Morgunblaðið - 19.01.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
23
Nauðlending þotu
Air France:
Sprakk edik-
flaska um borð?
Islamahad, Pakistan. 18. janúar. AI*.
TALIÐ er að Iftil flaska af eldfimu
ediki hafi sprungið með þeim af-
leiðingum aö júmbóþota franska
flugfélagsins Air France varð að
nauðlcnda í Karachi skömmu eftir
brottför þaðan í morgun. Um borð í
þotunni voru 261 farþegi og 15
manna áhöfn. Einn farþeganna
meiddist lítiisháttar í lendingunni.
Sprengingin var sögð „smá-
vægileg" en nóg til þess að göt
komu á skrokk vélarinnar og
lendingarbúnaður laskaðist lítil-
lega. Við það fór jafnþrýstingur
af farþegaklefa. Nær útilokað er
talið að um skemmdarverk hafi
verið að ræða og beinist grunur
að ediksflösku sem var í tösku
eins Pakistana, sem kom um borð
í Karachi, en þotan var i áætlun-
arflugi frá Maníla á Filippseyjum
til Parísar. Óljóst er með hvaða
hætti ediksflaskan sprakk.
Þegar sprengingin átti sér stað
var þotan í 18 þúsund feta hæð í
brottflugi frá Karachi áleiðis til
Dhahran í Saudi-Arabíu þar sem
millilenda átti á leiðinni til Par-
ísar. Flugmennirnir gerðu flug-
turninum í Karachi viðvart þegar
í stað, sneru til baka og óskuðu
eftir heimild til nauðlendingar
þar. Lent var í Karachi hálftíma
eftir flugtak þaðan.
Veður
víða um heim
Akureyri +11 heióskírt
Amsterdam 6 skýjaó
Aþena 15 heióskírt
Barcelona 9 alskýjaö
Berlín 5 skýjaó
Brdssel 5 heíöskírt
Buenos Aires 34 heióskirt
Chtcago +11 skýjaö
Dublin 4 rigning
Frankturt 8 skýjað
Genf 9 skýjað
Havana 30 skýjaó
Helsinkí 1 skýjaó
Hong Kong 18 skýjaó
Jerúsalem 5 skýjaó
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Lissabon
London
Los Angetes
Malaga
Mallorca
Mexíkóborg
Miami
Montreal
Moskva
New York
París
Peking
Reykjavík
Ríó de Janeiró
Róm
San Francisco
Seoul
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
Varsjá
29 heióskirt
16 skýjaó
5 snjókoma
14 skýjaó
6 heiðskírt
19 heióskfrt
16 heióskírt
15 hálfskýjað
23 heióskírt
25 skýjaó
+10 snjókoma
+3 skýjaó
0 skýjaó
7 heióskírt
+3 heiðskírt
+11 léttskýjað
41 heióskirt
13 skýjað
14 heióskfrt
+5 skýjaó
1 skýjaó
24 heióskírt
7 heiöskírt
4 heióskírt
4 skýjað
3 skýjaó
Segjast bera ábyrgð
á morðinu á Kerr
Beirút, 18. janúar. AP.
MALCOLM H. Kerr, rektor
bandaríska háskólans í Beirút, var
skotinn til bana fyrir utan skrif-
stofu hans í Beirút í dag. Um fjór-
um klukkustundum eftir morðið
hringdi maður nokkur í skrifstofu
frönsku fréttastofunnar AFP í
borginni og sagði, að „Jihad
Islami" eða „Hið heilaga stríð
lslams“ bæri ábyrgð á morðinu.
Þá sagði maðurinn, sem ekki vildi
segja á sér deili, aö þessi sama
hreyfing bæri ábyrgð á mannrán-
inu í Beirút á þriöjudag, er ræð-
ismanni Saudi-Arabíu þar var
rænt. Jihad Islami lýsti á sínum
tíma ábyrgð á hendur sér vegna
hryðjuverka þeirra, sem framin
voru 23. október sl„ er 241 Banda-
ríkjamaður og 58 Frakkar fórust í
sprengingum í Beirút.
