Morgunblaðið - 23.04.1985, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
61
Dynasty-tískan er
í bullandi sókn
Sumarhúsgögn
í miklu úrvali
Sannkölluð Dynasty-bylgja
flæðir nú yfir Bandaríkin og
verður þess væntanlega ekki
langt að bíða uns hún leggur af
stað austur yfir hafið til Vestur-
landa svo og til annarra landa
þar sem þessir vinsælu þættir
eru sýndir. Það eru ekki einungis
sjónvarpsþættirnir sem athygli
vekja, nei, þeir eru óðum að
verða minniháttar mál. Nú er
það Dynasty-tískan sem allt og
alla heltekur.
Hverslags varningur er hér til
umræðu? Það er langur listi og
rétt að byrja strax: Sérstakt
Crystle-ilmvatn, auðvitað í krist-
alglasi, sérstök Ðynasty-sápa,
húðkrem og sjampó, Dynasty-
lök, teppi, sængurver og dýnur,
handklæði, þvottapokar, fataefni
af ýmsu tagi, veggklæðningar,
gólfparket, karlmannsjakkaföt
við hvert tækifæri, ótrúlegt úrval
af glæsilegum kvenfatnaði,
kvöld- og morgunfatnaður, pels-
ar, slæður og bæði gervi- og ekta
skartgripir svo eitthvað sé nefnt.
Einnig innrömmuð hlutabréf í
„Denver Carrington“-olíufélag-
inu, árituð af sjálfum olíukóng-
inum Blake Carrington. Það væri
lengi hægt að halda fram, en lát-
um þetta gott heita. Áður hefur
verið greint frá glæsilegri
glansbók þar sem er að finna
æviágrip þeirra persóna sem
mestu máli skipta í Dynasty.
Allt styrkir þetta Dynasty-veldið
til muna, eykur seðlastreymið og
bætir ríkulega við ótaldar millj-
ónirnar sem fara milli handa
Dynasty-liðsins.
En hver er á bak við þetta allt
saman? Aaron Spelling auðvitað,
en sá sem mest mæðir á er Nolan
Miller, búningahönnuður Dyn-
asty, sem er nú orðinn leiðandi
tískuhönnuður í tengslum við
starf sitt við Dynasty. Hann
hannar allt saman, allt frá pels-
unum og niður í sápustykkin og
hlutabréfin innrömmuðu. Þess
má geta, að fyrsta daginn sem
Dynasty-vörurnar voru á útsölu í
Bloomingdal í New York, varð að
smala öllum viðskiptavinunum
út úr húsinu og endurskipuleggja
útsöluna, slík var örtröðin ...
í ábyrgðar-
stöðu
Við rákumst á þessa mynd í
tímaritinu Flight Internation-
al og þeim þykir sýnilega í
þeim bæ að við eigum föngu-
legt fólk í ábyrgðarstöðum.
Myndin er annars af Sig-
rúnu Einarsdóttur, fyrstu at-
vinnuflugkonu hjá Flugleiðum
sem stjórnar Fokker F.27.
Nolan að störfum...
COSPER
COSPER
z) l caataaMiN
— Pabbi, pabbi, fröken Jensen er ekki í símanum, hún situr hér í
stólnum.
m- Fúav,
arið.
Sjáið allt úrvalið
Vörumarkaðurinnhl.
I Ármúla 1A, sími 686112.