Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985 ÚTVARP / S JÓN VARP Þriðji maðurinn Stjórnendur Þriója mannsins, fimmtudagsþáttar rásar II, þeir Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson, láta ekki deigan síga, fyrir hálfum mánuði tóku þeir á beinið sjálfan Davíð Oddsson og nú einn af forsvars- mönnum Alþýðubandalagsins, al- þingismanninn og rithöfundinn Guðrúnu Helgadóttur, sem mætti í stúdíóið hálf dösuð eftir 12 tíma kjaftatörn á Norðurlandaráðs- þingi. Samt var Guðrún ekki das- aðri en svo að hún varðist fimlega spjótalögum hinna þaulreyndu blaðamanna, þeirra sömu og komu Davíð Oddssyni á óvart fyrir rétt- um hálfum mánuði. Fannst mér einsog Guðrún væri mjög á varð- bergi, og þvi varð þátturinn ekki eins ferskur og fréttnæmur, og þá Davíð gerði garðinn frægan. En ég verð að segja einsog er að ég hreifst mjög af hreinskilni Davíðs í þessum þætti á sínum tima, og ég held að fólk i dag vilji að stjórn- málamenn gangi hreint til verks og séu ekki með endalausan felu- leik án þess þó að þar láti menn vaða á súðum bullandi og láti jafnvel út úr sér ummæli sem rýra virðingu okkar sem þjóðar. Hin pólitíska dómgreind En víkjum aftur að Þriðja mann- inum og vegum svolítið á vogar- skálum dómgreind fyrrgreindra gesta þáttarins. Að minu mati hafði Davíð hér vinninginn hvað varðar „pólitíska dómgreind". Þannig gagnrýndi hann núverandi ríkisstjórn sem flokkur hans á að- ild að og ennfremur hjásetu vinar síns og flokksbróður einsog al- kunna er orðið. Þá lýsti Davíð þvi yfir í þættinum að það væru ekki bara stefnumið flokkanna er skiptu máli i pólitikinni, heldur ekki siður mennirnir er bæru þau fram. Guðrún Helgadóttir brást nokkuð öðruvísi við að þessu leyti. Þannig svaraði hún því til efnis- lega er hún var spurð hvort for- ystumenn Alþýðubandalagsins væru ekki að fjarlægjast verka- lýðshreyfinguna: Nei, ég er sósíal- isti. Mér finnst slíkt svar bera vott um svolítinn skort á „pólitískri dómgreind". I stað þess að rýna í bresti eigin flokks, einsog Davíð gerði, bregður Guðrún fyrir sig töfraorðinu ... sósíalisti. Slík viðbrögð eru að mínu mati hlið- stæð andsvari Alberts þá hann var spurður i sjónvarpinu á sínum tíma um svokallað „kauprán" rík- isstjórnarinnar ... En ég er vinur litla mannsins. Slíkar yfirlýsingar eru marklausar í heimi nútíma- mannsins. Þar gildir að stjórn- málamenn sýni þá dómgreind, að segja kost og löst á eigin flokki, og leggi fram raunhæfar tillögur og stefnumið er kjósendur geta ann- aðhvort hafnað eða fallist á, æðri pólitískar verur koma þar hins vegar lítt við sögu. Hin listrœna dómgreind En þótt Davíð hafi hér máski yfirburði hvað varðar „pólitíska dómgreind" þá hefir Guðrún Helgadóttir vinninginn hvað varð- ar „listræna dómgreind" sem sést best á þvi að á sama tíma og Davíð borgarstjóri lýsir því yfir að hann geti vel ... hugsað sér að leggja pólitfkina á hilluna og setjast þess í stað við skriftir ... þá segist Guðrún ekki fyrir nokkurn pening vilja draga sig í hlé til skrifta. enda sæki hún skáldskaparlega næringu sina í hið daglega strit. Það er kannski þess vegna sem bækur Guðrúnar eru svona fullar af lífi og fjöri. ólafur M. Jóhannesson. Gene Hackman og Bernard Fresson í hlutverkum sínum. Franski fíkni- efnasalinn II - myndin ekki við hæfi barna ■I Sfðari laugar- 35 dagsmyndin er bandarísk frá árinu 1975 og nefnist Franski ffkniefnasalinn II (The French Connection II). Myndin er sjálfstætt framhald Franska ffkni- efnasalans sem sjónvarp- ið sýndi 12. janúar sl. Sem fyrr er Popeye Doyle rannsóknar- lögreglumaður f New York á höttunum eftir eiturlyfjasmyglurum. Hann veit mætavel að þó hann hafi komið upp um eiturlyfjasmyglarana í New York er nóg af slík- um skúrkum annars stað- ar. Hann leggur því land undir fót og ferðast til Miðjarðarhafsins þar sem hann hyggst komast fyrir rætur herófnsmygls til Bandarikjanna. En hann lendir ekki að- eins í útistöðum við undir- heimalýðinn heldur einn- ig við frönsku lögregluna sem vill vera með í ráðum. Leikstjóri er John Frankenheimer en með aðalhlutverk fara Gene Hackman, Fernand Ray, Cathleen Nesbitt og Bern- ard Fresson. Myndin mun ekki vera við hæfi barna. Afram njósnari - bresk gamanmynd ■i Fyrri laugar- 10 dagsmynd sjón- varpsins er bresk gamanmynd frá 1%5 sem nefnist Áfram njósnari (Carry on Spy- fram-myndirnar þekkja vafalaust flestir. Að þessu sinni hefur Áfram-flokkurinn komist á snoðir um að mikilvægu hernaðarleyndarmáli hef- ur verið stolið. Þeir æða því af stað í leit að leynd- armálinu. Bandamaður þeirra f Vínarborg til- kynnir þeim að óvinirnir sem hafi leyndarmálið undir höndum séu staddir í borginni og flykkjast Áfram-menn þangað um hæl. Það gengur