Morgunblaðið - 19.01.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
17
Svar landlæknis við fyrirspurn
lögmanns Hundaræktarfélagsins
Hér á eftir kemur í heild svar
landlKknis við fyrirspurn lögmanns
Hundaræktarfélagsins, Haraldar
Blöndal, um hvaða sóttir hundar geti
borið í menn. Tilefni fyrirspurnar-
innar var greinargerð sem Hollustu-
vernd ríkisins sendi frá sér og um-
mæli forstöðumanns Hollustuvernd-
arinnar, Þórhallar Halldórssonar, í
Morgunblaðinu í framhaldi af henni
9. nóv. síðastliðinn.
Um svar landlæknis sagði Harald-
ur Blöndal í samtali við Morgun-
blaðið: „Ég vil ekkert frekar segja
um þetta, skjölin tala sínu máli og
það verður sérhver að dæma fyrir
sjáifan sig.“
Hollustuvemd ríkisins:
b. Ormaveiki (Ancylostoma og
Uncinaria).
Engin þessara tegunda hefur
fundist í hundum hér á landi og
eru taldar litlar líkur á að þær
geti fundist.
3. Hundafár.
í fréttum frá Hollustuvernd gætir
þess misskilnings að nafnið á
Leptospirosis sé hundafár. Til eru
tvær tegundir hundafárs þ.e. lifr-
argula (Hepatitis contagiosa
canis) og hvolpapest (Canine
distemper). Hundafár smitar
ekki menn. Síðast var vart við
9. Camphylobacteriosis.
Þessi sjúkdómur er þekkt orsök
að lambaláti hér á landi. Nokk-
ur tilfelli af niðurgangi í mann-
fólki munu hafa verið rakin til
þessarar bakteríu nú nýlega.
Vitað er um tvö börn sem sýkst
hafa af hundum (annað alvar-
lega) hér á landi en fleiri frá
öðrum dýrum. (ó. Steingríms-
son, læknir).
lO.Listeriosis.
Listeriosis er aigengur í búfé en
hefur ekki fundist í hundum
Hundahald í þéttbýli óæskilegt frá
heilbrigðis- og hreinlætissjónarmiði
....... __ XX___ oxxrír uvn ellAsýkinuar ofn*mi
„HeiIbrigAiajfír.old em á mðii
handahjldi » þéctbýli, of 75—80%
íbéa rinnif wunkræmt nkoðann-
köt&nunnm, og ég tel ireiUr-
■tjórnniDonnam ekki *Uett á öðm
i tillit til þeflanrn aUb-
reynda,*4 »a«Ai Þórhalhir Holl-
dómnun, forstöðumnðnr hjá Holf
Mturemd ríkúnna í rnmUli rió
bUAnmxnn MorfnnbUAmmn I per.
— TUefniA rnr md HothwUrernd
aendi nýlefi ýmaum aðthtm freia-
arferó nm hnndahald, þnr nera
æfir *A hnndahald í þéttbýU teljint
ómkileft frá hreinlælia- og bed-
brigAiasjónarmiói.
.Það er mitt mat að reynslan
sýni að það sé tóm blekking að
hægt sé að leyfa takmarkaö
hundahald í þéttbýli* sagöi
Þórhallur ennfremur. .Og mtð
þvi að framfylgja ekki settum
reglum er verið að ýta undir
virðingarleysi fyrir gilfiandi lög-
um, auk þesa sem hundahaid er
oft orsúk illvígra nigranna-
deilna.*
1 bréfi Hollustuverndar, sem
áður er sagt fra. segir svo meðal
annars.
.Það er skoðun stofnunarinn-
ar að hundahald i þéttbýli sé
óaeskilegt, frá heilbrigöis- og
hreinljetissjónarmiði. Hunda-
hald veldur iðu ega sóðaskap og
ónaeði, auk þess sem það getur
verið siysavaidur. orsakað sýk-
ing*i, t d. sullaveiki. ormaveiki
\ spoluormar, hakaormar*.
