Morgunblaðið - 23.04.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.04.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL1985 51 Minning: Haraldur ísleifs- son fiskmatsmaður Fæddur 27. september 1914 Dáinn 31. mars 1985 Sl. pálmasunnudag lést Harald- ur hér í sjúkrahúsinu í Stykkis- hólmi. Hann hafói um nokkurt skeið kennt vanheilsu sem sfðan ágerðist uns yfir lauk. Með Har- aldi hverfur nú af sjónarsviði mannlegs lífs einn af traustustu Stykkishólmsbúum, sem hafði frá æskuárum helgað Hólminum hug sinn og lífskrafta. Ábyggilegur maður sem ekki vildi vamm sitt vita. sem vildi hag bæjarins sem mest- an. Þá lagöi hann öllu lið sem hann vissi að betur mætti fara í íslensku þjóðlífi og með breytni sinni sýndi hann góða fyrirmynd. Loforð hans þurfti enginn að efa. Allt varð að standa eins og stafur á bók. Ég lýk þessum minningar- orðum með persónulegum þökkum míns fólks til Haraldar fyrir far- sæla samfylgd og bið honum blessunar guðs á nýjum vegum. Arni Helgason Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Haraldur fæddist í Dagverðar- nesi í Dalasýslu, en þar bjuggu þá foreldrar hans Kristborg og ísleif- ur Jónsson, sem áður bjuggu á Tindi í Steingrímsfirði. Haraldur ólst upp í fjölmennum og glöðum systkinahóp. Sem barn fluttist hann með foreldrum sínum til Stykkishólms og átti þar heima æ síðan. Snemma kynntist hann því lögmáli að til þess að komast áfram í lífinu þarf að vinna hörð- um höndum og ekki draga af sér. Þetta skildi hann vel og dró ekki af. Stundaði sjó og landvinnu og þegar frystihúsrekstur hófst hér, kom hann þar fljótt við sögu bæði sem starfsmaður og verkstjóri. Haraldur var þannig gerur að hann vildi láta verkin ganga og vann manna ötulast. Húsbændum sínum var hann hollur og trúr og fylgdi það hverju verki hans til leiðarloka. Ef hann tók eitthvert verk að sér þurfti ekki að ámálga neitt frekar og aldrei heyrði ég talað um nema vel unnin verk þau sem Haraldur lagði hönd að. Trú- mennskan var honum í blóð borin og allri hans fjölskyldu. Snemma kynntist Haraldur því böli sem tóbaks- og áfengisneysla fólks veldur. Hann vildi sýna hug sinn til þessa máls og snemma vann hann heit sem bindindismaður og stóð það alla tfð. Þar var hann sem í öðru hin trausta fyrirmynd. Á þessum vettvangi kynntist ég Haraldi einna best og hans ein- lægu hugsun fyrir bættu mannlífi. Á seinni árum tók hann verulegan þátt í kirkjulífi staðarins, var þar í sóknarnefnd og með sínum áhuga kom hann hreyfingu á nýju kirkjubygginguna. Áhugi hans þar sem annars staðar kveikti út frá sér. Eitt er mér minnisstætt. Gamla kirkjan var orðin lítil bæj- arprýði að utan, málningin máð og hún stóð við Aðalgötuna. Þetta átti Haraldur erfitt með að horfa upp á og hvatti til sjálf- boðamennsku til að hressa upp á útlitið. Eitthvað dróst þetta, en þá tók Haraldur til sinna ráða og málaði einn alla kirkjuna utan. Þessu fylgdist ég vel með og dáðist að. Hann Haraldur taldi ekki hlut- ina eftir. Eitt sinn var kirkjan orðin fátæk af sálmabókum. Þetta sá Haraldur og bætti strax úr og gaf kirkjunni margar bækur og kom þeim vel fyrir, fyrir framan kirkjugesti í bekkjunum. Um fjölda ára vorum við Har- aldur nágrannar og það var gott nágrenni og öll skipti milli heimil- anna. Ég leit oft yfir til þeirra hjóna og dáðist að þeirra snilldar- verkum í garðrækt. Þar voru mörg handtökin og skiluðu árangri. Garðurinn þeirra byggður á klöpp er einn af fegurstu blettum í Hólminum. Haraldur átti gott heimili. í einkalífi farsæll. Hann kvæntist Kristínu Cesilsdóttur frá Búðum í Grundarfirði 14. mars 1942 og eignuðust þau 3 börn sem öll eru komin til manns og hafa stofnað eigin heimili. Þau eru Cesil, kvæntur Ólínu Torfadóttur. Hann er prestur í Lundi í Svíþjóð, Gylfi, læknir f Laugarási, kvæntur Höllu Arnljótsdóttur, og Kristborg, kennari í Stykkishólmi, gift Trausta Tryggvasyni. Eins og áður segir var Haraldur fyrst og fremst Stykkishólmsbúi er liðið eitt ár síðan við tókum við söluumboði fyrir IBM PC-töIvuna. Á þessu eina ári höfum við selt fleiri PC-tölvur á íslandi en nokkur annar, eða yfir 350 tölvur, meira en eina á dag hvorki meira né minna. Fyrir þessu eru margar góðar ástæður sem við bjóðum þér að kynnast með heimsókn til okkar þar sem þú ert ávallt velkominn. IBM PC ásamt helstu sérfræöingum Císla J. Johnsen bjóöa þig telkominn til aö kynnast íslensku hugriti og alþjóölegri tækni. Afmælistilboð í tilefni ársafmælisins höfum við ákveðið að bjóða nú IBM PC með ótrúlega hagstæðum kjörum næstu 10 daga þannig að sem flestir geti eignast þetta undratæki sem hentar smærri og stærri fyrirtækjum jafnt sem einstaklingum. Má þar nefna olíufélög, skipafélög, bókasöfn, læknastofur, rithöfunda, endurskoðendur o.s.frv., o.s.frv. IBM PC frá kr. 85.900.- Innifalið í verði: ★ Námskeið í skóla okkar i allt að 12 klst. * Skákforrit Leikjaforrit * Hugleit, tilvalið fyrir bókasafnið, plötusafnið, tímaritasafnið, kökuuppskriftirnar o.s.frv. GÍSLI J. JOHNSEN n i TÖLVUBUNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF SMIÐJUVEGI 8 P OBOX 397 202 KÓPAVOGI SÍMI 73111 SUNNUHLÍÐ, AKUREYRI, SÍMI 96 25004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.