Morgunblaðið - 19.01.1984, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
„Tel ekki heppilegt
að fá Englending sem
leikmann og þjálfara“
„VIÐ ERUM að vinna aö því að fá
Yourí llitchev aftur til aö þjálfa
Valsliöið," sagöi Grétar Haralds-
son, formaður knattspyrnudeild-
ar Vals í samtali viö Morgunblaö-
iö í g»r.
„Viö teljum öruggt að hann vilji
koma og þaö ætti aö skýrast á
næstu dögum hvort af því veröur
eöa ekki. Mín skoöun er sú aö Val-
ur eigi ekki aö reyna aö fá gamlan
enskan leikmann til aö þjálfa og
leika meö liöinu en stjórnin hefur
ekki tekiö ákvörðun um það,“
sagöi Grétar er hann var spuröur
um hvort Emlyn Hughes væri enn
inni í myndinni hjá Völsurum.
„Ég held aö Valur eigi nóg af
góöum leikmönnum í liö sitt. Ég tel
ekki heppilegt aö fá Englending
fyrir þjálfara sem myndi leika með
liöinu; þá er sú hætta fyrir hendi aö
hann færi aö byggja liöið upp
kringum sjálfan sig og geröi sjálfan
sig aö aðalmanni liösins."
Youri llitchev náöi frábærum ár-
angri meö Valsliðiö fyrir nokkrum
árum, en aö sögn Grétars hefur
hann fengist viö þjálfun í heima-
landi sínu, Sovétríkjunum aö und-
anförnu. -SH.
Ingi Björn Albertsson og Youri meö íslandsbikarinn áriö 1976 er Valur
sigraöi í íslandsmótinu. Nú reyna Valsmenn aö fá Youri aftur til starfa
sem þjálfara hjá meistaraflokki félagsins í knattspyrnu.
N. Forest
Stofnaö 1865, framkvæmda-
stjóri Brian Clough, leikvöllur
City Ground tekur 35 þúsund
áhorfendur. Gælunafn „Hinir
rauöu“. Stærsti sigur 14—0 gegn
Clapton 1890. Stærsta tap 1—9
gegn Blackburn Rovers 10. apríl
1937. Metsala á leikmanni var
1.250 pund þegar Gary Birtles
var seldur til Coventry City, áriö
1980. Dýrasti leikmaöur keyptur
var lan Wallace í júlí 1980 1.250
pund. Flesta leiki meö Notting-
ham Forest-liöinu hefur Bob
McKinley leikiö, 614 á árunum
1951 til 1970. Markahæsti leik-
maöur á síöasta keppnistimabili
var lan Wallace meö 13 mörk í
deildinni. Fyrirliöi er lan Bowyer.
Heimilisfang er City Ground
Nottingham NG 2 5 FJ.
Leikmenn Fd.
Hans van Breukelen 4.10.56
Stava Sutton 16. 4.61
Kenny Swain 28. 1.52
Viv Anderton 29. 8.56
Bryn Gunn 21. 8.58
Chris Fairclough 12. 4.64
Coiin Todd 12.12.48
Paul Hart 4. 5.53
Colin Walsh 22. 7.62
Danny Wílson 1. 1.60
lan Bowyar 6. 6.61
lan Wallace 23. 5.56
Steva Wigley 15.10.61
Steve Hodge 25.10.62
Peter Davenport 24. 3.61
Gary Birtles 27. 7.56
Fré
FC Utrecht
Aston Villa
Upphsaö Landslið
200.000C Holland
25.000C
Birmingham City
Leeds United
Chesterfield
Sunderland
Coventry
Curzon Ashton
Cammels Lairds
Manchester U.
England
70.000C England
300.000C
Skipti
50.000C
1.250.000C Skotland
2.000C
275.000C England
Leikir
25
19
32
286
110
15
23
0
68
10
303
107
4
40
23
112
• lan Bowyer, einn af traustustu leikmönnum Nottingham Forest
um langt árabil. lan er fyrirliöi N-Forest.
Ástrali
til Arsenal
Frá Bob Hannasay, fréttamanni Morgunblaðsins i Englandi
• lan Rush — ók á Ijósastaur á
laugardaginn.
DON HOWE, sem ráöinn hefur
veriö framkvæmdastjóri Arsenal
til vorsins, hefur keypt ástralska
leikmanninn Alan Davidson til fé-
lagsins, og er hann fyrsti leik-
maðurinn sem Howe kaupir.
