Morgunblaðið - 19.01.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
Óbreyttir menn í
ríkisstjórn Nígeríu
Ijigos, IH. janúar. AP.
HKRKÁÐIi), sem fer með æðstu völd í Nígeríu, tilkynnti í dag myndun 18
manna ríkisstjórnar, sem í sitja 11 óbreyttir borgarar. Ráðherrarnir áttu að
sverja embættiseiða með kvöldinu, en ekki hefur verið skýrt frá hverjir skipa
einstakar ráðherrastöður að undanskildu því að Domat Bali hershöfðingi
verður varnarmálaráðherra og Chris Offodile, kunnur málaflutnin gsmaður,
verður dómsmálaráðherra og ríkissaksóknari.
Mohammed Buhari hershöfð-
ingi og leiðtogi Nígeríu sagði í dag
að fyrr yrði ekki hugsað út í að
endurreisa lýðræði í landinu fyrr
en tekist hefði að koma efna-
hagsmálum landsins í gott horf.
Buhari sagði því of snemmt að
tímasetja hvenær hafizt yrði
handa. Kvað hann að þjóðinni yrði
látið eftir að velja það stjórnar-
form sem hún helst kysi, þegar
þar að kæmi. Kvaðst Buhari ekk-
ert hafa á móti lýðræði eins og því
sem hann tók þátt í að kollvarpa í
heimalandinu um áramótin.
Vandamálið hefði verið mennirnir
sem valizt hefðu til að fram-
kvæma það og sú aðferð sem þeir
hefðu beitt við framkvæmdina.
Kiessling sagður hafa
verið hættulegur öryggi
Konn, IK. janúar. Al*.
(HINTKR Kiessling hershöfóingi og
na'óslæðsli maður í höfuóstöðvum
herafla AtlanLshafsbandalagsins var
sagt upp störfum vegna þess aó hann
var tíóur gcstur á hommaslóóum, aó
því er Manfred Wörner varnarmála-
ráóherra sagói á fundi með varnar-
málanefnd þingsins.
„Ráðherrann hefur engar sann-
anir um að Kiessling sé hommi.
Víetnamskir
hermenn ögruðu
bændum í Kína
Tóltýó, IH. janúar. Al*.
Kínverskir hermenn í suóur-
héraóinu Vunnan við víetnömsku
landamærin fclldu sjö víet-
namska hermenn, sem ögruóu
kínverskum bændum meó vopn-
um, aó sögn útvarpsins í l’eking.
f útsendingu Pekingútvarps-
ins, sem heyrðist í Tókýó, sagði
að niu víetnamskir hermenn
hefðu farið inn í Funingsýslu í
Yunnan að morgni 14. janúar
og hafið skothríð á kínverska
bændur, sem þar voru við ak-
uryrkju.
Sagði útvarpið kínverska
landamæraverði, scm staddir
voru á þessum slóðum, hafa
hraðað sér á vettvang er þeir
heyrðu skothvelli og fellt sjö
víetnömsku hermannanna, en
tveir hefðu komizt undan.
Kiessling
En hátterni hans stofnaði öryggi í
hættu, það hefur ávallt verið talið
varða við öryggi ef menn gera tíð-
reist á hommaslóðir," sagði Mark-
us Berger þingmaður við blaða-
menn að loknum þingnefndar-
fundinum.
Wörner ákvað að leysa Kiessl-
ing, sem var fjögurra stjörnu
hershöfðingi, frá störfum eftir að
leyniþjónusta hersins hafði sagt
hann vera hættulegan öryggi.
Neitaði Wörner að Bernard Rog-
ers yfirmaður herafla NATO hefði
átt hlut að máli. Kiessling kom
næstur Rogers að völdum í aðal-
stöðvum herafla NATO, og segja
vestur-þýzk blöð að þeim hafi
samið illa. Hafi Kiessling reyndar
óskað eftir því áður en hneyksl-
ismálið varð opinbert að verða
leystur undan störfum hjá NATO
vegna ósamkomulags þeirra Rog-
ers. ^
Kiessling segist hafa fengið það
skriflegt frá Wörner að hann hafi
verið leystur frá störfum vegna
samskipta sinna við homma. Hef-
ur Kiessling í viðtölum við vest-
ur-þýzk blöð vísað því á bug að
hann væri hommi.
