Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 32

Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 Ragnhildur Helgadqttir um fjarvistir kennaræ Hafa hvorki áhrif á starfshraða né niður- stöður Kjaradóms — en bitna á nemendum — Vona að stefnumarkandi yfirlýsing ríkisstjórnarinnar verki til góðs Ég vona að framhaldsskólakennarar hefji sem flestir störf þessa dagana, sagði Ragnhildur Helgadóttir menntmálaráð- herra í Sameinuðu þingi í gær, og virði landslög og námsrétt- indi nemenda sinna. Fjarvistir þeirra breyta engu um hraða né niðurstöður Kjaradóms, sem kjaramálum þeirra hefur verið vísað til. Ríkisstjórnin hefur samþykkt stefnumarkandi viljayfirlýsingu, sem gengur í þá veru að mismunur í kjörum innan og utan ríkisgeirans verði jafnaður. Hjörleifur Steingrímur Ragnhildur Guttormsson Hermannsson Helgadóttir Guðmundur Jón Baldvin Guðrún Kinarsson Hannibalsson Agnarsdóttir Alvarlegt ástand í framhaldsskólum Hjörleifur Guttormsson (Abl.) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár i Sameinuðu þingi í gær og gerði að umtalsefni alvarlegt ástand í framhaldsskólum landsins, sem varað hafi í tvær vikur og geti staðið nokkrar vikur í viðbót. Hann kvað forsætisráðherra og menntamálaráðherra hafa lofað að svara fyrirspurnum frá sér um þetta efni, en hinsvegar hafi fjár- málaráðherra neitað hinu sama. Hjörleifur taldi sofandahátt ríkis- stjórnarinnar meginástæðu þess, hvern veg væri komið í fram- haldsskólum, þrátt fyrir það að endurmat menntamálaráðuneytis á störfum kennara hafi fært heim sanninn um, að kennarar hafi lengi haft rétt fyrir sér um versn- andi kjaralega stöðu, miðað við hinn almenna markað. Þá sagði Hjörleifur mál kennaranna hluta af striði rikisstjórnarinnar við launastéttir landsins, sem kæmi m.a. fram í hávaxtastefnu og fjár- munatilfærslu frá fólki til fyrir- tækja. Fjöldauppsagnir kennara væru nauðvarnaraðgerðir. Hjörleifur spurði síðan forsæt- isráðherra, hvað ríkisstjórnin hygðist gera til lausnar á þessari deilu. Þá spurði hann mennta- málaráðherra, hvaða áhrif deilan hefði þegar haft í framhaldsskól- um og hver væru líkleg áhrif hennar áframhaldandi. Hann minnti ennfremur á að fjármála- ráðherra hefði lykilhlutverk í mál- inu; undir hann heyrðu launamál ríkisstarfsmanna. AÖdragandinn og afleiðingin Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, kvað eðlilegt að truflun sú, sem orðin væri á skóla- starfi, kæmi til umræðu á Alþingi. Kjaraþróun í landinu ætti rætur í forsögu, sem spannaði jafnvægis- leysi í efnahagsmálum fyrr á ár- um og allt að 130% verðbólgu. Meginmál væri að koma hér á jafnvægi í atvinnu- og efnahags- málum. Forsætisráðherra kvað kennara hafa gengið úr störfum 1. marz, þrátt fyrir að lög hafi staðið til annars. Launanefnd ríkisins stæði nú í viðræðum við þá, sem væru á viðkvæmu stigi, og því eðlilegt, að fjármálaráðherra, sem færi með þessi mál í ríkisstjórninni, kjósi að taka ekki þátt í kappræðum um þau. Meginatriði deilunnar væri, hve mikla hækkun kennarar þurfi að fá til að leiðrétta þann mun, sem talinn væri á kjörum manna með sambærilega menntun og í sam- bærilegum störfum innan og utan ríkisgeirans. Ríkisstjórnin hafi gert hvort tveggja að gefa út stefnumarkandi viljayfirlýsingu, þess efnis, að þessi munur yrði jafnaður, og vísað deilunni til kjaradóms, lögum samkvæmt, enda sýnt, að önnur lausn á henni verði ekki fljótvirkari. Jafnframt væri þeirri eindregnu ósk beint til kennara að þeir hverfi aftur að störfum og virði lög, kennslu- skyldur og námsréttindi nemenda sinna, sem fyrst og fremst og að ósekju sættu tjóni af því, sem gerzt hafi. Samanburðarkönnun fer nú fram, sagði forsætisráðherra, en er ekki lokið, þó fram sé komin áfangaskýrsla. Bitnar þyngst á nemendum Ragnhildur Helgadóttir, mennta- málaráðherra, kvað 