Morgunblaðið - 10.04.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
Skákþing íslands:
Karl Þorsteins
með
örugga forystu
Skák
Bragi Kristjánsson
Skákþing íslands í landsliAsflokki stendur þessa dagana yfir í Haga-
skóla í Reykjavík. Þegar þessar línur eru ritaðar hafa verið tefldar 9
umferðir af 13. Keppnin hefur verið mjög skemmtileg og teflt af miklum
þrótti, enda eru keppendur í landsliðsflokki mjög ungir. Karl Þorsteins
hefur nú tekið örugga forystu eftir rólega byrjun. Hann hefur 7Vi vinning
og hefur unnið sex skákir í röð! Karl er lang stigahæsti keppandi mótsins
og þarf þessi frammistaða hans ekki að koma á óvart. I öðru sæti er hinn
ungi og bráðefnilegi Þröstur Þórhallsson með 6 vinninga. Þröstur er
aðeins 16 ára og teflir nú í fyrsta skipti í landsliðsflokki. Þröstur byrjaði
rólega, fékk V/i v. í fjórum fyrstu skákunum en síðan hefur hann aðeins
leyft sér eitt jafntefli og unnið fjórar skákir! Verður fróðlegt að sjá
hvernig honum vegnar í lokabaráttunni. Lárus Jóhannesson vann þrjár
fyrstu skákirnar, en síðan hefur hann ekki unnið skák. Lárus ætti að
blanda sér í toppbaráttuna, ef hann nær sér á strik aftur.
I 4.-5. sæti koma tveir 16 ára
unglingar, Andri Áss Grétars-
son og Davíð Ólafsson með 5
vinninga. Þeir hafa sýnt, að taka
verður þá alvarlega, þótt aldur-
inn sé ekki hár. Það er mikið
gleðiefni, hve vel Þröstur, Andri
og Davíð hafa staðið sig í mót-
inu, og er það enn ein sönnun
þess að unglingastarf stendur
með miklum blóma í Taflfélagi
Reykjavíkur.
Um aðra keppendur er það
helst að segja, að Haukur, Ró-
bert og Dan hafa ekki staðið sig
eins vel og vænta mátti, en um
önnur úrslit vísast til meðfylgj-
andi töflu.
Við skulum að lokum líta á
tvær skákir frá mótinu.
4. umferð
Hvítt; Karl Þorsteins
Svart; Þröstur Þórhallsson
Slavnesk vörn.
1. d4 — d5, 2. c4 — c6, 3. Rc3 —
e6, 4. Rf3 — Rf6, 5. Bg5 — dxc4
Önnur leið er hér 5. — h6, 6.
Bxf6 (eða 6. Bh4) — Dxf6, 7. e3
(eða 7. e4) o.s.frv.
6. e4 — b5
Nú kemur upp hið geysiflókna
Botvinnik-afbrigði, sem mjög
hefur verið í sviðsljósinu síðustu
ár.
7. e5 — h6, 8. Bh4 — g5, 9. Rxg5
— Rd5!?
Þröstur ætlar að koma Karli á
óvart með þessum sjaldgæfa
leik, en algengast er hér 9. —
hxg5, 10. Bxg5 — Rbd7, 11. exf6
- Bb7, 12. g3 - c5, 13. d5 -
Efsti maður mótsins, Karl Þorsteins, teflir gegn Pálma Péturssyni.
Db6, 14. Bg2 - 0-0-0, 15. 0-0 -
b4,16. Ra4 - Db5,17. a3 - Rb8,
18. axb4 — cxb4,19. Be3 — Bxd5,
20. Bxd5 - Hxd5, 21. De2 - Rc6,
22. Hfcl — Re5 með mjög flók-
inni og vandmetinni stöðu.
10. RxH
Önnur leið er hér 10. Rf3 —
Da5, 11. Hcl - Bb4, 12. Dd2 -
Rd7,13. Be2 - Bb7,14. 0-0 - c5,
15. Hfdl - Hc8,16. Kfl - Bxc3,
17. bxc3 — b4, 18. dxc5 — bxc3,
19. Dd4 - Dxc5, 20. Dg4 - Df8,
21. Dd4 jafntefli (Gavrikov —
Nogueira, Tbilisi 1983).
10. — Dxh4, 11. Rxh8 - Bb4, 12.
Db2
Önnur leið er hér 12. Hcl —
De4+, 13. Be2 — Rf4, 14. a3 -
Rxg2+, 15. KH - Re3+, 16. fxe3
— Dxhl+, 17. Kf2 með betra tafli
fyrir hvít (Timman — Ljubojev-
ic, Buenos Aires 1980).
