Morgunblaðið - 27.11.1984, Blaðsíða 68
36
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1984
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1984
37
Stórkostleg
stemmning í
Laugardalshöll
- þegar FH vann ungversku meistarana
„Þetta er þaö besta sem sést
hefur í íslenskum handknattleik í
mörg ár, þetta var stórkostlegur
leikur," sagói einn handknatt-
leiksáhugamaöur eftir leik FH og
Honved á sunnudagskvöld í
Laugardalshöllinní. Og þaö voru
honum margir sammála. Lió FH
vann þaö stóra og glæsilega af-
rek aö sigra ungversku meistar-
ana með 26 mörkum gegn 22 i
síöari leik liöanna í Evrópukeppni
meistaralióa f handknattleik.
Fyrri leik liöanna sem fór fram í
Búdapest lauk meö sigri Honved,
29—27. Þaö var uppselt á leikinn
á sunnudagskvöldiö og uröu
margir frá aö hverfa. En þeir sem
lögöu leiö sína í Laugardalshöll-
ina uröu ekki fyrir vonbrigöum.
Leikur FH og Honved hafói allt til
aö bera sem prýóir góöan hand-
knattleik. Hraöa, spennu og gull-
falleg mörk. Áhorfendur tóku
mikinn þátt í leiknum og áttu
sinn stóra þátt í því aö FH sigraói
því stemmningín og hvatningar-
hrópin voru ólýsanleg. Sigur FH
er rós í hnappagat liösins því
ungverskur handknattleikur er
hátt skrifaóur enda vióurkenndi
þjálfari Honved eftir leikinn aó
hann og leikmenn hans vnru
mjög leiöir og heföu oröiö fyrir
miklum vonbrigöum meö tapiö
því þeir áttu ekki von á ööru en
sigri í leíknum. Þetta er í þriója
skiptið sem FH og Honved mæt-
ast í Evrópukeppni og nú tókst
FH aö komast áfram en í tvö fyrri
skiptin komst Honved áfram þó
svo aö mjótt hefói veriö á mun-
um. Leikmenn FH geta verið
stoltir af árangri sínum og aldreí
er aö vita nema FH-liðið eigi eftir
aö gera enn betur í meistara-
keppni Evrópu aö þessu sinni.
Þaö voru Ungverjar sem skor-
uöu fyrsta mark leiksins en
FH-ingar sem komu mjög ákveðnir
til leiks náöu aö jafna strax. Hans
Guömundsson skoraöi meö lang-
skoti og var það forsmekkurinn af
því sem koma skyldi hjá honum í
leiknum. Strax á upphafsmínútum
leiksins náöu leikmenn FH góöum
tökum á honum og komu Ungverj-
um í opna skjöldu meö hraöa sín-
um og öryggi. FH komst í 5—1 á
fyrstu níu mínútunum. En þá kom
slæmur kafli hjá liöinu, leikmenn
voru farnir aö flýta sér um of og
Honved minkaði muninn niöur i
eitt mark, 5—4. FH-ingar hóldu
samt frumkvæöinu í leiknum allan
fyrri hálfleikinn og gáfu aldrei
þumlung. Á 23. mínútu leiksins
tókst Honved að jafna metin,
10—10. Stórskyttan Bordas haföi
þá gert fjögur mörk í röö. Þá var
varnarleikur Guöjóns í horninu
siakur og þaö nýttu Ungverjar sér.
Honved komst marki yfir, 11—10,
en FH jafnaöi og skoraöi síöustu
þrjú mörk hálfleiksins. Staöan í
hálfleik var 14—11. FH þurfti aö
vinna leikinn meö tveggja marka
mun og var ekki annaö aö sjá á
leikmönnum FH en aö þeir ætlu
sér þaö hvaö sem þaö kostaöi.
FH byrjaöi meö boltann i siöari
hálfleik og þaö var Kristján Arason
sem skoraði úr vítakasti, því fyrsta
sem dæmt var í leiknum. Mikil ein-
beitni og yfirvegun var í leik FH
framan af síöari hálfleik og liöinu
tókst aö ná fimm marka forskoti,
17—12. Þorgils Óttar skoraöi 17.