440 kennara hafa sagt upp störfum frá 1. marz. Hún hafi nýtt ótvíræðan lagaleg- an rétt til að framlengja uppsagn- arfrest þeirra um þrjá mánuði til að afstýra fyrirsjáanlegri truflun í skólastarfi, sem fyrst og fremst væri til tjóns fyrir nemendur. Þetta hafi verið tilkynnt með 17 daga fyrirvara, en beiting um- ræddrar lagaheimildar hafi ekki áður verið tilkynnt með jafnlöng- um fyrirvara. Um 220 kennarar hafi gengið úr starfi 1. marz, þrátt fyrir lögstudda framlengingu upp- sagnarfrests. Síðan gerði ráðherra grein fyrir því, hvað þessi útganga hafi þýtt í einstökum fram- haldsskólum, en skólastarfið væri víðast lamað, mismunandi mikið þó. Menntamálaráðherra kvað þá ákvörðun viðkomandi kennara, og þeirra einna, að beita uppsögnum úr starfi og útgöngu 1. marz, þrátt fyrir að lög standi til annars. Ráðherrann lét í ljósi þá von, að sem flestir kennarar kæmu til starfs nú, þegar viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar liggur fyrir og málið væri komið til hlutlauss dómstóls, Kjaradóms. Fjarvistir kennara hefðu að sínu mati engin áhrif á hraða né niðurstöðu Kjaradóms en bitnuðu á þeim er sízt skyldi, framhaldsskólanem- endum. Þegar hafi nokkrir nem- endur ákveðið að hverfa frá námi, a.m.k. í vetur, og vandinn væri vaxandi. Málið er komið til Kjaradóms, sagði ráðherra, og fagráðuneyti menntamála hafi ekki með það að gera þar, heldur fjármálaráðu- neyti, sem fari með launamál allra ríkisstarfsmanna. Þróun kennaralauna Menntamálaráðherra kvað árásir Hjörleifs Guttormssonar á núverandi ríkisstjórn koma úr hörðustu átt. Neikvæð þróun kennaralauna hafi ekki gerzt fyrst og fremst eftir myndun núverandi ríkisstjórnar, heldur ætti mun lengri feril, sem spannaði tvær til þrjár ríkisstjórnir Alþýðubanda- lagsins. Þá hafi skort bæði orð og athafnir hjá þeim, sem hæst hefðu í dag. Kennarar hafa í tvígang fengið verulega leiðréttingu í launum. í hið fyrra skiptið í lok viðreisnar- tímabilsins og í hið síðara 1977. Báðar þær ríkisstjórnir, sem hlut áttu að máli, lutu forystu Sjálf- stæðisflokksins. Aftur á móti hafi kjörum kennara hrakað örast þeg- ar Alþýðubandalagið hafi setið f ríkisstjórn. Ráðherrann lagði áherzlu á að ráðuneyti hennar hefði, í góðu samstarfi við kennara, unnið að endurmati á störfum þeirra, sem styrkti mjög stöðu þeirra til að ná fram sambærilegum kjörum og sambærilega menntað fólk á al- mennum vinnumarkaði. Hún kvaðst vona að kennarar mættu til vinnu nú, enda hefðu fjarvistir þeirra engin áhrif á gang mála fyrir Kjaradómi, þó þær bitnuðu á nemendum. Sem svar við fyrirspurn Hjör- leifs um viðbrögð, ef kennarar mættu ekki til starfa, nefndi ráð- herra nokkra möguleika, m.a.: 1) Ráðningu forfallakennara, sem skólastjórar hefðu þá frumkvæði um i samvinnu við starfandi kenn- ara, 2) hugsanlega lengingu kennslutímabilsins, 3) og að dreg- ið yrði úr umfangi prófa. Ríkisstjórnin féll á prófinu Guömundur Einarsson (BJ) kvað rikisstjórnina hafa fallið á tveim- ur prófum i röð: fyrst húsnæðis- málaráðherrann, nú mennta- málaráðherrann eða máske fjár- málaráðherrann. Rangt væri að kennarar hafi svikið skóla sina eða nemendur; þvert á móti væri það af tryggð við þessa aðila að kennarar hafi ekki fyrir löngu staðið upp úr störfum sínum. Hús- næði8kerfið og skólakerfið eru nú í rúst í höndum ríkisstjórnarinn- ar. Guðmundur sagði að ríkis- stjórnir ættu að hafa stefnu i launamálum; ekki skjóta sér á bak við Kjaradóm. Ráðherrar eiga ekki að lýsa vandanum, heldur leysa hann Jón Baldvin Hannibalsson (A) kvað ráðherra hafa talað rétt eins þeir væru ekki í ríkisstjórn. Ráð- herrar ættu ekki að láta við það sitja að lýsa þeim vanda, sem við væri að etja, heldur leysa hann. Kjör kennara hafi að visu verið að rýrna á ferli fleiri ríkisstjórna, en keyrt hafi um þverbak i tið