Morgunblaðið - 15.03.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.03.1985, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 Brúin yfír Eyrarsund eftir Pétur Pétursson í áratugi hefur verið rætt um að æskilegt væri að brúa Eyrar- sund og mikið hefur verið reikn- að út og skrifað um þetta. Fyrir 10 árum höfðu endar næstum því náð saman í umræð- unum milli danskra og sænskra stjórnvalda — en allt fór út um þúfur. Þá var það danska þingið sem bakkaði á síðustu stundu. Nú virðist líf vera að færast aftur í þessar umræður eins og kom m.a. fram á Norðurlanda- þingunum í Reykjavík um dag- inn. Brúaráformunum hefur aukist fylgi í danska þinginu þar sem Vinstri flokkurinn hefur breytt um skoðun og styður nú brúarmenn. Brúin sem sameina mundi Skán og Sjáland, ef í það færi, mundi þá væntanlega tengja Malmö og Kaupmannahöfn. Þetta hefði mikla þýðingu fyrir atvinnulffið á þessu svæði, ekki síst fyrir það fólk sem ýmist býr í Malmö eða Kaupmannahöfn en þarf að sækja á hinn staðinn í vinnu. Töluverður hópur fólks fer þannig á milli daglega og er það aðallega fólk sem býr í Malmö, þar sem húsnæði er ódýrara, en vinnur í Kaupmannahöfn. Ferðin yfir tekur rúman hálftíma, en nú í vetur hefur verið miklum erfið- leikum bundið að halda uppi reg- lulegum ferðum og þessi hópur farþega þrýstir nú fast á að brú- in verði að veruleika. Brúin yfir Eyrarsund mundi einnig hafa víðtækari hagræð- ingu í för með sér fyrir verslun og viðskipti í Skandinavíu, ekki síst fyrir sænsk og norsk fyrir- tæki sem vilja koma vörum sín- um á markaði á meginlandi Evr- ópu með sem minnstri fyrirhöfn og kostnaði. Brú yfir Stóra-Belti, milli Sjálands og Fjóns, kemur hér einnig inn í myndina. Það er t.d. tréiðnaðurinn í Svíþjóð og Noregi svo og Volvo-fyrirtækið sem hafa sýnt fram á að allir flutningar þeirra yrðu miklum mun ódýrari. í Svíþjóð heyrast jafnvel þær raddir er halda því fram að brú myndi gefa sænsk- um iðnaði þann vind í seglin sem þyrfti til að fleyta þjóðarskút- unni yfir í gósenland hagvaxtar og velmegunar. KveÖur kuldaljóð ... Það var eins og náttúruöflin hefðu mátað tæknina í sam- göngumálum er fulltrúar danskra og sænskra hagsmuna komu til fundar í Malmö til að ræða brúarmálið í byrjun febrú- ar sl. Frosthörkurnar undan- farnar vikur höfðu hindrað sam- göngur yfir sundið og suðurhluti þess var alveg ísilagður — Kári hafði í sínum jötunmóð tekið af skarið og byggt sína eigin brú. Hraðbátar og svifnökkvar sátu kyrfilega fastir í ísnum og ís- brjótar höfðu ekki við að brjóta rennur i gegnum ísinn því þær frusu jafnóðum saman aftur. Svíar vilja brú Það kom í ljós á ráðstefnunni í Malmö að samgöngumálaráð- herrar beggja landanna eru því fylgjandi að brú verði byggð sem fyrst. Flestir danskir ráðamenn eru þó ekki til viðtals um Eyr- arsund fyrr en ákveðið hefur verið hvort og hvenær brú yfir Stóra-Belti verður lögð. Stóra- Beltisbrúin hefur forgöngu af þeirra hálfu, en ekki er víst að Svíar hafi þolinmæði til þess að bíða eftir þvi að danska þingið ákveði sig. Sænsku járnbraut- irnar (SJ) hafa hótað að beina umferð sinni og flutningum beint til Þýskalands með sér- byggðum stórum járnbrautar- ferjum ef Danir þrjóskast lengur við að taka ákvörðun. Ef svo færi mundu Danir missa af miklu af þeim tekjum sem þeir hafa af þeirri umferð og flutningum sem er frá Skandinaviu til megin- lands Evrópu. Ótakmörkuö ending Nefnd á vegum sænska þings- ins hefur þegar gert ítarlegar kostnaðaráætlanir og vinnu- í frosthörkunum höfðu ísbrjótar ekki undan við að brjóta rennur í gegnum ísinn í Eyrarsundi. áætlun vegna væntanlegrar brú- ar. Bankakerfið er bjartsýnt og reiðubúið að leggja fé í fyrirtæk- ið — talið er að brúin borgi sig á 20 árum. í þessa brú þarf 23.000 tonn af stáli, sem gert er ráð fyrir að verði ryðfrítt og hafi ótakmarkað endingarþol. Á nú- verandi verðlagi er reiknað með að brúin muni kosta nálægt 2 milljörðum sænskra króna og byggingin taki 10 ár. fhaust verður lagt fram frum- varp á sænska þinginu um brú- arbygginguna sem margir áb- yrgir aðilar hérna megin sunds- ins reikna með að geti hafist innan tveggja ára. Brúarvinir benda á að hér sé ekki aðeins um að ræða efna- hagslegt atriði. Aukin og bætt tengsl milli Kaupmannahafnar annars vegar og Malmö og Lun- dar hins vegar hafi í sér fólginn menningarlegan og félagslegan ávinning — brúi bilið milli þjóð- anna í andlegum skilningi. Pétur Pétursson er fréttaritari MbL í Lundi í Sríþjóð. Hvers vegna kennaradeila? eftir