FH — Honved
markiö af línu sérlega glæsilega,
vippaöi yfir markvöröinn úr mjög
erfiöri aöstööu. Ungverjar voru þó
ekki á því aö gefast upp þeir léku
vel, hraöan og léttan handknattleik
en gekk hinsvegar illa aö opna
góöa vörn FH-liösins. Þegar síðari
hálfleikur var hálfnaöur var staöan
20—16. Þá var allt aö komast á
suöupunkt í leiknum. Hart var bar-
ist á báöa bóga og ekkert mátti
fara úrskeiöis hjá FH. Þegar tíu
mínútur voru til leiksloka haföi FH
enn fjögurra marka forskot,
20—16. Og þegar sjö mínútur voru
til leiksloka var allt útlit fyrir örugg-
an sigur því aö FH haföi þá náö
fimm marka forskoti, 23—18. En
veöur er fljótt aö skipast í lofti í
handknattleik. Næstu sex sóknir
FH í röö mistókust allar. Þaö var
skotiö of fijótt, leikmenn misstu
boltann og reyndu mjög óyfirveg-
aöar línusendingar sem fóru beint
í hendur Ungverja. Leikmenn
Honved eygöu nú síöasta mögu-
leika sinn á aö jafna metin og sigu
hægt og bítandi á. Honved skoraði
næstu þrjú mörk án þess aö FH
svaraöi fyrir sig. Staöan var
23— 21 tveggja marka forskot og
nú var fariö aö fara um áhorfendur
í höllinni og margir þeirra hafa
sjálfsagt gengiö út frá því sem vísu
aö leikurinn myndi tapast. En
FH-ingar voru ekki á sama máli.
Þegar sóknarleikur þeirra fór úr
skoröum tókst þeim aö bæta varn-
arleik sinn. Þorgils Óttar fyrirliöi
FH skoraöi 24. markiö úr hraöa-
upphlaupi þegar 1,27 mín. voru
eftir af leiknum. Honved minnkaöi
muninn strax aftur niöur í tvö mörk
24— 22. Leikmenn FH náöu svo
góöum og snörpum lokaspretti.
Hans Guömundsson skoraöi í
næstu sókn meö ofsaskoti. Hans
lyfti sér upp fyrir utan punktalínuna
og sannkallaöur þrumufleygur
hans þandi út netiö, gjörsamlega
óverjandi skot fyrir markvöröinn.
Ungverjarnir misstu svo boltann í
siöustu sókn sinni og Pálmi Jóns-
son innsiglaöi sigur FH meö góöu
marki. Lokatölur: 26—22, fjögurra
marka sigur.
Lið FH lék leikinn gegn Honved
mjög vel. Leikmenn þekktu sín
takmörk. Þeim tókst aö keyra upp
hraöann á réttum augnablikum og
róa leikinn niöur þegar viö átti. Aö
vísu munaöi litlu undir lokin aö FH
missti leikinn úr höndum sér. En
þes ber aö gæta aö lítiö var um
innáskiptingar hjá FH og sömu
leikmennirnir spiluöu allan leikinn
út í gegn og voru orönir örþreyttlr
undir lokin. Þeim tókst þó aö bæta
viö sig og ná aö sigra örugglega
eftir aö hafa haft frumkvæöiö í
leiknum allan tímann.
Þetta var sigur liösheildar sem
vann vel saman í vörn og sókn.