Davidson er hægri bakvöröur og
fastur maður í ástralska landsliö-
inu. Hann lék einmitt meö liöinu
gegn Englendingum á síöasta
keppnistímabili og vakti þá athygli
fyrir góöa frammistööu. Davidson
kom til Highbury meöan Terry Neill
var enn viö stjórnvölinn hjá Arsen-
al og hefur æft meö liöinu síöan.
Forráöamenn Arsenal eru nú að
útvega honum atvinnuleyfi í Eng-
landi og segjast staöráönir í aö
láta hann leika í varaliöinu um-
svifalaust.
Tottenham hefur fengiö
markvörö Bristol Rovers, Phil Kite
aö láni í einn mánuö vegna þess
aö Ray Clemence á viö meiösli aö
stríöa. Kite er því varamarkvöröur
félagsins nú.
. . Willie Young fyrrum leik-
maöur Arsenal og Nottingham
Forest hefur fengiö frjálsa sölu frá
Norwich. Hann kom til félagsins
siöastliöiö sumar frá Forest.
.. lan Rush, markaskorarinn
mikli hjá Liverpool, varö fyrir því
óhappi á laugardaginn var aö aka
á Ijósastaur. Rush var á heimleiö
eftir leikinn viö Wolves ásamt unn-
ustu sinni — en þau búa í Flint í
norður-Wales. Mikil hálka var á
vegum í Englandi og missti Rush
stjórn á bílnum. Hann meiddist
ekki, en unnusta hans, Tracy
Evans, er enn í sjúkrahúsi eftir
slysiö; hún mjaömagrindarbrotn-
aöi.
.. Fleiri knattspyrnumenn lentu
í bifreiöaróhöppum á laugardag í
hálkunni. Alvin Martin, enski
landsliðsmiðvörðurinn hjá West
Ham var að fara á skemmtistað á
laugardagskvöldiö ásamt Steve
Whitton, felaga sínum hjá Hamm-
ers er ók á. Fimm rifbein brotnuöu
í Martin og Whitton meiddist á öxl.
Þeir veröa báöir frá keppni í tvo
mánuði. Margir leikmanna West
Ham eru nú meiddir og John Lyall
framkvæmdastjóri liösins neyöist
sennilega til þess aö kaupa ein-
hverja nýja leikmenn.
— SH.
Kvennalandsliðið
til Lake Placid?
Kvennalandsiiðið i handknatt- I
leik fer hugsanlega í keppnisferö
til Bandaríkjanna seinni partinn í
febrúar. Þaö kemur í Ijós á næstu
dögum hvort af feröinni veröur.
Upphaflega höföu Bandaríkja-
menn áhuga á því aö fá íslenska
landsliöiö sem gest á Pan Am-
leikana en af því gat ekki oröiö. Þá
stungu Bandaríkjamenn upp á því
aö islenska liðiö kæmi utan síöari
hluta febrúar og tæki þar þátt í
þriggja landa keppni. Bandaríkin
og Kanada yröu þátttakendur auk
islands.
Hugmyndin er sú aö þar yröi
leikin tvöföld umferö; þannig aö ís-
lenska liöiö fengi fjóra leiki og
sagöi Jón Erlendsson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, aö sambandiö
heföi fullan hug á aö senda liöiö á
þetta mót. Hann heföi veriö í sam-
bandi viö forráöamenn bandaríska
handboltasambandsins aö undan-
förnu.
Bandaríska liöiö dvelst nú í Lake
Placid og mótið færi væntanlega
I fram þar. í Lake Placid hefur
bandaríska liðið reyndar dvaliö
síöan síöastliöiö vor og æft af
krafti fyrir Ólympíuleikana í Los
| Angeles í sumar. — SH..
Bersamótið
í handbolta
HIÐ árlega Bessamót í hand-
bolta veröur haldið í íþrótta-
húsinu í Hafnarfirói sunnu-
daginn 12. febrúar nk. Þaö er
Flensborgarskóli sem hefur
umsjón meö mótinu en allir
framhaldsskólar eiga þátt-
tökurétt.
Þátttökutilkynningum ber aö
skila á skrifstofu Flensborgar-
skóla fyrir 5. febrúar en þátt-
tökugjald er 500 krónur. Nánarl
upplýsingar gefur Sveinbjörn í
símum 54706 og 50092 (á
skólatíma).