Morgunblaðið - 20.02.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRpAR 1985
21
leikur verður stundum stirður og
sviðsetningar viðvaningslegar.
Tilfinningatjáning jaðrar oft við
væmni.
Þetta kann að benda til þess að
lítið sé varið í Nickel Mountain.
Svo er þó ekki. Hér er ýmislegt til
að gleðja mann. Smábæjarand-
rúmsloftið skilar sér vel, mynda-
taka David Bridges (Með allt á
hreinu), einkum úti í náttúrunni,
er víða bráðfalleg, tónlist Pat
Metheny og Lincoln Mayorga
einkar næmleg og hjálpleg við
Ný rödd á
Blönduósi
Bionduosi, 18. janúar.
RÁS 2 hljómaði í viðtækjum flestra
Vestur-IIúnvetninga í fyrsta sinn sl.
sunnudag. Ekki er annað að heyra
en að þessi nýja rödd sé velkomin í
okkar samfélag.
Gamla útvarpsrásin hefur verið
heldur laus í rásinni frá þvi um
áramót. Hefur hún ýmist baulað á
hlustendur eða þagnað alveg. En
þess á milli hefur mátt hlusta án
verulegra óþæginda. Hverju sem
um er að kenna er það von okkar
hér að sú gamla hressist þegar
hún hefur nú fengið litlu systur
sér við hlið. Fréttaritari.
Lítil þúfa
undir stóru fjalli
Árni Þórarinsson
Bíóhöllin: Nikkelfjallið - Nickel
Mountain
Bandarísk. Árgerð 1984. Handrit:
Drew Denbaum, eftir skáldsögu
John Gardners. Leikstjóri: Drew
Denbaum. Aðalhlutverk: Michael
Cole, Heather Langenkamp, Patrick
Cassidy.
„Snoturt", „lítil og sæt mynd“
eru frasar sem koma upp í hugann
þegar fjalla skal um bandarísku
myndina Nickel Mountain, en hún
var reyndar gerð að hluta af ís-
lenskri kvikmyndanýlendu í Kali-
forníu. Að sumu leyti er Nickel
Mountain óvenjuleg miðað við
obbann af amerískum myndum.
Hún er alveg laus við sölutrikk,
ofbeldi, hasar og samfaraflæði.
Hún segir bara sögu af fólki i litlu
þorpi, tilfinningum þess og inn-
byrðis togstreitu, og hún segir
þessa sögu með kyrrlátum hætti
sem frekar minnir á franskar
kvikmyndir en bandarískar.
Af myndinni fæ ég ekki séð að
skáldsaga John Gardners sem
byggt er á sé ýkja stórbrotin. Efni
hennar er ofur venjulegt og í eðli
sínu nær einfaldri smásögu en
auðugri skáldsögu. Þannig hefur
handritshöfundurinn og leikstjór-
inn, Drew Denbaum, að minnsta
kosti sigtað hana fyrir mynd sína.
Mickel Mountain er skipað í fjóra
kafla eftir árstíðum. Inngangur-
inn leggur fyrst drög að þeim
persónutengslum sem sagan snýst
um: Tveir karlmenn, hinn ungi og
myndarlegi Willard og hinn feiti,
miðaldra búllueigandi Henry, eru
í kappakstri; umfram allt eru þeir
að keppa um athygli stúlkunnar
Callie, sem horfir á. Auðvitað
vinnur Willard þá keppni. Síðan
rekur myndin þróun þessa „ástar-
þríhyrnings" gegnum sumar,
haust, vetur og vor. Úrslit keppn-
innar verða að lokum þveröfug við
það sem á horfðist í upphafi.
Þegar efni er jafn staðlaö og
rýrt og hér veltur útkoman vita-
skuld öll á úrvinnslunni. Þar tekst
sumt vel, annað miður. Denbaum
gerir nokkur mistök í byggingu
myndarinnar; dæmi: einræða
Henrys snemma í myndinni,
framhvörf (flash-forward) til
lokauppgjörsins og slatti af laus-
um endum (hvað olli t.d. hinni
flóttalegu endurkomu Willards?
Hvaða efasemdum var verið að sá
um það hvort hann væri i skóla
eða að gera eitthvað allt annað?
Hvað varð um hinn banvæna
sjúkdóm Henrys?). Denbaum rýn-
ir heldur ekki til botns í persónun-
um í handriti sínu og hann á
stundum í basli með leikarana
sem ekki eru allir jafn góðir. Sam-
undirstrikun tilfinningahræringa.
Mestu máli skiptir þó að tvær af
persónunum, en reyndar aðeins
tvær, ná sterkum tökum á samúð
og áhuga áhorfanda, stúlkan
Callie og hinn geðugi göltur
Henry. Að sumu leyti ber Michael
Cole í hlutverki Henrys myndina
uppi. Fyrir svona ríflega áratug
var Cole sætur og dáður súkku-
laðidrengur í bandarísku sjón-
varpi. Síðan hefur eitthvað komið
fyrir hann. Hér dúkkar hann upp
að nýju, feitur og fordrukkinn að
sjá. Henry er matarmikið hlut-
verk, og þótt Cole tefli stundum á
tæpasta vað í sterkri tjáningu
bældra kennda, trúlega að fyrir-
sögn leikstjórans, skilar hann
verulega eftirminnilegri persónu.
Sjá einnig kvikmyndagagnrýni
eftir Áma Þórarinsson bls. 44—45.
Þríhyrningurinn — Heather Langenkamp, Michael Cole og Patrick Cassidy í
Nickel Mountain.
COROLLA1300
Ný Corolla - ný viðmiðun.
Hin nýja Corolla 1300 er hönnuð
til að vera fremst meðal jafningja og
gæðaflokki ofar en verðið segir til um. Léttbyggð og sparneytin 1,3 lítra, 12 ventla vélin
er kraftmikil, enda nýjasta framlag Toyota til betrumbóta — sumir segja byltingar — á bíl
vélum. Aksturseiginleikar gerast vart betri. Framhjóladrif og 1. flokks fjöðrunar-og stýris
búnaður skapa mikinn stöðugleika og rásfestu. Farþega-og farangursrýmið stenst allan
samanburð hvað varðar nýtingu, þægindi og hagkvæmni.
Þú getur treyst Toyota Corolla — því ánægðum eigendum fjölgar stöðugt um allan heim.
Fréttirfnáfmtu hendi'
Kvíkmyndír