Eftir fund þingnefndarinnar
sögðu fulltrúar Jafnaðarmanna-
flokksins skýringu Wörners á upp-
sögn Kiesslings ófullnægjandi.
Kemur varnarmálanefnd þingsins
saman að nýju á morgun til að
fjalla um málið og er fastiega bú-
izt við að sett verði á laggirnar
sérstök rannsóknarnefnd til að
kanna mál Kiesslings til hlítar.
Risaskjaldbakan „Luchy" liggur glaóvakandi á „skuröboröinu" eftir að
læknar festu á hana nýja gervihreifa eftir aö hákarl hafði bitið fram-
hreifana af henni. simamynd ap
Saumuðu gervihreifa
á risaskjaldbökuna
Ulamorada, Klorida. 18. janúar. AP.
SKORÐLÆKNAK unnu í gær þaó afrek, að sauma tvo gerviframhreifa á 160
kg þunga risaskjaldböku sem hákarl haföi ráðist á. Beit hákarlinn hreyfana
af skjaldbökunni, en fískimenn björguöu henni nær dauða en lífí úr há-
karlskjaftinum á síðustu stundu.
Það voru Patrick Barry og
Vestur-Þjóðverjinn Jurgen Toft,
sem kom gagngert til Florida frá
Remscheid til að aðstoða við að-
gerðina, sem sáu um aðgerðina.
„Mér líður vel núna,“ sagði Barry
og útskýrði svo hvernig gert var að
sárum skjaldbokunar. Fengnir
voru gúmihreyfar á stálfæti,
beinpipur dýrsins holaðar að innan
og stálinu stungið inn. Því næst
boruðu læknarnir göt á beinpíp-
urnar og skrúfuðu stálfæturna
fasta.
„Hreyfarnir passa og ef allt
gengur að óskum reynum við að
sleppa dýrinu eins fljótt og auðið
er. „Lucky“ en svo höfum við nefnt
skjaldbökuna er um 25 ára gömul
og gæti lifað 75 ár í viðbót ef gæf-
an fylgir henni,“ bætti Barry við.
Annar hreyfinn var mun verr far-
inn en hinn, en aðgerðin í heild
þótti takast vel.
Holland:
Fleiri dauðsföll
völdum sýktrar
1 W ■ mn t P
Amsterdam, 18. jan. AP.
FJÖLDl látinna í Hollandi af völd-
um sýktrar rækju frá Bangladesh
hefur enn hækkað og er nú orðinn
14 manns, en um 100 manns til við-
af
rækju
bótar hafa tekið blóðkreppusótt,
sem rekja má til rækjunnar. Skýrði
hollenzka heilbrigðismálaráðuneytið
frá þessu í dag.
Nýjar uppgötvanir um
arfgengi hjartasjúkdóma
St. Pcteruburg, Klorida, 18. janúar. AP.
MIKID MAGN af ákveðnu eggjahvítuefni í blóði kann að gefa til kynna
aukna hættu á hjartasjúkdómi hjá fólki, sem er með eðlilegt magn af
efninu kólesterol og engin önnur sýnileg sjúkdómscinkenni. Skýrói
bandarískur vísindamaður frá þessu í dag.
Annar starfsbróðir hans
skýrði frá því, að rannsóknir á
erfðavísum hefðu veitt mikil-
vægar upplýsingar um, hvers
vegna sumt fólk lifir lengi þrátt
fyrir óholla lifshætti, sem vís-
indamenn hafa kallað „Winston
Churchill sjúkdóminn" eftir
brezka forsætisráðherranum, en
hann reykti vindla nær viðstöðu-
laust.
Kólesterol-magnið í blóðinu
hefur lengi verið notað sem við-
miðun varðandi hættuna á
hjartasjúkdómum. Það er ljóst,
að fólki nteð mikið kólesterol-
niagn er hætt við hjartasjúk-
dómum, en það vefst fyrir mönn-
um að finna svar við þeirri
spurningu, hvers vegna fólki
með eðlilegt kólesterol-magn er
einnig hætt við þessum sömu
sjúkdómum. í fyrirlestri, sem dr.
