Morgunblaðið - 09.08.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984
25
Banka-
hneyksli
Brighton, 8. ágúst. AP.
Fullordinn bankastjóri, hinn
61 árs gamli Kenneth Toogood,
yfírmaður útibús Midland
Branch bankans í Hove, útborg
Brighton, var í dag dæmdur í 9
mánaða fangelsi fyrir að veita
ómæld lán gegn kynlífsævintýr-
um.
Réttarhöldin yfir herra
Toogood stóðu yfir í 9 mánuði
og viðurkenndi hann að hafa
átt sex ástarfundi með hár-
greiðslustúlku að nafni Rheta
Lawson. Hann neitaði hins
vegar að hafa vitað sem var,
að hún var gerð út af klám-
búðareiganda i nágrenninu
sem ætlaði sér að fá lán út á
þagmælsku. Dómstóllinn sam-
þykkti að Toogood hefði eigi
vitað um þau tengsl, hins veg-
ar hefði hann lánað ungfrúnni
stórfé á bestu kjörum fyrir
greiðana. Klámbúðareigand-
inn var dæmdur til 18 mánaða
fangelsisvistar.
Fangar snúa
heim
Bern, 8. ágúst AP.
Tveir sovéskir hermenn sem
dvalið hafa f Sviss tvö síðustu
árin hafa haldið til síns heima á
ný.
I Sviss dvöldu þeir sam-
kvæmt samkomulagi sem
Svisslendingar hafa gert við
andspyrnuhreyfingar Afgana
sem berjast gegn sovéska
setuliðinu. Gengust Svisslend-
ingar að því samkvæmt
samkomulaginu, að taka við
ákveðnum fjölda sovéskra
striðsfanga og hafa þá í haldi
í tvö ár, eða uns ófriði lýkur í
Afganistan. Fyrir nokkru var
þremur sleppt og vildu tveir
þeirra ekki flytja til Sovét-
ríkjanna á ný.
Hert eftirlit
Stjórnvöld í Vestur-
Þýskalandi hafa ákveðið að
herða mjög eftirlit með útflutn-
ingi efna sem nota mætti til
framleiðslu efnavopna. Hin nýja
reglugerð sem tekur gildi á
næstu dögum kveður á um að
stjórnvöld verði að leggja bless-
un sína yfir allan útflutning
efna sem sett verða á sérstakan
eftirlitslista.
Vestur-Þjóðverjar vilja ekki
að hægt sé að rekja til þeirra
eiturefnanotkun i hernaði og
benda á að írakar hafa notað
eiturvopn í Persaflóastríðinu
gegn Iran, framleitt eitrið
sjálfir, en notað til þess efni
keypt m.a. hjá vestur-þýskum
framleiðendum.
Sex fórust
Stokkhólmi, 8. ágÚHt. AP.
SEX manns létu lífið þegar lítil
sænsk einkadugvél hrapaði við
Málmey, skömmu eftir flugtak
aðfaranótt miðvikudags. Vélin
var af gerðinni Piper Pa 32
Lance.
Rétt eftir flugtak sendi vél-
in frá sér neyðarmerki og síð-
an heyrðist ekki frá henni.
Eftir þriggja klukkustunda
leit við erfið skilyrði í nátt-
myrkri og slæmu skyggni
fannst flak vélarinnar á akri
um 700 metra norður af
flugbrautarenda. Allir um
borð voru þá látnir.
Um orsök slyssins er ekki
vitað enn.
Einn flokkur,
eitt ríki í
Zimbabwe
liarare, Zimbabwe, 8. ágúst AP.
ROBERT Mugabe, forsætis-
ráðherra Zimbabwe, setti í dag
annað landsþing flokks síns,
stjórnarflokksins Zanu, og
skoraði á þingheim að gera
Zimbabwe, eitt af fáum lýðræð-
isríkjum í Afríku, að eins flokks
ríki að marxískri fyrirmynd.
Sex þúsund fulltrúar sitja
landsþing Zanu-flokksins og
mörg hundruð fulltrúar erlendra
kommúnistaflokka, allt frá Kína
til Kúbu. I ræðu sinni, sem stóð í
fjórar klukkustundir, kvaðst
Mugabe ekki efast um, að flokk-
ur hans fengi til þess umboð í
næstu kosningum að hrinda í
framkvæmd pólitískum stefnu-
málum sínum, sem væru að
koma á ríki þar sem einn flokkur
réði öllu og hefði að leiðarljósi
hina sósíölsku byltingu.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, er hér að skoða brjóstnælu, sem tvífari hennar á vaxmyndasafni
Tussaud í London ber í barmi sér. Er hún nákvæm eftirlíking af nælunni, sem Thatcher er sjálf með, og fötin
eru ekta, komin úr klæðaskápi Járnfrúarinnar.
.Ásknftarsiininn er 83033
AP
Thatcher og tvífarinn
LADA-
bílar hafa sannað
kosti sína hér á
landi sem sterkir,
öruggir, gangvissir, ódýr-
ir í innkaupi, með lítiö
viðhald og ódýra vara-
hluti og ekki síst fyrir hátt
endursöluverð.
tititmttiuntfff
IM "V J
LADA 2107
Bifreiðar &
Sifelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36
Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt
svo um munar: mælaborö, stýri, stólar, aft-
ursæti, griil, húdd, stillanlegir speglar innan
frá, stuöarar o.fl. o.fl., en sífellt er unniö aö
endurbótum er lúta aö öryggi og endingu
bílsins. 6 ára ryövarnarábyrgö.
Verð við birtingu
auglýsingar kr.
219.900
Lán 119.900
Þér greiðiö 100.000
VERÐLISTI YFIR
LADA BIFREIÐAR
Lada 1500 Station kr. 208.800
Lada 1600 Canada kr. 209.900
Lada Sport kr. 324.500
Bílasýning
í DAG FRÁ KL. 1—4
Nýir og
notaöir bílar
til sýnis og sölu
Tökum vel med farna Lada upp í nýja