Morgunblaðið - 23.04.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
29
Þeþþdán
eggi þaudján
Kvlkmyndir
Árni Þórarinsson
Laugarásbíó: Sextán ára — Six-
teen Candles ★★
Bandarísk. Árgerd 1984. Handrit
og leikstjórn: John Hughes. Aðal-
hlutvcrk: Molly Ringwald, Paul
Dooley, Anthony Michael Hall.
Sixteen Candles er auðvitað
okkar vikulegi skammtur af am-
erískum unglingamyndum. En
hún hefur það umfram obbann
af þessari ofboðslegu fjölda-
framleiðslu að hún er gerð af
svolítilli væntumþykju og til-
finningu fyrir því hvernig það
var og er að vega salt milli þess
að vera krakki og fullorðinn;
höfundar hafa ekki aðeins hrist
hana fram úr erminni til að
græða á þeim aldurshópi bíó-
gesta sem stærstur er um þessar
mundir.
John Hughes, sem er einn af
upprunalegum skríbentum Nat-
ional Lampoon-hópsins og sá
síðasti og skásti sem reynir fyrir
sér við leikstjórn, tvinnar i
snaggaralegu handriti sínu sam-
an viðburðaríkan sólarhring í
lífi tveggja unglinga. Molly
Ringwald leikur stúlku sein á
sextán ára afmæli og heldur að
þann dag muni hún hefja nýtt líf
Sextán kerti — Molly Ringwald og Michael Schoeffler ná saman 1
unglingamynd Laugarásbíós.
og draumarnir, nánar tiltekið
draumaprinsinn, verða að
raunveruleika. Því miður man
rugluð fjölskylda hennar ekki
eftir afmælinu og er upptekin af
heldur ólánlegu brúðkaupi elstu
dótturinnar. Anthony Michael
Hall leikur svo (einkar vel) enn
yngri draumóramann sem lætur
mótlæti ekki á sig fá og leggur
ódeigur til atlögu við það hlut-
verk að þykjast töff án þess að
vera það. Þessi tvö hjálpa hvort
öðru áður en yfir líkur til að láta
drauma sína rætast, og þegar
það tekst fagna jafnaldrar
þeirra á bíóbekkjunum sigri eins
og á íþróttakappleik. Þá finnum
við sem eru ríflega helmingi
eldri að John Hughes hefur tek-
ist að gera mynd um það að vera
sextán ára. Sé næsta táninga-
mynd Hughes, The Breakfast
Club, jafn ánægjuleg fer maður
að trúa því að Ameríkanar geti á
ný gert marktækar myndir fyrir
og um þennan aldurshóp.
Sixteen Candles er þannig
vinaleg unglingakómedía, hröð
og bærilega fundvís á hnyttin
samtöl, skemmtilegar uppákom-
ur og aukapersónur, og hefur
skilning á því hversu hvolpaást
getur verið í senn sársaukafull,
vemmileg og fyndin.
HctfltibiœJí&aAjf
Ég heiti ÓSKAR. Ég er sparibaukur Iðnaðarbankans
og hjálpa ykkur að spara. Þið þekkið mig áfallegu
minni og fína
mínum. Ég er í
Iðnaðarbankanum og kosta 290 krónur. Eg á heima í litlu, fallegu
og þegar þið kaupið mig, fáið þið í kaupbæti plakat og skemmtilega
til að líma
&
m
í. Þegar þið hafið fyllt mig af
komið með þá í Iðnaðarbankann, fáið þið einn límmiða fyrir hverjar 100
krónur sem þið leggið inn. Á þeim eru myndir af Spilamúsinni
Hlunki
Kláru og fleiri vinum mínum. Ég er því bæði leikfélagi og sparibaukur.
t
Spörum saman á skemmtilegan hatt. U Jri
Sjáumst í Iðnaðarbankanum.
Iðnaðarbankinn
Góka/t/.