hundaíár (leptoepirooinl,
eiturdoppusótt (toxoplasmosisl,
hringkyrfi, hundajeði. salmon^
ellasýkingar <»g ofnaemi -»em I
reynst hefur . axandi vanúamal. I
einkum n.eðai o*rna L
Reynsla »**rra sveitarfélaira |
sera leyft iafa *akma-xaó f
hundahuid er tiiou miS)OÍn. • iA* i
aat hefur **ka. 'eníat aó
heiðri settar "»«iur «
hunua hefur .mA vaaann: r»'
jerti reynsia anr.ar**^ 2)*** ‘
hundahaidi i aó vera -u |
til vamaðar fvr.r oaJiur .aiecd-
inga og nvati ai forvamar
starfa”
Lokaorð:
Enginn vafi leikur á að hundar
geta borið sjúkdóma í fólk. Eftir
að sullaveiki í mannfólki var út-
rýmt hefur ekki borið á lífshættu-
legum sýkingum í mannfólki hér á
landi. En nauðsynlegt er að vera á
verði og hafa gott eftirlit með
hundum.
Niðurlagsorð:
Við þessa samantekt hef ég
stuðst við álit eftirfarandi: Davíðs
Gíslasonar sérfræðings í ofnæm-
issjúkdómum, Vífilsstöðum;
Þrastar Laxdal, yfirlæknis,
Landakoti; Sigurðar Richter, sér-
fræðings í ormasjúkdómum, Keld-
um; Brynjólfs Sandholt, héraðs-
dýralæknis, Keldum; Eggerts
Gunnarssonar, dýralæknis, Keld-
um; Guðna Alfreðssonar, dósents,
Háskóla íslands; Sigurðar Sig-
urðssonar, dýralæknis, Keldum;
Ólafs Steingrímssonar, læknis,
Rannsóknastofu Háskólans; Páls
A. Pálssonar, yfirdýralæknis.
Ólafur Olafsson,
landlæknir.
Viðtalið sem birtist við Þórhall Halldórsson, forstöðumann Hollustuverndarinnar, í Morgunblaðinu 9. nóvember á
síðastliðnu ári.
Hr. lögmaður,
Vegna fyrirspurnar yðar um
hvaða sóttir hundar geta borið í
menn skal eftirfarandi tekið fram:
1. Sullaveiki.
a. Echinococcus granulosus:
Þessi sullur getur smitað menn.
Á árunum fyrir og eftir 1960
var talið að sullur væri horfinn
úr landinu. Síðan fundust sullir
á Austurlandi nær árlega fram
til 1979, en eftir það hafa þeir
ekki fundist.
b. Tenia ovis:
Á síðasta ári fannst framan-
greindur sullur í kindakjöti í
Húnavatnssýslu. Þessi tegund
getur borist með hundum.
Nýlega smitaðir sullir hafa
ekki fundist í mönnum í mörg
ár. Síðasta dauðsfallið var kona
er lést árið 1961 (Bjarni Jóns-
son, Læknablaðið 1962). Brýnt
er að vera á verði gegn sulla-
veiki.
2. Ormaveiki.
a. Spóluormar (Toxocara canis).
Hér mun vera átt við þráð-
ormategundina. Ormar þessir
eru algengir í hundum hér á
landi, en engin marktæk úttekt
hefur verið gerð á tíðni þeirra
hér. Aldrei verið staðfest smit í
mönnum hér á landi.
Egg spóluormanna berast út
með saur hundsins. Berist þau
ofan í menn, geta smáar lirfur
úr þeim farið á flakk í líkaman-
um. Talið er að í langflestum
tilvikum verði menn þess ekki
varir, eða að einkenni sýkingar
séu væg.
Sýkingarhætta er lítil vegna
beinnar snertingar við hund-
inn, heldur er hún mest í
hundaskítsmenguðu umhverfi
vegna þess að það tekur eggin
nokkrar vikur að verða smit-
hæf fyrir menn. Lítið er um að
fullorðnir hundar séu með
verpandi orma í sér, heldur eru
það einkum hvolpar á aldrinum
1—6 mánaða.
Með góðri og skipulagðri
hundahreinsun er auðvelt að
koma í veg fyrir að hundar
valdi smiti. Því miður hefur
hundahreinsun farið úr skorð-
hundafár hér á landi fyrir
10—15 árum.
4. Leptospirosis.
Leptospirosis hefur fundist í
rottum og nokkrum sinnum í
öðrum dýrum þ.ám. í köttum.