12. — c5, 13. dxc5
Hvítur getur leikið 13. 0-0-0 í
þessari stöðu og framhaldið gæti
orðið 13. — cxd4, 14. Dxd4 —
Dg5+, 15. f4 - Rxf4, 16. Re4 -
Re2+, 17. Kbl - Rxd4, 18. Rxg5
f- Rbc6, 19. Rf3 - Rxf3, 20.
gxf3 — Rxe5, 21. Hhgl með
betra tafli fyrir hvít.
13. - Rd7, 14. (HM) — Bxc3
Skákfræðin gefur 14. — Rxe5,
15. Del! - Dg5+, 16. Kbl - Dg7,
17. f4 — Bxc3, 18. bxc3 — Rxf4,
19. Dg3! - Dxg3, 20. hxg3 -
Rd5,21. Kb2 - Rg4,22. Hel með
betra tafli fyrir hvít.
15. bxc3 — Rxc5, 16. Rg6
Hvítur getur leikið þennan
leik vegna þess að svartur lék
ekki Rd7xe5.
16. — Dg5, 17. Dxg5 — hxg5, 18.
h4 — KI7, 19. h5 — Bb7
Ekki 19. - Rxc3, 20. Hd8 -
Bb7 (hvað annað?), 21. Hxa8 —
Bxa8,22. h6 og hvíta peðið kemst
upp i borð og verður að drottn-
ingu.
20. f4 — Rxc3 — 21. Hd4
21. — Bd5?
Svartur varð að leika 21. — g4
og koma í veg fyrir að hvítur
næði tveim samstæðum frípeð-
um á g- og h-línum.
22. fxg5 - Rxa2+, 23. Kbl — c3
Eftir 23. - Rc3+, 24. Kc2 -
R3a4, 25. Rf4 verður erfitt fyrir
svart að stöðva hvítu frípeðin á
kóngsvæng.
24. Be2 — c2+
Svartur hefði ef til vill getað
skapað sér gagnfæri með 24. —
b4 o.s.frv.
25. Kxc2 - Rc4, 26. Rf4 — Hc8+,
27. Kb2 — Rac3, 28. g6+ — Ke8,
29. h6 6 Ra4+, 30. Hxa4 — bxa4,
31. Rxd5+ — exd5, 32. h7 —
Hb8+, 33. Kal
Nú getur ekkert stöðvað hvitu
frípeðin.
33. — Hb3, 34, h8D
og svartur gafst upp.
SKÁKÞING ISLANDS 1985, landsllflsflokkur.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 >
1. Dan Hansson 2295 X 0 1 0 0 0 1 0 1/2 1
2. Lárus Jóhannesson 2160 1 X 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1 1
3. Benedikt Jónasson 2245 0 1/2 X 1/2 1 0 0 1/2 1 1/2
4. ísgeir Þór Ámason 2165 1 1/2 1/2 X 1 0 0 1/2 1 0
5. Róbert Harðarson 2280 1 1/2 0 0 X 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2
6. Þröstur Pórhallsson 2170 1 1/2 1 1 X 1/2 0 1 0 1
7. Halldór Grétar Einarsson 2205 0 1/2 1 X 1 0 1 0 0 1
8. Davið ölafsson 2125 1 1 0 X 1 1 0 0 1/2 1/2
9. Pálmi R. Pétursson 2125 1/2 1/2 1 0 X 0 0 0 1/2 1/2
10. Haukur Angantýsson 2300 1/2 1 0 0 1 X 1 0 1 0
11. Andri Áss Grétarsson 2195 1 1/2 0 1 1 1 0 X 0 1/2
12. Karl Þorsteins 2430 1/2 1/2 1/2 1 1 1 1 1 1 X
13. Cylfi Þórhallsson 2130 0 0 0 1/2 0 0 1/2 1/2 0 X
14. Hilmar S. Karlsson 2220 0 0 1/2 1 1/2 1/2 1/2 1 1/2 X
5. umferð
Hvitt: Davíð Ólafsson
Svart: Andri Áss Grétarsson
Sikileyjar-vörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6,
6. Bg5 — e6, 7. f4 — Be7
í 3. umferð reyndist peðsránið
7. - Db6, 8. Dd2 - Dxb2 Andra
illa á skákinni við Þröst, svo að
hann velur aðra leið nú.
Df3 — Dc7, 9. g4
Venjulega er leikið hér 9. 0-0-0
— Rbd7,10. g4 o.s.frv. Spurning-
in er hvort svartur geti svarað 9.
g4 með 9. — b5!? og ef 10. 0-0-0
þá 10. - b4.
9. — Rbd7, 10. 0-0-0 — b5, 11.
Bxf6 - Rxf6, 12. g5 — Rd7, 13.
