Morgunblaðið - 27.11.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1984
19
Ólympíumót
I júní sl. fór fram keppni ó 10 borðum milli Sovétmanna og beimsliðsins
svokallaða, eða úrvalsliðs frá öðrum löndum. Kepptar voru 4 umferðir og
lauk keppninni með sigri Sovétmanna sem hlutu 21 vinning ó móti 19
vinningum heimsliðsins. Á myndinni er lið Sovétríkjanna. Fremri röð fró
vinstri: Yusupov, Polugajevsky, Krogius, fyrirliði, Smyslov, Tal. Aftari röð:
Razuvaev, Romanishin, Vaganian, Karpov, Kasparov, Beliavsky, Tukmakov,
Sokolov.
Lið heimsliðsins: Sitjandi fró vinstri: Kortsnoj, Larsen, Hasan, fyrirliði,
Timman, Torre. Standandi fró vinstri: Httbner, Miles, Seirawan, Chandler,
Ljubojevic, Ribli, Andersson, Nunn. Þess mó geta að Portisch gaf ekki kost
ó sér í liðið.
Skák
Gunnar Gunnarsson
Þann 18. þ.m. hófst í Saloniki í
Grikklandi 26. Ólympíumótið í
skák. Þátttaendur eru 90 eða
tveimur færri en ó síðustu Ól-
ympíuleikum sem voru haldnir í
Luzern í Sviss árið 1982. Margar
fótækar þjóðir, sem ekki hafa fjór-
hagslegt bolmagn til að greiða
órgjald sitt til FIDE, verða að sitja
heima. (Árgjaldið er nú um 40 þús.
ísl. kr.) Meðal þessara þjóða eru
t.d. Andorra, Costa Rica, Kenya,
Bahama, E1 Salvador, Uganda og
fleiri. Á hinn bóginn bætast sífellt
einhverjar nýjar þjóðir við sem eru
að hasla sér völl í skók ó Ólympíu-
móti í fyrsta sinn.
Síðasta Ólympíumót, sem eins
og fyrr sagði var haldið í Luzern
fyrir tveimur árum, verður
okkur Islendingum fyrir margra
hluta sakir Iengi minnisstætt.
Tilraun Friðriks Ölafssonar til að
ná endurkjöri sem forseti FIDE
og keppni hans við Campomanes
um atkvæði þingfulltrúa verður
lengi í minnum höfð, því þá kom
í ljós hversu gífurlega vinnu og
fjármagn hafði verið lagt fram
til að styðja Campomanes.
Voru þá margir uggandi um
framtíð FIDE og töldu að dagar
þess væru taldir, ef hinn nýi for-
seti færi að ota fram skák-
mönnum í þriðja heiminum á
kostnað skákmanna frá Evrópu-
ríkjunum þar sem mikill meiri-
hluti hinna öflugri skákmanna
er búsettur. Reyndin hefur verið
allt önnur. Hinn nýi forseti hef-
ur að allra dómi gegnt forseta-
hlutverki sínu með hinni mestu
prýði og komið fram af hinni
mestu röggsemi. Þá hefur ekki
síður ritarinn sem tók við af In-
iku Bakker staðið sig mjög vel.
Hinsvegar er Campomanes ekki
alltaf öfundsverður í þessu starfi
eins og best kom fram i sam-
skiptum hans við Sovétmenn
vegna ágreinings um keppnis-
stað fyrir einvigin milli þeirra
Ksparovs og Kortsnojs og Smyslov
og Ribli. Ákveðið hafði verið að
halda einvigin i Pasadena (
Ilandaríkjunum en Sovétmenn
mótmæltu harðlega eins og
skákáhugamenn muna og fóru
einvígin að lokum fram í London
eftir mikið þras.
Utgáfa skákblaðs
í Luzern
Á hverjum degi kom út i Luz-
ern á meðan skákmótið stóð yfir
skákblað með öllum skákum sem
tefldar voru á Ólympíumótinu.
Þetta daglega skákblað hét ein-
faldlega „Skák“ og sá ritstjóri
Skókar, Jóhann Þórir Jónsson um
UT ER komið nótnahefti með söng-
lögum eftir Björgvin Þ. Valdimars-
son. í heftinu eru 12 einsöngslög og
2 dúettar.
Höfundar ljóða eru meðal ann-
arra Davið Stefánsson, Stefán frá
Hvítadal, Jónas Hallgrímsson,
Þorsteinn Valdimarsson og Erla
(Guðfinna Þorsteinsdóttir).
Nótnateiknun annaðist Páll
Halldórsson og káputeikningu
gerði Jónína Valdimarsdóttir.
útgáfuna. Að þessu blaði stóðu
um 20 manns, flestir íslend-
ingar, en auk þeirra skrifuðu i
blaðið fjöldi annarra sem gerðu
þessa útgáfu bæði áreiðanlega,
skemmtilega og síðast en ekki
síst mjög fróðlega. Verður
ábyggilega bið á því að önnur
eins blaðaútgáfa sjái dagsins
ljós á Ólympíumóti, nema ef
vera skyldi að Jóhann tæki þetta
verkefni aftur að sér. En þessi
blaðaútgáfa dró dilk á eftir sér
fyrir Jóhann, þvi miður. Samn-
ingar voru ekki haldnir og tekju-
öflun fór mestan part forgörðum
og tap Jóhanns varð gífurlegt, en
ekki er ennþá séð fyrir endann á
því vegna málareksturs. En Jó-
hann á heiðurinn skilið fyrir
framtakið.
