Morgunblaðið - 23.04.1985, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
„Aldrei hef ég ásælst frægð
yndi mitt er bókagnægð."
megi fylgja öllu því er honum var
kærast og hann hafði lagt sig
fram um að mætti sem best tak-
ast.
Hafsteinn Guðmundsson
Oliver Steinn, vinur minn og að
öðrum þræði húsbóndi í 27 ár, er
nú látinn.
Það er aðeins rúmur mánuður
síðan við sátum saman á heimili
hans, hann var þá orðinn helsjúk-
ur og dró ekki dul á að hverju
stefndi, en það var ekki víl eða vol
í orðum hans, heldur ræddum við
dægurmálin og skiptumst á skoð-
unum eins og oft áður er við gáf-
um okkur stund á skrifstofu hans.
Að þessu sinni ræddum við eink-
um æskuár okkar í Hafnarfirði,
hvar við störfuðum og með hverj-
um, en þeir eru nú flestir gengnir.
Oliver Steinn Jóhannesson
fæddist í Ólafsvík á Snæfellsnesi
23. maí 1920. Hann fluttist með
foreldrum sinum til Hafnarfjarð-
ar árið 1933, en varð fyrir þeirri
miklu raun að missa föður sinn og
bróður árið 1936 er síldveiðiskipið
Örninn fórst með allri áhöfn. Eins
og vænta mátti mundi hann alla
ævi þann missi „fyrstan og sárast-
an“.
Ekki ætla ég að rekja hér ævi-
feril Olivers og hans mikla ævi-
starf, nema að litlu leyti.
Þegar hann kom til Hafnar-
fjarðar, 13 ára gamall, gerðist
hann sendisveinn hjá Pöntunarfé-
lagi verkamannafélagsins Hlífar,
sem var upphafið að KRON og nú
Kaupfélagi Hafnfirðinga. Ekki
þarf að fara mörgum orðum um þá
erfiðu tíma atvinnuleysis og fá-
tæktar sem ríktu um þessar
mundir, en þannig vegnaði þessum
sendisveini eftir að hafa gegnt
mörgum ábyrgðarstörfum við
verslun og fleira, stofnaði hann
sina eigin bókaverslun árið 1957
og árið 1968 byggði hann stærsta
og glæsilegasta verslunar- og
skrifstofuhús í Hafnarfirði, þar
sem hann rak síðan bókaverslun
og bókaforlag og skaut um leið
skjólshúsi yfir bæjarfógetaemb-
ættið og fleiri.
Slíkt sem þetta gerist að sjálf-
sögðu ekki nema fyrir fjölþætta
hæfileika, líkamlegt og andlegt
þrek og kappsfullan huga. Fyrir
kom að á stundum átti maður fullt
í fangi með að fylgja honum eftir,
en hann var manna þakklátastur
að loknu vel unnu verki.
Við hlið Olivers Steins stóð eig-
inkona hans, Sigríður Þórdís
Bergsdóttir, hinn góði og trausti
förunautur í lífi og starfi. Þau
hjónin eignuðust 3 börn, sem öll
eru gædd hinum mestu mannkost-
um.
Það er erfitt fyrir okkur öll er
áttum Oliver að vini að sjá á bak
honum. Nýtt og óbætanlegt skarð
er komið í vinahópinn.
Þegar aldurinn færist yfir
styrkist gjarnan trúin á annað líf.
Það er trú mín að við eigum eftir
að hittast aftur, en verða þeir
endurfundir eins og segir í Dav-
íðssálmum?
Á grænum grundum lætur hann mig hvilast,
leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta.
Varla þætti okkur þetta nóg, því
báðir gátum við tekið undir með
skáldinu sem sagði:
Að lokum sendi ég eiginkonu
hans, börnum og öðrum ættingj-
um mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Ó1.V.
„Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis
barið,
ég hiustaði um stund og tók af kertinu skarið,
ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti mér
svarið:
Hér kvaddi lífið sér dyra, og nú er það farið."
(J.H.)
Þetta ljóð Jóns Helgasonar kom
í huga minn þegar ég frétti lát
vinar míns Olivers Steins sl.
mánudag.
Það er svo örstutt síðan við
byrjuðum að vinna saman í ísa-
fold í byrjun fimmta áratugarins,
þá ungir og óreyndir menn.
Oliver var fæddur á Snæfells-
nesi, nánar í Ólafsvík, hinn 23.
maí 1920, en taldi sig ávallt Hafn-
firðing. Ættir hans lágu víða eins
og annarra íslendinga, vítt og
breitt um landið og ef nánar var
rýnt, allar götur aftur til nor-
rænna kappa og herkonunga.
Eins og áður sagði kynntumst
við Oliver mjög náið á fimmta og
sjötta áratugnum. Reyndar vorum
við þar nokkrir saman, sem mynd-
uðum hóp góðra vina á þessum
vinnustað og heimilum hver ann-
arra, og þessar línur eru ritaðar
fyrir hönd þessara félaga.
Oliver varð fljótt gagntekinn af
starfi sínu og bókin og útgáfa á
bókum urðu hans ævistarf. Bóka-
verslun ísafoldar var stærsta
bókaverslun landsins undir stjórn
Olivers og þegar hann stofnaði til
sjálfstæðs reksturs var það á
sama sviði — bóksölu og bókaút-
gáfu. Fyrirtæki hans Skuggsjá
varð fljótlega merkt forlag undir
forustu Olivers, þar sem ekki ein-
göngu markaðshyggjan réð ríkj-
um heldur bókmenntasmekkur og
fjölbreytni í efnisvali.
Sá gamli hópur sem myndaðist
þarna hjá ísafold gerði sér, eins og
gengur, margt til gamans og
dægrastyttingar, útivið sem inni-
við, og komu þá margir þættir í
fari Olivers vel fram — skopskyn,
frásagnargáfa og rík skaphöfn.
Við gamlir heimilisvinir og
kunningjar Olivers og Sigríðar
þökkum ánægjuleg kynni við þau
og börn þeirra. Vottum við og kon-
ur okkar Sigríði og börnunum
samúð við fráfall þessa góða
drengs, Olivers.
Hann hvíli í friði. Blessuð sé
minning hans.
Sigurpáll Jónsson
Með þessum fáu kveðjuorðum
langar mig að minnast tengdaföð-
ur míns, Olivers Steins Jóhannes-
sonar. Hann var einn þeirra
manna sem öllum þótti vænt um.
Hann var stórbrotið karlmenni,
hár vexti og fasmikill og hlýr í
viðmóti.
Hann var traustur vinur og
drenglyndur, sem gott var að eiga
að og nú að minnast. Fallegar og
góðar minningar eiga barnabörnin
um afa sinn, um glettni hans og
hlýju. Æði oft var Oliver störfum
hlaðinn eins og titt er um menn i
hans stöðu. Alltaf átti hann smá
HAPPTTC/FTTT
Dvalarheimilis aldraöra sjómanna
með Jjölda stórravinninga
Vinningar
strax í fyrsta flokki
Mánaöarverö
miða Kr.I30r
Vinningur til ibúðarkaupa á 500þúsund krónur
10 vinningar til bílakaupa á 100 þúsund krónur hver
60 utanlandsferðir á 40 þúsund krónur hver
110 húsbúnaðarvinningar á 10 þúsund krónur hver og
419 húsbúnaðarvinningar á 3 þúsund krónurhver
Sala á lausum miðum og endumýjun ársmiða
og fíokksmiða stenduryfír.
kGrill
á MAZDA 323 ’81-’82
kostar 1.463 krónur.
Hvað kostar gríll á
bílínn þinn?j
BÍLABORG HF.Smiðshöföa23. S.81265