Morgunblaðið - 20.02.1985, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1985
Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema:
Vilmundur Pálmason
efstur í undankeppni
Dómnefnd í Edlisfræöikeppni framhaldsskólanema hefur lokiö viö aö fara
yfir úrlausnir úr keppninni sem fram fór 9. febrúar sl. Lang best var úrlausn
Vilmundar Pálmasonar í Menntaskóla Kópavogs.
Góðum árangri náðu einnig Sig-
urður Á. Grétarsson Menntaskól-
anum í Reykjavík, Sigurbjörn
Þorkelsson Menntaskólanum við
Hamrahlíð, Reynir Kristbjörns-
son Menntaskólanum við Sund,
Ingveldur Jónsdóttir Menntaskól-
anum við Hamrahlíð og Ásgeir B.
Ægisson Menntaskólanum í Kópa-
vogi.
Þeim verður boðið að taka þátt í
úrslitakeppni sem fram fer í
Reykjavík dagana 2.-3. mars.
Þátttakendur í Eðlisfræði-
keppninni voru alls 24 úr 7 skól-
um: Fjölbrautaskóla Breiðholts,
Fjölbrautaskóla Sauðárkróks,
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
Menntaskólanum í Kópavogi,
Menntaskólanum í Reykjavík,
Menntaskólanum við Sund og
Verslunarskóla íslands.
KVÖLDVAKA FYRIR ALDRAÐA
búsetta í Grensássókn verður haldin í Grensás-
kirkju á morgun, fimmtudaginn 21. þ.m., og hefst
kl. 20.00.
Fjölbreytt dagskrá
Þeir, sem óska aöstoöar við aö komast á staðinn,
láti góöfúslega vita í síma 30511 á milli kl. 18.00 og
20.00 í dag, miðvikudag, og verða þá gerðar
ráöstafanir til að sækja fólk og flytja jafnframt
heim að lokinni kvöldvökunni.
Sóknarnefndin.
Útsala
Karlmannaföt kr. 1.995,- til 2.995,-.
Terelynebuxur kr. 790,- 895,- og 950,-
Gallabuxur kr. 295,- og 350,- litlar stæröir
kr. 595,- allar stærðir.
Peysur kr. 250,- 340,- 410,- og 660,-
Skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavöröustíg 22A.
Notaður
Citroen
næst besti
kosturinn
Árg. Ekinn Verð
Citroén CX Reflex 1982 28 þús. km. 430.000
Citroén GSA X3 1982 28 þús. km. 280.000
Citroén GSA Pallas 1982 33 þús. km. 280.000
Citroén GSA Pallas 1982 38 þús. km. 270.000
Citroén GSA Pallas 1982 35 þús. km. 270.000
Citroén GSA Pallas 1981 64 þús. km. 210.000
Citroén GSA Pallas 1980 78 þús. km. 180.000
"W'GfobUS?
LIONSKLÚBBUR Hverageröis
átti 15 ára afmæli þ. 22. janúar sl.
Minnfust félagarnir þessara tíma-
móta meö afmælishátíö í Hótel
Ljósbrá í Hverageröi þ. 26. jan. sl.
Fjölmcnntu félagar ásamt gestum,
en heiöursgestir í afmælishófinu
voru þeir Svavar Gests fjölum-
dæmisstjóri og Egill Snorrason
varaumdæmisstjóri ásamt eigin-
konum.
Samkoman hófst kl. 21 með
hátíðarfundi; þar voru fluttar
ræður, árnaðaróskir og
skemmtiefni. Fundarstjóri var
Garðar Hannesson símstjóri, en
formaður undirbúningsnefndar
Axel Magnússon ráðunautur.
Á miðnætti snæddu veislu-
gestir af sjávarréttahlaðborði
sem Gísli Garðarsson matsveinn
og starfsfólk Ljósbrár höfðu
framborið í hliðarsal.
Svavar Gests, fjölumdæmisstjóri í ræöustól, frá vinstri: Garðar Hannes-
son veislustjóri, Egill Snorrason varaumdæmisstjóri og frú Ellý Vil-
hjálms.
Lionsklúbbur
Hveragerðis 15 ára
Því næst var stiginn dans af
miklu fjöri til kl. 02, en dans-
músíkina annaðist diskótek
Steina og Alla. Einnig léku tveir
klúbbfélagar, þeir Theodór
Kristjánsson og Kristinn Krist-
jánsson, á harmonikkur fyrir
dansinum. Var þetta hið
ánægjulegasta samkvæmi.
Félagar í Lionsklúbbi Hvera-
gerðis eru nú 32 að tölu. Halda
þeir merki hreyfingarinnar uppi
með sóma og hafa gefið margar
góðar gjafir til líknarmála, m.a.
tæki til heilsugæslustöðvarinn-
ar. Einnig fara þeir á hverju ári
í ferðir með aldraða borgara í
Hveragerði. Og fleira mætti
telja. Formaður Lionsklúbbs
Hveragerðis er Kristinn Krist-
jánsson, ritari Theodór Krist-
jánsson og gjaldkeri Marteinn
Jóhannsson.
Sigrún
Stofnfélagar þeir sem viöstaddir voru, frá vinstri: Bjarni Eyvindsson, Ingimar Sigurðsson, Axel Magnússon,
Guöjón H. Björnsson, Grétar J. Unnsteinsson, Bragi Einarsson, Hafsteinn Kristinsson, Björn Sigurösson, Hans
Gústafsson og Sigurjón Skúlason.
íslenska óperan í Mývatnssveit
Mývalmwveit, 18. febrúar.
ÍSLENSKA óperan var meö „Óperur
á ferö og flugi“ í Skjólbrekku síö-
astliöiö laugardagskvöld. Fluttir
voru þættir úr Carmen eftir G. Bizet,
Síminn eftir G.C. Menotti og La Tra-
viata eftir G. Verdi.
Flytjendur voru Anna Júlíana
Sveinsdóttir, ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir, Garðar Cortes, Halldór
Vilhelmsson, Elín Sigurvinsdóttir
og John Speight. Stjórnandi og
undirleikari var Marc Tardue.
Húsfyllir var og listafólkinu fram-
úrskarandi vel tekið.
Segja má að þessi heimsókn
hingað sé einstakur leik- og tón-
listarviðburður hér enda fögnuðu
áheyrendur vel og lengi. Við þökk-
um fyrir ógleymanlega skemmtun.
— Kristján.
Höfum í okkar þjónustu tvo innahúsarkitekta, sem standa
yður ávallt til boða, þegar um er að ræða val og skipulagn-
ingu á nýjum eldhúsinnréttingum —allar leiðbeiningar eru að
sjálfsögðu án allra skuldbindinga.
15% afsláttur af
Alno heimílistækjum,
séu þau keypt með
/ . . .
innroffinonm
eldhús
Grensásvegi 8 (áöur Axminster) simi 84448