Morgunblaðið - 19.01.1984, Page 31

Morgunblaðið - 19.01.1984, Page 31
Bolungarvík: Þjóðlegt þorrablót með trogum og peysufötum Bolungarvík, 16. janúar. HIÐ árlega þorrablót Bolvíkinga verður haldiö næstkomandi laugar- dag. Nú eru fjörutíu ár síðan bol- vískar eiginkonur tóku upp þann sií að bjóða mönnum sínum til blóts á þorra. Hefur það æ síðan verið ár- legur viöburður. í þessi 40 ár hefur engu verií breytt frá þeim reglum, sem um þorrablótshald hér voru skapaðar, sem í stuttu máli eru þessar: Und- irbúningur allur og framkvæmd er í höndum þar til skipaðrar nefnd- ar, sem einvörðungu er skipuð konum. Þátttakendur hafi mat sinn í trogum, og geta ein eða fleiri hjón verið saman í trogi. All- ar konur klæðist íslenska þjóð- búningnum. Eins og áður sagði, er undirbún- ingur í höndum þorrablótsnefnd- ar, sem skipuð er 11 konum. Ann- ast þær öll skemmtiatriði, en um skemmtidagskrána eru konur jafnan þögular sem gröfin og ekki nokkur leið að forvitnast um skemmtiefnið, hvernig sem reynt er. Þá er ákaflega skemmtileg sú hefð, að konur klæðist þjóðbúningi við þetta tækifæri, og er hætt við að þorrablótið missi vissan sjarma, verði út af þeirri hefð brugðið. Ekki er okkur Bolvíking- um kunnugt um að þessi siður sé við hafður annars staðar á land- inu við slíkt tækifæri. Þátttaka á þorrablótum hér í Bolungarvík er bundin við fólk í vígðri eða óvígðri sambúð. Á þessu fertugasta þorra- blóti okkar mun hljómsveit Ás- geirs Sigurðssonar frá ísafirði leika fyrir dansi að afloknum skemmtiatriðum, áti og glaðvær- um fjöldasöng. Formaður þorra- blótsnefndarinnar að þessu sinni er Elísabet M. Pétursdóttir. — Gunnar Sofnuðu út frá matargerðinni SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kall- að út klukkan 5.30 aðfaranótt laugar- dagsins. Tilkynnt var að mikinn reyk og hita legði út frá íbúð við Bergstaða- stræti. Tveir menn voru sofandi í íbúð- inni þegar slökkviliðið kom á vett- vang. Þeir voru fluttir í slysadeild, en meiðsli þeirra voru lítilvæg. Mennirnir tveir höfðu verið að skemmta sér um kvöldið. Þeir voru hungraðir þegar heim kom og hugð- ust hita upp mat í bakaraofni. En þeir voru ekki bara svangir heldur einnig syfjaðir og sofnuðu út frá matseldinni með fyrrgreindum af- leiðingum. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984 31 VANDAÐAR PLOTUR VIÐRÁÐANLEGT VERÐ BMVALLÁf PANTANIR: Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk. Símar: 91-25930 og 91-25945 Sportfiskibátar Siglingaáhugamenn Bjóöum 3 fyrstu skúturnar framleiddar af Trefjum h/f á sérstöku kynningarveröi kr. 63.000 plastklár- ar. TREFJAR HF., Stapahrauni 7, Hafnarfirði, sími 51027. Lengd 6,17 m breidd 2,0 m rúmlest 2,3 t Verð 92.000 plastklár Skútur Micró 18 >> VÖNDUÐ FRÖNSK *** STÁLHNÍFAPÖR ^ með nylonskafti * 'æ Litir; Beinhvítt, postulkishvítt, vínrautt og dökkblátt _ / > Skrauthöfðarnir í París — Sagt frá nýjung í hárgreiðslu. Hvað er þetta gras að gera hér? — Baunaspírurnar verða sífellt vinsælli í ýmsa rétti. Kappræðueinvígi JC: Leikræn tjáning átti drjúgan þátt í ræðuhöldunum. Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina OpntilkLI9 mánudaga þriðjudaga miðvikudaga fimmtudaga TT A P TT ATTD Skeifunni 15 IlAVlIiAU 1 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.