Morgunblaðið - 09.08.1984, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.08.1984, Blaðsíða 56
OPID ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍMI 11340 OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45-23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTl. SlUI 11633 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Lækkun útflutnings- gjalda af rækju kem- ur ekki til greina — segir Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra „ÞAÐ ER RÉTT að ég hafði góð orð um að greitt yrði úr verðjöfnunarsjóði áður en rækjubirgðirnar væru seldar, en engin ákvörðun þar að lútandi hef- ur enn verið tekin. Það kemur hins vegar ekki til greina að lækka eða fella niður útflutningsgjöld af rækju. Slíkt yrði einungis til þess að aðrir „ÉG TEL að þarna sé að koma í Ijós árangur af því starfi sem menn hafa verið að vinna að á annað ár,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra, er blm. Mbl. spurði hann í gær álits á skýrslu þeirri sem Fiski- félagið kynnti fréttamönnum í gær, um gæðamat á fiski. „f fyrsta lagi er hér um árangur Smygl í skipum: Verðmæti um 550 þúsund kr. Smyglvarningur fannst í tveim- ur skipum í gær og í fyrradag á Akranesi og í Reykjavík, saman- lagt að upphæð hálft sjötta hundr- að þúsund krónur hefði hann ver- ið seldur á markaði hér á landi. Flutningaskipið Svanur kom til Akraness á mánudag. Um borð í honum fundust 542 flösk- ur af áfengi, 8.400 vindlingar og 67 kassar af bjór. Varningur- inn, sem sennilega hefur verið keyptur í Frakklandi, var falinn í sérstaklega breyttum tank í skipinu og er að verðmæti rúm- lega 450 þúsund krónur. Sjö skipverjar eru á Svaninum og hafa fimm þeirra játað að vera eigendur góssins. Þá fannst einnig smyglvarn- ingur um borð í breska skipinu City of Perth, sem Eimskip er með á leigu. Um var að ræða 91 flösku af áfengi og 46 kassa af bjór, samtals að verðmæti um 90 þús. kr. á markaði hér. kæmu á eftir með samskonar óskir,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, þegar blm. Mbl. spurði hann í gær hvort einhver ákvörðun hefði verið tekin í ráðuneytinu um það hvort orðið yrði við óskum rækju- vinnslustöðva um að lækka útflutn- ingsgjöld og að greiða úr verðjöfnun- af bættu gæðaeftirliti að ræða,“ sagði sjávarútvegsráðherra, „og i öðru lagi er nú að koma i ljós árangurinn af kvótakerfinu. Auk þess tel ég sýnt að aukin umræða um gæðamál hafi skilað árangri. Þarna kemur fram að við erum á réttri leið í sjávarútveginum. Við ætluðum okkur að auka verðmæti aflans og það hefur okkur tekist. Ég tel að með þessari skýrslu sé sannað að við séum á réttri leið í sjávarútveginum." arsjóði út á óselda rækju. Sjávarútvegsráðherra sagði að við slíkar aðstæður sem þessar hjá rækjuvinnslustöðvunum, þegar sala á birgðum hefði stöðvast, væri for- dæmi fyrir því að greitt væri úr verðjöfnunarsjóði áður en birgðirn- ar seldust. Það hefði verið gert varð- andi óseldar skreiðarbirgðir. Það hefði hins vegar engin ákvörðun verið tekin um þetta mál, en það yrði gert nú á næstunni. Ráðherra sagði að nokkur hreyfing hefði kom- ist á rækjubirgðirnar upp á síðkast- ið svo óvíst væri nú hversu brýn þörfin væri. „Það er að sjálfsögðu æskilegast að komast hjá því að gera ráðstafanir sem þessar,“ sagði Halldór, „en ef aðgerða á annað borð er þörf, þá sýnist mér sem þetta sé eina leiðin og það hef ég reyndar sagt fulltrúum rækju- vinnslunnar. Það kemur hins vegar ekki til greina að fella niður, eða lækka útflutningsgjöld, því við lend- um alltaf f erfiðleikum meö hinar ýmsu fisktegundir, og ef við förum að lækka gjöldin eða fella niður á einu sviði, þá verður það einnig að gerast á öðrum. Ég hef því ekki gef- ið nokkrar vonir um að slfkt gæti gerst.