Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
fclk í
fréttum
MICK JAGGER BIRTIST Á ELLEFTU STUNDU:
Jerry komin hálfa leið í
hnappheldu með Bryan Ferry
Jerry Hall, ljósmyndafyrirsæta
og barnsmóðir Micks Jagger,
var ekki við eina fjölina felld fyrst
er hún kynntist Mick. Hún og
Bryan Ferry, söngvari Roxy Mus-
ic, höfðu þá verið saman um skeið
og hjónaband hafði verið planlagt.
„Við ætluðum að gifta okkur og
dagurinn átti senn að renna upp.
Gn þá kynntist ég Micks og varð
alveg vitlaus i hann. Þetta hlaut
að enda illa, fyrst hélt ég fram hjá
Bryan, flutti síðan til Mick og fór
svo aftur til Bryans. En það getur
aldrei dugað að láta framhjáhald
nægja með einhverjum sem manni
þykir virkilega vænt um. Leiðir
okkar Micks lágu saman en það
var erfið ákvörðun því ég elskaði
Bryan líka. Margir segja að það sé
ekkert að elska tvo karlmenn eða
tvær konur, en það hefur ekki
reynst sannleikur að mínu viti,“
segir Jerry.
Að öðru leyti segist hún nú vera
ánægð með lífið. Þau ferðist mikið
en samt heima við all lengi í einu.
„Ég vil gjarnan eiga fleiri börn og
við eigum þegar fallegt heimili, en
maður verður að borga fyrir allt
sem maður fær með einhverjum
hætti. Ef við Mick bætum við
barni kemur það niður á einhverju
öðru og við verðum að vega alla
hluti og meta,“ bætir Jerry við.
Geraldine vill
fara að slaka á
w
Islenskir sjónvarpsáhorfendur ættu að vera farnir að þekkja
Geraldine James, ensku leikkonuna sem var meira og minna
á skerminum meðan „Dýrasta djásnið" flóði yfir landsmenn á
sunnudagskvöldum fyrir nokkru. Hún er vinsæl leikkona í
heimalandi sínu, en segir að þegar hún var rétt rúmlega tvítug
hafi hún sagt við sjálfa sig að hún yrði að gera það upp við sig
þá og þegar hvort hún vildi verða fræg leikkona eða húsmóðir.
„Báðir kostirnir heilluðu, því mig hefur alltaf dreymt um að
eiga heimili og börn. Ég tók þó þann kostinn að reyna við
leiklistina fyrst og það hefur gengið vel. Ég tel mig hafa náð
býsna langt og er ánægð. Nú er ég farin að hugsa um heimili
og börn aftur. Ég er orðin 34 ára gömul og ég vil eignast barn
áður en það verður of seint fyrir mig. Þess vegna fer ég senn
að draga mig í hlé og setjast í helgan stein, þ.e.a.s. frá kvik-
myndum. Barnauppeldi og heimilishald eru auðvitað ekkert
sumarfrí..." segir Geraldine.
DANSKENNARASAMBAND
ÍSLANDS:
Danshátíð á Broadway
„Skosku heimsmeistararnir í
suður-amerískum dönsum, þau
Donnie Burns og Gaynor Fairweath-
er, koma og sýna alla suður-amer-
ísku dansana á danshátíð, sem
Danskennarasamband íslands held-
ur á Broadway, sunnudaginn 10.
marz,“ sagði F.rla Haraldsdóttir frá
Danskennarasambandi íslands. „Á
danshátíðinni munu auk þess koma
fram um 170 nemendur á aldrinum
þriggja ára og uppúr og sýna dans-
kunnáttu sína. Þeir dansskóiar, sem
taka þátt í þessari sýningu, eru á
höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og
ísafirði."
„Hvað hefur undirbúningurinn
staðið lengi hjá íslensku dönsurun-
um?“
„Undirbúningurinn hefur staðið
lengi og óhætt er að fullyrða að
sýning sem þessi vekur spennu og
eftirvæntingu meðal nemenda
skólanna, ungra jafnt sem ald-
inna. Allir hafa æft sig af kappi
að undanförnu, en það eru ekki
bara æfingarnar sem taka tíma,
það þarf að hugsa fyrir búningum
og jafnvel hanna þá. Þeir sem
sýna samkvæmisdansa hafa feng-
ið kjólameistara til að hanna bún-
inga sína. Það má því segja að
þetta verði sýning fyrir augað
jafn fjölbreyttir og búningarnir
verða.“
„Það verða þá ekki eingöngu
sýndir suður-amerískir dansar?“
„Nei, þarna sýna nemendur
dansskólanna alla mögulega
dansa, jazz-ballett, diskódans,
barnadansa, ballett og samkvæm-
isdansa svo að eitthvað sé nefnt."
„Hefur svona hátíð verið haldin
áður?“
„Þetta er í annað sinn, sem
Danskennarasambandið stendur
að svona hátíð með þessu sniði. í
fyrra héldum við hátíð og hún
tókst mjög vel. Þá sýndu þáver-
andi heimsmeistarar í samkvæm-
isdönsum, en meiningin er að gera
þessa danshátíð að árvissum þætti
í danslífi hér á landi. Það má
segja að þetta sé „uppskeruhátíð"
danskólanna, sem taka þátt í
henni.“
„Verður hátíðin með sama sniði
og í fyrra?“
„í fyrra stóð hátíðin í tvo daga,
ein sýning hvorn daginn, en nú í
ár verða báðar sýningarnar
sunnudaginn 10. marz. Fyrri sýn-
ingin er kl. 16:30 en hin um kvöld-
ið kl. 20:30. Sama dagskrá er á
sýningunum. Auk danssýninganna
verður dregið úr númeruðum
aðgöngumiðum áhorfenda en
vinningar eru 16. Við höfum kall-
að vinningana „Dansglaðning" því
dregið verður um ókeypis skóla-
vist í átta dansskólum næsta vet- ,