Morgunblaðið - 21.04.1983, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983 47
• Fyrirliði Hamburger, Horst Hrubesch, í baráttu vid einn af leik-
mönnum spænska liðsins.
Evrópukeppni-bikarhafa:
Real Madrid mætir
Aberdeen í úrslitum
ÞAÐ VERDA lið Aberdeen og Re-
al Madrid sem leika til úrslita í
Evrópukeppni bikarhafa í knatt-
spyrnu í ár. Spánska liöiö Real
Madrid sigraöi Austria Vín á
heimavelli sínum í gærkvöldi
3—1, eftir að hafa haft forystuna í
hálfleik, 1—0. Real Madrid komst
áfram á samanlagöri markatölu
5—3. Aberdeen sigraöi Wat-
erschei Belgíu í 4ra liöa úrslitun-
um. Úrslitaleikur liöanna fer fram
í Gautaborg 11. maí. 65 þúsund
áhorfendur voru á leiknum í
gærkvöldi sem fram fór í mikilli
rigningu.
Islensku piltarnir
hlutu 6 gullverðlaun
íslenska landsliöiö í sundi
keppti um síöustu helgi í Kalott-
keppninni í sundi og hlutu strák-
arnir í liöinu sex gull, og tvö silf-
ur.
Eövarð Eövarösson sigraöi í
100 m. baksundi og einnig sigraöi
hann í 200 m. baksundi. Tími
hans í fyrri greininni var 1:01,7
sem er nýtt piltamet og Kalott-
met, og í seinni greininni synti
hann á 2:15,51.
Tryggvi Helgason sigraöi í 100
m. bringusundi á 1:08,1 og í 200
m. bringusundi á 2:30,6. Árni Sig-
urðsson varö annar í 200 m. sund-
inu á 2:32,3. Ingi Þór Jónsson sigr-
aði í 100 m. flugsundi. Synti hann á
59,1 sek. og jafnaöi þar meö ís-
landsmetið og setti um leið Kal-
ott-met. Tryggvi Helgason varð
annar á 1:00,6.
Strákarnir unnu svo 4x100 m.
fjórsund á 4:05,3. í sveitinni voru
Eövarð, Tryggvi, Ingi Þór og Þor-
steinn.
Ragnar Guömundsson setti
piltamet í 400 m. skriösundi á
4:21,6 min. Guörún Fema Ágústs-
dóttir varö önnur í 200 m. bringu-
sundi og þriðja í 100 m. bringu-
sundinu.
Finnar sigruöu á mótinu, fengu
265 stig, Svíar fengu 209,5 stig,
norömenn 185 og íslendingar
167,5. Island varö efst í keppni
strákanna.
• Hluti landsliðsins í sundi, sem keppti á Noröurkollumótinu í Kirke-
nes í Noregi 16. og 17. apríl, ásamt fararstjóra, taliö frá vinstri Guö-
mundur Ólafsson, fararstjóri, Anna Gunnarsdóttir, Ægi, Þorsteinn
Gunnarsson, Ægi, Guðbjörg Bjarnadóttir, Selfossi, Ingi Þór Jónsson,
Akranesi, Guðrún Fema Ágústsdóttir, Ægi, Árni Sigurösson, Akranesi
og Eövarð Eðvarðsson, Njarövík. Á myndina vantar Ragnheiði Run-
ólfsdóttur, Akranesi og að auki eru í landsliðinu Tryggvi Helgason frá
Selfossi, sem nú er í Svíþjóð og Þórunn K. Haröardóttir og Ragnar
Guðmundsson, sem nú eru í Randers í Danmörku. Jón Ágústsson tók
myndina.
Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu:
Hamborg og Juventus mætast
JUVENTUS frá Ítalíu geröi jafn-
tefli, 2—2, viö pólska liöiö Widzev
Lods í gærkvöldi. Leikur liöanna
fór fram í Varsjá en var sjónvarp-
aö beint til átta landa í Evrópu.
Fyrri leik lióanna lauk meö sigri
Juventus, 2—0, og því er liðiö
komið í úrslit, í Evrópukeppni
meistaraliöa og mætir Hamborg
S.V. Úrslítaleikur liðanna fer fram
í Aþenu 25. maí.
Leikur liöanna í gærkvöldi var
mjög jafn og spennandi og um leið
vel leikinn. Þaö var Paolo Rossi
sem skoraöi fyrsta mark leiksins á
33. mínútu eftir stórkostlega
sendingu frá Platini. En Platini var
besti maöur vallarins í gær og
maðurinn á bak viö allar sóknir
Juventus. Staöan í hálfleik var
1—0. Á 55. mínútu síðari hálfleiks-
ins jafnaöi Lodz, 1 — 1, er Krzyszt-
of Zurlit skoraöi meö þrumuskoti
af stuttu færi. Skömmu seinna
varö aö stööva leikinn í 15 mínútur
þar sem einn áhorfenda kastaöi
flösku í höfuö annars línuvarðarins
og skarst hann á höföi. Áhorfandi
sá sem geröi sig sekan um þetta
var handtekinn samstundis.
Zurlit skoraöi svo aftur á 88.
mínútu en Platini jafnaði úr víta-
spyrnu á 83. mínútu fyrir Juventus.
í Hamborg sigruöu heimamenn
spánska liöiö Real Sociedad meö
tveim mörkum gegn einu. Staöan í
hálfleik var 0—0. Leikur liðanna
var tilþrifalítill þar til síöustu 15
mínútur leiksins. Þá skoraöi Ditm-
ÞAÐ VERÐA Anderlecht frá
Belgíu og Benfica frá Portúgal
sem koma til meö aó leika til úr-
slita í UEFA-keppninni í knatt-
spyrnu í ár.
Anderlecht lék í gærkvöldi gegn
Bohemians Prag í Brussel og sigr-
aöi Anderlecht örugglega, 3—1.
Liöiö lék mjög góöa knattspyrnu
og haföi yfir, 2—0, í hálfleik. Þaö
voru Vercautern og Brylle sem
skoruöu mörkin í fyrri hálfleik, en
Lopes skoraöi í síðari hálfleik.
Tékkneska liöið lék vel í síðari hálf-
ar Jacobs fyrir Hamborg. Alvarez
jafnaði fjórum mínútum síöar.
Thomas Von Hessen skoraöi svo
sigurmark Hamborg sex mínútum
fyrir leikslok.
leik og átti þá mörg góö tækifæri
en tókst aðeins aö nýta eitt þeirra.
Áhorfendur voru 40.000.
í Búkarest léku Craiova og
Benfica. Skildu liöin jöfn, 1 — 1.
Craiova haföi yfir i hálfleik, 1—0.
En Benfica tókst að jafna metin í
þeim síðari og tryggja sig þannig í
úrslitaleikinn, þar sem fyrri leik lið-
anna í Portúgal lauk meö marka-
lausu jafntefli, 0—0. Þaö var því
nóg fyrir Benfica aö skora eitt
mark á útivelii. Leikur liöanna var
mjög harður, 66.000 áhorfendur
sáu leikinn.
UEFA-keppnin:
Anderlecht og
Benfica mætast
sérverslun Reiðhjólaverslunin
í meira en
hálfa óld
/aa i———.
ORNINNl
Spítalastíg 8 vióÓóinstorg símar. 14661,26888
EFTIRÁR
ÍMIKLUÚRVMjI
IDÁRAÁBYRGÐ
Á SMLI.
ÍÁRSÁBYRGÐ
Á CUUCEHI
HcJðL
ÍSÉRÍLCKKI.