Hans Guömundsson átti stórleik,
skoraöi 10 mörk, ekkert þeirra úr
vítaköstum. Flest geröi Hans þau
utan af velli meö ofsalega föstum
skotum. Þorgils Óttar lék afarvel
bæöi í vörn og sókn. Þorgils er
útsjónarsamur leikmaöur sem nýtir
marktækifæri sín vel og er mjög
fljótur í hraöupphlaupum. Kristján
Arason lék vel jafnt i vörn sem
sókn. Hann heföi þó mátt vera
ákveðnari í sóknarleiknum og ekki
svona ragur viö aö skjóta. Pálmi
Jónsson sýndi snilldartakta i horn-
inu og skoraöi mikilvæg mörk á
réttum augnablikum þegar Ung-
verjarnir höföu góöar gætur á
stórskyttum FH. Valgarö Val-
garösson var traustur í varnar-
leiknum og gætti iínumanna
Honved mjög vel. Haraldur mark-
vöröur átti í nokkrum erfiöleikum
meö þrumuskot Ungverja en varöi
vel inná milli. Veikasti hlekkurinn í
liöi FH er aö meiri breidd vantar í
liöiö. Þaö er slæmt aö geta ekki
hvilt lykilmenn liösins augnablik í
svona erfiöum leikjum. Mörk FH í
leiknum skoruöu Hans Guö-
mundsson 10, Þorgils Óttar 6,
Kristján Arason 5, 2 v, og Pálmi
Jónsson 5.
„Toppurinn
á feriinum"
fyrirliði FH, Þorgils Óttar
„ÞAD var stórkostlegt aö vera
þátttakandi í þessum leik. Þetta
er toppurinn á mínum ferli fram
aö þessu. Þaö gera sér sennilega
fæstir grein fyrir því hversu mikiö
afrek þaö er aö slá ungversku
meistarana út í Evrópukeppni
meistaraliöa. Þetta er meiri hétt-
ar érangur fyrir FH. Þé var
stemmningin hjá éhorfendum
mikil. Þeir fleyttu okkur svo sann-
arlega yfir flúöirnar meö hvatn-
ingarhrópum sínum. Vió FH-ingar
kunnum þeim bestu þakkir og er-
um stoltir yfir því að hafa ekki
brugóist þeim mikla fjölda eem
kom til aö horfa á leikinn til aö
taka þétt í honum með okkur,“
sagöi fyrirliói FH Þorgils Óttar
Mathiesen.
,Að mínu mati lékum viö vel í
kvöld, og þegar sóknarleikur
okkar brást gátum viö bætt varn-
arleikinn, þaö réö úrslitum. Viö
héldum líka höföi undir lokin þegar
litlu mátti muna og sjálfsagt hafa
flestir átt von á því aö viö myndum
ekki hafa þaö. En þaö tókst sem
betur fer,“ sagöi Þorgils sem var
úrvinda af þreytu eftir leikinn enda
inná allan tímann. — ÞR
Morgunblaöiö/Julius
• Pálmi Jónsson, hornamaóurinn snjalli í liöi FH, lék vel gegn Honved og skoraöi falleg mörk. Á þessum
myndum sjáum viö hvar hann hefur snúiö á einn leikmanna Honved, stungiö sér inn í teiginn og skorar.
Boltinn fór rakleiöis í markiö, án þess aö markvöröurinn kæmi nokkrum vörnum viö, eins og sjá má.
Einstakir áhorfendur
„Stuðningurinn sem FH fékk
hjé éhorfendum var ekki lítill,
þeir eru einstakir. Þeir skilja leik-
inn vel, taka virkan þétt í honum
en eru um leiö kurteisir," sagói
þjélfari Honved eftir leik FH og
Honved. Undir þetta tóku norsku
dómararnir. Þeir sögöu aö þaö
væri óvíöa sem slíkir éhorfendur
væru é feröinni. Þetta er ekki f
fyrsta skipti sem haft er orö é því
hversu frébærír íslenskir éhorf-
endur geta verió þegar þeim
tekst vel upp og skapa stemmn-
ingu. En é sunnudagskvöldió f
Laugardalshöllinni var stemmn-
ing eins og hún gerist best é
íþróttakappleik. Blésiö var í
lúöra, hrópaö og stappaö og svit-
inn draup af éhorfendum ekki
síöur en leikmönnum, enda var
spennan í síöari hluta leiksins
meö ólíkindum.
