Morgunblaðið - 19.01.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
Laugavégi 17
Fyrir
fuilorðna
Buxur frá 150 kr.
Peysur frá 195 kr.
Skyrtur frá 195 kr.
Joggingallar frá 525 kr.
Don Cano-úlpur frá
795 kr.
Kuldaúlpur frá 895 kr.
T-bolir frá 150 kr.
Háskólabolir frá 195 kr.
Dömusamfestingar frá
1195 kr
Sheltlandullarpeysur
frá 495 kr.
Fyrir
börn
Buxur frá 150 kr.
T-bolir frá 95 kr.
Peysur frá 195 kr.
Stakkar frá 185 kr.
Jogginggallar frá
395 kr.
Samfestingar frá
695 kr.
ÍJ6SSSS
iSSLSSS. 1.490.-
VEBO SAMTALSJCR
OLATAGARÐUR
I Olátagarði höfum viö barnagæslu, myndsögubækur, litabæk-
ur, myndsegulband og síöast en ekki síst kafbátinn sem allir
krakkar hafa gaman af.
KLEINUKOT
í Kleinukoti bjóöum við upp á ókeypis kaffi og kleinur handa
gestum okkar. Partnerútsalan er fyrir alla fjölskylduna.
Opið til kl. 22 í kvöld.
Opið til kl. 22 föstudag.
Opið frá kl. 9—19 laugardag.
-rTN€« e *
• Verksmiðjuútsalan
Armúla 17, sími 13919.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir MORT ROSENBLUM
(
I
I
M
Gyðingar mótmæla banni við að fá að flytjast frá Sovétríkjunum til ísraels. Mjnd þessi er tekin fyrir utan
innanríkisráðuneytið í Moskvu. Á skiltunum stendur: „Leyfið okkur að fara til Israel.“ „Vegabréfsáritanir til
fsraels í staðinn fyrir fangelsi."
Gyðingar í A-Evrópu
„HAFIR ÞÚ ÁHUGA á að tala við pólska gyðinga, þá cr eins gott að gera
það strax, því að við erum á hraðri leið með að deyja út.“ Það er Josef Herzl,
37 ára gamall verkfrsðingur af gyðingaættum, sem kvæntur er rómversk-
kaþólskri konu, er kemst þannig að orði. Óhætt er að segja, að hann tali
fyrir munn gyðinga alls staðar í Austur-Evrópu, því að leyfar þeirra gyð-
ingabyggða, sem lifðu hörmungar nazista af, fara enn minnkandi, eftir því
sem gamla fólkið deyr en unga fólkið snýr baki við trúnni. Þannig búa í
Póllandi nú vart fleiri en 6.000 gyðingar, en þeir voru um 3 milljónir 1939.
I Sovétríkjunum hefur að nýju
verið lagt bann við brottflutningi
gyðinga til ísraels, sem haft hefur
í för með sér, að fjöldi sovézkra
gyðinga hefur haldizt nær
óbreyttur um nokkurt skeið og er
nú um 2 millj. En nú eru farnar
að berast fréttir af því, að í Sov-
étríkjunum gangi yfir alda heift-
arlegs gyðingahaturs, sem hið
opinbera jafnt sem einstaklingar
standi að.
Margir þeirra 6 millj. evrópskra
gyðinga, sem létu lífið í útrým-
ingarbúðum Hitlers, voru börn,
sem — hefðu þau lifað — myndu
nú geta átt von á barnabörnum
sínum. Eftir heimsstyrjöldina síð-
ari flúði svo fjöldi þeirra gyðinga,
sem lifðu dvölina í útrýmingar-
búðunum af, til Israels, Banda-
ríkjanna og fleiri landa.
„Ég kvæntist kaþólskri konu og
því eru börn okkar ekki gyðinga-
trúar," segir Josef Herzl, sem get-
ið var hér í upphafi og búsettur er
í Krakow. „Frá árinu 1968 geta
ungir gyðingar varla fundið sér
maka sín á meðal. Flestir gyð-
ingar hér eru orðnir gamlir og
deyja smám saman út. Þeir til-
heyra fortíðinni."
Fjöldi gyðinga fór frá Póllandi
1968, er alda gyðingahaturs gekk
yfir, sem rekja mátti til stjórn-
valda í landinu. „Gyðingar eru
enn notaðir sem blórabögglar,
þegaf það þykir henta," er haft
eftir vestrænum sérfræðingi í
Varsjá. „Fáum þeirra líður vel
hér.“
Gyðingahverfið í Varsjá var
jafnað við jörðu eftir stríð og nú-
tímalegar íbúðarblokkir og opin
svæði komu í staðinn. Dapurlegt
minnismerki um örlög gyðinga
stendur þar nú. Gyðingar í borg-
inni safnast þó saman til helgi-
halds í helgihúsi sínu á hverjum
laugardagsmorgni og lesa úr
helgiritum sínum. Bandarískir
gyðingar, sem heimsækja Varsjá,
koma þangað gjarnan. En svo
undarlegt sem það er þá er þarna
enginn gyðingaprestur (rabbí).
Alfred Bloch frá New Paltz í
New York-ríki, sem er háskóla-
kennari af pólskum og bandarísk-
um ættum, hefur tekizt að telja
pólsk stjórnvöld á að ljá aðstoð
sína við að skrá meira en 500.000
skjöl og handrit gyðinga frá fyrri
tímum, sem sum hver eru allt frá
miðöldum. „Það ætti að minnsta
kosti að vera unnt að gera sögu og
menningu gyðinga aðgengilegri
en verið hefur,“ segir Bloch.
