Morgunblaðið - 03.04.1985, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 3. APRÍL 1985
Londonlamb 276,00 pr. kg_
Svinabógur 269,00
Svínalæri 275,00
Svínakótelettur 379,50
Sítrónumareneraður
Lambabógur 279,00
Ávaxtaskreytt
Lambalæri 289,00
Kryddlegið
Lambalæri 289,00
Peking endur 279,00
Þykkvabæjar
Franskar 44,00
ORA grænar
baunir 19,00 Vz dós
Maískorn 49,00 V2 dós
Rauökál 26,00 V2 (JÁS
Jarðarber '
Bulgar 75,00 V\ dód
Hollenskt rauðkáj^-^.
(íglösum) 49,50" '
Nóatún Nótatúni 17
sími 17261
Nótatún Rofabæ 39 sími 71200
(var áður Árbæjarmarkaður)
Vogaver Gnoðavogi
sími 35990
Átfheimabúðin Álfheimum 4
Nýjum veitingarekstri
hafnað á Selfossi
Selfossi, 25. mara.
Veitingastöðum á Selfossi hefur
fjölgað mjög. Nú eru hér starfræktir
tveir vínveitingastaöir og tveir mat-
sölustaðir. Á fundi bæjarstjórnar 21.
mars sl. var hafnaö beiöni um breyt-
ingar á húseigninni Eyravegi 3 og
rekstri 5. veitingastaðarins hér.
Vínveitingastaðimir tveir,
Inghóll og Gjáin, einbeita sér að
starfsemi síðari hluta vikunnar, á
kvöldin. Matsölustaðirnir Ársel, í
Vöruhúsi KÁ, og Fossnesti eru
opnir alla daga.
Á sl. ári hóf Gunnar B. Guð-
mundsson undirbúning að því,
ásamt nokkrum aðilum, að setja á
stofn veitingastað af millistaerð í
húsi gömlu brauðgerðar KÁ að
Eyravegi 3.
18. des. lá fyrir samþykki bygg-
inganefndar um að hefjast mætti
handa við breytingar á húsinu
með fyrirvara um að útlit og
breytingar yrðu í samræmi við
reglugerðir. í byrjun janúar var
hafist handa við bréytingar á hús-
inu, en 25. janúar stöðvaði bygg-
ingafulltrúi framkvæmdir vegna
þess að nágrannar kröfðust þess
að fá að segja álit sitt á fram-
kvæmdunum. Bygginganefnd
hafði láðst að leita álits nágranna
eins og mælt er fyrir um í lögum.
Þann 16. janúar hafði bygginga-
nefnd rætt þetta mál og þá hvern-
ig finna ætti nægileg bílastæði
fyrir reksturinn og var sammála
um að samnýta mætti bílastæði í
miðbænum, en ekkert var minnst
á að leita álits nágranna. Það
gerðist ekki fyrr en tilmæli komu
um það frá bæjarráði og þá höfðu
nágrannar gert athugasemdir við
fyrirhugaðar framkvæmdir og
krafist réttar síns til umsagnar.
Nágrannar skiluðu áliti sínu að
mánuði liðnum og lögðust gegn
veitingarekstri að Eyravegi 3.
Mál þetta var tekið fyrir á
tveimur fundum bæjarstjórnar,
13. og 21. mars. Skiptar skoðanir
voru um málið og mikill tími fór í
að ræða það. Andmælendur bentu
á að ekki væri gert ráð fyrir næg-
um bílastæðum og lausn á því ekki
auðfundin. Þeir sem voru þessu
hlynntir sögðu að verið væri að
setja of þröngar skorður fyrir þá
sem vildu setja á fót atvinnurekst-
ur.
Á fundinum 13. mars kom fram
tillaga um að heimila breytingar
og rekstur að uppfylltum reglu-
gerðum þar að lútandi. Bent var á
að bæjarstjórn hefði staðfest
fundargerðir bygginganefndar þar
sem breytingar á húsinu voru
heimilaðar með skilyrðum. Af-
greiðslu var frestað og erindinu
vísað aftur til bygginganefndar.
21. mars lá fyrir bæjarstjórn-
arfundi álit bygginganefndar þar
sem bent var á nýtingu baklóðar
vegna bílastæða. Umræður um
málið stóðu í tvær klukkustundir
og að þeim loknum var tillagan frá
13. mars felld á jöfnu, 3 fuíltrúar
Sjálfstæðisflokks og fulltrúar Al-
þýðubandalags voru á móti, en 3
fulltrúar Framsóknarflokks og 1
fulltr. Sjálfstæðisflokks með.
Fulltrúi Alþýðuflokks sat hjá.
Þannig var leyfisbeiðni um
rekstur 5. veitingahússins á Sei-
fossi hafnað eftir nokkuð sögulega
meðferð í kerfinu. Hvort eftirmál
verða er óvíst, en líklega forðast
bygginganefnd að brenna sig á því
aftur að leita ekki álits nágranna
að fyrra bragði við líkar aðstæður
í framtíðinni.
Hig. Jóns.
Höfum orðið fyrir
verulegu fjárhagstjóni
Helfossi, 25. msrs.
ÞEIR sem hugöust standa fyrir veit-
ingarekstri á Eyravegi 3 á Selfossi
höföu varið til þess verulegum fjár-
hæöum og gert ákveönar framtíðar-
áætlanir þegar framkvæmdir voru
stöövaöar og leyfi hafnaö. Gunnar B.
Guömundsson og samstarfsmaöur
hans, Þóröur G. Árnason, höfðu
þetta að segja um málið:
„Ég tel að þarna hafi verið
hafnað samkeppni í veitinga-
rekstri á Selfossi og okkur mis-
munað. Við bjuggumst við að
fundin yrði lausn á bílastæða-
vandamálinu sem talið var fyrir
hendi, sérstaklega vegna þess að
búið var að leyfa okkur að byrja,"
sagði Þórður.
„Maður lýsir furðu sinni á kú-
vendingu sumra bæjarfulltrúa í
málinu," sagði Gunnar.
„Það er búið að dæma þetta hús-
næði úr leik og við höfum varpað
frá okkur öllum áformum um veit-
ingarekstur," hélt hann áfram.
„Við höfum orðið fyrir geysilegu
fjárhagstjóni þar sem við vorum
byrjaðir á framkvæmdum. Og við
teljum rétt að benda á, að í næsta
húsi, Eyravegi 1, er starfrækt
verslun i húsi sem gerðar voru
breytingar á og rekstur hafinn án
þess að lagðar væru fram teikn-
ingar. Sú starfsemi hlýtur að
verða stöðvuð, ef farið verður eftir
reglugerðum." sí*. Um.
iMæoum 09 ooisuuu
)omul húsgögn. Got
,úrval af áklæðum
BÓLSTRUNí
ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807,
Morgunblaöid/SigurÓur Jónsson
Gunnar B. Guðmundsson og Þórður G. Árnason.
Metsölublad á hverjum degi!