Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985 Deila f jármálaráöuneytis og launamálaráðs BHM — eftir Stefán Ólafsson í yfirstandandi kjaradeilu BHMR og ríkisins hefur komið upp ágreiningur um notkun á niðurstöðum samanburðarnefndar aðilanna. Ríkisstarfsmenn í BHM hafa ekki verkfallsrétt eins og aðrir launþegar. 1 staðinn búa þeir við lagaákvæði og samkomulag um að launakjör þeirra skuli ákv- örðuð með hliðsjón af þvi sem greitt er á almennum markaði fyrir hliðstæða menntun, sér- hæfni og ábyrgð. Samanburður skyldi því lagður til grundvallar- deilur leystar með friði og hóf- semi. Þessvegna er að sjálfsögðu mjög alvarlegt þegar aðilarnir deila um niðurstöðurnar og nauðsynlegt að þeir sem málið snertir viti gjörla um hvað ágreiningurinn stendur. Um hvað er deilt? Deilt er um það hvort gera eigi samanburð milli viðmiðunarhóp- anna út frá dagvinnulaunum eða heildarlaunum. Launamálaráð BHM hefur gert samanburð á dag- vinnulaununum en fjármála- ráðuneytið vill gera samanburð á heildarlaunum. Dagvinnulaun eru þau föstu mánaðarlaun sem menn fá fyrir venjulega vinnuskyldu, yfirleitt fyrir 40 stunda vinnuviku. Sam- anburður á launakjörum hlýtur að þurfa að vera samanburður á launum fyrir sama vinnutíma. Þeirri forsendu er best fullnægt með samanburði á dagvinnulaun- um. Dagvinnulaunin eru auk þess sá hluti launa sem lífeyrisgreiðslur eftirlaunanna miðast við. Ef yfir- vinnutekjur verða óeðlilega stór hluti launagreiðslna eru lífeyris- réttindi þar með skert. Þetta hef- ur gerst hjá ríkisstarfsmönnum á undanförnum árum, enda er hlut- ur yfirvinnutekna hjá ríkisstarfs- mönnum orðinn helmingi meiri en hjá háskólamönnum á almennum markaði. Dómur Kjaradóms í máli æðstu embættismanna ríkisins frá janúar 1985 — er fastar yfirvinn- ugreiðslur voru felldar niður og teknar inn í dagvinnulaun — má skoða sem leiðréttingu á þessari óheillaþróun. Dagvinnulaun hljóta því að vera hið réttmæta og eðli- lega viðmið í samanburði launakj- ara. Heildarlaun eru hins vegar dagvinnulaun að viðbættum yfir- vinnugreiðslum og öðrum auka- greiðslum. Ef menn vinna mikla yfirvinnu geta þeir að sjálfsögðu hækkað heildarlaun sín all nokk- uð. Þetta vita allir. Ríkisstarfsmenn eru á lágum dagvinnulaunum sem dregist hafa afturúr dagvinnulaunum annarra hópa (sjá t.d. skýrslu nefndar menntamálaráðuneytisins um endurmat á störfum kennara und- ir forsæti Ingu Jónu Þórðardótt- ur). Þess vegna hafa ríkisstarfs- menn sótt í meiri aukavinnu á undanförnum árum. Þessi aukna yfirvinna hefur að sjálfsögðu minnkaði muninn á heildarlaun- Stefin Ólafsson „Dagvinnulaun eru þau fostu mánaðarlaun, sem menn fá fyrir venjulega vinnuskyldu, yfirleitt fyrir 40 stunda vinnu- viku. Samanburður á launakjörum hlýtur að þurfa að vera saman- burður á launum fyrir sama vinnutíma. Þeirri forsendu er bezt full- nægt með samanburði á dagvinnulaunum.“ um og það er sá samanburður sem fjármálaráðuneytið vill gera. Hvers vegna má ekki miða við dagvinnulaun? En hversvegna vill fjármála- ráðuneytið ekki bera saman dag- vinnulaun hjá ríkinu og á almenn- um markaði? Indriði H. Þorláksson formaður samninganefndar og fulltrúi fjár- málaráðuneytisins I samanburð- arnefndinni hefur lýst því yfir á fundi með öllum samninganefnd- um BHMR að dagvinnulaun séu ekki sambærileg vegna þess að í mælingu Hagstofu fslands á dag- vinnulaunum séu innifaldar greiðslur fyrir yfirvinnu. M.