Morgunblaðið - 20.02.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1985
UTVARP / S JON VARP
Um daginn
og ...
Ætli við yrðum ekki bráðlega
eins og blindir kettlingar,
ef stjórnvöld réðu alfarið allri
upplýsingamiðlun í samfélaginu?
Þessi spurning leitaði ákaft á
huga minn á mánudaginn, af
þeirri ástæðu að þann dag kom
fram ákaflega gagnleg gagnrýni á
stjórnvöld og löggjafann í ríkis-
fjölmiðlunum. I fyrsta lagi í þætt-
inum Um daginn og veginn, en þar
gagnrýndi Ólafur Stephensen hin
nýju útvarpslög sem hann taldi
ekki koma nægilega vel til móts
við breyttar aðstæður í heimi fjar-
skipta. Minntist hann sérstaklega
á þann vanda er kapalsjónvarpi er
búinn; njóti það ekki sömu rétt-
inda varðandi auglýsingadreifingu
og „ljósvakastöðvar". Gat Ólafur
þess að dýrt væri að koma á kap-
alsjónvarpi og að slíkar stöðvar
gætu ekki boðið uppá nema ódýrt
aðkeypt afþreyingarefni og nyti
ekki ágóða af auglýsingum. Fleiri
gagnlegar ábendingar í svipuðum
dúr komu frá Ólafi Stephensen
sem of langt er upp að telja, en
Alþingi hlýtur að fagna öllum
slíkum athugasemdum frá hinum
almenna borgara.
Nauðsynlegt aðhald
í annan stað kom fram þörf
áminning í sjónvarpsfréttum á
hendur heilbrigðisyfirvöldum,
læknum og apótekurum. 1 smá-
frétt af tveimur læknum er tóku
sig til og gerðu könnun á verðmun
á sambærilegum álíka notadrjúg-
um lyfjum. Kom í ljós að það mun-
ar oft allt að 50% á lyfjum fram-
leiddum innanlands og hliðstæð-
um meðulum frá stóru alþjóðlegu
lyfjaverksmiðjunum. Já, það
græða svo sannarlega margir á
krankleika samborgaranna, ekki
bara þeir sem flytja inn lyf og
selja þau, heldur og þeir er selja
sjúkratæki til spítalanna. Við
slíku er ekkert að segja svo fremi
sem gætt er hagkvæmni í innkaup-
um. Hafi læknarnir tveir þökk
fyrir þarft framtak, er markar
vonandi upphaf að frekari könnun
á innkaupum þeirra er starfa inn-
an heilbrigðisgeirans.
Nýhús
Sá verðmunur er kom fram í
lyfjakönnun læknanna tveggja
leiddi hugann ennfremur að um-
ræðum ríkisfjölmiðlanna á mánu-
daginn var um húsnæðisvandann.
Þar kom nefnilega fram að senni-
lega er hægt að byggja mun ódýr-
ara á íslandi en nú er gert. Þannig
byggir Byggung sínar fjölmörgu
íbúðir á allt að 50% lægra verði en
almennt gerist. Er ekki þjóðhags-
lega hagkvæmt að veita fjármagni
til þeirra fyrirtækja er beita sér
þannig fyrir lækkun byggingar-
kostnaðar? En Byggung er ekki
eitt um hituna. Ég vil nefna annað
fyrirtæki sem beitir sér fyrir
þróun einingahúsa og hefir í því
skyni meðal annars efnt til sam-
keppni meðal arkitekta um
grundvallareiningakcrfi er gæti
með tímanum valdið hér byltingu
í raðsmíði húsa. Þetta fyrirtæki
nefnist Nýhús hf. og er hlutafélag
fimm einingahúsaverksmiðja. Það
er nærtækur, raunhæfur mögu-
leiki í sókninni til bættra lífskjara
að styrkja slík fyrirtæki sem Ný-
hús hf. og Byggung, því þau beita
fyrir sig tækni og hönnun er skilar
húsbyggjendum vandaðri og mun
ódýrari húsum en við gátum
vænst fyrir nokkrum árum. Þetta
þýðir aftur að lán Húsnæðisstofn-
unar nýtast betur og hjónaskiln-
uðum, sjálfsmorðum og sálsýkis-
tilfellum fækkar, er aftur léttir á
heilbrigðiskerfinu. Þannig léttir
tæknin okkur lífið ef rétt er að
staðið.
