Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985 t/\Kex likabi vel hvemkj |?6 sparkabir í h/olbfiriann. Mjög ftiíraf þefsum unQu straXum nú a. dögum skilja h\/ab er þo£ besía. vi^ góian bil." Ast er . • * .. >• i rw aF w 7 u 5-/Í ... að hugsa bœði um það sama. TM Rm. U.S. Pat. Oft.—ad rlghts rasarvad ®19»4 Los AnBeles Times Syndlcate I' -^RSOWIA' Með morgunkaffiou Ég vil vera kominn heim fyrir mið- nætti svo þú byrjar að kveðja upp úr klukkan tíu! HÖGNI HREKKVÍSI Bréfritari segir að lítið sé greint frá því í fjölmiðlum hve stjórnarherr- arnir í Eþíópíu séu afskiptalausir varðandi hungursneyðina í landinu. Horft framhjá hungurvofimni 8780-6243 skrifar: Ég sá í Velvakanda fyrir stuttu grein um það hvort við íslendingar ættum ekki að líta okkur nær frekar en að leika frelsisengla í Eþiópiu. Voru þetta orð í tíma töluð. Sjálfsagt þykir það skortur á mannkærleika en ég undrast öll þau læti sem hér hafa orðið út af þjóð sem ekki veit einu sinni að ísland er til á hnettinum. Vissu- lega eru erfiðleikar Eþiópiubúa miklir en þá vaknar sú spurning hvað þeirra eigin landsmenn og þá fyrst og fremst stjórnvöld hafa gert til bjargar á hungur- svæðunum. Ég minnist þess ekki að hafa séð staf um það í þeim mikla fréttaflutningi sem frá Eþíópíu kemur. Þætti mér gott ef Velv- akandi gæti frætt lesendur sína um þetta. Því sá grunur læðist að mér að stjórnarherrunum í Addis Ababa liggi nokkuð í léttu rúmi þó landsmenn þeirra þurfi að glíma við hungurvofuna á meðan þeir sjálfir fagna valda- töku öreiganna með skosku viskíi. Þuríður for- maður og Kambs- ránsmenn Sigrún Björnsdóttir skrifar: Eg hlusta mikið á útvarp og hef gaman af góðum lestri, sérstak- lega sögulegum fróðleik, og einnig þegar lesnar eru góðar og spenn- andi skáldsögur. Besta dagskráin, sem flutt hefur verið af þessu tagi í vetur, er tvímælalaust þættirnir um Þuríði formann og Kambs- ránsmenn. Allir þessir þættir voru sérlega vel unnir, fróðlegir og skemmtilegir i alla staði. Klemens Jónsson, leikari, sem hefur tekið efnið saman, og stjórnaði jafn- framt upptöku þáttanna á heiður skilið fyrir frammistöðu sína. Leikarar og lesarar voru allir sér- lega góðir og vil ég þar fyrst til nefna Hjört Pálsson sem er einn af bestu lesurum er koma fram í útvarpi. Þættirnir virtust að mestu byggðir á sögu Brynjólfs frá Minna-Núpi, en sú bók er mörgum kunn. Þá virtist stjórnandinn koma með heimildir úr öðrum átt- um, sem vissulega voru fræðandi og vörpuðu náiu ljósi á þessa sögu- legu aUiur^MBir heimildarmenn voruÆrfKMSQþr. Tónlistin með þes^WlCPStíum var sérlega smekRrega valin og jók á drama- tíska spennu þáttanna. Ég vildi gjarnan að útvarpið flytti meira af slíkum þáttum. Það yrði vel þegið hjá mörgum hlustendum. Ekki get ég stillt mig um að gagnrýna annað efni, sem flutt er í útvarpinu. Kemur þá einna fyrst í huga minn lestur Gísla Rúnars Jónssonar á útvarpssögunni sem nú er lesin. Þetta á víst að vera skemmtileg saga, en sagan verður það ekki í meðferð Gísla Rúnars. Þakka svo fyrir það sem vel er gert, en ekki fyrir annað. Veljið umfram allt góða lesara, því nóg er til af þeim, og umframt allt að þeir vandi flutning sinn. Klemenzi Jónssyni leikara er þakk- aö fyrir þættina um Þuríði formann og Kambsránsmenn sem fluttir voru í útvarpi fyrir stuttu. Launin verði verðtryggð Sagt er að enskur prófessor í læknisfræði telji það til rannsókn- arverðra tíðinda hve margir ís- lendingar þjáist af hjartasjúk- dómum og leiti í stórum stíl til aðgerða. Það sé nánast sífellt ver- ið að lappa upp á hjarta og æðar í íslendingum. Vissulega er þetta ekki síður áhyggjuefni lækna og heilbrigðis- yfirvalda hér á íslandi, m.a. vegna hins gífurlega kostnaðar sem er þessum ferðalögum og aðgerðum samfara. Hitt er kannski enn áhugaverðara fyrir okkur, hvað veldur þessum óhugnaði að Islend- ingar skuli vera orðnir ein af hjartabiluðustu þjóðum hér á jörðu? Ekki mun vera til ein skýr- ing né allsherjar lausn í sjónmáli, en ef til vill væri verðugt umhugs- unarefni fyrir lækna og þá ekki siður stjórnmálamenn, hvort okurvextir, verðtryggð okurlán, innheimtuharka á öllum sviðum og almennt vonleysi þeirra sem skulda fé, geti ekki verið snar þáttur í þessari þróun. Það ku nefnilega vera all náið samband á milli þungra áhyggna, kvíða og vonleysis og líkamlegrar svo og andlegrar vanheilsu. Magasár var lengi vel óhugnan- lega algengur sjúkdómur á Islandi en það mun vera sjúkdómur and- legrar þrúgunar og áhyggna. Nú hefir skörin færst upp í bekkinn og hin andlega þrúgun er farin af valda hjartatitringi og æðas.tíflum í (slendingum svo um munar. Skyldu verðtryggðu hengingalánin vera meðorsök? Skyldi allt unga fólkið í landinu, sem með óhemju vinnu og vökum hefir komið sér upp íbúð eða byggt sér hús, ekki hafa áhyggjur og andvökunætur þegar lánin falla í gjalddaga og höfuðstóllinn er rokinn upp úr öllu valdi þrátt fyrir að greiddir séu okurvextir og afborganir? Meðan launin eru ekki verð- tryggð, en öll lán eru það, er voð- inn vís og vonleysi grípur um sig. Það þarf ekki annað en að lesa allar auglýsingarnar um sölu húsa og íbúða til þess að sjá að hér eru skuggalegir hlutir að gerast. Van- skilalán hrannast upp í okurstofn- unum og þúsundir manna hafa i örvæntingu sinni snúið sér til þeirra, sem á vegum hins opinbera reyna að sletta smá upphæðum upp í vanda fólksins, en það er engin lausn, aðeins verið að fram-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.