyrrver-
andi sigurvegarar.
• Valur Ingimundarson • Jón Sigurósson • Axel Nikulásson
Stjörnugjöfin í körfunni:
Valur leikmaður
íslandsmótsins
VALUR Ingimundarson, lands-
liðsmaóurinn snjalli úr Njarövík,
er „Leikmaöur Islandsmótsins"
hjá Morgunblaóinu í vetur.
Hann sigraði sem sagt í stjörnu-
gjöf blaðsins, en keppnin var
gífurlega jöfn og spennandi og
aöeins munaði einu stigi á hon-
um og næsta manni og síöan
aftur einu stigi á öörum og
þriöja manni.
Valur hlaut 44 stjörnur, Jón
Sigurösson KR varö í ööru sæti
meö 43 stjörnur og Axel Niku-
lásson ÍBK fékk 42 stjörnur.
Þessir náöu 30 stjörnum eöa
meira:
Valur Ingimundarson UMFN 44
Jón Sigurösson KR 43
Axel Nikulásson ÍBK 42
Torfi Magnússon Val 39
Gunnar Þorvaröarson UMFN 38
Kristján Ágústsson Val 37
Jón Kr. Gíslason ÍBK 36
Pétur Guömundsson ÍR 36
Ríkharöur Hrafnkelsson Val 35
Þorsteinn Bjarnason ÍBK 35
Kristinn Jörundsson ÍR 32
Viðar Þorkelsson Fram 32
Þorvaldur Geirsson Fram 30
Valur Ingimundarson lék mjög
vel meö Njarövíkurliöinu í vetur
og er vel aö sigri kominn í
stjörnugjöfinni. Hann varö stiga-
hæstur íslensku leikmannanna i
úrvalsdeildinni í vetur, skoraði
465 stig, og varö þriðji stiga-
hæsti leikmaöur deildarinnar.
Stewart Johnson KR skoraöi
mest, 743 stig, og Val Brazy hjá
Fram varö næst stigahæstur.
Hann skoraði 498 stig.
í lokahófi KKÍ á dögunum var
Pétur Guömundsson útnefndur
leikmaöur islandsmótsins af
sambandinu. Axel Nikulásson
kom þar í ööru sæti og Jón Sig-
urösson í því þriöja. Besti erlendi
leikmaöurinn var kjörinn Tim
Dwyer Val, Brad Miley ÍBK varö
annar og jafnir í þriöja til fjóröa
sæti voru Val Brazy Fram og Stu
Johnson KR:
Jón Sigurösson var vítaskytta
íslandsmótsins, var meö 78,7%
nýtingu. Tók 94 skot og hitti úr
74. Kristján Ágústsson Val var
næstur. Hann tók 83 skot og hitti
úr 65. Þaö er 78,3% nýting.
Björn Víkingur Skúlason var
útnefndur prúöasti leikmaöur úr-
valsdeildarinnar og titilinn „besti
dómarinn“ hlaut Siguröur Valur
Halldórsson.
Þá er þaö kvenfólkið. Linda
Jónsdóttir KR var kjörin leikmað-
ur íslandsmótsins. Sóley Indriöa-
dóttir Haukum varö önnur og
Emilía Siguröardóttir KR varö
þriöja. Linda varö stigahæst í
deildinni meö 344 stig, Katrín
Eiríksdóttir varö önnur meö 270
stig og Sóley Indriöadóttir Hauk-
um skoraöi 252 stig.
Kolbrún Leifsdóttir ÍS var meö
bestu vítanýtingu í 1. deild
kvenna. Hún tók 55 skot og hítti
úr 35, sem er 63,6% nýting. Em-
ilía Siguröardóttir KR tók 111 víti
og hitti úr 70, sem er 63,0% nýt-
ing, og Linda Jónsdóttir KR var
meö 58,4% nýtingu. Tók 53 skot
og hitti úr 31.
— SH