Hér vantar gyðinga
f nágrannaríkinu Tékkóslóvak-
íu bendir öldruð kona ferðamann-
inum á þrjú snyrtileg bænahús
gyðinga og margra alda gömul
hús í gyðingahverfinu í Prag, sem
áður stóð með miklum blóma.
„Hér er allt,“ segir hún. „Það
vantar bara gyðinga." I landinu
búa nú innan við 10.000 gyðingar,
en voru eitt sinn 350.000. Og 90%
þeirra, sem eru á lífi, eru eldri en
60 ára. „Um 1.800 börn voru flutt
burt frá skólanum hérna,“ segir
hún ennfremur, „og aðeins 93
þeirra komu aftur".
Tvö af helgihúsum gyðinga í
Prag eru nú söfn, þar sem yfir
300.000 safngripir eru geymdir.
Þessum munum hafði Hitler látið
safna saman handa stofnun, sem
komið skyldi á fót til þess að
rannsaka þessa þjóð, er hann
hugðist útrýma.
I helgistund fyrir skömmu í
einu bænahúsanna í Prag sagði
Laszlo Salgo, æðsti prestur gyð-
inga í Ungverjalandi, sem þarna
var í heimsókn, þessi eftirminni-
legu orð: „Ef við höldum fast við
trú okkar, þá verður þetta guðs-
hús aldrei gert að safnhúsi." I
söfnuðinum, þar sem gamalt og
gráhært fólk var yfirgnæfandi,
mátti sjá ung andlit, sem kinkuðu
kolli til samþykkis orðum prests-
ins. Og þessi orð vekja vissulega
nokkra von. I Budapest er verið að
mennta 20 stúdenta frá löndum
Austur-Evrópu sem gyðinga-
presta, þar af einn frá Tékkóslóv-
akíu, tvo frá Sovétríkjunum en 10
frá Ungverjalandi.
Skást í Ungverjalandi
Ungverskir gyðingar sluppu
betur en aðrir gyðingar undan
nazistum í síðari heimsstyrjöld-
inni og borgarhverfi þeirra í
Budapest varðveittist að mestu
óskemmt. Samt eru aðeins 80—
100.000 gyðingar í Ungverjalandi
nú samanborið við 900.000 fyrir
stríð. Engu að síður eru gyðingar
í þessu landi virkir og tiltölulega
efnaðir, og reka þar sína eigin
skóla og menningarstofnanir.
Um helmingur þeirra 800.000
gyðinga, sem búsettir voru í Rúm-
eníu, voru drepnir í stríðinu. Sam-
kvæmt frásögn Moses Rosen, nú-
verandi æðsta prests gyðinga í
landinu, þá hefur honum tekizt að
semja við rúmensk stjórnvöld um,
að 380.000 þeirra gyðinga, sem
enn búa í landinu, fái að fara það-
an: „Nú fara allir þeir, sem vilja
fara,“ segir Rosen.
Leiðtogum Búlgaríu tókst einn-
ig að vernda verulegan hluta
þeirra gyðinga, sem þar voru bú-
settir, fyrir nazistum. Þó búa nú
aðeins 6.000 gyðingar þar í landi.
Alþjóðasamtök gyðinga hafa
lagt mikið af mörkum í því skyni
að styrkja fátæk byggðarlög gyð-
inga í Austur-Evrópu. Þannig
gefa samtökin UJA (United Jew-
ish Appeal) t.d. 70.000 máltíðir til
fátækra gyðinga í Póliandi og
reka nokkur sjúkrahús.
Leiðtogar gyðinga í Sovétríkj-
unum lýsa ástandinu þar sem
hörmulegu og að það fari versn-
andi. Fyrir nokkrum árum leyfðu
sovézk stjórnvöld gyðingum að
fara úr landi til Israels í talsverð-
um mæli. Þannig fóru 21.472 gyð-
ingar frá Sovétríkjunum 1980. En
skyndilega var alveg tekið fyrir
þessa brottflutninga, og mun
ástæðan hafa verið sú, að stjórn-
völdum fannst sem allt of margir
góðir menntamenn væru á meðal
útflytjendanna.
Uriðja flokks þegnar
„Við erum ekki annars flokks
þegnar heldur þriðja flokks," er
haft eftir virtum háskólamanni
úr hópi þeirra, sem neitað hefur
verið afdráttarlaust um vega-
bréfsáritun. „Gyðingahatur er
ekki bara. slæmt hér, það er
hræðilegt." „Þið vitið ekki, hvern-
ig ástandið er orðið,“ bætir kona
hans við. „Um daginn ýtti kona
mér til hliðar í neðanjarðarlest-
inni og sagði upp í opið geðið á
mér: „Eruð þið ekki allir farnir
enn?“ Börn eru hrædd við í skól-
unum að segja frá því, að þau séu
gyðingar. I sumum þorpum neita
kaupmenn að afgreiða gyðinga."
Þar sem margir gyðingar fara í
launkofa með trú sína, þá er jafn-
vel talið, að raunverulegur fjöldi
sovézkra gyðinga sé 3 milljónir.
Þeir leiðtogar gyðinga, sem fylgj-
ast bezt með hugsanagangi trú-
bræðra sinna, halda því fram, að
sennilega myndi einn þriðji til
helmingur þeirra flytja frá Sov-
étríkjunum, ef þeir fengju leyfi til
þess. Kona ein, sem lifir á eftir-
launum manns síns og einstaka
þýðingarverkefnum, sem til falla,
komst þannig að orði: „Við erum
föst í gildru. Astandið hér versnar
stöðugt og við viljum komast
burt. En það fáum við ekki.“
(Mort Rosenblum er frétlamaður við
fréttastofuna Associated Press og
hefur m. a. verið sérstakur frétta-
maður hennar í Póllandi og víðar í
A ustur-Evrópu).