Morgunblaðið - 23.04.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
39
Stjömubíó:
Kvikmyndin „Hið
illa er menn gjöra“
frumsýnd
STJÖRNUBÍÓ frumsýnir í dag
myndina Hid illa er menn gjöra (The
Evil That Men Do).
Myndin er gerð eftir sögu R.
Lance Hill og er hún byggð á
sannsögulegum atburðum.
Holland, sem Charles Bronson
leikur, er fyrrum atvinnumorð-
ingi. Hann lifir friðsælu lífi á fal-
legri eyju þar til hann fréttir að
í dag
vinur hans er látinn. Þessi vinur
hans, George að nafni, var blaða-
maður og skrifaði greinar gegn dr.
Clement Moloch, sem hefur pynd-
ingar sem sérgrein. Það fylgir sög-
unni að dr. Moloch hafi pyntað
George til dauða.
Leikstjóri myndarinnar er J.
Lee Thompson, en með aðalhlut-
verk fara auk Charles Bronson
Theresa Daldana, Joseph Maher.
Alþjóðaskákmót
hefst í Hótel
Borgarnesi í dag
FJÓRÐA alþjóðaskákmótið, sem
tímaritið Skák stendur fyrir, hefst í
Hótel Borgarnesi í dag, þriðjudaginn
23. aprfl. Mótið er haldið í samvinnu
við Borgarneshrepp.
Keppendur eru tólf eins og á fyrri
mótum, sem haldin voru í Grinda-
vík, á Neskaupstað og í mars sl. á
Húsavík, og verða tefldar ellefu um-
ferðir.
Fimm erlendir keppendur taka
þátt í mótinu, en íslensku kepp-
endurnir eru sjö. Þeir skiptast í 6
stórmeistara, 2 alþjóðlega meist-
ara og 4 óbreytta.
Keppendum er raðað í Elo-
stigaröð:
1. Margeir Pétursson am. 2535.
2. William Lombardy sm. Bandar.
2500.
3. Curt Hansen sm. Danm. 2500.
4. Karel Mokry sm. Tékk. 2490.
5. Guðmundur Sigurjónsson sm. 2485.
6. Vlastimil Jansa sm. Tékk. 2465.
7. Anatoly Lein sm. Bandar. 2465.
8. Karl Þorsteins 2. áf. í am. 2400.
9. Sævar Bjarnason 2. áf. í am. 2355.
10. Haukur Angantýsson am. 2340.
11. Dan Hansson 2. áf. í am. 2330.
12. Magnús Sólmundarson 2270.
Stigafjöldi keppenda er að með-
altali 2427. Samkvæmt því er mót-
ið í áttunda styrkleikaflokki
FIDE. Til að ná áfanga stórmeist-
ara þarf 8 vinninga, en 6 vinninga
í áfanga alþjóðlegs meistara og
4'Æ vinning í áfanga FIDE-
meistara.
Fyrstu verðlaun eru 1000
bandaríkjadalir, 2. verðlaun 600$,
3. verðlaun 400$, 4. verðlaun 300$,
5. verðlaun 200$ og 6. verðlaun
100$. Sérstök aukaverðlaun eða
fegurðarverðlaun að upphæð 500$
verða veitt ef ástæða er til. Um-
hugsunartími er 2Vz klst. á 40 leiki
og síðan 1 klst. á hverja 16 leiki.
Mótsstjórar eru Jóhann Þórir
Jónsson og Jón Björnsson og yfir-
dómarar eru þeir Guðmundur
Arnlaugsson og Jóhann Þórir
Jónsson. Skákstjórar eru Guðjón
Ingi Stefánsson, Rúnar Guðjóns-
son og Sæmundur Bjarnason.
(Úr rrétutilkynningu)
Fræðslufundur hjá
málfreyjum í kvöld
ÍSLKNSKAR málfreyjur halda
fræðslufund á Hótel Hofi við Rauð-
arárstíg í kvöld, 23. aprfl.
Tilefni fundarins er koma vara-
forseta V. svæðis Alþjóðasamtaka
málfreyja, ITC, hingað til lands á
leið sinni frá Kaliforníu, þar sem
haldinn var stjórnarfundur ITC, til
heimalands hennar, Bretlands.
Málfreyjur munu halda sitt
fyrsta landsþing dagana 7.-9.
júní nk. á Hótel Loftleiðum og í
ágúst í sumar verður stofnað
formlegt landssamband samtak-
anna.
(Úr frétutilkynniiigu)
Forsætisráðherra um miðstjórnarfund Framsóknar:
Herstöðvaandstæðingar
höfðu sig ekki í frammi
Kom á óvart, að enginn skyldi minnast á ratsjárstöðvar
Herstöðvaandstæðingar í Framsóknarflokknum sáu ekki ástæðu til að
hafa sig í frammi á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins um helgina
að sögn forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, Steingríms
Hermannssonar, á fréttamannafundi í gær. Þá sagði forsætisráðherra, að
fram hefði komið á fundinum hugmynd um að álykta til stuðnings yfirlýsing-
um utanríkisráðherra, en á það hefði þá verið bent, að ekki væri til siðs að
álykta til stuðnings ráðherrum úr öðrum flokkum.
Engin ályktun eða samþykkt gert er ráð fyrir ratsjárstöðvum á
kom af miðstjórnarfundinum um
utanríkismál og var Steingrímur
spurður, hvort það þýddi að fram-
sóknarmenn væru orðnir einhuga
um utanríkismál. Hann svaraði
því neitandi og bætti við, að her-
stöðvaandstæðingar, sem væru
margir í flokknum, hefðu ekki séð
ástæðu til að hafa sig í frammi.
Hann sagði ennfremur: „Af ein-
hverjum ástæðum minntist eng-
inn á ratsjárstöðvarnar. Það kom
mér á óvart, en þess má geta að
Norðurlandi og Vestfjörðum í
varnarsamningnum."
Steingrímur sagði að hugmynd-
in um að álykta til stuðnings utan-
ríkisráðherra hefði komið fram
vegna yfirlýsinga hans um að
hingað ættu ekki að koma skip og
flugvélar með kjarnorkuvopn,
þeirri hugmynd hefði verið svarað
á þá leið sem að framan sagði.
Halldór Ásgrímsson varafor-
maður Framsóknarflokksins, sem
einnig sat blaðamannafundinn,
bætti við svör Steingríms og sagði,
að aðalástæðan fyrir því að ekki
hefði verið ályktað og rætt meira
um utanríkismál hefði verið sú, að
meirihluti fundartímans hefði
farið í umræður um nýsköpun í
atvinnulífi. Það hefði verið megin-
umræðuefni fundarins.
INNLEN-T
jeji 'iTiiyK
SÍMI 18936
Hið illa er menn gjöra
TRI-STAR PICTIIRES PRESENTS FROMITC ENTERTAINMENT
CHARLES BRONSON
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Hækkað verð.