Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Eitraðir
ávextir í
Kaupmanna-
höfn?
Kaupminiuhörn, 21. aprfl. AP.
LÖGREGLUMENN fóru í hópum um
gervalia Kaupmannahöfn í dag til
þess að vara verslunareigendur við
því að innfluttir ávextir frá Suður-
Afríku kynnu að vera eitraðir. Rit-
zau-fréttastofan fékk nefnilega bréf
frá samtökum sem titluðu sig „stuðn-
ingshópinn" þar sem látið var að því
liggja að meðlimir samtakanna hefðu
komið eitri fyrir í ávaxtaformum sem
voru á leið til Danmerkur. Sagði í
bréfinu, að eitraðir ávextir væru á
boðstólum í þremur verslunum í
Kaupmannahöfn.
Leitað var í verslunum vítt og
breitt um höfuðborgina allt fram
að lokunartíma á laugardaginn, en
enginn eitraður ávöxtur fannst.
Ekki þótti rétt annað en að skikka
alla verslunareigendur sem hafa
ávexti á boðstólum, að þvo vöru
sína vandlega og athuga hvern
ávöxt ef vera skyldi að nálargöt
leyndust á berki eða hýði þeirra.
„Stuðningshópurinn" segist berjast
gegn aðskilnaðarstefnunni í Suð-
ur-Afríku og í bréfinu fyrrgreinda
var þess getið að hópurinn myndi
eitra ávexti öðru hvoru þar til Dan-
ir hættu öllum viðskiptum við min-
nihlutastjórn hvítra manna í land-
inu.
15 hjartaað-
gerðir á
fyrsta ári
London, 22. nprfl. AP.
ELLEFU mánaða gamall drengur
fékk að fara heim af sjúkrahúsi í
dag í fyrsta sinn frá fæðingu. Það
er í frásögur færandi þar sem pilt-
urinn, sem beitir Edwin Borwick,
befur gengist undir 15 hjartaað-
gerðir frá því hann fæddist.
Nauðsynlegt reyndist að
„endursmíða" hjarta litla
drengsins þar sem hann fæddist
með lokaðar hjartalokur og tvö
stór göt á hjartanu að sögn tals-
manna Brompton-sjúkrahússins.
Edwin heldur upp á eins árs
afmæli síðar í þessari viku á
heimili sínu í Kensington-hverf-
inu I London. Hann verður senn
lagður að nýju á sjúkrahús, þar
sem fjarlægt verður úr hálsi
hans sérstakt tæki, sem auðveld-
ar honum öndun eftir að barkinn
féll saman.
ÆFT AF KAPPI
Víetnamskir hermenn æfa sig fyrir mikla hersýningu og skrúðgöngu sem fer fram í Ho Chi Min-borg, sem fyrnim hét Saigon og var höfuðborg
Suður-Víetnam. Æfingin var haldin í tilefni af því að 30. aprfl lauk Víetnamstríðinu fyrir 10 árum sfðan með fullum sigri kommúnista. Mikil hátíðahöld
eru í vændum í borgum og bæjum Víetnama í tilefni dagsins. í baksýn er höll fyrrum forseta, Nguyen Van Thieu, sem stjórnaði Suður-Vfetnam meðan
stríðið stóð yfir. Höllin er nú kölluð „sameiningarhöllin“.
Treholt-réttarhöldin:
Skjölin hættuleg
öryggi Noregs
Orió, 22. april. AP.
í DAG, MÁNUDAG, hófst níunda vika réttarhaldanna yflr Arne Treholt en
að undanförnu hafa þau farið fram fyrir lokuðum dyrum. Þeir sem borið hafa
vitni síðustu dagana, hafa einkum verið sérfróðir menn um norsk öryggismál
og er almennt talið að vitnisburður þeirra hafl veikt mjög vörn sakbornings-
Arne Treholt fyrir rétti
Norðmenn á Everest
Odió, 22. aprfl. Frá frétUriUra MorgunblaösinH.
NORÐMENNIRNIR Björn Myrer-
lund og Odd Eliassen urðu fyrstir
Norðmanna til að klífa hæsta fjall
heims, Everest, en þeir náðu á tind
fjallsins í gærmorgun. Reistu þeir
norska fánann á tindi fjallsins.
Myrerlund og Eliassen klifu
fjallið ásamt Bretanum Chris
Bonnington og þremur Nepal-
búum, sem voru þeim til aðstoðar.
Klifu þeir upp suðurhlíðar fjalls-
ins og höfðu 15 mínútna viðdvöl á
fjallstindinum áður en haldið var
niður á ný.
í síðustu viku þegar réttarhöld-
in voru opin, greindi sex sérfræð-
inga réttarins á um þá fullyrðingu
Treholts, að skjölin sem hann
hefði afhent Sovétmönnum, gætu
ekki hafa skaðað hagsmuni norsku
þjóðarinnar. Meirihluti þeirra
komst að þeirri niðurstöðu, að í
höndum Sovétmanna væru um-
rædd skjöl hættuleg öryggi Norð-
manna og þykir það álit þeirra
geta skipt sköpum fyrir framhald
málsins. I fréttaskýringu
NTB-fréttastofunnar sagði, að ef
rétturinn teldi sannað, að Treholt
hefði afhent Sovétmönnum þessi
skjöl, væri ekkert í vegi fyrir að
hann yrði dæmdur fyrir njósnir.
