Morgunblaðið - 20.02.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 20.02.1985, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1985 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir NEAL ASCHERSON Pietruszka ofursti (til vinstri) og Piotrowski höfuðsmaður (standandi til hægri) fyrir rétti í Torun. Hver var fyrir rétti í Torun? RkTITARHÖLDUNlIM í Torun er lokið; dómarnir fallnir. En jafnvel áður en dómur var kveðinn upp höfðu séra Popieluszko og morðingjar hans „breytzt, gerbreytzt“ og þeir urðu Pólverjum ógleymanlegir. En hvernig þeir varðveitast í minningunni stendur í litlum tengslum við það hvernig þeir eru í raun og veru og það sem fyrir þeim vakti. etta minnir á fornt málverk; píslarvotturinn krýpur í hempu sinni og andlit rómversku hermannanna afmyndast af hatri þegar þeir lyfta sverðum sínum. Maður veginn vegna þess að góð- mennska hans gerir illmenni vitskert — er þetta Evrópa 20. aldar eða draumur? Líkt og í draumi virtist Pietr- owski höfuðsmaður kunna hlut- verk sitt í trúarlegum sjónleik. Hamslaus kvalalosti hans og hat- ur sannaði í alla staði réttmæti varnaðarorða pólskra presta — þeirra á meðal séra Popieluszko — um afleiðingar „guðlausrar menntunar", um „framandi, heiðna haturstrú bolsévíka", sem þeir settu alltaf upp sem and- stæðu „þúsund ára kristinnar kærleikshefðar Pólverja". Talsmaður ríkisstjórnarinnar benti árangurslaust á að kaþólsk- ir menn ættu sök á ótal morðum, sem drýgð eru í Póliandi. Ekkert fær breytt áhrifum framúrskar- andi leiks Pietrowskis á trúaða. Voru réttarhöldin heiðarleg? Svarið hlýtur að vera: ekki mjög, en merkilega opin. Vestrænum blaðamönnum var boðið að fylgj- ast með; sjónvarpið var þar; út- varpið í Varsjá sendi út kafla úr málarekstrinum. Lögfræðingur fjölskyldu fórnarlambsins gaf í skyn að mennirnir í Moskvu kynnu að standa á bak við allt saman — og ekkert henti hann. En þar sem réttarhöldin voru tiltölulega opin heindist athyglin, eins og venjulega gerist í svipuð- um tilfellum, meir að því en ella hve óheiðarleg réttarhöldin voru. Varsjár-útvarpið sleppti ekki að- eins athugasemdum um Moskvu. í réttarhöldunum var stöðugur pólitískur undirtónn, sem lýsti taugaóstyrk. Fáir Pólverjar munu skilja hvers vegna Pietrowski slapp við dauðadóm, í landi þar sem menn eru enn sendir í gálgann. (Ná- kvæmara væri að segja að þeir þættust skilja ástæðuna alltof vel.) Og á grundvelli þess sem fram kom í réttarhöldunum er erfitt að útskýra hvers vegna engin ákæra var lögð fram gegn Platek hershöfðingja, yfirmanni deildarinnar, sem hinir fjóru dæmdu störfuðu við. Dómarinn var staðráðinn í því að kveða niður allar vangaveltur um menn á „æðri stöðum", sem kynnu að hafa verið viðriðnir málið, og afstaða hans byggðist ekki á faglegu og heiðarlegu mati á því hvaða framburður skipti máli. Loks voru árásirnar í réttar- salnum á gerðir og skapferli séra Popieluszkos, sem gengu út á það að hann hefði verið næstum því eins siðlaus geðsjúklingur og banamenn hans, hrein pólitík, þótt sanngjarnt sé að vekja at- hygli á öllu sem geti gefið til kynna að fórnarlambið hafi espað morðingjana til reiði. Þegar jafnvel sækjandinn tók undir ásakanirnar var óhjá- kvæmilegt að menn gerðu sér grein fyrir því að pólitískum þrýstingi væri beitt. Spurningunni „hver stóð á bak við?