Morgunblaðið - 19.01.1984, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
15. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fundu 4,5
tonn af hassi
Amsterdam, 18. janúar. AP.
TOLLVERÐIR fundu fyrir skömmu
4,5 tonn af hassi í vöniskemmu í
Amsterdam í Hollandi, að því er
lögregluyfirvöld hermdu í gær. Er
hlassið metið á 25 milljón gyllini,
sem eru 7,9 milljónir doilara.
Fimm manns voru þegar hand-
teknir, allt Hollendingar, og tveir
þeirra „gamlir kunningjar" lög-
reglunnar, einkum vegna fíkni-
efnasölu. Hassið var geymt í 40
tunnum, en lögreglan veit eigi enn
hvaðan efnið er komið.
Geir Hallgrímsson utanrfkisráðherra í samtali við Mbl. í gærkvöldi:
í sátt?
Hygg að dragi senn til
vidrædna risaveldanna
„SCHULTZ VAR sáttfúsari, á því var enginn vafi, hann var opnari fyrir
hugmyndum og viðræðum, en Gromyko var harður. Hann fiutti gamaldags
ræðu þar sem hann vitnaði í utanrikisstefnu Leníns. Það er spurning hvort
hann hafi talið sig verða að sýna hörkuna sex áður en hann settist að
viðræðuborðinu með Schultz og þá hvort orð hans hafi verið alvarlega meint
og að það verði bið á því að Bandaríkin og Sovétríkin taki upp að nýju
viðræður um afvopnun. Þó held ég að slíkur þrýstingur sé á báðum risaveldun-
um, og þá sérstakiega Sovétríkjunum, að það dragi innan tíðar til viðræðna
þeirra í milli,“ sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra í samtali við Mbl. í
gærkvöldi. Geir situr öryggismálaráðstefnuna í Stokkhólmi og í gær var hann
fundarstjóri.
Geir ræddi um ræður þeirra
George Schultz og Andrei Grom-
yko, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna, en fundur
þeirra í gær stóð yfir i 5 klukku-
stundir. Geir sagði ræðu Sovét-
mannsins jafnframt hafa verið af-
ar harðorða og ósanngjarna, „en ég
hygg að menn taki slíkri ræðu með
yfirvegaðri ró,“ sagði Geir.
Utanríkisráðherrar Atlants-
hafsbandalagsríkjanna hittust i
franska sendiráðinu á mánu-
dagskvöldið. „Þar var ákveðið að
leggja sameiginlega tillögu fram á
framhaldsráðstefnunni. Tillagan
felur í sér hugmyndir sem stuðla
myndu að gagnkvæmu og auknu
trausti í Evrópu, svo sem upplýs-
ingaskipti, meðal annars um her-
flutninga og heræfingar hvers
konar. Einnig leiðir til að koma i
veg fyrir misskilning, ótímabær
úrræði og skyndiárásir svo eitt-
Geir Hallgrímsson, lengst til vinstri, í hlutverki fundarstjóra í Stokk-
hólmi í gær. Við hlið hans situr Benedikt Gröndal og lengst til hægri
Níels P. Sigurðsson. Simamynd-AP.
hvað sé nefnt," sagði Geir. Hann og mikilvægi þess að austur og
sagði einnig að almennt hefði verið vestur byrjuðu aftur viðræður um
rætt um hlutverk ráðstefnunnar gagnkvæma afvopnun.
('asablanca, Vlarokkó, 18. janúar. AP.
Á RÁÐSTEFNU samtaka mú-
hameöstrúarríkja sem haldin er
í Casablanca um þessar mundir
var samþykkt í gærkvöldi að
bjóða Egyptalandi sæti að nýju.
Egyptar eru í hópi stofnaðila
samtaka múhameðstrúarríkja,
en fyrir þremur árum var þeim
vísað úr sæti sínu vegna frið-
mælinga þeirra við ísrael.