á ýmsu við komuna til Vinarborgar en vinirnir mega engan tfma missa. Loks finna þeir manninn sem þeir telja vera með leyndar- málið en hann segir þeim að það sé að finna f Álsfr. Áfram-flokkurinn lætur ekki þar við sitja, dulbýr sig og heldur á vit óvin- anna i Alsír. Leikstjóri er Gerald Thomas en með aðalhlut- verk fara Kenneth Willi- ams, Barbara Windsor, Bernard Cribbins og Charles Hawtrey. Áfram-félagar í vfgahug. GuAmundur H. Hagalfn rit- höfundur. Bókaþáttur helgaður Guðmundi G. Hagalín rithöfundi Bókaþáttur 1 /» 30 Njarðar P. IOi— Njarðvík verð- ur að venju á dagskrá út- varps í dag kl. 16.30. Að þessu sinni verður þáttur- inn helgaður Guðmundi G. Hagalin rithöfundi sem lést aðfaranótt 26. febrúar sl. á 87. aldursári. í þættinum verður Guð- mundar G. Hagalíns minnst með þrennum hætti. Doktor örn ólafs- son flytur spjall um höf- undareinkenni Hagalfns. Þá ræðir Njörður P. Njarðvík við Matthías Jo- hannessen ritstjóra og skáld um kynni hans af Hagalín. Loks verður leik- in segulbandsupptaka þar sem Hagalfn les sjálfur úr eigin verkum. ÚTVARP LAUGARDAGUR 9. mars 7.00 Veöurtregnir. Fréttir. Baen. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 0.00 Fréttir. Dagskrá. Morg- unorö — Astrlöur Haralds- dóttir talar. 8.15 Veöurfregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr ). Tónleikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvöldinu áöur. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir.) Öskalög sjúklinga, frh. 11.20 Eitthvað fyrir alla Siguröur Helgason stjórnar paetti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.40 iþróttaþáttur Umsjón: Ragnar Orn Pét- ursson. 14.00 Hér og nú Fréttaþáttur I vlkulokin. 15.15 Listapopp — Gunnar Salvarsson. 18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Islenskt mál Jón Aðalsteinn Jónsson flyt- ur þáttinn. 16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður P. Njarðvlk. 17.10 A óperusviðinu Umsjón: Leifur Þórarinsson. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn- ingar. 19.35 A hvaö trúir hamingju- samasta þjóö I heimi? Um- sjón: Valdls Óskarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir. 20.00 Otvarpssaga barnanna: .Grant skipstjóri og börn hans" eftir Jules Verne. Ragnheiöur Arnardóttir les þýöingu Inga Sigurðssonar (8). 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Slguröur Alfonsson. 20.50 Þorrablót íslendinga I Barcelona. Þáttur f umsjá Kristins R. Ólafssonar. 21.15 „Faðir og sonur", smá- saga eftir Bernard Mac Lav- erty. Erlingur E. Halldórsson les þýöingu sfna. 21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr slgildum tónverk- um. 22.00 Lestur Passlusálma (30). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 22.35 Þriðji heimurinn SJÓNVARP 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Ingólfur Hannesson. 18.30 Enska knattspyrnan. Umsjónarmaöur Bjarni Fel- ixson. 19.25 Þytur I laufi. 1. Landbúnaðarsýningin. Breskur brúöumyndaflokkur, framhald fyrri þátta I Sjón- varpinu um félagana fjóra: Fúsa frosk, Móla moldvöfpu, Nagg og Greifingja. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Viö feöginin. Attundi þáttur. Breskur gam- LAUGARDAGUR 9. mars anmyndaflokkur f þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.10 Afram njósnari. (Carry on Spying) s/h. Bresk gamanmynd frá 1965. Leikstjóri Gerald Thomas. Aöalhlutverk: Kenneth Willi- ams, Barbara Windsor, Bernard Cribbins og Charles Hawtrey. Afram-flokkurinn æðir yfir Evrópu og allt til Alslr til aö endurheimta hernaöarleyndarmál sem lent hefur I óvlnahöndum. Þýöandi Guöni Kolbeinsson. 22.35 Franski flkniefnasalinn II (The French Connection II). Bandarlsk blómynd frá 1975. Leikstjóri John Frank- enheimer. Aöalhiutverk: Gene Hackman, Fernando Ray. Cathleen Nesbitt og Bernard Fresson. Popeye Doyle rannsóknarlögreglu- maöur I New York heldur til Marseilles til að komast fyrlr rætur herólnsmygls til Bandarlkjanna. Myndfn er sjálfstætt framhald „Franska flkniefnasalans" sem Sjón- varpiö sýndi 12. janúar sl. Þýðandi Bogi Arnar Finn- bogason. Myndin er ekki viö hæfi barna. 00.40 Dagskrárlok. Þáttur I umsjá Jóns Orms Halldórssonar. 23.15 Hljómskálamúslk Guömundur Gilsson kynnir. 24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Orn Marinós- son. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. LAUGARDAGUR 9. mars 14.00—16.00 Léttur laugar- dagur Stjórnandi: Asgeir Tómas- son. 16.00 18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgl Már Baröa- son. Hlé —24.45 Listapopp Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. —03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Margrét Blöndal. (Rásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.