“ hefur enn ekki verið svarað. Þegar prestinum var rænt taldi Jaruzelski hershöfðingi greini- lega að hann stæði frammi fyrir meiriháttar samsæri „harðlínu- manna“ gegn forystuhlutverki sínu og stjórnin flýtti sér að grípa til neyðarráðstafana. Nú, fjórum mánuðum síðar, vill ríkis- stjórnin heldur tala um „einangr- aðan atburð". Stjórnarandstaðan í Póllandi vill heldur ekki að skrafað sé um „samsæri", en af allt öðrum ástæðum; hún skynjar að vanga- veltur um valdabaráttu hauka og dúfna í stjórninni hafa tilhneig- ingu til að losa Jaruzelski hers- höfðingja og samstarfsmenn hans úr klípu og gefa til kynna að enginn skárri leiðtogi sé til. Samkvæmt annarri útgáfu voru Rússar viðriðnir málið. Það virðist ólíklegt. Rússar kunna að telja að Jaruzelski sýni hættulega linkind í stefnu sinni gagnvart kirkjunni og stjórnarandstöð- unni. En Rússar virðast ekki eiga annarra kosta völ en að halda áfram stuðningi sínum við Jaruz- elski. Sá kostur kemur ekki til greina að til valda komist tryggir Moskvumenn, sem ættu auðveld- ara með að hafa taumhald á Pól- verjum. Vegna náinna kynna KGB af öryggislögreglumönnum í öllum löndum Austur-Evrópu hljóta Rússar á hinn bóginn að hafa vit- að að reiðin í pólska innanríkis- ráðuneytinu út af „hálfkáki" stjórnarinnar í baráttunni gegn „stéttaróvininum" var að nálgast suðumark. Voru réttarhöidin sigur fyrir Jaruzelski hershöfðingja? Það fer eftir því hvernig á það er litið. Fólk á Vesturlöndum hefur yfir- leitt verið hrifið af því hve fús hann hefur verið að fletta ofan af ósóma opinberlega. Vestrænar ríkisstjórnir, sem ailtaf eru áfjáðar í að sjá frjó- anga „frjálslyndisstefnu" innan Varsjárbandalagsins, hafa látið á sér skilja að þær telji Jaruzelski hershöfðingja gegna hlutverki sáttasemjara. Framtið bættrar sambúðar hans og Vesturlanda, einkum Bandaríkjanna, virðist trygg. Mat á áhrifum réttarhaldanna í Moskvu byggist meir á ágizkun- um. í fyrstu var ljóst að sovézku stjórninni ofbauð sú hugmynd að leyniþjónustustarfsmenn komm- únista væru leiddir fyrir rétt frammi fyrir fjölmiðlum heims- ins fyrir morð á presti, sem var andvígur kommúnistum. En síð- an virðist einhvers konar sam- komulag hafa verið gert. Árásirnar á pólsku kirkjuna og pólitískt hlutverk hennar, ekki aðeins í réttarsalnum heldur einnig í pólskum fjölmiðlum, voru aðailega ætlaðar til innan- landsneyzlu í Sovétríkjunum. Þótt venjulegu fólki í Póllandi gremjist að Pietrowski slapp lif- andi kann það sennilega vel að meta hina þungu dóma. En ólík- legt er að það gleypi við sögunni um „einangrað fyrirbæri". Skuggalegasta staðreynd málsins er sú að þótt flestir Pólverjar yrðu höggdofa þegar þeir heyrðu um morðið varð enginn í raun og veru undrandi. Það mun telja, að ég held, að séra Popieluszko hafi einnig verið fyrir rétti í Torun. Og það man ef til vill eftir stólræðu, þar sem hann vitnaði í orð pólska ættjarð- arvinarins Romuald Traugutt þegar hann kom fyrir rússneskan dómstól 1863: „Tilgangur upp- reisnar okkar var að fá sjálfstæði og koma á skipulagi í landi okkar á grundvelli kristins kærleika, virðingar fyrir lögunum og rétt- lætis." (Neil Ascherson er Austur- KvrópufrétUriUri brezka vikublaó.sin.s Observer.) Tvö í einum Kvikmyndir i Árni Þórarinsson Regnboginn: All of Me ★★ Bandarísk. Árgerð 1984. Handrit: Phil Alden Robinson. Leikstjóri: Carl Reiner. Aðalhlutverk: Steve Martin, Lily Tomlin, Victoria Tennant, Richard Libertini, Dana Elcar. Hvernig myndi þér líða ef þú værir forrík en dauðvona frú sem hefðir keypt þér fram- haldslíf hjá austrænum gúrú í líkama ungrar fallegrar stúlku en vaknaðir svo fyrir einskæra handvömm í líkama smáskrýtins miðalda lögfræðings, karlkyns? Og hvernig myndi þér líða ef þú værir smáskrýtinn miðalda lögfræðingur í þann veginn að ná frama í starfi og ganga í það heilaga ef þú uppgötvaðir það að þú værir kominn með framliðna persónu inn í þig og það kven- kynspersónu sem þú kunnir illa við meðan hún var á