Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 3

Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ1985 3 Morgunblaftið/Árni Sæberg Hæstánægðir aðstandendur Hvítra máva við komuna til landsins í gær, en 6 manns hafa dvalið í Svíþjóð undanfarnar vikur og unnið þar við lokafrágang á myndinni. F.v. Jakob Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Júlíus Agnarsson. Frumsýning á Hvítum mávum á Seyðisfirði „OKKUR sýnist myndin ekki ætla að verða verri en til stóð. Með öðr- um orðum, við erum mjög ánægðir með hana,“ sagði Valgeir Guð- jónsson í gær, þegar aðstandendur kvikmvndarinnar Hvítir mávar, komu frá Svíþjóð með filmurnar tilbúnar í farteskinu. Frumsýning á þeim verður síðan á Seyðisfirði í kvöld. Kvikmyndin verður frumsýnd í Reykjavík á morgun í Háskóla- bíói og sýningum síðan fram- haldið þar og í Bíóhöllinni. Með því að frumsýna myndina á Seyðisfirði, vilja aðstandendum myndarinnar og kvikmyndafyr- irtækisins Skínanda, sýna Seyð- firðingum þakklæti sitt fyrir veittan stuðning og afnot af bænum á liðnu hausti, þegar kvikmyndatökur fóru þar fram. Aðalleikarar í myndinni eru Ragnhildur Gísladóttir, Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugs- dóttir. Leikstjóri er Jakob Magn- ússon og aðstoðarleikstjóri Val- geir Guðjónsson, en kvikmynda- tökumaður Karl Óskarsson. Morgunblaöiö/Árni Sæberg Framhaldsskólakennarar fjölmenntu á þingpalla í gær og fylgdust með umræðunum. Kennaradeilan: Fjarvistir hafa ekki áhrif á störf Kjaradóms Ragnhildur Helgadóttir mennta- málaráðherra sagði efnislega í Sam- einuðu þingi í gær, að ríkisstjórnin hefði gert allt sem í hennar valdi stæði til að leysa kennaradeiluna, sem bitnaði fyrst og fremst á nem- endum. Endurmat á störfum kenn- ara, sem menntamálaráðuneytið stóð að, og stefnumarkandi yfirlýs- ing ríkisstjórnarinnar, varðandi sömu laun fyrir sömu menntun og störf innan og utan ríkisgeirans, beri þessu vitni. Fjarvistir kennara hafi og að hennar mati engin áhrif á verk- hraða né niðurstöður Kjaradóms, sem málinu hafi verið skotið til, lögum samkvæmt. Kvaðst ráð- herrann því vona að sem flestir kennarar kæmu aftur til vinnu nú og virtu lögstudda framlengingu uppsagnarfests, kennsluskyldur og námsrétt nemenda. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra kvað meginatriði deilunnar ekki standa um leiðrétt- ingu á launum kennara, til sam- ræmis við almennan vinnumark- að, heldur hvernig beri að meta þennan mun. Sjá nánari frásögn á þingsíðu Morgunblaðsins, bls.32, sem og umfjöllun í forystugrein á mið- opnu. Minnkandi norðanátt á morgun Á MORGUN, laugardag, er gert ráð fyrir minnkandi norðanátt með éljum sums staðar á norðan- verðu landinu. Á sunnudag léttir til á Norð- ur- og Austurlandi. Á Suður- og Vesturlandi þykknar upp með sunnan kalda þegar líða tekur á daginn. Hiti verður rétt undir frostmarki á laugardag, en rétt yfir frostmarki á sunnudag, nema austast á landinu, þar er búist við vægu frosti. Þokkalegur loðnuafli ÞOKKALEGUR loðnuafli var síðastliðinn þriðjudag, en þá veiddu 17 bátar samtals 9.960 lestir. Síðdegis í gær höfðu tvö skip tilkynnt um afla, samtals 1.620 lestir. Afl- ann fengu skipin öll við Eyjar nema Bjarni Ólafsson, sem var út af Jökli. Á þriðjudag tilkynntu eftir- talin skip um afla: Skarðsvík SH, 580, Þórshamar GK, 600, Harpa RE, 250, Bergur VE, 500, Víkurberg GK, 550, Sjávarborg GK, 720, Súlan EA, 750, Sig- hvatur Bjarnason VE, 630, Heimaey VE, 430, Sæberg SU, 600, Helga II RE, 530, ísleifur VE, 700, Jón Kjartansson SU, 1.000, Huginn VE, 420, Erling KE, 300, Gígja RE, 600, og Höfr- ungur AK 800 lestir. Síðdegis í gær höfðu Bjarni Ólafsson AK, 1.100 iestir, og Keflvíkingur KE, 520, tilkynnt um afla. Iðnaðarbankinn -nútima bankí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.