Þorvarö Helgason Framhaldsskólakennarar sem aðrir BHM-starfsmenn ríkisins hafa ekki verkfallsrétt. Störf þeirra eru of mikilvæg fyrir heild- ina til þess að þau þoli þá truflun sem hlotist getur af vinnudeilum. Það hlýtur að vera ástæðan fyrir höfnun verkfallsréttar til handa þessu fólki. Til þess að við slíkt verði unað verður valdhafinn að sjá svo um að þetta starfsfólk hafi laun sem það getur sætt sig við. Það hefur undirgengist að vinna verkin án þess réttar sem aðrir hafa en á móti hlýtur það að krefj- ast viðunandi launa. Ef nú vald- hafinn skeytir ekki um þessa kröfu, verður alls ekki við henni, lætur hana sig engu skipta, huns- ar hana ár eftir ár, þá kemur að þvi að þolinmæði embættismann- anna þrýtur. Með góðu fá þeir eng- in jákvæð svör. Þeir eiga engra annarra kosta völ en fara út fyrir þann ramma sem samningurinn kveður á um þvi hinn aðilinn, valdhafinn, hefur skellt skolleyr- um við öllum boðum. í þessari stöðu má lita svo á að það sé skylda embættismannanna að stíga eitt skref út fyrir rammann til að vekja þann sem sefur — og það hafa þeir nú gert með réttu — því, ég endurtek, forsenda rétt- indaskortsins hlýtur að vera við- unandi kjör. Ef þvi er ekki til að dreifa þá hefur hinn aðilinn ekki staðið við sinn hluta og er í reynd sá sem brýtur samkomulagið en ekki starfsmenn heildarinnar sem una þvi ekki lengur að niðst sé á þeim vegna þess að þeir hafa ekki verkfallsrétt. Hinn brigðuli aðili þessa máls er því fjármálaráðuneytið en ekki HÍK. Samfélagið gerir kröfu til ein- staklingsins, einstaklingurinn til samfélagsins. Því hefur verið haldið fram að grundvöllur þess- ara krafna og þá raun samfélags- ins sjálfs sé samningur — samfé- lagssamningur — sem tryggi rétt einstaklingsins sem og heildarinn- ar. Ef ég man rétt þá liggur þessi hugmynd til grundvallar Mann- réttindayfirlýsingu Sameinuðu „Samfélagiö þarf á öll- um þáttum, stéttum, hópum sínum að halda til þess aö tilganginum, mannsæmandi Iffi fyrir sem flesta, veröi náö. Lífinu sem við höfum rétt til samkvæmt Mannréttindayfirlýsing- unni.“ þjóðanna — og hefur einnig haft mikil áhrif í ýmsum vestrænum lýðræðisríkjum. Það segir sig sjálft að stöðugt er verið að brjóta þennan samning um allan heim. Vestrænar lýðræðisþjóðir margar leggja samt metnað sinn i að haga félagsmálum sínum þannig að hann sé haldinn. Þær hafa líka margar slæma reynslu af yfir- gangi og ójafnaði. Með þeim veit fólk að ójafnvægi hefnir sin. Sam- félagið þarf á öllum þáttum, stétt- um, hópum sínum að halda til þess að tilganginum, mannsæmandi lífi fyrir sem flesta, verði náð. Lífinu sem við höfum rétt til samkvæmt Mannréttindayfirlýsingunni. Ef nú í allri þessari samvirkni er þannig þrengt að einum hópi, hópi sem þar að auki eru gerðar miklar kröfur til um menntun, ábyrgð, starfshæfni o.fl., og þær samskiptareglur sem hann hefur játast undir — að hann hélt I gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir rétti sínum til sæmandi sam- lífs innan heildarinnar — notaðar til að níðast á honum, setja hann skör lægra en aðra viðlíka þegna — þá er traust brotið og óvirðing auðsýnd. Svolitill kaldur gustur framan i valdið þar sem það blundar í tregðu sinni ætti að vera vel þeginn. Fjármálaráðuneytið ætti að þakka fyrir sparkið sem það fær áður en komið er í verra. Nú mætti spyrja, hvernig má það vera að launin duga svona illa. Framhaldsskólakennarar eru langskólagengið fólk, flest með námsskuldir á bakinu, það hefur Morgunblaðið/Ingimar Stúlkur frá Suftur-Afríku sögðu fri landi sínu og þjóð í fjölskyldumessu. Fjölskyldumessa og Lionshátíð Djúpavogi, 3. marz. ÝMISLEGT hefur verió á döfinni í félagsmálum hér á Djúpavogi undanfarið. Laugardaginn 2. marz héldu Lionsmenn frá Breiðdal og Djúpavogi sameiginlega árshátíð á Djúpayogi. Lionsklúbbar frá þessum stöðum hafa áður haft með sér gott samstarf um árshátíð Var ýmislegt til skemmtunar og fór hátíðin hið bezta fram. Sunnudaginn 3. marz efndi séra Ingólfur Guðmundsson, farprestur þjóðkirkjunnar, til fjölskyldumessu í Djúpavogs- kirkju. Fermingardrengir léku helgileik, hópur barna lék á blokkflautu og tvær stúlkur frá Suður-Afríku sögðu frá landi sínu. Kirkjan var þéttsetin og voru kirkjugestir ánægðir með þessa nýbreytni. Tveir vélbátar hafa stundað rækjuvejðar í Berufirði og aflað sæmilega. Fiskvinnslufólk hef- ur unnið í saltfiski þessa sið- ustu daga þar sem ekki hefur borizt fiskur á land. Ingimar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.