B. Sandholt, dýralæknir, telur
sig hafa fundið veikina í hund-
um einstöku sinnum og sýking-
in hefur verið staðfest á rann-
sóknastofum. Ekki hefur fund-
ist Lepotospirosis-sýking í
mönnum með vissu.
5. Eiturdoppusótt (toxoplasmosis).
Hér gætir greinilega misskiln-
ings. Eiturdoppusótt fá menn
líklega fyrst og fremst af um-
gengni við ketti, en í saur dýra
af kattaættinni finnast systur
þessa einfrumungs. Einnig er
talið að menn geti sýkst af því
að éta eða handleika hrátt kjöt
af sýktum dýrum, en flest hús-
dýr geta sýkst. Hugsanlega
væri því hægt að fá toxoplasm-
osis með því að éta hrátt
hundakjöt, en þann möguleika
tel ég of fjarlægan.
6. Hringskyrfí.
Aldrei hefur verið staðfest að
hringskyrfi hafi fundist í hund-
um hér á landi (B. Sandholt, S.
Richter).
Eina dæmið um hringskyrfi
sem vitað er um var í nautgrip-
um og mönnum í Eyjafirði fyrir
10 árum. Páll A. Pálsson telur
að sveppur þessi hafi fundist í
hundum hér á landi.
7. Hundaæói.
Hundaæði er ekki til hér á
landi. Líkur eru á að hundaæði
hafi borist hingað til lands 1975
(Dýralæknaritið 1980).
8. Salmonella.
Samkvæmt upplýsingum
Guðna Alfreðssonar dósents
hefur salmonella ekki fundist í
hundum hér á landi — og sýk-
ingar í mönnum hefur ekki ver-
ið unnt að rekja til hunda. Vit-
að er að salmonella finnst í
dýraríki hér á landi t.d. í mús-
um, rottum og máfum og þess
vegna er rétt að gera ráð fyrir
að svo geti eins verið um hunda.
hér á landi. Erlendis hefur sýk-
ing í hundum verið staðfest.
11. Berklar.
Berklar hafa aldrei fundist í
hundum, en grunur leikur á að
eitt tilfelli hafi fundist 1979.
12. Ofnæmi.
Ofnæmi af húsdýrum á íslandi
valda kettir oftast en þar næst
hestar. Læknarnir Davíð Gísla-
son og Þröstur Laxdal hafa
báðir greint „hundaofnæmi* 1
börnum. Davíð Gíslason telur
að 2—3% einstaklinga á fslandi
myndi ofnæmi fyrir hundum.
Hitablásarar
fyrir gas
ogolíu
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
WRANCLER
JEPPADEKK
Fullkomin
hjólbarðaþjónusta
Tölvustýrð
jafnvægisstilling
hheklahf
Laugavegi 170-172 StrrM 21240
GOODWYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
MARLIN-TOG
LÍNUEFNI
BLÝ-TEINATÓG
FLOtTEINN
NÆLON-TÓG
LANDFESTAR
STÁLVÍR
alls konar
BAUJUSTENGUR
ÁL, BAMBUS, PLAST
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
ENDURSKINSBORÐAR
LÍNUBELGIR
NETABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
MÖRE-
NETAHRINGIR
NETAKEÐJA
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
LÓÐADREKAR
BAUJUFLOGG
NETAFLÖGG
FISKKÖRFUR
FISKGOGGAR
FISKSTINGIR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
KÚLUHNÍFAR
SVEDJUR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
í KASSA, OG LAUSIR
RAFMAGNS-HVERFISTEINAR
•
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
KLAKASKÖFUR
FÓTREIPISKEÐJUR
3/8“, 1/2“, 5/8“
TROLLLÁSAR
DURCO PATENTLASAR
3/8“, 1/2“, 5/8“, 3/4“
VIH- OG
BOLT AKLIPPUR
GUMMISLONGUR
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MED
OG ÁN INNLEGGS
SLÖNGUKLEMMUR
VÉLATVISTUR
Í 25 KG BÖLLUM
HVÍTUR OG MISL.
* Y
1«
'á’v
Ananaustum
Sími28855
Opið laugardaga
kl 9—12.