Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
r
Allt á sínum staö
ihcmHOH
^ skjalaskáp
%
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum við
viökomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
íhnHHOH skjalaskápur hefur ,,allt á sínum staö '.
Útsökjstaðir:
ÍSAFJÖRÐUR, Bókaverslun Jónasar Tómassonar BORGARNES, Kaupfélag Borgfiröinga.
SAUOARKRÓKUR. Bókaverslun Kr Blöndal. SIGLUFJÖRÐUR, Aðalbuötn. bókaverslun
Hannesar Jónassonar AKUREYRI, Bókaval. bóka og ritfangaverslun HUSAVÍK, Bókaverslun
Þórarms Stefánssonar ESKIFJÖRÐUR. Elís Guönason, verslun HÖFN HORNAFIRÐI,
Kaupfélag A-Skaftfellmga VESTMANNAEYJAR, Bókabúðm EGILSSTAÐIR, Bókabuöm
Hlööum REYKJAVÍK, Pennmn Hallarmula KEFLAVÍK, Bókabúð Keflavíkur
ÖlAfUSt OÍSIASON ii CO. Hf.
SUNDABO.RG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800 JJ
KrLstbjörg Kristmundsdóttir afhendir Davíð Aðalsteinssyni undirskriftalistana. Fyrir aftan hana stendur fna Gissur-
ardóttir, en við hlið Davíðs er Fanney Reykdal. Morgunblaöið/Júlíus
Áskorun á Alþingi að samþykkja
frumvarp um lengingu fæðingarorlofs
IIAVÍÐ Aðalsteinssyni, formanni
heilbrigðis- og trygginganefndar Al-
þingis, voru á fundi nefndarinnar í
gærmorgun afhentar undirskriftir
4.200 íslendinga undir áskorun á Al-
þingi að það samþykki fnimvarp um
lengingu fæðingarorlofs.
Efþú hefur hraðann á getur þú nælt þér íþennan
3401 Siera ísskáp með 5.090 kr. afslætti.
Áður kostaði hann 19.880. - en nú höfum við
lækkað verðið niðurí
14,790." stgr.
Ytri mál: 144,5 cmx 59,5 cmx 64 cm.
Ath! Takmarkaðar birgðir.
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Undirskriftunum fylgdi önnur
áskorun og er hún svohljóðandi:
„Konur á Egilsstöðum fögnuðu
því þegar fram var lagt á síðasta
þingi frumvarp til laga nr. 150 um
lengingu fæðingarorlofs og þær
vildu sýna því stuðning sinn með
undirskriftasöfnun þar sem skorað
er á Alþingi að samþykkja frum-
varpið.
Söfnunin gekk mjög vel á Eg-
ilsstöðum, en það var eini staður-
inn þar sem markvisst var safnað
undirskriftum. Samt sem áður bár-
ust undirskriftalistarnir víða um
landið og hlutu alls staðar góðar
undirtektir. Síðan hafa þessir list-
ar með nöfnum rúmlega 4.200 ís-
lendinga verið að berast til skrif-
stofu Kvennalistans og til Kvenna-
hússins í Reykjavík.
En hvar skyldi málið um leng-
ingu fæðingarorlofs nú vera á vegi
statt, ári síðar?
Þingmaður Kvennalistans, Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir,
mælti fyrir frumvarpinu 6. febrúar
1984 og að loknum umræðum var
málinu vísað til heilbrigðis- og
trygginganefndar þann 8. febrúar.
Þar var málið svæft svefninum
langa. Málið var lagt fram að nýju
haustið 1984 í meginatriðum
óbreytt og hlaut þá málanúmerið
148. Því var að lokinni umræðu vís-
að i annað sinn til heilbrigðis- og
trygginganefndar efri deildar 17.
desember 1984. Málið hefur því
verið nú í nefnd í nákvæmlega 4
mánuði og eftir því sem best er vit-
að, ekki einu sinni verið sent út til
umsagnar, sem hljóta að teljast
forkastanleg vinnubrögð nefndar-
innar.
Við undirritaðar skorum nú á
heilbrigðis- og trygginganefnd að
afgreiða frumvarp um lengingu
fæðingarorlofs hið snarasta, svo
Alþingi geti fengið það aftur til
umfjöllunar og atkvæðagreiðslu
áður en þingi lýkur.
Með vinsemd og virðingu.
Undir þetta rita þær Kristjbörg
Kristmundsdóttir, Fanney Reykdal
og ína Gissurardóttir.
Kattavinafélagið:
Kattasýning á
sumardaginn fyrsta
SUMARDAGINN fyrsta verður
haldin kattasýning og skemmt-
un á vegum Kattavinafélagsins.
Haldin verður sýning á fjöl-
mörgum köttum, m.a. læðum
með kettlinga og kattapörum.
IZUMI
STÝRILIÐAR
Allar stærðir fyrir allar
spennur. Festingar fyrir
DIN skinnur. i
Gott verð. I
= HÉÐINN =
VéLAVÉRZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRRANTANIR-WÓNUSTA
Soffía Jakobsdóttir sér um
skemmtidagskrá.
Sýningin verður opnuð kl.
14.00 og allur ágóði rennur til
húsbyggingar Kattavinafé-
lagsins.
(Frétutilkjnning)
Þú stillir vatnshitann með
einu handtaki á hitastýrða
baðblöndunartækinu frá
Danfoss, og nýtursíðan
steypibaðsins vel og lengi.
= héðinn =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260