Ólafur M.
Jóhannesson
Óskar Gíslason ljósmyndari
— síöari hluti
■■■■ í kvöld kl. 21.12
0015 verður sýndur
síðari hluti
myndar um Óskar Gísla-
son Ijósmyndara úr Safni
sjónvarpsins sem Erlend-
ur Sveinsson og Andrés
Indriöason unnu.
Óskar er sem kunnugt
er einn af brautryðjend-
um íslenskrar kvik-
myndagerðar. Óskar
fæddist í Reykjavík árið
1901. Hann nam fyrst
ljósmyndun hér heima en
lauk prófi í þeirri iðn í
Kaupmannahöfn árið
1921. Hann stofnaði eigin
Óskar Gíslason að störfum.
ljósmyndastofu hér og
veitti m.a. forstöðu fyrstu
ljósmyndastofu sjón-
varpsins.
Óskar hefur starfað að
kvikmyndagerð frá 1940.
Fyrsta kvikmyndin sem
hann sýndi opinberlega
var Lýðveldishátíðar-
myndin sem sýnd var
þremur dögum eftir há-
tíðina. Aðrar kunnustu
myndir hans eru: Síðasti
bærinn í dalnum; Björg-
unarafrekið við Látra-
bjarg; Reykjavíkurævin-
týri Bakkabræðra; Ágirnd
og Nýtt hlutverk.
í fyrri þættinum var
fjallað um upphaf kvik-
myndagerðar Óskars og
sýndir kaflar úr nokkrum
myndum sem hann gerði á
árunum 1945 til 1951. í
kvöld verður svo fjallað
um leiknar kvikmyndir
sem Óskar gerði á árun-
um 1951 til 1959, sýndir
verða kaflar úr þeim og
rætt við Óskar og nokkra
samstarfsmenn hans.
Tónlistar-
kross-
gátan
Hér birtist tónlistar-
krossgáta rásar 2 númer
20. Þáttur Jóns Gröndal
er á sunnudaginn 24.
febrúar kl. 15 og gefst þá
hlustendum tækifæri til
að svara einföldum spurn-
ingum um tónlist og tón-
listarmenn og ráða kross-
gátuna um leið.
Lausnir sendist til:
Kíkisútvarpsins rás 2,
Hvassaleiti 60, 108 Keykja-
vík, merkt Tónlistarkross-
gátan.
John Blackthorne og hin fagra Yoko Shimada.
Herstjórinn
21
■■ Annar þáttur
20 bandaríska
— framhalds-
myndaflokksins Herstjór-
inn, er á dagskrá sjón-
varps í kvöld kl. 21.20.
Myndaflokkurinn er gerð-
ur eftir metsölubókinni
„Shogun" eftir James
Clavell.
I fyrsta þætti gerðist
þetta helst: Hollenskt
kaupfar ferst við Jap-
ansstrendur árið 1958.
Stýrimaðurinn John
Blackthorne, sem leikinn
er af Richard Chamber-
lain, kemst af ásamt öðr-
um af áhöfninni. En
þeirra bíður ekkert sæld-
arlíf í landi. Innfæddir
eru afar ófriðsamir og
hafa horn í síðu „sjóræn-
ingjanna".
Ahöfnin er hneppt í
dýflissu og sætir þar illri
meðferð. Á þessum tímum
drottna Portúgalir yfir
úthöfunum og eiga ítök í
Japan þar sem fimm höfð-
ingjar deila með sé völd-
um og ríkjum. Einn
þeirra, Toranga, hefur ör-
lög Blackthornes í hendi
sér og hótar öllu illu, verði
hann ekki að vilja hans.
Áhafnarmeðlimir eru
algerlega mállausir á jap-
anska tungu sem skiljan-
legt er og eiga því í stök-
ustu vandræðum með að
koma sínu á framfæri.
Ekki bætir úr skák að eini
enskumælandi maðurinn í
grendinni er grimmlyndið
sjálft uppmálað og er auk
þess hliðhollur hinum
grimma Toranga.
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
20. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar trá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Erlendur J6-
hannsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Pípuhattur galdramanns-
ins" eftir Tove Jansson.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
les þýöingu Steinunnar
Briem (5).