ö.o. hann fullyrðir að það sem Hag- stofa íslands mælir sem dag- vinnulaun á almennum markaði nálgist það að vera heildarlaun. Þetta er það sem tvímælalaust er alvarlegast í málflutningi Ind- riða H. Þorlákssonar, enda var gífurleg vinna lögð í það að greina í sundur dagvinnulaun og önnur laun í Hagstofukönnuninni. For- ystu í því verki hafði Klemez Tryggvason fyrrverandi hagstofu- stjóri. Óhætt er að fullyrða að enginn annar maður í landinu hef- ur jafn mikla og farsæla reynslu í framkvæmd slíkra kannana og Klemenz Tryggvason. Indriði H. Þorláksson tók fuilan þátt í þess- ari vinnu ásamt undirrituðum og fleiri aðilum. Samstarfið var afar gott. Auk þess voru spurningablað Hagstofunnar og leiðbeiningarnar með því send til Vinnuveitenda- sambands íslands og Félags ís- lenskra iðnrekenda og fleiri aðila til umsagnar. Fyllsta samkomulag var um frágang spruningablaðsins að fengnum ábendingum frá þess- um aðilum. Hér meö eru spurningarnar úr könnun Hagstofu íslands og leið- beiningarnar með þeim lagðar fram svo allir geti gengið úr skugga um að aðgreining dag- vinnu- og yfirvinnulauna er ótvíræð. í A.l er spurt um mánaðarlaun á tvo vegu: fyrst um mánaðarlaun yrir dagvinnu og síðan sér um mán- aðarlaun þar sem yfírvinnuskylda fylgir hinum fostu mánaðarlaunum (föst ómæld yfirvinna). í saman- burði sínum hefur launamálaráð BHM eingöngu notast við fyrri lið- Tónlistarbanda- lag íslands verður stofnað 17. mars BÆTT SKIPULAG og efling tónlistarlífs í landinu er eitt meginmarkmið Tónlistarbandalags íslands, en stofnfundur bandalagsins verður haldinn á Hótel Esju sunnudaginn 17. mars klukkan 14.00. Undirbúningsnefndin, en hana skipa Halldór Haraldsson, Hejga Hauksdóttir, Jón Hlöðver Ás- kelsson, Margrét Þóra Gunnars- dóttir, Rut Magnússon og Stefán Edelstein, sem er formaður nefndarinnar, efndi til blaða- mannafundar og kom þar fram, að undirbúningur að stofnun samtakanna var hafinn í júní á síðasta ári. Hafa tillögur um markmið bandalagsins þegar ver- ið ræddar á fjölmörgum vinnu- fundum undirbúningsnefndar og verið kynntar aðilum víðsvegar um landið. Stefán Edelstein sagði að búið væri að semja drög að lögum þessa samstarfs og að bréf um bandalagið hefði verið sent öllum þeim félögum og samtök- um sem að einhverju leyti fást við tónlist. Nú þegar hefðu 25 fé- lög verið skráð sem aöiidarfélög að þessu tilvonandi tónlistar- bandalagi og er gert ráð fyrir að fleiri aðildarfélög bætist við á stofnfundinum. Tónlistarbanda- lagið stendur öllum tónlistarsam- tökum opið auk þess sem ein- staklingar geta orðið aðilar að bandalaginu svo framarlega sem þeir eru ekki í öðrum tónlistarfé- lögum. Stefán sagði að fólk myndi ef- laust undra sig á því af hverju verið væri að stofna tónlistar- bandalag ofan á öll þau félög sem fyrir eru. „En heildarsamtök sem þessi hefur alla tíð vantað til þess að halda utan um alla þá starf- semi sem fyrir er í landinu," sagði Stefán. „Miðað við þann fjölda einstaklinga, kór, hljóm- sveita og félaga sem fást við tón- list í landinu virðist löngu tíma- bært að sameina krafta þeirra í ein heildarsamtök er hafi á stefnuskrá sinni að gera Veg tón- listarinnar í landinu mestan og bestan. Af nógum sameiginlegum áhugamálum er að taka sem hæfðu vel verksviði slíkra sam- taka og má sérstaklega nefna aukin tækifæri íslenskra tónlist- armanna til að semja og flytja íslenska tónlist og til að kynna íslenska tónlist á erlendum vett- • vangi. Einnig er mikilvægt að stuðla að varðveislu, rannsóknum og útgáfu á efni er tengist ís- lenskri tónlistararfleifð." önnur markmið tónlistarbandalagsins eru efling tónlistarmenntunar I landinu, aukið fjármagn til tón- listarstarfsemi, efling félagssam- taka er vinna að tónlist í landinu og stuðla að stofnun slíkra sam- taka þar sem þðrf er. Vandaður tónlistarflutningur og bætt skipulag tónleikahalds eru og á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.