Morgunblaðið - 19.01.1984, Síða 48
Tölvupappír
llll FORMPRENT
Hverlisgolu 78. simar 25960 25566
SIADFEST lANSTRAUST
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Morgunblaðid/ RAX
Skerpt á heita vatninu
Grípa þurfti til þess ráðs í Reykjavík í g*r og í fyrradag að hita upp vatn
með olíu, en vatnsskortur var farinn að gera vart við sig á efstu svæðum
Kópavogs. Hvergi varð þó vatnslaust. Kostnaðurinn við upphitun vatnsins
með olíu er 600 þúsund krónur á sólarhring. Myndin er af starfsmanni
Hitaveitunnar þar sem hann hugar að kyndingu vatnsins.
Félag kaþólskra leikmanna:
Pílagrímsferð
til Vatíkansins
Á NÆSTUNNI fer héðan 20 manna
hópur á vegum Félags kaþólskra
leikmanna í pílagrímsfor suður til
Rómar. Að sögn Torfa Ólafssonar,
eins af forystumönnum félagsins, er
þetta í fyrsta skipti sem kaþólikkar
hér á landi taka þátt í slíkri pfla-
grímsför með öðrum Norðurlanda-
búum, en þátttakendur í ferðinni
verða frá ölium Norðurlöndunum.
Ferðin er farin í tilefni af „Árinu
helga“, sem Jóhannes Páll páfi til-
kynnti um á sínum tíma og lýkur í
lok marzmánaðar.
Farið verður með flugvél til
Lúxemborgar 23. mars næstkom-
andi. Samdægurs haldið áfram til
Rómaborgar. Þar mætast allir
hóparnir frá Norðurlöndunum og
viðdvölin þar með fyrirfram
ákveðinni dagskrá í höfuðdráttum
verður tæp vika. Á þeim tíma mun
allur hópurinn ganga sameigin-
lega á fund Jóhannesar Páls páfa,
sagði Torfi Ólafsson.
Aðalframkvæmdastjóri píla-
grímsferðarinnar er Kaspar Kall-
an menntaskólakennari í Kaup-
mannahöfn.
Enn ein metsalan:
Aöalvík með
34,85 króna
meðalverð
fyrir karfa
SKUTTOGARINN Aðalvík frá
Keflavík setti í gær sölumet á
í.suðum fiski í Þýzkalandi. Aö-
alvíkin seldi afla, 102,4 lestir,
að mestu karfa, í Cuxhaven og
fékk 34,85 krónur í meðalverð
fyrir kílóið eða 3,33 mörk.
Heildarverð var 3.570.500
krónur eða 340.890 mörk.
Þetta er hæsta meðalverð, sem
íslenzkt fiskiskip hefur fengið
fyrir ísaðan fisk í Þýzkalandi. Með
þessari sölu sló Aðalvíkin met
Snæfugls SU frá því síðastliðinn
mánudag, en þá fékk Snæfuglinn
3,22 mörk í meðalverð. Þriðju
beztu söluna á Karlsefni RE, en
hann fékk 3,20 mörk fyrir kílóið
14. janúar 1983. Ein af skýringun-
um á þessu háa verði er sú, að
undanfarna daga hafa veður verið
válynd á fiskislóð þeirra skipa, er
selja afla sinn í Þýzkalandi og
Englandi, sem eru helztu ísfisk-
markaðir okkar og því hafa veiðar
þeirra gengið treglega og lítið
framboð verið á fiski. Þá ber þess
að geta, að ekki fæst svona hátt
verð fyrir ísfiskinn þarna, nema
gæði séu í hámarki.
Morgunbladiö/Friöþjófur.
Skellur á skautum
Mikil aðsókn er nú að skautasvellinu á Melavellinum, sem
opnað var fyrir helgi. Að sögn starfsmanna vallarins er mest um
skólabörn um miðjan daginn, en fullorðnir bætast í hópinn á
kvöldin og um helgar.
Hugmyndir um breytingar á fasteignayiðskiptum:
Minni útborgun, lánstími
lengdur og lægri vextir
HUGMYNDIR eru uppi um breytingar
á viðskiptavenjum þeim sem myndast
hafa í fasteignaviðskiptum, en nú er
venjan sú að kaupandi fasteigna greiði
75% út á árinu vaxtalaust, en eftir-
stöðvar á 4 árum með 20% ársvöxtum.
Hugmyndin um breytingu er sú að út-
borgun verði 60—65% og eftirstöðvir
40 lestir í róðri
RÁTAR af Suðurnesjum hafa verið
að fá góðan ufsaafla í netin síðan um
helgi. Dagbjartur Kinarsson, forstjóri
í Grindavfk, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að bátar þaðan hefðu verið
að fá allt að 40 lestum í róðri. Stærri
línubátarnir hafa komizt upp í II
lestir í róðri með tvöfalda setningu,
en þeir minni hafa verið með 2,5 til
4,5 lestir.
Dagbjartur sagöi, að þetta kæmi
nokkuð á óvart, því bátarnir hefðu
verið að reyna fyrir sér á svipuðum
slóðum fyrir jólin en ekkert fengið.
