Morgunblaðið - 23.04.1985, Síða 70
mi Jbm m HUOAauiaiH<i ,ai«AjavíDOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Terelynebuxur kr. 895, 995 og 1095.
Gallabuxur kr. 695 og 865, allar stæröir
og kr. 350, litlar stæröir.
Flauelsbuxur kr. 745.
Sumarbuxur úr bómull nýkomnar kr. 785.
Skyrtur, peysur, bolir, nærföt o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavöröustíg 22,
sími 18250.
Fer ínn á lang
flest
heimili landsins!
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440-B.S.1387
oOQoooo o O OOo
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
ISLAJNTDS-
KLUKKAN
eftir Halldór Laxness
ÍSLANDSKLUKKAN er sagan um óbótamál Jóns Hreggviössonar á Rein og baráttu
hans við görótta réttvísi danskrar einokunar.
R.Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti,“
ÍSLANDSKLUKKAN er sagan um manninn sem varðveitti íslenska menningu á mestu
þrenginga- og niðurlægingartímum íslensku þjóðarinnar.
,,Og aldrei um eilífð verður til neitt ísland utan það
ísland sem Arnas Arnæus hefur keypt fyrir sitt líf.“
ÍSLANDSKLUKKAN er sagan um Snæfríði lögmannsdóttur, ástir hennar reisn og nið-
urtægingu.
„Konu sem þekt hefur ágætan mann finst góður mað-
ur hlægilegur." „Heldur þann versta en þann næst-
besta,“
ÍSLANDSKLUKKAN er saga undirokaðrar þjóðar og stolt hennar sem er öllum hörm-
ungum yfirsterkara.
„Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barður þræll er mik-
ill maður, því í hans brjósti á frelsið heima.“
RITSAFN HALLDÓRS LAXNESS
f|d0flfdl
Veghúsastíg 5
sími 16837
\
Morgunblaðift/Bjarni Eiríksson
Frónfaxi á flugvellinum í Glasgow eftir að búið var að leita í vélinni og
örnggt var að halda aftur í loftið.
Glasgow:
Sprengjuleit í
Flugleiðavél
SPRENGJULEIT var gerð í Frón-
faxa, Boeing-þotu Flugleiða sl. laug-
ardag, er vélin millilenti i Glasgow á
leiðinni Kaupmannahöfn-Keflavík.
Stöðvaðist hún í rúma klst vegna
leitarínnar, en flugvallaryfirvöldum
hafði verið tilkynnt í ónafngreindu
símtali, að sprengja væri um borð í
einhverri flugvél sem kæmi til lend-
ingar þá um eftirmiðdaginn.
Leitað var í öllum flugvélum
sem höfðu viðkomu á flugvellin-
um, en árangurslaust, enda kom á
daginn að um gabb var að ræða. í
öryggisskyni voru farþegar látnir
bera kennsl á farangur sinn og
hann einn tekinn aftur um borð. •
Póstur og fragt sem var í vélinni
var skilin eftir til nánari athugun-
ar, en kemur heim með FI-233-
flugi Flugleiða í dag.
Skólahljómsveit
Kópavogs til
Danmerkur
SKÓLAH LJÓMSVEIT Kópa-
vogs tekur þátt í tónlistarhátíð í
Odense í Danmörku dagana
15.—19. maí næstkomandi. Há-
tíðin er haldin á vegum SAO
(Samraenslutningen af Amatur-
orkestrer í Odense), sem er
samband áhugamannahljóm-
sveita í borginni. Þangað er boð-
ið hljómsveitum frá norrænum
vinabæjum Odense og einnig
öðrum hljómsveitum sem SAO
hefur átt góð samskipti við.
Verða hljómsveitirnar alls 26.
Auk Norðurlandahljómsveita
leika þarna hljómsveitir frá
Hollandi og Þýskalandi.
Kópavogur er vinabær
Odense á íslandi og á síðasta
ári lék Skólahljómsveit Kópa-
vogs á tónleikum í tilefni 600
ára afmælis Norrköping i Sví-
þjóð sem er vinabær Kópavogs
og Odense. Skólahljómsveitin
var skipuð yngstu tónlistar-
mönnunum sem þarna komu
fram og vakti leikur hennar
hrifningu. Þá þegar hafði for-
svarsmaður SAO samband við
stjórnanda Skólahljómsveit-
arinnar, Björn Guðjónsson, og
bauð honum með hljómsveit-
ina til Odense.
Samhliða þessari tónlistar-
hátíð fer einnig fram einleik-
arakeppni áhugamanna og
varð túban fyrir valinu sem
einleikshljóðfæri.
INNLENT