Allan Sniderman frá McGill-
háskólanum í Montreal í Kanada
flutti á vegum bandaríska
hjartasjúkdómasambandsins,
skýrði hann frá því, að mælingar
á eggjahvítuefni í blóðinu, sem
nefnist „apoliprotein B“, væru á
góðri leið með að gefa upplýs-
ingar um, hvaða fólk er í mestri
hættu gagnvart hjartasjúkdóm-
um.
Það, sem kannski skiptir enn
meira máli, er að með þessum
tilraunum kann að reynast unnt
að finna út, hvaða börn eru lík-
leg til þess að fá hjartasjúkdóma
síðar meir í lífinu. „Það er engin
spurning um það, að við verðum
að geta fundið fyrirfram þá ein-
staklinga, sem eiga hjartasjúk-
dóma á hættu og það áður en
æðakerfi þeirra skemmist, ef
okkur á að takast að koma í veg
fyrir kransæðasjúkdóma," sagði
Sniderman.
Á þessari sömu ráðstefnu, sem
haldin var í St. Petersburg í
Florida, lýsti dr. Jan Breslow frá
Rockefeller-háskólanum í New
York „Winston Churchill-veik-
inni“, en sagði síðan: „Það er
ljóst, að sumir einstaklingar,
sem brjóta allar reglur varðandi
heilbrigða lífshætti, lifa engu að
síður fram yfir áttrætt eða ní-
rætt. Svo eru aðrir, sem lifa
reglusömu lífi, en fara að finna
fyrir einkennum hjartasjúk-
dóma strax á þrítugs aldri".
Breslow kvaðst vera þeirrar
skoðunar, að munurinn á þessum
tveimur hópum fælist í mismun-
andi tilhneigingu í erfðavísunum
gagnvart hjartasjúkdómum.
Hann hefði ásamt fleiri vísinda-
mönnum einangrað fjóra af
þeim erfðavísum, sem fram-
leiðsla eggjahvítuefnisins „apoli-
protein" byggist á og hefðu þeir
komizt að þeirri niðurstöðu, að
afbrigðileg einkenni á þessum
erfðavísum séu til staðar í fólki,
sem eigi hjartasjúkdóma á
hættu umfram aðra.
Þá sagði Breslow ennfremur,
að afbrigðileg einkenni á erfða-
vísunum, sem ykju hættuna á
hjartasjúkdómum, væri senni-
lega algengasta tegund arf-
gengra sjúkdóma og kynni að ná
til 3—5% alls fólks. Erfðaþátt-
urinn í hjartasjúkdómum þýddi
samt sem áður ekki, að matar-
æði og aðrir umhverfisþættir
skiptu ekki máli líka.
Fyrr í þessari viku lézt 81 árs
gamall maður af blóðkreppusótt,
eftir að hafa borðað rækjur frá
Bangladesh, sem innihéldu síg-
ella-bakteríur, en þær valda
blóðkreppusótt, háum hita og
niðurgangi.
Þá skýrðu hollenzku heilbrigðis-
yfirvöldin einnig frá þvi í dag, að
13 manns á aldrinum 80—93 hefðu
orðið fyrir sams konar sýkingu og
dáið síðustu vikuna í desember og
fyrstu vikuna I janúar. Hefðu 8
þeirra búið á sama elliheimilinu í
borginni Utrecht, en þar hefði
rækjukokteill verið framreiddur
25. desember sl.
Danmörk:
Hagstæð efna-
hagsþróun
kaupmannahofn, 18. janúar.
Frá fréttaritara Morgunblaðsin.s, Ib Björnbak
UNDANFARNA tvo mánuði hefur átt
sér staö mikil aukning hagvaxtar í
Danmörku. Segist Henning Christo-
phersen fjármálaráðherra nú gera sér
vonir um, að hagvöxturinn á þessu ári
veröi 3%, sem er næstum tvisvar sinn-
um meira en áóur hafði verið reiknað
meó.
Þessi mikli hagvöxtur kemur m.a.
fram í því, að aukningin í íbúðabygg-
ingum virðist eiga eftir að verða
20% á árinu en áður hafði verið gert
ráð fyrir 9% aukningu þar. Hagstæð
þróun innanlands í Danmörku kem-
ur m.a. fram í fjárlagafrumvarpi
því, sem Þjóðþingið fær til meðferð-
ar, en þar er gert ráð fyrir því, að
vextir lækki úr 14% niður í 13%.