Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 31
Ráðstefna
um kirkju-
byggingar
Skrúfudagur Vélskólans á morgun
Laugardaginn 16. marz verður
haldin ráðstefna í Bústaðakirkju um
nútímakirkjubyggingar hér á landi á
vegum Kirkjuritsins og Kirkjulistar-
nefndar.
í frétt frá undirbúningsnefnd
segir, að ráðstefna þessi sé opin
öllum, sem áhuga hafa en dag-
skráin hefst kl. 13 og lýkur um kl.
18. Ráðstefnuatriðin verða:
1. Hvernig er staðið að byggingu
nýrrar kirkju?
Sr. Ólafur Skúlason, dómpró-
fastur mun gera grein fyrir
ýmsum þáttum þess máls.
Fjallað verður um kirkju og
skipulag, fjármögnun kirkju-
bygginga, val á teikningu, sam-
skipti við arkitekt og lista-
menn, samkeppnisform o.fl.
2. Hlutverk kirkjuhússins, kröfur
prests og safnaðar. Hefðbundin
og ný viðhorf til kirkjubygg-
inga. Dr. Gunnar Kristjánsson.
3. Nokkrir arkitektar sýna lit-
skyggnur af kirkjum, sem þeir
hafa gert og útskýra.
4. Álit. Jens Einar Þorsteinsson,
formaður AÍ.
5. Listbúnaður kirkna. Björn Th.
Bjömsson, listfræðingur.
6. Umræður.
Bústaðakirkja verður skoðuð í
kaffihléi.
Ráðstefnustjórar verða Halldór
Reynisson, guðfræðingur, og Jó-
hannes S. Kjarval, arkitekt.
ÁRLEGUR kynningardagur Vél-
skóla íslands, skrúfudagurinn, verð-
ur laugardaginn 16. mars. Þann dag
er starfsemi skólans kynnt, allir
vélasalir opnir og kennarar og nem-
Verðlagsstofnun hefur beðið Mbl.
að birta eftirfarandi:
í verðkönnun á bifreiðavara-
hlutum sem birt var nýverið, var
sagt að strokklokspakkning (head-
pakkning) í Subaru bifreið fáist í
tveimur verslunum, hjá viðkom-
andi bifreiðaumboði á 462 kr. og
hjá NP varahlutum á 65 kr. í ljós
hefur komið að starfsmaður NP
varahluta gaf upp verð á ventla-
lokspakkningu í stað strokkloks-
pakkningar.
Jafnframt var sagt að vinstra
endur reiðubúnir til að veita upplýs-
ingar um starf það sem fram fer í
skólanum.
Á þessu ári eru liðin sjötíu ár
frá stofnun Vélskólans. Er því
frambretti í Lada 2105 (1300)
hefði kostað hjá umboði 2822 kr.
en 1654 kr. hjá Bílnum hf. Upplýs-
ingar starfsmanns hjá Bílnum hf.
reyndust hins vegar ekki réttar,
þar sem frambrettið passar ekki á
þessa gerð Lada bifreiðar, heldur
á ódýrari gerð (Lada 1200).
Verðlagsstofnun biðst velvirð-
ingar á fyrirgreindum mistökum
sem voru ófyrirsjáanleg sökum
þess að viðkomandi fyrirtæki
veittu rangar upplýsingar.
vandað til skrúfudagsins venju
fremur. M.a. er efnt til sýningar á
verkum Gunnars Bjarnasonar,
fyrrverandi skólastjóra, en hann
er nú nú 84 ára gamall, búsettur í
Mosfellssveit.
Þá sýna um tuttugu og fimm
fyrirtæki ýmsar vörur og vélar
sem tengjst vélstjórastarfinu og
öryggisbúnaði á skipum. Allir sal-
ir skólans verða opnaðir kl. 14.00 á
laugardag en hátíðafundur hefst í
hátíðasal skólans kl. 13.15. Kven-
félagið Keðjan verður að vanda
með kaffisölu og um kvöldið verð-
ur árshátíð Vélskólans og kvenfé-
lagsins Keðjunnar í Þórskaffi.
Gunnar Bjarnason byrjaði að
mála er hann var 82ja ára gamall
og hóf þá myndlistarnám hjá
Myndlistarklúbbi Mosfellssveitar
þar sem Jón Gunnarsson listmál-
ari er leiðbeinandi. Þetta verður
fyrsta sýning Gunnars í Reykjavík
en hann hefur áður átt verk á sýn-
ingu í Mosfellssveit.
Gunnar Bjarnason er borinn og
barnfæddur Reykvíkingur, fæddur
í Aðalstræti 2, 12. febrúar 1901.
Hann lagði stund á verkfræðinám
í Danmörku og Þýskalandi og kom
heim að námi loknu 1930. Vann
hann ýmis verkfræðistörf þar til
árið 1945 að hann gerðist kennari
við Vélskóla íslands. Árið 1955
varð hann skólastjóri er hann tók
við af fyrsta skólastjóra skólans
M.E. Jessen. Gunnar lét af störf-
um haustið 1971 við 70 ára ald-
urstakmarkið.
Eftir það starfaði Gunnar sem
formaður Svartolíunefndar sem
vann að breytingu á vélum togara
til þess að þeir gætu brennt ódýr-
ari olíu. Árið 1978 flutti Gunnar í
Mosfellssveit þar sem hann býr
með dóttur sinni og tengdasyni.
(Fréttatilkynning.)
Leiðrétting við verðkönnun
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985
Gunnar Bjarnason, fyrrverandi skólastjóri Vélskólans. Myndir
eftir hann eru sýndar á Skrúfudeginum.
Úr vélasal Vélskólans.