Morgunblaðið - 23.04.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Islenzkir hárgreiðslumeistarar vekja athygli í Paris;
Dauðaþögn sló á skvaidrið
þegar íslenzki „skriðjök-
ullinn“ skreið fram á sviðið
Frá Elínu Pálmadóttur, bUAumanni Morgunblnósins í París, 22. nprfl.
SÝNING ísiensku hárgreiðslu-
meistaranna níu í hringleikahúsi
vetrarsirkussins í París á sunnu-
dag vakti gífurlega athygli. Var
langbest af þeim 13 löndum sem
sýndu á alþjóðlega hárgreiðslu-
þinginu þann daginn. Sjónvarpið
franska fylgdist með og fílmaði
og dauðaþögn sló á skvaldrið í
salnum þegar íslenski „skriðjök-
ullinn" seig fram á sviðið og
undan honum komu sýningarst-
úlkurnar frönsku í klakabrynj-
um og hárgreiðslumeistararnir
níu tóku að skreyta á þeim
frostgrátt hárið (sjá Mbl. sl.
föstudag).
Baksviðs þyrptust að ljós-
myndarar. Gunnar Larsen, rit-
stjóri eins glæsilegasta tísku-
blaðsins hér um slóðir, sagði
sýninguna afbragð, hug-
myndaríka og myndræna og
lét mikið mynda. Arild Mast-
erson, forseti norsku samtak-
anna, kvaðst stoltur af að
Noregur hefði mælt með inn-
göngu íslensku hárgreiðslu-
meistaranna i Intercoiffure
1981. Með starfsgleði sinni og
frumleik voru íslensku hár-
greiðslumeistararnir til sóma.
Og annar forseti sagði við
blaðamann Mbl. að íslend-
ingarnir hefðu með gærusýn-
ingu sinni í Rio de Janeiro 1982
sett stílinn, sem nú væri ríkj-
andi hjá ölium þjóðum, að
kynna einhvern þátt frá landi
sínu með þema í sýningunni.
Þeir væru færir í fararbroddi.
1 dag mun Bára Kemp fara
fyrir hönd hinna með sitt mód-
el í sjónvarpsupptöku. Verður
sýningarstúlkan hið þekkta ís-
lenska módel Tania, eða Ág-
ústa Daníelsdóttir, sem útveg-
aði ásamt Helgu Björns frá-
bærar franskar sýningarstúlk-
ur og sýndi sjálf fyrir íslend-
ingana. Elín Sveinsdóttir sem
hér í París snyrtir m.a. hja
Patous og Hermes sá um
snyrtinguna. Svo þetta varð ís-
lensk framleiðsla.
Hönnuður sýningarinnar,
Dóra Einarsdóttir, vakti ekki
síst athygli. Kvikmynda- og
sjónvarpsmyndahöfundur sem
sá klakabrynjur hennar kom á
sýninguna og biður hana um
að vinna fyrir sig og belgískur
myndbandaframleiðandi i
Belgíu setti sig líka í samband
við hana, hvað sem út úr því
kemur. Nú á þriðjudag mun
Dóra sýna ásamt nokkrum
hönnuðum á sérsýningu fyrir
50 valda blaðamenn. Hefur
unnið fyrir þá sýningu appels-
ínugulan gærupels og kjól úr
ull með gæruherðapúðum utan
á.
Hárgreiðslumeistararnir
munu á miðvikudag halda með
hjálparfólki sínu til Monaco,
þar sem þingi Intercoiffure
lýkur í veislu hjá Rainier
prinsi og Carolinu prinsessu,
sem er verndari Intercoiffure
eins og móðir hennar var.
Einn blaðamaður af íslandi
var stoltur af löndum sínum
hér í París. Merkilegt að sjá
hve þeir af eigin framtaki
stóðu á sporði hinum þjóðun-
um, sem voru margar með
stórt lið. Bandaríkjamennirnir
sagðir hafa virkjað 150 manns
í sína sýningu, sem að vísu var
lengri.
... « / i/ / R t
MwgMiliMéH/ Aml SWwg
ESn af hárgreifaáinum nhi sem íslenski hópurinn sýndi á Hehnsþingi ICD.
Myndin var tekin á æfíngu skömmu áður en hárgreiðsknneistaramir héldu utan.
ilBI
E\ja fyrir tvo í Ifyrraliafi
Feröalög meö Faranda eru óvenjuleg. Fau eru
ódýr og áfangastaðirnir eru um víöa veröld.
Vegna ágætra samninga Faranda við erlendar
ferðaskrifstofur, þarftu ekki að hreppa himinháan
happdrættisvinning til að geta eytt sumarleyfinu
á dásamlegri strönd í fjarlægu landi.
Frumlegar ferðlr á elnstöku verði
Langar þig til að dvelja á óspilltri smáeyju á
Kyrrahafi? Sá möguleiki er fVrir hendi. Þú getur
einnig kynnst leyndardómum Austurlanda, Nýja-
Sjálandi eða andfætlingum okkar í Ástralíu.
Hér eru nokkur dæmi um verð:
Ferð til Manilla .........kr. 32.500,-
Ferð til Tokyo............kr. 46.500,-
Ferð til Ástralíu.........kr. 45.200,-
Innifalið erflug meðviðkomu í London. Miðað er
við gengisskráningu 20. mars.
Ódýrar sólarlandaferðir
Farandi útvegar einnig sæti í ódýrar sólarlanda-
ferðir erlendra ferðaskrifstofa. Þar er um að ræða
ferðir til vinsælla ferðamannastaða, með viðkomu
í London, Amsterdam, Kaupmannahöfn eða
Luxemborg.
Aðeins er gist á góðum hótelum.
Starfsfólk Faranda veitir allar nánari upplýsingar.
ífarandi
Vesturgötu 4, sími 17445
íslenzkur trjónukrabbi kynntur á
sjávarafuróasýningu í Boston.
íslenzkur
trjónukrabbi
kynntur í
Bandaríkjunum
ÍSLENZKUR trjónukrabbi var
kynntur í fyrsta sinn á alþjóólegri
sjávarafurðasýningu í marzmánuði
síðastliðnum. Coldwater sá um
kynninguna, en Stefán Hjartarson,
kafari, veiddi krabbann, sem fíutt-
ur var lifandi vestur.
Stefán Hjartarson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að kynning-
in hefði vakið talsverða athygli á
stórri og glæsilegri sýningu i
Boston, þar sem mest áherzla
hefði verið lögð á skel- og krabba-
dýr. Virtist sér markaður vera
fyrir krabban vestra. Magnús
Gústafsson, forstjóri Coldwater,
telur vissa möguleika á sölu
krabbans í Bandaríkjunum, en
segir markaðs- og arðsemiskann-
anir ekki nógu langt komnar til að
hægt sé að tjá sig um það, hvort
útflutningur sé raunhæfur eða
ekki.
Stefán hefur að undanförnu
stundað krabbaveiðarnar í Faxa-
flóa og hefur hann meðal annars
farið í tilraunavinnslu í niður-
suðuverksmiðjunni Ora.
_/\uglýsinga-
síminn er 2 24 80