Morgunblaðið - 13.02.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985
3
Morgunbladid/Sigurgeir
Tjaldurinn
kominn til Eyja
Tjaldurinn er nú farinn að
heiðra Vestmanneyinga með
nærveru sinni og er hann nokkru
fyrr á ferðinni en venjulega.
Telja Eyjamenn þetta merki þess
að vorið verði fyrr á ferðinni en
áður og því til stuðnings benda
þeir á að lundinn sé þegar farinn
að sjást upp undir Eyjum.
Borgarleik-
húsið við
Listabraut
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum nýverið nýtt götunafn í
nýja miðbænum við Kringlumýri.
Nafnið á götunni verður Lista-
braut og standa Borgarleikhúsið
og Borgarbókasafnið við götuna.
Svavar Gests lýsti því yfir að
Lionshreyfingin myndi brátt hefja
söfnun fyrir línuhraðli, mjög full-
komnu geislalækningatæki, sem
Lionsmenn hyggjast gefa Landspít-
alanum.
Lionstncnn safna fyrir
tínuhraðli
n Svavar Gests, formaður
Lionshreyfingarinnar, á íslandi
tók til máls og lýsti því yfir að í
apríl yrði hafin söfnun fyrir full-
komnasta geislalækningatæki sem
völ væri á, svokölluðum línuhraðli,
sem Lionsmenn hyggjast gefa
Landspítalanum. Svavar sagðist
vona að tækið yrði tilbúið til af-
hendingar stuttu áður en K-bygg-
ingiii yrði tekin i notkun.
Ennfremur tóku til máls Magn-
ús Karl Pétursson læknir og Davíð
Á. Gunnarsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra.
Vesturgata:
Hraðahindranir teknar niður
BORGAKRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær, þriðjudag, að taka niður
hraðahindranir við Vesturgötu, en nokkrar deilur hafa staðið um hindr-
anir þessar að undanförnu.
Hér er um að ræða tvær grindur austast og vestast í götunni, sem
nú hefur verið ákveðið að taka niður. Þess í stað verða settar upp
þrjár upphækkanir til að draga úr umferðarhraða við götuna og að
sögn Davíðs Oddssonar borgarstjóra er þessi afgreiðsla málsins í
sátt við alla aðila.
„Afslátturinn getur spar-
að ríkinu milljónir króna“
— segir forstjóri Innkaupastofnunar um bifreiðaútboö ríkisins
0
Borgartúni 27 Sími 28450
tilboð, t.d. bárust 42 tilboð í 7
gerðir jeppa- og fjórhjóladrifs-
bifreiða. Verð þeirra var á bilinu
287 þúsund til 1300 þúsund, en
viðmiðunartegundir voru á bilinu
375 þúsund til 955 þúsund. í
fimm tegundir sendibíla bárust
43 tilboð, hið lægsta 283 þúsund
krónur, en hið hæsta 810 þúsund.
Tilboð í viðmiðunartegundir voru
á bilinu 370—542 þúsund. Tilboð
í tvær tegundir skutbíla voru frá
krónum 507 þúsund til 706 þús-
und. Tilboð í viðmiðunarbifreiðir
voru á bilinu 557 þúsund til 668
þúsund krónur.
„Það er greinilegt að ríkið hef-
ur úr mörgu að velja og hægt er
að fara langt niður í verði. Hins
vegar þarf auðvitað líka að velja
bifreiðirnar með tilliti til gæða,“
sagði Ásgeir Jóhannesson að lok-
um.
Allt tréverk í húsið
frá okkur
Eldhús- og baðinnréttingar, skápar, stigar, handrið, hurðir
og svo mætti lengi telja.
Við spörum fólki ómæld skrefm í leit að fallegu, smekklegu
og vönduðu tréverki í húsið, það fæst ailt hjá okkur.
Tréverkið frá okkur mælir með sér sjálft. Það hefúr sýnt sig
að fólk sem einu sinni hefúr valið innréttingar frá okkur velur
aftur Benson-gæði.
Ef þú ert að skapa þér og þínum heimili sem á að vera
smekklegt og vandað átt þú erindi til okkar.
„AFSLÁTTUR fyrirtækja er mjög
misjafn, allt frá 2,5% upp í 15%, en
það er Ijóst að heildarafsláttur get-
ur numið nokkrum milljónum
króna,“ sagði Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Innkaupastofnunar ríkis-
ins, þegar hann var spurður frétta
af bifreiðaútboði ríkisins.
„Við erum núna að vinna að
úttekt á tilboðum í samvinnu við
ýmsar ríkisstofnanir með kaup á
bifreiðum í huga,“ sagði Ásgeir.
„Það komu á annan tug áhuga-
verðra tilboða, en mismunandi
mörg í hinar ýmsu stærðir bif-
reiða, sem við óskuðum eftir.
Sem dæmi má nefna, að í fjórar
tilgreindar stærðir smábíla
komu tilboð um 53 mismunandi
tegundir. Verð á þeim bifreiðum
voru frá um 130 þúsund krónum
upp í 760 þúsund, en viðmiðun-
artegundir, sem við gáfum upp,
voru á bilinu 214 þúsund til 375
þúsund krónur. Það er greinilega
úr miklu að velja.“
Ásgeir nefndi fleiri dæmi um