9Æ0 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr).
10.45 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Dr ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
11.45 Islenskt mál. Endurtekinn
þáttur Asgeirs Blöndals
Magnússoar frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón
leikar
13.20 Barnagaman. Umsjón:
Sigrún Jóna Krisíjánsdóttir.
13JO „The Tattoo”, „All
Stars", Miriam Makeba o.fl.
syngja og leika.
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot. Bryndis Vlg-
lundsdóttir les þýðingu slna
(10).
14.30 Miðdegistónleikar. Part-
ita polonoise I A-dúr eftir
George Philipp Telemann.
Narciso Vepes og Godelieve
Monden leika á gltar.
14.45 Popphólfið. — Bryndls
Jónsdóttir.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 íslensk tónlist.
a. Fiðlusónata eftir Fjölni
Stefánsson. Rut Ingólfsdóttir
og Glsli Magnússon leika.
b. Klarinettusónata eftir
Gunnar Reyni Sveinsson.
Egill Jónsson og Ólafur Vign-
ir Albertsson leika.
/k
c. „Torrek" eftir Hauk Tóm-
asson. Islenska hljómsveitin
leikur; Guðmundur Emilsson
stjórnar.
d. „Hymni" eftír Snorra Sig-
fús Birgisson. Nýja strengja-
sveitin leikur; höfundur
stjórnar.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Horft i strauminn með
Auði Guðjónsdóttur
(RÚVAK).
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn
hans" eftir Jules Verne.
Ragnheiður Arnardóttir les
þýðingu Hannesar J. Magn-
ússonar (3).
20.20 Hvað viltu verða?
Starfskynningarþáttur f um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
21.00 Orgeltónlist
Martin GOnther Förstemann
leikur á orgel Selfosskirkju.
a. „Refsa mér ei f reiði
þinni”, sálmfantasla op. 40
nr. 2 eftir Max Reger.
b. Prelúdla og fúga I A-dúr
eftir Johann Sebastian
Bach.
c. „Nú geng ég fyrir þinn há-
sætisstól", sálmforleikur eftir
Johann Sebastian Bach.
21.30 Að tafli. Guðmundur
Arnlaugsson flytur skákþátt.
SJÓNVARP
19.25 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni: Söguhornið
— Vlhló, indlánasaga. Sögu-
maöur Bryndis Vlglunds-
dóttir. Tobba, Litli sjóræn-
inginn og Högni Hinriks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.50 Kraftaverk með tölvum
Bresk fréttamynd um tölvur
sem geta gert blindum og
fötluðum llfið léttara.
Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
21Æ0 Herstjórinn
Annar þáttur.
MIÐVIKUDAGUR
20. febrúar
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur I tlu þáttum,
gerður eftir metsölubókinni
„Shogun" eftir James Clav-
ell.
Leikstjóri Jerry London.
Aðalhlutverk: Richard
Chamberlain, Toshiro Mifune
og Yoko Shimada.
Efni fyrsta þáttar: Arið 1598
verður John Blackthorne
stýrimaður skipreika við Jap-
ansstrendur ásamt áhöfn
sinni. Þeir eru hnepptir I dý-
flissu og sæta illri meðferð.
A þessum tlmum drottna
Portúgalir yfir úthöfunum og
eiga Itök I Japan þar sem
höfðingjar berjast um völdin.
Einn þeírra, Toranaga, hefur
örlög Blackthornes I hendi
sér.
Þýðandi Jón D. Edwald.
22.15 Óskar Glslason Ijós-
myndari — slðari hluti
Fjallað er um leiknar kvik-
myndir sem Óskar Gislason
gerði á árunum
1951 — 1959, sýndir kaflar
úr þeim og rætt við Óskar og
nokkra samstarfsmenn
hans.
Höfundar: Erlendur Sveins-
son og Andrés Indriðason.
23.10 Fréttir I dagskrárlok.
22.00 Lestur Passiusálma (15).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Tímamót. Þáttur I tali og
tónum. Umsjón: Arni Gunn-
arsson.
23.15 Nútlmatónlist. Þorkell
Sigurbjðrnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Vetrarbrautin
Þáttur um tómstundir og úti-
vist.
Stjórnandi: Júllus Einarsson.
17.00—18.00 Úr kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eöa samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns
dóttir.