“ Ljóamynd: Snorri Snorrason. Sigurður sandblásinn Togarinn Sigurður RE hefur verið til viðhalds og viðgerðar hjá Slippstöðinni á Akureyri. Þessi mynd var tekin er verið var að sandblása skrokk skipsins nú fyrir nokkru. Sjávarútvegsráöherra um skýrslu Fiskifélagsins: Það hefur tekist að auka aflaverðmætið Hámarksálagning á byggingar- vörum afnumin frá 15. ágúst Jafnframt var heimiluð 9 % hækkun á hámarksverði saltfisks VERÐLAGSRÁÐ ákvað á löngum fundi í gær að fella niður hámarks- álagningu á byggingavörum, og tek- ur þessi ákvörðun gildi 15. þessa mánaðar. Samkvæmt upplýsingum Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra tekur þessi ákvörðun til allra bygg- ingavara og er steypa þar meðtalin. Eina undantekningin er sement, þar sem Sementsverksraiðja ríkisins er ríkisfyrirtæki. Georg sagði jafnframt að af- nám hámarksálagningar á steypu næði aðeins til höfuðborgarsvæð- isins, en þar háttar steypumálum og samkeppni á þeim vettvangi öðruvísi til en úti á landsbyggð- inni, þar sem yfirleitt er ekki nema einn steypuaðili á hverjum stað. Hann sagði að Verðlagsráð hefði ákveðið að fela Verðlags- stofnun áframhaldandi eftirlit með verðlagningu byggingavara, þannig að ef eitthvað færi úr- skeiðis, hefði Verðlagsstofnun fulla heimild til þess að grípa inn í. Georg sagði að ákvörðun um það hvernig eftirliti með verð- lagningu byggingavara yrði hátt- að af hálfu Verðlagsstofnunar yrði mótuð á næstuhni. Fulltrúar launþegasamtakanna í Verðlagsráði greiddu atkvæði gegn ákvörðun þessari. Þá heimilaði Verðlagsráð 9% hækkun á hámarksverði saltfisks, og er það fyrsta saltfiskshækkun- in f liðlega eitt ár, en síðast var heimiluð hækkun á saltfiski þann 3. ágúst 1983. Saltfiskshækkunin tekur gildi frá og með morgun- deginum. Ljósm.: Georg 0. Tryggvagon. Frá flugdeginum á Melgerðismelum um helgina. Tvær svifflugur dregn- ar á loft í einu af sömu flugvélinni. Tvær í einu taki Akureyri, 7. ágúst SL. LAUGARDAG efndu flugáhuga- menn á Akureyri til svokallaós „Flying-day“ á Melgerðismelum við Akureyri. „Flugsamkoman okkar tókst alveg geysivel," sagði Finn- björn Finnbjörnsson, flugmaður hjá Flugfélagi Norðurlands, en hann var einn forgöngumanna. „f veislunni hjá okkur um kvöldið voru um eitt- hundrað manns, og alls voru um 30 flugvélar á sveðinu, þegar mest var. Hingað komu flugáhugamenn hvarvetna að af landinu og sýnt var vélflug, svifflug, fallhlffar- stökk og módelflug. En aðalatriði slíkra daga er þó það, að þarna koma saman flugáhugamenn, kynnast og ræða áhugamál sfn. Þessi dagur okkar á Melgerðismel- unum tókst afbragös vel og ég held að allir hafi farið héðan ánægðir, flestir á sunnudegi en þá fóru margir f yfirlandsflug, ýmist einir sér eða í hópum,“ sagði Finnbjörn Finnbjörnsson að lokum. G. Berg. Verður erlenda græn- metinu hent á hauga? Það er spurningin, segir landbúnaðarráðherra „ÞAÐ LIGGUR Ijóst fyrir að annað- hvort þarf að henda þessu grænmeti eða einhverju innlendu. Spurningin er aðeins um það. Ég fer ekki að leyfa innflutning á framleiðslu erlendra bænda einungis til að henda fram- leiðslu íslenskra bænda á móti. Það er engra hagur,“ sagði Jón Helgason, landbúnaðarráðherra, er hann var spurður hvort hann muni beita sér fyrir því að Eggert Kristjánsson & co. hf. fái leyfi til að tollafgreiða tvær litlar grænmetissendingar sem fyrirtækið hefur keypt til landsins, en ekki fengið leyfi fyrir. Að sögn Gísla V. Einarssonar, framkvæmdastjóra hjá Eggerti Kristjánssyni, fór starfsmaður fyrirtækisins enn eina ferð í land- búnaðarráðuneytið í gærmorgun, en var enn neitað um að fá tollpappir- ana stimplaða að öðru leyti en þvf að tollpappírar fyrir lauk, sem er hluti af annarri sendingunni fengust stimplaðir. Var þessi laukur á sér reikningi. 1 sömu sendingu var lauk- ur í miklum meirihluta með ein- hverju af káli með, en pappírar varð- andi þann hluta sendingarinnar fengust ekki stimplaðir að sögn Gísla. „Ég lít svo á að með því að stimpla pappírana varðandi laukinn hafi ráðuneytið gefið grænt ljós á að við megum flytja inn lauk og græn- meti, sem ekki er ræktað hér á landi. til sölu,“ sagði Gísli. Hann sagði einnig: „Þetta er það lítið magn að ég skil ekki þá þvermóðsku i ráðu- neytinu að gefa ekki tafarlaust leyfi til innflutningsins. Við höfum ekki fengið neina tilkynningu um að hér sé komið á markaðinn grænmeti sem fullnægir eftirspurn neytenda hvað varðar gæði og verð. Markaðurinn er öruggasti mælikvarðinn á hvort svo sé. Byrjunar- örðugleikar EINS og frá hefur verið skýrt er prentun á Morgunblaðinu nýlega hafin { nýrri prentvél. Af þessum sökum hefur dreifing blaðsins af og til tafist vegna örðugleika sem jafnan er við að etja þegar unnið er með nýjum vélum, hversu full- komnar sem þær annars eru. Morgunblaðið biður blað- burðarfólk, lesendur og alla viðskiptavini sína velvirðingar á óþægindum sem þeir verða fyrir vegna þessara byrjunar- örðugleika.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.