Árangur íslendinga á
síðasta Olympíumóti
Ef við reynum að meta mögu-
leika okkar manna á þessu 01-
ympíumóti er fróðlegt að rifja
upp árangur þeirra á síðasta
móti og meta stöðuna i dag í
ljósi þess. ísland hafnaði i 23.
sæti ásamt Norðmönnum og
Finnum, en hinar Norðurlanda-
þjóðirnar voru talsvert fyrir
ofan okkur eða Svíar í 16. sæti og
Danir i 8. sæti. ísland fékk 31 'k
vinning, Svíar 31 'k og Danir
fengu 32 'k vinning, þannig að
einn vinningur getur breytt
stöðunni um mörg sæti. íslend-
ingar tefldu í siðustu umferð við
Holland og töpuðu með 'k vinn-
ingi á móti 3'A vinningi Hollend-
inga. Að vísu var og er Holland
með geysiöfluga skákmenn eins
og þá Timman, Sosonko, Ree og
van der Wiel, en það var súrt að
ná einungis jafntefli, en það
gerði Helgi Ólafsson á öðru
borði. Var þessi keppni einkenn-
andi fyrir íslendinga: tauga-
óstyrkurinn of mikill þegar mik-
ið var í húfi og teflt undir styrk-
leika. Tel ég að í dag séu allir
ungu mennirnir i liðinu miklu
betur í stakk búnir til að halda
styrk sínum á örlagastundu og
hafa þeir allir fengið aukinn
þroska og styrk eins og frammi-
staða þeirra á alþjólegum mót-
um undanfarið ber vott um. Tak-
ist þeim að ná sæti einhvers
staðar á bilinu 12. til 16. sæti
væri það vel viðunandi og jafn-
vel glæsilegt, því t.d. Hollend-
ingar urðu í 17. sæti með 31 'k
vinning. Ekki má gleyma þvi að
fyrstu 17 þjóðirnar eru flestar
með stórmeistara á 1. borði og
sumar með stórmeistara á öllum
borðum. En íslendingar eru
skráðir 8. stigahæsta þjóðin áð-
ur en keppni hefst og takist þeim
að halda því yrði það stórkost-
legt.
KvennalandsliÖ
Kvennalandsliðið er skipað
þeim Guðlaugu Þorsteinsdóttur,
Ólöfu Þráinsdóttur og Sigurlaugu
Friðþjófsdóttur, sem allar voru
með í síðustu ólympíukeppni.
Þeim vegnaði vel í fyrstu en þeg-
ar þær mættu öflugustu þjóðun-
um urðu þær að lúta í lægra
haldi. Kvenfólkinu hefur líka
vaxið ásmegin eins og piltunum
og hafa teflt mikið að undan-
förnu og undanfarið verið undir
leiðsögn Helga Ólafssonar.
Kvennaskák á íslandi er því
miður í dálítilli lægð og kvenfólk
stundar skák ekki af jafnmiklu
kappi og piltarnir og því lætur
glæsilegur árangur á sér standa.
Skákin krefst gifurlegrar þjálf-
unar eins og allir vita og árang-
ur næst ekki nema með þrot-
lausri æfingu. Á síðasta móti
náðu þær 25. sæti og fengu 21
vinning. Sovésku stúlkurnar
unnu og fengu 33 vinninga, i 2.
sæti þær rúmensku, fengu 30
vinninga, en í 3. sæti urðu þær
ungversku og fengu þær einung-
is 26 vinninga. Eins og Friðrik
forðum hefur Guðlaug verið
burðarás liðsins, en hinar hafa
allar bætt við sig í styrkleika og
ættu að geta bætt sig.
Nýr liðsstjóri
Liðsstjóri síðasta Ólympíuliðs
var hinn margreyndi alþjóðlegi
skákmeistari Ingi R. Jóhannsson,
sem jafnframt tefldi nokkrar
skákir. Ingi er þekktur fyrir frá-
bærlega góðar biðstöðurann-
sóknir og stóð sig með prýði í því
hlutverki. Nú var valinn ágætur
skákmaður liðinu til halds og
trausts, Dr. Kristján Guðmunds-
son, sem dvalið hefur erlendis
um nokkur ár, en getið sér ágæt-
an orðstír. Vonandi tekst honum
þetta hlutverk vel.
3 dagar, kr. 8.653.—
5 dagar, kr. 9.915.—
7 dagar, kr. 13.091.-
Þægindi
Flugleiðir bjóða þér að velja á milli hótela í Glasgow
eða Edinborg. Þessi hótel eru öll fyrsta flokks, en ódýr
engu að síður. Við viljum sérstaklega vekja athygli þína
á splunkunýju og stórglæsilegu hóteli í Glasgow sem
heitir Skean Dhu. Gisting á þessu ágæta hóteli er
ótrúlega ódýr.
Skemmtun
Glasgow státar af afbragðs góðum veitingastöðum og
pöbbum í hefðbundnum skoskum stíl. Á fjölum leikhús-
anna er alltaf eitthvað spennandi. Einnig er líklegt að
þú lendir á skemmtilegum hljómleikum.
Verð
Ofangreindar verðtölur fela í sér flug og gistlngu í 2
manna herbergi á Skean Dhu. Morgunverður er innifal-
inn, en flugvallarskattur bætist við. Sérstakur afsláttur
er veittur fyrir börn.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
ÓSA