Nú hefði orðið vart við.ufsann víða,
bæði á Reykjanesgrunninu, úti á
Tá og austur í Bugtum.
lánaðar til 6—7 ára með fasteigna-
lánsvöxtum, sem Seðlabankinn myndi
reikna út á hverjum tíma. Þessar upp-
lýsingar fékk Mbl. hjá Friðriki Stef-
ánssyni fasteignasala, en hann á sæti í
undirbúningsstjórn Félags fasteigna-
sala, sem nú er í burðarliðnum.
Ástæðuna fyrir þessum hugmynd-
um kvað Friðrik þá að um geysilga
hækkun væri að ræða á íbúðaverði,
þegar verðbólgan færi úr 120—130%
niður í 10—15% eins og nú er. Við
óbreytt viðskiptakjör myndaðist
tregða á markaðinum, miklar fyrir-
spurnir væru um íbúðir, en salan
miklu minni og í engu samræmi við
fyrirspurninar. Fólk sæi að það réði
ekki við íbúðakaup á þeim kjörum
sem boðin væru, og einnig væri til-
tölulega lítið peningaframboð á
markaðinum.
„Ég kann þá lausn á þessu að
lækka útborgunarhlutfallið niður í
60—65% og setja jafnframt hreyf-
anlega vexti á eftirstöðvarnar og
lengja lánstímann upp í 6—7 ár,“
sagði Friðrik. „Það verður sam-
kvæmt þessu hærra hlutfall af
íbúðaverðinu lánað og lánstíminn
lengdur, til þess að greiðslubyrðin
verði ekki of þung. Fólk verður einn-
ig að sjá fyrir, að það geti lokið
greiðslunum. Ég held að eina ráðið
til þess að viðskiptum verði haldið
áfram á þessum markaði, sé að
breyta kjörunum," sagði Friðrik
Stefánsson.
„Það er enginn einn aðili sem ræð-
ur þessum markaði, markaðurinn er
frjáls. Breytt kjör þýða ekki lægra
verð, forsendan fyrir hárri útborgun
í íbúðum var verðbólgan. Þegar
verðbólgan fer niður verður láns-
hlutfalliö að aukast og lánstíminn að
lengjast og seljandi á að vita að
hann fær sama raunverð fyrir íbúð
sína,“ sagði Friðrik Stefánsson að
lokum.
ísaður fiskur fluttur í
gámum á ferskfiskmarkaði
í ÞESSARI viku og næstu er reiknað
með að á milli 250 og 300 tonn af
fiski, sem fluttur er á markað í Eng-
landi með skipum Eimskipafélags
ísland, verði seld á markaði í
Grimsby og Hull. Ágætt verð hefur
fengist fyrir fiskinn. Á mánudag
voru seld um 25 tonn og annað eins
á þriðjudag og fengust 45 krónur
fyrir kflóið af ýsu og 39 krónur fyrir
kflóið af 1. flokks þorski.
Afli hefur glæðst undanfarna
daga og er reiknaö með að veruleg
aukning verði á fiskflutningi með
gámum á ferskfiskmarkaði næstu
vikur. Einkum er um að ræða línu-
fisk. Fiskurinn er blóðgaður um
borð, slægður þegar í land er kom-
ið, þveginn, ísaður og honum er
síðan raðað í gáma. Einnig hafa
sjómenn slægt fiskinn um borð og
landað beint í gáma. Þannig hefur
þessi flutningsmáti tekið nokkuð
frá fiskverkun í iandi, en fjár-
hagslega komið sér vel fyrir út-
gerð og sjómenn.
Eimskipafélagið hóf að sigla til
Inningham, sem er hafnarborg
mitt á milli Grimsby og Hull,
haustið 1982 og opnaðist þá mögu-
leiki fyrir flutninga á fiski með
gámum.
'
Bláa lónið:
Orku- og
efnaauðlind?
FRAMLEIÐ8LA á brennsluspíri-
tus og alkóhóli. lyfjum gegn húð-
sjúkdómum og jafnvel fleiri sjúk-
dómum, pappírsframleiðsla á Iff-
rænan hátt og ræktun átu til flsk-
eldis, eru meðal þeirra möguleika,
sem virðast vera fyrir hendi við
Bláa lónið á Reykjanesi sam-
kvæmt niðurstöðum rannsókna
sem unnar hafa verið af rann-
sóknastofunni í Neðra-Ási í sam-
vinnu við erlendar rannsókna-
stofnanir.
Rannsóknir hófust í Bláa
lóninu á sl. vori, þegar ljóst
var að þar var að finna lækn-
ingamátt gegn húðsjúkdóm-
um. Vísindamenn gera sér
góðar vonir um, að geta ein-
angrað örverur úr vatninu og
efnasambönd sem þær mynda
i þeim tilgangi að framleiða
lyf gegn húðsjúkdómum, og
jafnvel fleiri sjúkdómum.
Sjá viðtal við dr. Einar I.
Siggeirsson í miðopnu.