Morgunblaðið - 03.04.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. APRlL 1985
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
m
i/jíjunrai-Lihj'u lf
Bréfritari saknar myndaflokksins Dýrasta djásnið en hér gefur að Ifta leikkonuna Geraldine James, sem fór
með eitt aðalhlutverkanna í myndaflokknum.
Mættum við fá meira að heyra
Mér fannst dapurlegt sunnu-
dagskvöldið þegar Dýrasta
djásnið og Jón Stefánsson hurfu
af skjánum. Dýrasta djásnið er
stórgóð mynd, en reyndar langar
mig ekki til að sjá hana aftur, að
minnsta kosti ekki á næstunni.
En það horfir öðruvísi við með
Jón Stefánsson og hans prúða
lið. Ég hélt að þama væri kom-
inn nokkurs konar þjóðkór, sem
ekki hefur verið til siðan á dög-
um okkar ágæta Páls ísólfsson-
ar, og sem við fengjum að heyra
og sjá af og til undir stjórn hins
frábæra tónlistarmanns og
stjórnanda, Jóns Stefánssonar.
Margir eru mér sammála um
þetta. Því segjum við: „Mættum
við fá meira að heyra."
Ég skora á forráðamenn sjón-
varpsins að kippa þessu í lag.
Jú, svolítið meira. Margt er
ágætt í sjónvarpinu og nefni ég
til dæmis dýralífsmyndir, Nýj-
asta tækni og visindi, Lifið á
jörðinni, Stiklurnar hans ómars
og Derrik fær sannarlega að
fljóta með. En ég hef tekið eftir
því að fjöldi fólks hefur beðið um
Dallas, en án árangurs. Það er
nauðsynlegt að hafa eina fram-
haldsmynd i gangi, þótt það sé
della eins og Dallas, en svo er
líka til Dynasty og fleira. Endi-
lega eitthvað spennandi. — „Við
feðginin“ er ágæt mynd.
Og loks kom góð innheimtu-
auglýsing í sjónvarpinu.
Fyrir mína hönd og „margra“.
Ragnh. S. Bryn.
Af eigin reynslu og annarra
Ég veit að það á eftir að koma
mörgum sem mig þekkja
„spánskt” fyrir sjónir að ég skuli
mótfallinn bjór. Hvað er þessi
aumingi að þvæla? Já, aumingi
hef ég verið og má kannski dæma
mig enn, en einmitt þess vegna er
ég ekki að bulla, því að ég hefi
reynsluna að baki og hún er dýr-
mæt, þó ég hafi þurft að gjalda
hana háu verði.
Of hár
meðal-
aldur
nefndar?
Fyrir níu árum var skipuð nefnd
til þess að útbúa tillögur um verð-
tryggðan lífeyrissjóð fyrir alla
landsmenn. Ef ég man rétt, þá var
til þess ætlast að verkinu yrði
hraðað. Nú heyrast fréttir frá
nefndinni. Að vísu engar tillögur
um verðtryggðan lífeyrissjóð allra
landsmanna, ennþá, heldur tillög-
ur um niðurskurð réttinda og
hækkun iðgjalda um sjötíu pró-
sent í núverandi lífeyrissjóðakerfi.
Þessum niðurstöðum hefur nefnd-
in komist að vegna þess að meðal-
aldur hefur hækkað svo gífurlega
á síðustu fimmtán árum!!!
Mér er nær að halda að heilla-
drýgra fyrir lífeyrismál í landinu
hefði verið að stytta í meðalaldri
þessarar nefndar og drífa áfram
frumvarp um verðtryggðan lífeyr-
issjóð allra landsmanna sem legið
hefur fyrir Alþingi mestallan
starfstíma nefndarinnar.
Reykjavík, 26. mars 1985.
Haraldur S. Blöndal
Við íslendingar eigum við mikið
áfengisböl að búa og að bæta
bjórnum við er ekki til að minnka
vandann heldur bæta á hann.
Við þurfum ekki að fara lengra
en til næstu nágrannalanda okkar.
Bjórinn er þar margra ára böl sem
þeir vilja losna við, en þó ætlum
við að fara að innleiða hann. Und-
antekningarlaust ætti að loka öll-
um bjórlíkisstöðunum því að
obbinn af þeim sem þá óhollu
staði sækir er ungt fólk.
Það má ekki lengur vera okkar
aðalsmerki, íslendinga, að byrgja
ekki brunninn fyrr en barnið er
dottið ofanf hann.
Ég hef víða horft uppá eymdina;
i Þýskalandi og Englandi, svo
eitthvað sé nefnt. Og hana hefi ég
heyrt nefnda hér heima: drykkju-
menningu. Nei, hún getur aldrei
orðið nema ómenning.
Við erum að fá yfir okkur mikla
„dópskriðu". Dópistar hafa sagt
mér, að væru þeir í vímu, þá yrðu
þeir að fá eitthvað sem áfengi
væri í, þó ekki væri nema kardi-
mommudropa, því annars misstu
þeir fæturna. Gullið tækifæri
fyrir þá, betra bragð af bjórnum.
Sama hvar borið er niður, aukin
vandræði. Ég ætla að vona, að Guð
gefi þingmönnunum okkar gæfu
til að varpa þessu fyrir róða. Það
er trúa mín að þeim væri fyrir
bestu að láta þjóðaratkvæða-
greiðslu fara fram um þetta mál,
því að ég trúi á fólkið f landinu og
það viti enn hvað til síns friðar
heyrir og barnanna.
Og að endingu: Niður með bjór-
inn.
Ásgeir H.P. Hraundal
Þessir hringdu ..
„Löður“ verði
endursýnt
3642-7558 og 8323-4938 hringdu:
Okkur langar til að koma með
fyrirspurn til sjónvarpsins um
það hvort ekki væri hægt að
endursýna hina frábæru þætti
Löður.
Einnig langar okkur til að
spyrjast fyrir um hvort eitthvert
kvikmyndahúsa bæjarins hafi
Rkhard Mulligan, einn aðalleikar-
anna úr gamanrayndaflokknum
Löðri.
keypt sýningarréttinn á kvik-
myndunum Ragtime og Mommie
Dearest?
ÖSKJUHLÍÐ
OPIÐ ALLA
PÁSKANA
Keilusalurinn í Öskjuhlíð er op-
inn alla páskana.
Morgunstund gefur gull í mund,
því þeir keilarar sem hefja leik
fyrir kl. 1200 á hádegi greiða
aðeins 100 kr. fyrir hvern leik
(annars 120 kr.).
Starfsfólk keilusalarins óskar
keilurum, sem öðrum, gleðilegra
páska og þakkar góða sam-
vinnu. Verið velkomin. og
KEILUSALURINN
*