Kerr var 52 ára að aldri og
hafði lagt sig fram við að halda
frið innan veggja háskóla síns
Malcolm Kerr, rektor bandaríska
háskólans í Beirút. Hann var skot-
inn til bana í gær á háskólalóöinni
og hafa samtökin „Jihad Islami"
eða „Hið heilaga stríð íslams" lýst
yfir ábyrgð sinni á morðinu.
milli stúdenta þar, en margir
þeirra tilheyra hinum stríðandi
fylkingum í Líbanon. Hafði Kerr
tekizt það vel, svo að lengi var
litið á bandariska háskólasvæðið
sem eitt af fáum öruggum svæð-
um í Beirút.
Til þess að koma eftir mætti í
veg fyrir ofbeldisaðgerðir hafði
Kerr látið alla stúdenta, sem.
innrituðust í háskólann, undir-
rita loforð um, að þeir skyldu
ekki taka þátt í stjörnmála-
starfsemi í háskólanum. Honum
tókst þó ekki að koma í veg fyrir
mótmælaaðgerðir sl. haust, sem
urðu til þess, að fresta varð
haustönn háskólans. Að undan-
förnu hafa átt sér stað mót-
mælaaðgerðir að minnsta kosti
tvisvar í viku á háskólalóðinni
og voru herskáustu stúdentarnir
þar stuðningsmenn shiita.
Norðmenn reiðubúnir
að hætta hvalveiðum
Osló 18. janúar. Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Mbl.
MARGT bendir til að Norðmenn
séu í þann mund að láta undan
utanaðkomandi þrýstingi og hefnd-
Rússar hafa farið ófarir
— segir Weinberger um stríðið í Afganistan
London, 18. ianúar ~
„SOVÉTRIKIN
eru að tapa stríðinu
gegn skæruliöum múhameðstrúar-
manna í Afganistan og hafa því orð-
ið fyrir skakkaföllum í þeirri við-
leitni sinni að komast yfir olíulind-
irnar í Miðausturlöndum," var haft
eftir Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, í við-
tali við brezka vikuritið Jane’s
Defense í dag.
Weinberger sagði ennfremur í
þessu viðtali, að Sovétríkin hefðu
orðið fyrir „mjög miklu mann-
tjóni“ í stríðinu og að þetta væri
farið að segja til sín „í Sovétríkj-
unum sjálfum". Nú væri svo kom-
ið, að Rússar réðu yfir „minna
landsvæði í Afganistan en þegar
þeir sendu her sinn inn í landið".
Taldi Weinberger, að Rússar
hefðu farið alvarlegar hernaðar-
legar ófarir í Afganistan og hefðu
nú ekki tiltæka neina hernaðar-
áætlun þar, sem skynsemi væri í.
araðgerðum Greenpeace-samtak-
anna og hætta hvalveiðum frá og
með árinu 1987. Yfirvöld munu nú
jafnframt reiðubúin að afsala sér
rétti sínum til að hafa fyrirvara á
hvalveiðibanni Alþjóðahvalveiði-
ráðsins.
Þetta kemur fram í vinnu-tel-
exi, sem utanríkisráðuneytið í
Washington sendi sendiráðum
Bandaríkjanna í Osló og „höfuð-
borgum annarra hvalveiðiríkja" í
desember sl. en innihaldi þess
hefur verið lekið til norskra
blaða.
Telexið er byggt á samtölum
bandarískra og norskra embætt-
ismanna, og þar kemur fram að
Norðmenn hefðu sagst tilbúnir að
hætta hvalveiðum í gróðaskyni.
Jafnframt hefðu þeir viljað und-
anskilja hefðbundnar hvalveiðar
sem stundaðar væru til lífsvið-
urværis, þar sem þeir einir gætu
stundað veiðarnar sem hefðu
meira en helming tekna sinna af
veiðunum. Bátar sem notaðir
yrðu til veiðanna yrðu að vera
smáir og lúta formennsku eig-
anda. Engar hvalafurðir yrðu
fluttar út.
Á þennan hátt vonast Norð-
menn til að geta haldið áfram
takmörkuðum hvalveiðum eftir
1986, því ella má búast við að
ýmsar byggðir á strandlengjunni
hreinlega fari í eyði, segir í telex-
inu.
Getum boöiö nokkra Toyota Tercel og Camry
á mjög hagstæðu verði,
vegna yfirtöku á sendingu. Komið og skoðið sýningarbílana.
Hjá Toyota eru: Gæðin meiri — Afföllin minni og endursalan betri.
CAMRY TERŒL
FRAMHJÓLADRIFNIR TOYOTA BÍLAR
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI8
KÓPAVOGI
SÍMI44144