Leikmenn FH voru yfir sig hrifnir
af stuöningsmönnum sínum, Þor-
gils fyrirliöi sagöi aö slíkur stuön-
ingur væri ómetanlegur og ekki
væri nokkur vafi á því aö hann
heföi fleytt FH yfir hjallann þegar
verst gekk um tíma undir lok leiks-
ins. Þá er þaö ekki síöur stuöning-
ur fyrir iþróttamennina aö finna
þann mikla áhuga sem rfkir á íþrótt
þeirra og þeim fögnuöi sem brýst
út þegar sigur er í höfn. Þaö er afar
sjaldan sem þaö hefur komiö fyrir
aö liö frá Noröurlöndum hefur
slegiö liö frá A-Evrópu út í Evrópu-
keppni í handknattleik. En það
tókst liöi FH aö þessu sinni og
veröur fróölegt aö fylgjast með
framhaldinu i meistarakeppni fé-
lagsliöa. En frammistaöa þeirra
undirstrikar sterka stööu íslensks
handknattleiks í dag og er íþrótt-
inni mikil lyftistöng.
Morgunblaöið/ Július
• Leik FH gegn Honved eö Ijúka, éhorfendur ríee úr eætum og hrópe í kór FH, FH, FH, FH, FH, etemmningin
var eins og hún getur best oröið é íþróttakappleik. Jé, þaö hefur margsannaö sig aö islenskir éhorfendur
eru einstakir viö aö hvetja sína menn þegar þeir taka sig til. Þé standa þeir vel fyrír sínu.
Alfreð skoraöi fimm
og lék mjög vel
Essen tapaði í Júgóslavíu - Úrslitin gætu dregiö dilk á eftir sér
Frá Jóhuni 1*0 Kumuranyni, frétUnuuui
Morgnnblnösins í Vestnr Þýskninndi
Alfreö Gíslason étti mjög góö-
an leik er Essen tapaöi 17:23 í
Júgóslavíu um helgina fyrír
Zrenjanin Proleter í IHF-Evrópu-
keppninni í handknattleik. Essen
er þar meö úr leik — vann fyrrí
leikinn 21:16 heima, en leikurinn
um helgina gæti þó dregiö dilk é
eftir sér.
Essen skoraöi mark undir lok
leiksins — og heföi þaö staöiö
heföi Essen fariö áfram í keppn-
inni. Markatalan veriö jöfn en Ess-
en skoraöi fleiri mörk á útivelli. En
dómarar leiksins segja aö knöttur-
inn hafi ekki veriö kominn inn í
markiö er tímavöröur flautaði leik-
inn af. Leikmenn Essen eru meö á
því — en fullyröa hins vegar aö
tímavöröurinn hafi veriö hlutdraag-
ur meö afbrigöum og flautaö leik-
inn af 13 sekúndum fyrir leikslok.
• Alfreö Gíslason lék vel i Júgó-
slavíu og skoraöi fimm mörk.
Enn er ekki Ijóst hvaö gerist í
þessu máli.
Alfreö lék mjög vel eins og áöur
sagöi og skoraöi fimm mörk. Hann
á viö meiösli aö stríöa — og æföi
ekkert meö liöi sinu alla síðustu
viku. Hann var stöan sprautaöur
fyrir leikinn til aö hann gæti verlö
meö.
Eftir leikinn brutust út slagsmál
milli leikmanna beggja liöa og
dómara — allt hreinlega á suöu-
punkti í höllinni og ég hef aldrei
séö neitt þessu líkt. Lætin voru
sýnd í sjónvarpi.
Eins og áöur sagöi vann Essen
fyrri leikinn um síöustu helgi 21:16
og þá skoraöi Alfreö átta mörk.
Lék frábærlega.
Þýsku meistararnir Grosswall-
stadt komust áfram i Evrópu-
keppni meistaraliöa um helgina er
liöið sigraöi CZKA Sofia frá Búlg-
aríu 26:14 á heimavelli. Fyrri leikn-
um tapaöi þýska liöiö 12:17 á úti-
veML
Svissneska liöiö St. Otmar fór
áfram í IHF-keppninni, vann Berlin
17:14 í Sviss, en Berlin vann fyrri
leikinn 23:22.
Þá fóru tékknesku meistararnir
Dukla Prag áfram í 8 liöa-úrslitin,
og er liöiö gífurlega sterkt nú.