Morgunblaðið - 15.03.1985, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 15.03.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 45 gert er enn að einhverju leyti, ef fé er óverðtryggt. Það er því ljóst, að ógerlegt er að hafa lága vexti, ef ýmist er verið að lækka gengi eða láta það siga. Til þess að hægt sé að halda verðgildi gjaldmiðils án mikilla breytinga, þarf að stjórna peninga- og launamálum þjóðar- innar af meiri festu og raunsæi en verið hefur. Með öðrum orðum, hretta að gera óraunhæfa samn- inga og ómerkja þá svo með þvi að lækka gengi, þannig að eftir standi auknar skuldir og hærri vextir. Sú þróun peningamála, sem varð á árabilinu 1974—1983, má eigi endurtaka sig. Flestir sáu, að eigi var hægt að búa við 100% verðbólgu og hliðstæða vexti. Eigi skal fullyrt, hver mestu réð um þessa þróun. Hitt er víst, að Seðla- bankinn og viðkomandi rikis- stjórnir réðu mestu um, hvaða leiðir voru valdar til þess að leysa vandamálin. Það er einnig ljóst, að það fyrsta, sem núverandi stjórn gerði, að ég ætla eftir tillögu Seðlabankans og Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, var að hækka erlendan gjaldeyri um 17,1% og nýlega var gengið lækkað um 12,5% og 5% litlu áður. Það vant- ar því aðeins að tengja kaup- gjaldsvísitölu við verðþróunina til þess að skriðan geti runnið af stað af fullum þunga. Eldri menn, sem muna þá tima að lítið var um vegi og símalfnur, vita, að þeir sem villtust af rétti leið, áttu erfitt með að átta sig og hætti til að villast aftur. Ljóst er að alþingismennirnir bera ábyrgð á stjórn efnahagsmála gagnvart kjósendum. Þeir hafa falið Seðla- bankanum að fara með þessi mál að verulegu leyti. Tvisvar hafa fulltrúar þjóðarinnar áður afsalað sér hluta af því valdi, sem þeir höfðu. Það var 1262 á Þingvöllum og 1662 f Kópavogi. Fáir munu álfta, að það valdaafsal hafi orðið til hagsbóta fyrir þjóðina. Seðla- bankinn og að einhverju leyti ráð- herrarnir hafa stjórnað gengis- og vaxtamálum f 24 ár. Þingmenn hafa litlu ráðið, f mesta lagi fengið aðgerðum frestað. Þessir aðilar virðast eigi hafa komið auga á aðrar leiðir til úrlausnar fjár- hagslegum vandamálum en lækka gengi og hækka vexti. Sé gengið óbreytt getur 1—2% vaxtahækkun dregið úr eftirspurn eftir lánsfé án þess að verðbólga aukist og það vita hagfræðingar að sjálfsögðu. Séu vextir hins vegar 20—40% að ekki sé minnst á 70—100% eru vextir enn meiri verðbólguvaldur en gengislækkun þvf að þeir dreif- ast á lengri tíma. Það eru verð- tryggðu vextirnir, sem eru nú að sliga alla þá aðila, sem skulda. Þetta gengur tölfræðingum bank- anna illa að skilja. Alþingismenn okkar ættu að leggja þá spurningu fyrir sjálfa sig, hvort gengis- og vaxtamálum hefði verið stjórnað af meiri óvisku, ef Alþingi hefði teki ákvörðun um þau mál. Ég held það hefði tœpast verið hægt, ef miðað er við síðastliðin 10 ár. Á Alþingi eru málin rædd og skoðuð frá ýmsum hliðum. Þjóðin fylgist þá með hlutunum, en stendur eigi varnarlaus gegn ákvörðun fárra manna. Að sjálfsögðu yrði leitað álits banka og fulltrúa launþega og atvinnurekenda. Það er einnig jákvætt, að það tekur lengri tfma að koma vafasömum ákvörðunum í gegnum þingið en bankaráð Seðlabankans. Eg álft þvf að þing- menn ættu að breyta lögum um Seðlabankann. Hætta að nota bankastjórana fyrir syndahafra og taka sjálfir ákvarðanir um þau mál, sem þjóðin hefur falið þeim og þeir bera siðferðilega og stjórn- skipulega ábyrgð á. Ég veit, að þeir, sem farið hafa villir vegar eiga erfitt með að átta sig. Ég hefi þvi litla trú á þvi að þeir sem þró- að hafa ráðandi stefnu i pen- ingamálum hjá okkur undanfarin ár breyti þeirri stefnu allt i einu. Ég efa eigi, að stjórnendur Seðla- bankans séu greindir og velviljað- ir menn. Hitt dreg ég í efa, að þeir hafi það fjármálalega lyktnæmi, sem fésýslumenn þurfa að hafa. Björn Pílsson er íýrrrerandi jA þingismadur Framsóknartlokksins og bóndi aó Löngumýri. Muniö dansleikinn í kvöld Ath..- OPIÐ Á MORGUN LAUGARDAG 20 ára aldurstakmark ☆ Stjörnukvöld ☆ föstudaginn 15. mars. Ódýr og frábær skemmt- un. Hjördís Geirsdóttir flytur vinsæl lög frá fyrri árum. Tvíréttuö veisla og skemmtiatriði fyrir aðeins kr. 800. Aðgangseyrir eftir kl. 22 kr. 200. Borðapantanir í síma 99-1356. Ath.: Opiö (immtudaga og sunnudaga frá kl. 19.00. Selfossi ÁNÆípu ST D N£. vr,ir,íú

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.