Morgunblaðið - 23.04.1985, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985
„Arin þöglu
í ævi Jesú“
Bókin um Cumran-handrit-
in, sem ég var að basla við að
þýða í hitteðfyrra vegna
hvatningar vinkonu minnar
og „reglusystur" vestur í bæ,
virðist Guði sé lof vekja
marga til hugsunar og rit-
smíða.
Hún hélt það líka, að svo
mundi verða hér á íslandi.
Þjóðin væri svo vakandi,
frjálslynd og leitandi einkum
í trúmálum, þótt hún léti lítt
binda sig við bókstaf, fjar-
stæður og fordóma. Einmitt
vegna þess taldi hún víst, að
bókinni um Essena og biblíu-
handritin og í raun og veru
fæðingu og fæðingarstað
margra rita Gamla Testa-
mentisins, bæði þeirra sem
fræðimenn þeirra tíma, sem
völdu bækur í þetta safn- eða
testamenti og höfnuðu öðrum
ekki síðri, mundi verða fagn-
að af mörgum.
Nú, ég fór því að reyna án
þess að eignast svo mikið sem
fjarstæða ósk, hvað þá vissu,
að slíkt ritverk kennt mínu
nafni yrði gefið út.
En svo tók það, sem ég
nefni „handleiðsluna" á mín-
um ævivegi við. Og nú er bók-
in komin og orðin meira að
segja jólagjöf til þjóðarinnar
á sjálfu ári Heilagrar Ritn-
ingar. Minna mátti það verða.
Mönnum þeim, sem um
bókina hafa ritað, er ég mjög
þakklátur, eins og ekki síður
þótt henni sé hvergi hrósað,
sízt að verðleikum miðað við
sinn ágæta, frjálslynda og
lærða höfund Dr. Potter. Það
sem menn þessir segja, bæði
vinur minn Þórir, sem finnst
hún ekki samræmast erfi-
kenningum kirkjunnar, sem
kirkjufeður skipulögðu þegar
hinn frjálslyndi Aríus varð að
víkja fyrir heilögum Antoní-
usi snemma á 4. öld. Og svo
dr. Benjamín á Bárugötunni,
sem einmitt bendir þó á hve
Potter sé af göfugu fólki
kirkjunnar kominn og nefnir
hann samt trúvilling líkt og
Halldór Laxness?!, sem fæst
nú hér við lestur Passíusálma
dr. Hallgríms á hverju kvöldi.
Dr. Benjamín gerir að síðustu
nafni þýðandans meiri heið-
ur, en mér hefði nokkurn
tíma til hugar komið, hvorki í
óskum né draumum. Að
nefna mig sem guðleysinga
við hlið þessara mikilmenna,
Dr. Potters og nóbelsskálds-
ins íslenzka!!
Samt voru það nú ekki rit-
verk þessara ágætu manna,
né heldur kaþólska prestsis í
Stykkishólmi, en einmitt
fyrsti prestur kaþólska spít-
alans þar kenndi mér bæði
latínu og frönsku í gamla
daga, sem þrýstu mér „að
glugganum" þessu sinni, til
að litast um eftir því hvað
segja skyldi um bók Dr. Pott-
ers. Heldur var það ónafn-
greindur, en ákaflega vin-
gjarnlegur maður, sem
hringdi til mín í gærkvöldi.
En honum fannst það mest að
bókinni, að Jesús væri ekki
nefndur á nafn í sambandi
við handritin eða starfsem-
ina, fræðsluna og sannleiks-
leitina við „Hafið dauða".
Ég játa það fúslega, að mér
finnst það líka slæmt.
En eigum við hér á íslandi
ekki um sárt að binda gagn-
vart okkar merkasta fjársjóði
mennta og minninga, „Sögun-
um“ frægu, einmitt vegna
þess að höfundur og hugsuðir
eru þar yfirleitt ekki nefndir
á nafn?
Með efnið í bókinni og þann
hóp menntamanna, hugspek-
inga, fræðara og trúarbragða
gegnir þetta samt öðru máli.
Flokkur sá og foringjar,
sem nefndir eru Essenar í
þessu riti Ameríku-doktors-
ins, var einn af þeim trú-
flokkum á þessum tíma, sem
settu mestan svip á trúarlíf
ísraels.
Þeir nefndust eða hafa ver-
ið nefndir Farísear, sem þýðir
hinir frágreindu eða heilögu,
við gætum sagt „frelsaðir" og
„rétttrúaðir" miðað við okkar
aðstöðu hér.
Svo voru það „Saddúkear",
sem kenndir voru við nafn
hins fræga Zadoks æðsta
prests, sem flestum fremur
mun hafa mótað helgisiði
ísraels og háttu þeirra sem
höfðingja og heldri manna.
Og svo voru Essear eða
Jessear. En það er nákvæm-
lega samstofna nafninu Jesú.
í sinni upphaflegu mynd
Jessear. Hver einstakur gat
því nefnzt Jesú, sem allt er af
sömu rót og nöfnin Jósúa,
Jeseja, Jósef (merking í stofni
orðsins Guðsbörn).
Þetta nafn hefur þá feg-
urstu merkingu, sem hægt er
að hugsa sér, ber í sér, þess-
um örfáu stöfum, óskina, sem
engillinn hvíslaði að móður
Jesú í draumi, þegar hún var
andvaka af ótta og skelfingu,
vegna þess að unnusti henn-
ar, Jósef, væri ekki faðir
barnsins, sem hún mundi
fæða og sagt er frá á fyrstu
síðu Guðspjallanna. En hann
reyndist henni göfugur ást-
vinur og hugsaði sér að skilja
við hana í „kyrrþey". Gerði
það samt ekki. Og drengurinn
hennar varð bezta Guðsbarn
mannkynsins.