Samþykktin var þó gerð
með þeim skilmálum að
Egyptar styddu allar ákvarð-
anir samtakanna síðan 1981
og að þeir lýsi yfir að þeir
virði ekki lengur Camp
David-samkomulagið sem var
kveikjan að því að þeir voru
reknir úr samtökunum. Full-
trúar Líbýu og Sýrlands
kröfðust þess að Egyptar
segðu upp friði við ísrael, en
það var ekki samþykkt af
ráðstefnunni allri.
lyf lofar góðu
heilablóðfalli
það hafi verið uppgötvað fyrst
1976 er það aðeins nýlega sem far-
ið er að rannsaka kosti þess til
hlítar. Þeir sem fyrstir uppgötv-
uðu efnið á sínum tíma fengu fyrir
það Nóbelsverðlaun. Segja má að
það sé enn á tilraunastiginu, en
læknar sem rannsakað hafa lyfið
segja fjóra af átta sjúklingum sem
þeir hafa gefið lyfið hafa fengið
verulegan bata. Einn var alger-
lega lamaður hægra megin og gat
ekki talað. Fáeinum mínútum eft-
ir að hann tók inn lyfið fékk hann
bæði máttinn og málið.
Prostacyclin er frumefni sem
myndast í æðaveggjum og hjálpar
til við að koma í veg fyrir stíflur.
Kemur efnið í veg fyrir að blóð-
frumur sem kallast platelets setj-
ist á æðaveggina og stífli bióð-
streymið.
Egyptar
teknir
Símamynd-AP.
Gromyko til vinstri og Schultz til hægri, hvor andspænis öðrum fremst á myndinni. Einnig eru á myndinni ónefndir aðstoóarmenn ráðherranna.
Schultz og Gromyko á
5 klukkustunda fundi
Stokkhólmur, 18. janúar. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, þeir George P.
Schultz og Andrei Gromyko áttu saman fimm kiukkustunda langan fund í
sovéska sendiráðinu í Stokkhólmi í gær. í fundarlok sögðu embættismenn, að
heldur hefði andað köldu á fundinum, en á hinn bóginn hefðu viðræðurnar
verið gagnlegar. Lengd þeirra þótti einnig lofa góðu, því fáum klukkustundum
áður hafði Gromyko haldið langa og harðorða ræðu á öryggismálaráðstefnunni
í borginni og vegið í orðum mjög að Reagan Bandarikjaforseta og utanríkis-
stefnu hans.
Ráðherrarnir sögðu ekkert í
fundarlok, en á hinn bóginn sagði
bandarískur embættismaður að í
samtali sínu hefðu þeir Shultz og
Gromyko komið víða við. Sam-
þykktir hefðu reyndar engar orðið,
en báðir aðilar skildu hvor annan
nú betur og gerðu sér ljósari grein
hvor fyrir sjónarhóli annars.
Ræða Gromykos fyrr um daginn
var harðorð og hinn mesti reiðilest-
ur yfir Ronald Reagan og stefnu
hans. Sagði Gromyko, að „heims-
friðnum stafaði mest hætta af
utanríkisstefnu Bandaríkjanna“,
bandarískir ráðamenn gerðu
„brjálæðislegar áætlanir um kjarn-
orkustríð" og fleira í sama dúr.
Ráðstefnufulltrúar hlýddu á
ræðu Gromyko og ræddu um hana
hver við annan. Ýmsir töldu sig sjá
ljósa punkta, svo sem er ráðherr-
ann sagði: „Sovétmenn hafa alltaf
boðað stjórnmálaleg samskipti og
viðræður milli austurs og vesturs
og hafa síður en svo í hyggju að
víkja af þeirri braut." Þá kom hann
með ýmsar uppástungur sem stuðl-
að gætu að minnkandi spennu milli
risaveldanna.
Nýtt
gegn
St Pétureborg, Florida, 18. janúar. AP.
NÝTT LYF sem læknar hafa gert
tilraunir með að undanfornu gefur
heilablóðfalls- og kransæðasjúkling-
um nýja von um bata. Er það eink-
um lömunin sem sjúkdómnum fylgir
Ráðstefnunni í Stokkhólmi verð-
ur fram haldið í dag og þá er meðal
annarra á mælendaskrá Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra ís-
lands.
sem lyfið vinnur gegn. Skilyrði er þó
enn sem komið er, að sjúklingarnir
fái lyfið innan sólarhrings frá því að
þeir fengu slag.
Lyfið heitir prostacyclin og þó