Morgunblaðið - 23.04.1985, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
67
VELVAKANDI
SVARARÍSÍMA
10100 KL 14—15
Þjóðaratkvæða-
greiðsla um bjórmálið
Pálína Magnúsdóttir, Hjalta-
bakka 30, Rvk. skrifar:
„Hvernig stendur á því að ekki er
enn hugað að þjóðaratkvæða-
greiðslu um bjórmálið? Ætla rúm-
lega 30 manns að ákveða hvort selja
eigi sterkan bjór hér á landi?
Hafa stjórnmálamenn ekki opin
eyru fyrir því hvernig komið er
fyrir Grænlendingum í áfengismál-
um? Drykkja þar var með ólíkind-
um á sl. ári. Drukkið var sem svar-
ar þremur staupum af vínanda dag
hvern, þar af var öldrykkja tveir
þriðju hlutar. Þá er reiknað með
hverju einasta mannsbarni á
Grænlandi, frá kornabörnum til
gamalmenna. Þó er ölflaskan á tvö-
falt hærra verði þar en í Dan-
mörku. Nú stendur til að flytja fólk
þaðan til (slands í meðferð. Mikið
er bölið. Morðum fjölgaði þar i
fyrra — við vitum hvers vegna.
Greinina „Staðan í ávana- og
fíkniefnamálum" eftir Þorkel Jó-
hannsson, prófessor, las ég f Mbl.
28. mars sl. Bent er á að allt að 10%
þeirra er nota alkóhól á félagslegu
stigi, en það er mikill meirihluti
fullorðinna einstaklinga, verði alkó-
hólistar í áranna rás og að dómi
höfundar falla þess vegna önnur
vímuefnavandamál algjörlega i
skugga áfengisvandamála.
í Mbl. 28. mars sl. er önnur grein,
„Opið bréf til forsætisráðherra"
eftir Pál V. Danfelsson, viðskipta-
fræðing. Þar segir m.a.: „Eitthvað
eruð þið f stjórnmálaforystunni
hættir að sjá það sem aflaga fer i
þjóðfélaginu." Gæti það verð að
stjórnmálamenn okkar loki augun-
um fyrir því hvað er að gerast í
landi okkar? Þeir vita þó að nú er
ár æskunnar og við ætlum að gera
eitthvað merkilegt fyrir æskuna
sem minnisstætt er og verður henni
til góðs.
Ekki megum við skrúfa frá flóð-
bylgju bjórsins, eða hvað?
í Mbl. 7. nóv. 1984 er lftil grein,
sem endar á þessum orðum:
„Hverjum þeim sem vinnur gegn
vímuflóðinu ber að veita það lið
sem frekast er unnt.“ Ætla stjórn-
málamenn okkar að veita það lið?
Ef þið stjórnmálamenn samþykkið
frumvarpið, er það vegna hags-
muna ríkisins eða í þágu æskunn-
ar?
Það eru margir sem bfða eftir
bjórnum, þó aðallega unga fólkið.
Það kemur eflaust með þær rök-
semdir að við ættum að feta f fót-
Bankarnir
Heimskur spyr:
Ef bankar eru þjónustumið-
stöðvar, af hverju eru ekki ein-
hverjir þeirra opnir suma daga
til dæmis frá 18.00 til 20.00?
Þakklæti
Tveir strandaglópar á Háa-
leitisbrautinni vildu koma fram
kæru þakklæti til mannsins á
Datsun R-66126, en hann stopp-
aði og bauðst til að skipta um
dekk hjá þeim i miðri umferð á
Háaleitisbrautinni sl. föstudag.
Armbandsúr
Inga hringdi:
Ég vildi spyrjast fyrir um
fyrirtæki sem heitir „Póstval" og
finnst ekki í símaskránni. Fyrir-
tækið auglýsti armbandsúr með
Duran Duran f febrúar. í auglýs-
ingunni stóð að úrin yrðu til af-
greiðslu i mars. Ég og fleiri
pöntuðum úrin, en enn hefur
ekkert af þeim sést þó aprfl sé
meira en hálfnaður. Eg spyr því:
Var auglýsingin bara gabb?
Þessir hringdu. . .
Stór dúkka
Dúkkufinnandi hringdi:
Hér úti á plani hjá mér lá stór
og falleg brúða um daginn. Ég
vildi gjarnan að eigandi hennar
fyndi hana aftur. Hún er í
Dvergabakka 8, sími 76848.