Meira þarf ekki um þetta
að segja. En nafnið Jesús og
þá um leið Jessei eða Esseni
þýðir sá sem Guð elskar og
elskar Guð öllu öðru meira.
Nafnið eitt nægir til að
sýna kjarna þeirrar hugsjón-
ar, sem æðst er í heimi
manna, og gimstein þeirrar
trúar, sem kölluð er kristinn
dómur. Þar þarf ekki mörg
orð. Hann vildi heldur hanga
og deyja í kvölum kross-
festingar, sem talin er ægi-
legasta pynting í sögu og
refsingum mannkyns, en
hvika frá hinni dýrðlegu hug-
sjón kærleikans í nafninu
sínu og því uppeldi, sem hann
naut í örmum móður og
stjúpföður í Nazaret, ná-
grenni menntasetursins
mikla við Dauðahafið.
Essear eða Jessear voru á
fyrstu áratugum kristninnar
myrtir hópum saman og út-
rýmt loks alveg, að sögn
ofsækjenda þeirra, einkum
vegna þess, að þeir neituðu að
bera vopn og beita þeim í
stríði þjóðar sinnar. Hafa
kristnar þjóðir lært það?
Kristnin er arftaki Jessea!
Samanber orð Jesú við sinn
foringja og vin, líklega hin
síðustu í lifanda lífi:
„Slíðra þú sverð þitt, Sím-
on.“ Væri þetta ekki sérstök
áminning til kirkju Krists og
foringja hennar.
Ekki meira að sinni. En
heyrið mig háskólakennarar,
spekingar, doktorar og prest-
ar! Bókin: „Árin þöglu" er um
þennan hóp: Var Jesús ef til
vill helgaður hugsjón þeirra,
kærleika Guðs og manna, áð-
ur en hann fæddist?
Mundi nokkur boðskapur,
helgirit og sakramenti standa
kirkju Jesú frá Nazaret nær,
en þessi áminning til aum-
ingja Péturs? Væri kristinni
kirkju nokkur skömm að
nefnast nafninu Jessear?
Elskendur Guðs. Flokkur
manna, sem elskar Guð og
hann elskar?
Rvík, 12. marz.
Árelíus Níelsson.
[ raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
kennsla
Læriö vélritun!
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Ný
námskeiö hefjast fimmtudaginn 2. maí. Engin
heimavinna. Innritun og upplýsingar í símum
36112 og 76728.
I/élritunarskólinn,
Suöurlandsbraut 20, s. 685580.
húsnæöi óskast
........................
Atvinnuhúsnæöi
Óska eftir 170 fm húsnæöi á leigu á góðum
staö í miöbænum.
Tilboö óskast send augld. Mbl. merkt: „J —
8510“ fyrir 27. apríl nk.
íbúð óskast
Höfum veriö beönir um aö útvega einum viö-
skiptavina okkar íbúö til leigu. íbúðin má vera
3ja herb. eöa stærri, jafnvel lítiö einbýlishús,
þó skilyrði aö íbúöin sé á 1. hæö eöa jaröhæö.
Traustur leigjandi. í boöi eru góöar greiðslur.
Upplýsingar gefur:
Húsafell
FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115
( Bæjarleióahusinu ) simr 8 10 66
Adalsteinn Pétursson
Bergur Guónason hd>
Ljósritunarvélar
Höfum til sölu nokkrar notaðar nýyfirfarnar
Ijósritunarvélar á hagstæðu veröi og kjörum.
Magnús Kjaran hf., Ármúla 22,
sími 83022.
Fyrirtæki — Félög
Til sölu afkastamikil, vel með farin Sharp SF
820 Ijósritunarvél. Upplýsingar í síma 33236
milli kl. 09.00 og 15.00 alla virka daga.
Bóksala kennaranema.
Matvöruverslun til sölu
Vorum aö fá í sölu meöalstóra matvöruversl-
un í austurbænum. Tæki og innréttingar eru
mikiö endurnýjuö, svo og húsnæöi. Mánað-
arvelta er ca. 1,5 millj. Mjög öruggt fyrirtæki
fyrir þá sem vilja starfa sjálfstætt.
Ffrttækjaþjómtan
Austurstræti 17, 3. hæö. S: 26278, 26213.
Þorsteinn Steingrímsson Ig. fs.
Guöm. Kjartansson sölum.
| húsnæöi í boöi
íbúö viö Tjörnina
í Reykjavík
Til sölu 4ra herbergja íbúö á 2. hæö í miö-
borginni. Getur hentaö hvort sem er til íbúöar
eða sem skrifstofa.
Upplýsingar í síma 29888 á skrifstofutíma.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Á Laugavegi 84,2. hæö. Húsnæöið er alls 120
fm og losnar í maí nk. Tilboö merkt „2480“
sendist augl.deild Mbl. fyrir 1. maí nk.
Vernduð þjónustuíbúö
Til leigu eöa sölu er ein hinna vernduöu
þjónustuíbúöa í hverfi D.A.S. í Hafnarfiröi.
Einungis aldraöir eöa öryrkjar koma til greina
sem íbúar. Einnig kemur til greina aö selja
eignina hverjum sem er. Uppl. gefnar á skrif-
stofu Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í
síma 35485 frá kl. 9-12 alla virka daga.
Innflytjendur—peningar
Tek aö mér aö leysa út vörur úr banka og
tolli. Aöeins traustir aöilar koma til greina.
Þeir sem hafa áhuga á þjónustu minni leggi
nöfn sín inn á augld. Mbl. merkt:„L - 11 01 85
00“.