lífi? Vefjist svörin fyrir ykkur og finnist ykkur spurningarnar samt um- hugsunarverðar, þá kemur þessi nýja bandaríska gamanmynd til liðs við ykkur í Regnboganum. All of Me er ólíkindafarsi; myndin reiðir sig á einar fáran- legar kringumstæður til að spinna grín sitt utan um. Höf- undar byggja fyrst upp skyndi- myndir af aðstæðum og einkenn- um aðalpersónanna, lög- fræðingsins (Steve Martin) og milljónamæringsins (Lily Tom- lin) og slengja þeim svo saman í eina. Ef áhorfandinn kaupir þetta fantasíufiff, þ.e. að gúrú geti með ansi neyðarlegri serem- óníu veitt deyjandi manneskju framhaldslíf í líkama annarrar, þá kaupir hann það auðvitað lika að tilfærslan geti misfarist fyrir klaufaskap. Og það má segja All of Me til hróss að maður kaupir það að sál Tomlin detti út um gluggann á háhýsi og lendi inní Martin sem er á gangi fyrir neð- an! Þá er hálfur björninn unn- inn. Hinn helmingurinn er síðan að halda dellunni gangandi með nægilega miklum hraða og kóm- ískum krafti til að áhorfenda leiðist ekki og hann farið að spá í samskeytin í sögunni. Þennan helming bjarnarins vinnur All of Me ekki til fullnustu. Fyrst í stað gengur allt vel. Steve Martin á mörg kostuleg atriði þar sem hann reynir að samræma hreyfingar líkamans fyrir tvær persónur; leggur þar til líkamskómík sem minnir jafn mikið á Jerry Lewis og Cary Grant. En seinni hluta myndar- innar, þegar ástarsamband er að mótast milli þessara tveggja persóna í sama líkama og þær taka höndum saman (!) um að brjóta niður samsæri sem unga stúlkan (Victoria Tennant) sem upphaflega átti að hýsa Tomlin hefur planað til að erfa auðæfi hennar, er of þunglamalegur. Þá fer að slá í efnishugmyndina og samtöl og sitúasjónir eru ein- faldlega ekki nógu fyndin. Þetta skrifast bæði á reikning handritshöfundar og leikstjóra. Martin, sem ekki hefur hingað til komið sjónvarpsvinsældum sínum til skila í bíómyndum, er Úr steggjagillinu. Steggjasukk Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Nýja Bíó: Bachelor Party Framleiðcndur: Ron Moler og Bob Israel. Höfundar: Neal Israel og Pat Proft, samkv. sögu eftir Bob Israel. Kvikmyndataka: Hal Trussel. Tón- list: Kobert Folk. Aðalhlutverk: Tom Ilanks, Tawny Kitaen, Adrian Zmed, George Grissard. Frumsýnd 1984. Bandarísk frá 20th Century Fox. Eftir velgengni Delta klíkunnar, og nokkurra fleiri í svipuðum dúr hafa margir framleiðendur hugs- að sér gott til glóðarinnar og eftir- apanirnar komið á færibandi. Er það venjan. Hömlulitlir farsar hafa dunið á okkur á undanförn- um árum, flestir til leiðinda, því miður. Þeir eiga að vera svo maka- laust skemmtilegir og frumlegir að áhorfendur eiga að veltast um af óstöðvandi hlátri út alla mynd- ina. En öðru nær, nokkrar hlát- ursrokur eru algengasta uppsker- an. Bachelor Party telst til þessa hóps, í skárri kantinum þó. Hún gerist á því vel kunna karlakvöldi sem vinirnir halda brúðgumanum til skemmtunar kvöldið fyrir brúðkaupið með, að því manni skilst, tilheyrandi mellum og brennivíni. Og sjálfsagt ómissandi misskilningi á milli hjónaefnanna, sem leysist á síðustu stundu. Þessir ærslafarsar verða æ grófari, hinn almenni, bandaríski kvikmyndahúsgestur vill greini- lega sí-klúrari atriði og klæmnari brandara til að létta á sál sinni. Hlýtur það að teljast afturför. En hver kynslóð skapar sýna eigin fyndni og Bachelor Party varð ein af vinsælustu myndunum vestan hafs í fyrra. Sá hópur sem stendur að mynd- inni kemst þokkalega frá sínu, leikararnir flestir vel slarkfærir gamanleikarar. En hún er ekkert meira en augnabliksafþreying, reisnina vantar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.