Tryggingamál
Heimsk hringdi:
Ég lenti í deilum við kven-
mann einn út af tryggingamál-
um um daginn. Hún sagði að ef
ég væri öryrki og maðurinn
minn hefði háar tekjur þá fengi
ég alls engar örorkubætur. Er
þetta rétt? Hver metur örorku-
bætur?
Þjóðin vill fi að ráða sjálf upp á hvað hún býður börnum sínum. Þess vegna
þarf að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um bjórmálið, segir bréfritari.
spor nágrannalandanna. Hvílfkar
röksemdir!
Mér sýnist sumt fólk ekki hlusta
nógu vel á þá sem hafa reynslu og
vit á málunum. Bæði læknar og
annað menntafólk og alkóhólistar
eru á einu máli um að ungt fólk sé f
hættu ef það einu sinni byrjar á
drykkju vínanda um fermingarald-
ur.
Ég ráðlegg öllum að lesa blað
SÁA 2. árg. mars/aprfl ’85. í blað-
inu er eintal móður um dóttur sina,
sem fjórtán ára breyttist úr náms-
fúsri og glaðlyndri frfðleiksstúlku f
forstokkaðan dópista og drykkju-
mann. Síðan eru liðin fjögur ár.
Stúlkan er enn ung og ástandið er
eins. I blaðinu eru einnig frásagnir
fólks um hvernig sé að vera barn,
eiginkona eða eiginmaður alkóhól-
ista. Grein er eftir Jóhann örn
Héðinsson, „Afneitun", og einnig
margt fleira.
Einnig vil ég benda fólki á að lesa
umsögn til alþingis um bjórinn. Þar
segir að framkvæmdastjórn sam-
takanna vilji vekja athygli á að þó
Ifklegt sé að dragi úr neyslu sterkra
drykkja með tilkomu bjórs, bendir
allt til þes að heildarneysla hreins
vínanda muni aukast hér á landi
eins og reynslan hefur sýnt annars
staöar.
Ég minntist á þjóðaratkvæða-
greiðslu f upphafi bréfsins. Það er
svo oft búið að minnast á þetta og
Ijóst er að þjóðin vill fá að ráða
hvað hún býður börnum sínum upp
á, en það er eins og skellt sé skoila-
eyrunum við. Reyndar var gerð
könnun með aðeins fárra manna úr-
taki, en hún er alls ekki raunhæf að
mínu mati.
Nú, vonandi muna stjórnmála-
menn okkar hvaöa ár er og hverjum
það er helgað."
Unaðsstund í Eden
Við lögðum leið okkar i hkien í
Hveragerði og litum þar augum
fagra sýningu málverka hjá
Magnúsi Guðnasyni, listamanni f
Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Við
kviðum því helzt að tíminn milli
rútuferða yrði of lengi að líða er
ekki var annað erinda en að skoða
eina málverkasýningu, en svo
reyndist ekki.
Hér getur að lfta fagrar lands-
lagsmynir og fantasíur er lýsa
mikilli sköpunargáfu og hug-
myndaflugi mikils drengskapar-
manns. Má þar skynja mikla trú
og lífsspeki leitandi manns. Éin
myndanna er mjög sérstað að upp-
byggingu og listútfærslu og spái
ég, að þar sé á ferðinni myndgerð,
er Magnús gæti náð langt með og
skapað sér verðugan sess meðal
listamanna. Ég ráðlegg öllum að
koma og skoða og láta í ljós ef þeir
eru mér ósammála. Nú ekki siður
ef þeir eru mér sammála.
Ellert Guðmundsson, Selfossi.
Eldtraustir
tölvugagnaskápar
@ Rosengrens
Tölvugagnaskápar eru sérstaklega framleiddir til að vemda allar
gerðir tölvugagna, svo sem diskettur, segulbönd og seguldiska.
Geymið viðkvæmustu og verðmætustu upplýsingar fyrirtækisins
í öruggum skáp.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRDI — SIMI 51888
/
Vi^.L
Vfn it
Sjáiö
frönsku
barnafötin
þau eru æðisleg
©
Vörumarkaðurinn hl.
J Ármúla 1a, sími 686113.
ALLT í RÖÐ OG REGLU!
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiöunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins 3.550.- krónur!
(Innifalið í verði: Málmstandur, 2000 mál, tíu höldur og 1000
teskeiðar.)
STANDBERG HF.
- kaffistofa í hverjum krók!
Sogavegi 108
símar 35240 og 35242