þess- arar. Jón Baldvin fjallaði siðan um kjör og stöðu kennara og vitn- aði m.a. til greinar ólafs Oddsson- ar, menntaskólakennara, í Morg- unblaðinu um þau efni. Hann tók og dæmi af frábærum eðlisfræði- kennara, sem haft hefði frum- kvæði um ólympiukeppni eðlis- fræðinema hér á landi, og hefði meira en tvöfaldað laun sin með því að hverfa að öðrum störfum. Það sem á vantaði væri að ríkis- stjórnina skorti stefnu í þessum málum og öðrum, sem og framtið- arsýn. Rikisvaldið ætti ekki að vera nánasarlegasti vinnuveitand- inn i landinu. Peningar væru til, sem flytja mætti til innan rikis- geirans. Það á að gera strangar kröfur til skóla og strangar kröfur til kennara, en það á líka að borga þeim markaðslaun. Menntun er máttur Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.) vitn- aði og til Morgunblaðsgreinar Ólafs Oddssonar, menntaskóla- kennara. Hún sagði ófremdar- ástandið, sem rikti i skólamálum, áhyggjuefni og óviðunandi. Siðan fór hún nokkrum orðum um gildi góðra skóla og almennrar mennt- unar og þekkingar, sem allt væri hyggileg fjárfesting til framtíðar. Ríkisstjórnin hafi ekki dugað sem skyldi til að leysa úr þessu mikla vandamáli. Stuttar þingfréttir Fyrirspurnir • Sigriður Þorvaldsdóttir (Kvl.) spyr félagsmálaráðherra, hvað líði framkvæmd úttektar á opinberu húsnæði til að auð- velda hreyfihömluðum aðgang, skv. þingsályktun frá 22. maí 1980. Ennfremur, hvað líði frumvarpi því, sem ríkisstjórn- inni var falið að semja og leggja fyrir Alþingi, skv. sömu þingsályktun um fastan tekju- stofn i þvi skyni að tryggja nægilegt fjármagn til breyt- inga á húsnæði vegna hreyfi- hamlaðra. • Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir (Kvl.) og fleiri þingmenn spyrja sama ráðherra, hvað líði störfum nefndar sem skipuð var í júní sl. til að vinna að frumvarpi um Búsetaíbúðir og kaupleiguibúðir og hvort ráð- herra hyggist beita sér fyrir setningu laga um húsnæðis- samvinnufélag og búseturéttar- íbúðir á þessu þingi? • HjÖrleifur Guttormsson (Abl.) spyr iðnaðarráðherra, hvaða athugunum á stofnunum og fyrirtækjum, sem heyra undir iðnaðarráðuneytið, hafi verið unnið að frá miðju ári 1983, hverjir hafi verið þar að verki, hvað hafi verið greitt í þessu sambandi o.fl. • Steingrímur J. Sigfússon (Abl.) spyr utanríkisráðherra, hvort yfirlýsingar hans um að kjamorkuvopn séu ekki geymd hér á landi taki til herskipa, sem koma í hafnir hérlendis eða sigla um íslenzka lögsögu og hvort hann muni beita sér fyrir því að banna siglingar herskipa um lögsöguna og kom- ur þeirra í hafnir nema fullvíst sé að þau beri ekki kjamavopn? Virk þátttaka ríkis- fyrirtækja í atvinnu- uppbyggingu Fjórir þingmenn, Davíð Aðalsteinsson (F), Valdimar Indriðason (S), Skúli Alexand- ersson (Abl.) og Eiður Guðna- son (A), flytja tillögu til þings- ályktunar, þess efnis, „að sú stefna skuli vera ríkjandi í stjórn og rekstri atvinnufyrir- tækja sem ríkið á að hluta eða öllu leyti að þau skuli ein sér eða í samvinnu við önnur vera virkir aðilar að hvers kyns nýj- ungum í uppbyggingu atvinnu- rekstrar. Því felur Alþingi ráðherrum þeim, sem fara með málefni slíkra fyrirtækja, að hlutast til um að stjómir þeirra hrindi þessari stefnu í fram- kvæmd hvarvetna sem færi gefst". Þjóðgarður við Gull- foss og Geysi Þrír þingmenn Alþýðuflokks, Eiður Guðnason, Jóhanna Sig- urðardóttir og Sighvatur Björgvinsson, flytja tillögu til þingsályktunar, þess efnis, að þegar verði hafinn undirbún- ingur að stofnun þjóðgarÖ3 um- hverfis Gullfoss og Geysi. Jafn- framt verði hafin vinna við heildarskipulag svæðisins og undirbúin kaup á þeim land- spildum þar, sem ekki eru þeg- ar í eigu ríkisins. Frumvarp til laga um þjóðgarð á þessu svæðf verði lagt fyrir næsta reglulegt þing.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.