15!?
Rólegir leikir, 13. a3, 13. h4 og
13. Bh3, hafa ekki gefið hvíti
mikið.
13. - Rc5
Hugsanlegt er að svartur geti
drepið peðið á g5, t.d. 13. —
Bxg5+, 14. Kbl - Re5,15. Dh5 -
De7,16. Rxe6 — Bxe6,17. fxe6 —
g6, 18. exf7+ — Kxf7,19. De2 —
Kg7, 20. Rd5 - Dd8, 21. Bh3 -
Hf8 með nokkuð jöfnu tafli.
14. (6
Hvítur getur einnig leikið 14.
h4, en eftir 14. — b4, 15. Rce2
(15. f6!?) - e5, 16. Rb3 - Rxe4!?
koma upp miklar flækjur, sem
líklega eru honum óhagstæðar,
t.d. 17. Bg2 - Bb7,18. De3 - d5,
19. Bxe4 — dxe4, 20. Rg3 — a5,
21. f6 - gxf6,22. gxf6 - Hc8, 23.
Hh2 - Bf8, 24. Rxe4 - Bxe4, 25.
Dxe4 - Bh6+, 26. Kbl — 0-0, 27.
Hgl+ - Kh8, 28. Hhg2 - Dc6,
29, Df5 - Hfd8, 30. He2 - Bf4
með betra tafli fyrir svart.
14. — gx(6, 15. gxf6 - Bf8, 16.
RÍ5!?
Önnur leið er hér 16. Dh5 —
Hg8!, 17. Bh3 (17. Rd5!?) - Hg6,
18. Hhel - Bd7,19. Rd5 - Db7
með tvísýnni stöðu (Timman —
Ljubojevié, Tilburg 1983).
16. — b4!?
Morgunbladid/Bjarni
í bréfskákinni Klosterman —
Popescu 1972/73 varð framhald-
ið 16. - exf5 (16. - Bb7, 17.
Rg7+ ásamt 18. a3), 17. Rd5 —
Db7, 18. exf5 - Kd8, 19. Bg2 -
Bd7, 20. Hhel - Bc6, 21. De3 -
Kd7, 22. b4! - Ra4, 23. Re7 -
Bxg2, 24. Hxd6+ — Kxd6, 25.
De5+ - Kd7,26. Hdl+ - Ke8,27.
Rc8+ - Be7, 28. Rd6+ - Kf8, 29.
fxe7+ — Kg8, 30. Dg3 mát.
17. Bb5+?!
Skemmtilegur leikur, en nokk-
uð vafasamur. Svartur má að
vísu ekki drepa biskupinn, t.d.
17. — axb5, 18. Rxb5 — Da7,19.
Rbxd6+ — Bxd6, 20. Rxd6+ —
Kf8, 21. De3 - h6, 22. Rb5 -
Db6, 23. Dxc5+! og hvítur vinnur.
Gallinn er hins vegar sá að eftir
leikinn standa þrír menn hvíts í
uppnámi, og eftir besta varnar-
leikinn, 17. — Bd7!, er erfitt að
benda á viðunandi framhald
fyrir hvít. Hvítur hefði sennilega
leikið best 17. Rg7+ — Bxg7, 18.
fxg7 — Hg8, 19. Re2 eða jafnvel
17. Rd5!? með miklum flækjum.
18. - Kd8?, 18. Rxd6 - Bxd6
19. Dg3?
Hvítur missir af leið, sem
hefði gefið honum yfirburða-
stöðu: 19. Hxd6+ — Dxd6, 20.
Hdl - Dxdl+, 21. Dxdl+ - Kc7
(21. - Rd7, 22. Bc6 - Ha7, 23.
Ra4 — Kc7, 24. Dd4 o.s.frv.), 22.
Dd4 o.s.frv.
19. — Bd7!, 20. e5
Eða 20. Hxd6 - axb5,21. Rxb5
— Da5 og hvítur kemst ekki í
gegnum varnir svarts.
20. — axb5, 21. exd6
Nú er ljóst, að hvíta sóknin er
runnin út í sandinn, og svartur
getur snúið vörn í sókn með
manni meira.
21. - Dc6, 22. Rbl — Hxa2, 23.
Hhel - Ra4, 24. Hd2 - Hxb2,
25. Dg7 - He8, 26. Dx(7 - b3
Betra var 26. — Hxbl+, 27.
Kxbl — Dc3 og mát í næsta leik.
27. Dxh7 - Hxbl+, 28. Kxbl -
Dc3
og hvítur gafst upp, því eftir
29. cxb3 — Dxd2, 30. bxa4 —
Dxel+ er staða hans gjörtöpuð.