Réttarhöldin voru aðeins opin í
síðustu viku þegar sérfræðingarn-
ir skýrðu frá þessu áliti sínu en að
öðru leyti hafa þau verið að mestu
lokuð í átta vikur. Almenningur í
Noregi hefur þvf ekki fengið nein-
ar fréttir af mikilvægum vitnis-
burði norsku leyniþjónustumann-
anna, sem fylgdust með Treholt í
nokkur ár, og ekki heldur af vitn-
isburði tveggja sálfræðinga í síð-
ustu viku, sem fengnir voru til að
láta í ljós álit sitt á mótsagna-
kenndum yfirlýsingum Treholts.
Gert er ráð fyrir að sérfræð-
ingarnir ljúki vitnisburði sinum í
þessari viku en að því búnu verður
gert réttarhlé til að ákæruvaldið
og verjendur Treholts geti búið sig
undir lokahríðina. Dóms í málinu
er ekki að vænta fyrr en um miðj-
an maí í fyrsta lagi.
Fékk Nimeiri 56 milljónir
fyrir aðstoð við falasha?
LundÚDum, 22. april. AP.
BRESKA dagblaðið „The Observ-
er“ greindi frá því í dag og bar
fyrir sig „trausta heimildarmenn“,
að Gafaar Nimeiri fymim Súdan-
forseti hefði þegið háar upphæðir f
mútufé frá ísraelum fyrir að leggja
blessun sína fyrir leynilega flutn-
inga eþíópskra gyðinga, svokall-
aðra falasha, frá flótta-
mannabúðum í Súdan til ísrael.
Fullyrðir blaðið að Nimeiri hafl
fengið 56 milljónir dollara frá ísra-
elum og hafl súdanska öryggis-
lögreglan séð um flutning falash-
ana undir eftirliti ísraelskra leyni-
þjónustumanna.
Breska blaðið hefur eftir
heimildarmönnum sínum, að
Nimeiri hafi sent Faith Erhwa,
háttsettan leyniþjónustumann
Gaafar Nimeiry
til New York að sækja síðustu
mútugreiðsluna I banka þar f
borg og hafi Erhwa verið vænt-
anlegur heim til Khartoum ör-
fáum dögum áður en stjórnar-
byltingin var gerð. Fleiri þáðu
mútugreiðslu að sögn breska
blaðsins, meðal annars Omar E1
Tayeb, fyrrum varaforseti lands-
ins og yfirmaður leyniþjónust-
unnar, auk Baha Idris, sérlegs
ráðunauts Nimeiris, sem er kall-
aður „herra tíu prósent" í Súdan
vegna meintrar þátttöku i spill-
ingu í landinu.
Alls er talið að 7.354 falashar
hafi verið fluttir með leynd til
ísraels, en margir þeirra voru
nær dauða en lífi úr hungri. Til
stóð að flytja fleiri, en hætt var
að ferja þá eftir að aðgerðirnar
voru dregnar fram i dagsljosið
með tilheyrandi athygli. Enn
munu vera milli 7.000 til 12.000
falashar i Súdan og Eþfópfu.
Banamenn séra Jerzy Popieluszko:
Hæstiréttur stað-
festir fyrri dóma
Varejá, 19. aprfl. AP. **
HÆSTIRE'ITUR Póllands staðfesti í kvöld úrskurð undirréttar,
sem dæmdi fjóra lögreglumenn í fangelsi fyrir morðið á Jerzy
Popieluszko. Sakborningarnir áfrýjuðu til hæstaréttar og hófust
vitnaleiðslur á föstudag. Lögmenn lögreglumannanna fjögurra
gerðu þá kröfu að hæstiréttur ógildi úrskurð undirréttar og fyrirskipi
ný réttarhöld, en því hefur verið hafnað.
Greindi lögmennina á um hver
væri höfuðpaurinn i ráninu og
morðinu á Popieluszko.
Jan Olszewski, lögmaður fjöl-
skyldu Popieluszko, sagði fyrir
hæstarétti í dag að sakborn-
ingarnir hefðu ekki sagt við rétt-
arhöldin í Torun hverjir höfuð-
paurar ódæðisins væru. Það mál
væri enn á huldu og fjórmenn-
ingarnir kysu að þegja sem gröfin.
Fáránlegt væri að halda því fram
að tilgangurinn með morðinu
hefði verið að hleypa illu blóði f
samskipti kirkjunnar og hins
opinbera. Morðið hefði verið at-
laga að rótum þjóðfélagsins.
Hvatti lögmaðurinn réttinn til að
synja náðunarbeiðni sakborn-
inganna.
Lögmaður Adams Pietruszka
ofursta, sem hlaut 25 ára dóm
fyrir að hvetja undirmenn sína til
ódæðisins, sagði skjólstæðing sinn
saklausan og hvatti réttinn til að
fella niður refsingu hans.
Lögmenn hinna lögreglumann-
anna þriggja kröfðust nýrra rétt-
arhalda á þeirri forsendu að
skjólstæðingar þeirra hefðu veitt
klerki náðarhöggið af slysni.
Dómstóllinn í Torun dæmdi þá
fyrir morð að yfirlögðu ráði.
Samkvæmt pólskum lögum get-
ur hæstiréttur aðeins staðfest
niðurstöðu undirréttar, krafizt
nýrra réttarhalda eða mildað refs-
ingu lögreglumannanna fjögurra.
Getur dómurinn ekki þyngt refs-
inguna þar sem saksóknari áfrýj-
aði ekki úrskurði undirréttar.