Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 60
60
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL1986
fclk í
fréttum
Breskur unglingakór
Tók 2 ár að safna fyrir íslandsferðinni
((I/ ingsmead Singers" heit-
■X ir unglingakórinn breski
sem staddur var hérlendis fyrir
nokkrum dögum. Kórinn, sem
safnað hefur fyrir þessari ferð
til íslands i tvö ár með tónleika-
haldi og fleiri fjáröflunarleiðum,
kom hingað á eigin vegum, en
félagar úr kór Kársnesskóla í
Kópavogi hýstu krakkana.
Kórinn söng m.a. í Fríkirkj-
unni hér í Reykjavík, en hélt síð-
an til Þingvalla og í Skálholt þar
sem dvalið var eina helgi og m.a.
sungið. Að lokum var komið við í
Hveragerðiskirkju á heimleið-
inni og þar var söngurinn látinn
óma.
Þessi unglingakór sem þetta
árið tekur 45 meðlimi var stofn-
aður fyrir átján árum og hefur
stjórnandi hans frá byrjun verið
June Keath.
Kórinn er orðinn vel þekktur i
heimalandi sínu og hefur undan-
farin ár verið á samningi hjá
BBC og unnið við þáttagerð. Um
þessar mundir eru þættirnir
orðnir um 400 sem hann hefur
komið nálægt.
Unglingarnir hafa um árin
sungið inn á fjölmargar hljóm-
plötur og tekið þátt i flutningi
ótal stórverka tónbókmenntanna
svo sem Sköpuninni eftir Haydn,
Messiasi Hándels og Elia eftir
Mendelssohn svo eitthvað sé
nefnt, komið oft fram í sjónvarpi
og haldið auk þess tónleika í
ýmsum löndum.
Crosby er
óskyld Crosby
Leikkonan Cathy
Lee Crosby, sem
er talin í hópi hinna
efnilegri og fallegri
vestur í Hollywood,
lendir næstum dag-
lega í því að fólk tel-
ur hana vera af sama
ættartré og söngvar-
inn og leikarinn ást-
sæli Bing Crosby.
Slíkt hlýtur að vera
hvimleitt þótt ekki sé
leiðum að líkjast,
sérstaklega vegna
þess að Cathy er alls
óskyld Bing heitnum,
en gefum henni orðið
eitt augnablik.
„Þetta er auðvitað
skiljanlegur mis-
skilningur hjá fólki
og í fyrstu brosti ég
bara að þessu og
sagði kurteislega nei,
ég væri ekki skyld
honum, margir tðldu
hann vera föður
minn eða frænda,
jafnvel afa minn. En
nú er þetta byrjað að
fara í taugarnar á
mér þótt ég sýni
stillingu enn sem
komið er. Þetta er að
verða hrein plága."
Morgunbtadid/Árni Sæberg
Kórinn Kingsmead Singers sem
staddur var hér í landi nú fyrir
nokkrum dögum.
Karnívalhátíð
Þessa dagana eru börn og ungl-
ingar í grunnskólum borgar-
innar að æfa margskonar
skemmtiatriði fyrir karnivalhátíð
sem á að fara fram í Laugardals-
höllinni síðasta vetrardag og á
sumardaginn fyrsta.
Karnivalið er lokahátíð félags
og tómstundastarfs i grunnskólum
Reykjavíkur og haldið í tilefni af
ári æskunnar.
Á þessari hátíð verða tóm-
stundastörf vetrarins i hávegum
höfð s.s. leikrit, dans og tískusýn-
ingar. Þá ganga krakkarnir á
stultum, og verða í ýmisskonar
gervum, t.d. púkar, álfar, tröll,
skrímsli o.s.frv. Ef gestir geta ekki
komið á hátíðina skreyttir að ein-
hverju leyti þá verður á staðnum
förðunardeild sem mun reyna að
anna eftirspurn.
Árni Sæberg ljósmyndari leit
inn í ölduselsskóla