Morgunblaðið - 24.04.1985, Síða 23

Morgunblaðið - 24.04.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1985 vald sem stendur næst fólkinu í landinu og hlutur þeirra mun áreiðanlega vaxa enn i framtíð- inni. Og af vettvangi sveitar- stjórnanna spretta ótal forystu- menn á mörgum öðrum sviðum þar sem nauðsynlegt er að mál- stað sjálfstæðisstefnunnar sé fylgt fast eftir. Fræðslustarfið inn á við þarf þess vegna að reka á öllum stigum ef svo má segja. æ Utbreiðslustarf Á ráðstefnunni um flokksstarf sem ég vitnaði til hér áðan urðu einnig miklar umræður um út- gáfu- og útbreiðslumál flokksins. Eg hef fyrr greint frá því að ákveðið hefur verið að fylgja eftir fyrra starfi á því sviði. Þar blasa við mörg verkefni, eitt þeirra tengist útgáfumálum. Eins og kunngt er gefur Sjálfstæðisflokk- urinn ekki út dagblað eða stendur að slíkri útgáfu eins og flestir hinna stjórnmálaflokkanna gera með einum eða öðrum hætti. Ég tel þetta heppilegt fyrir- komulag. Hætt er við að flokks- blað yrði, yrði við núverandi að- stæður í blaðaheiminum flokknum í sjálfum sér lítt til framdráttar, en gæti orðið vettvangur deilna og átaka fremur en sátta og sam- lyndis ef illa tækist til. Sjálfstæð- ismenn eiga líka, eftir því sem best er vitað, fullan og óheftan að- gang að tveimur langútbreiddustu blöðum landsins og veltur þar auðvitað fyrst og fremst á þeirra eigin dugnaði og atorkusemi að koma skoðunum sínum og viðhorf- um á framfæri með greinaskrifum eða öðrum hætti. Og þegar ríkis- einokun á öldum ljósvakans verð- ur afnumin breytast viðhorfin enn. Þau breyttu viðhorf sem orðið hafa í fjölmiðlun á síðustu árum, og meðal annars felast í miklu opinskárri umfjöllun um stjórn- mál og stjórnmálaþróun, geta að mínum dómi aldrei orðið Sjálf- stæðisflokknum nema til góðs. Það er til dæmis tvímælalaust að Sjálfstæðisflokkurinn hefur stórkostlegan ávinning af því að hafa tekið þá ákvörðun að heimila blaða- og fréttamönnum setu á landsfundum flokksins. Með þeim hætti fá allir landsmenn beinan og milliliðalausan fréttaflutning frá þeim mikilvæga viðburði í þjóðlífinu sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins er. Þar geta andstæðingar okkar ekki lengur slegið falskan tón vegna þess að möguleikarnir til þess að komast að hinu sanna eru allt of margir. Þessi ákvörðun sem fyrst var tek- in fyrir landsfundinn 1981 hefur ríkulega sannað gildi sitt og sýnt fram á að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla burði til þess að fylgjast með tímanum á þessu sviði. Það er aftur á móti allt annað mál, hvort flokkurinn þurfi ekki með einhverjum hætti að hafa beinni og skýrari boðleið til flokksmanna sjálfra eða til helstu trúnaðarmanna hans eins og þess hóps, sem saman er kominn hér á þessum fundi. Þar kemur margt annað til greina en útgáfa dag- blaðs eða dagblaðsígildis. Margs- konar útgáfa fréttabréfa hefur um áratugaskeið verið tíðkuð af Sjálfstæðisflokknum og sjálfsagt er að hyggja mjög vandlega að því hvort rétt sé að taka á ný upp útgáfu fréttabréfs miðstjórnar. Þar hefði forysta flokksins tæki- færi til þess að koma skoðunum sínum og viðhorfum á framfæri við trúnaðarmenn flokksins með öðrum hætti en e.t.v. er unnt eða talið heppilegt að gera á almenn- um vettvangi. Þá má ekki gleyma því þegar rætt er um útgáfu og útbreiðslumál flokksins að gefin eru út ein fimmtán landsmála- blöð. Þau koma að vísu mjög mis- munandi reglulega út, en samt sem áður eru þau mikilvægur vettvangur og útgáfu þeirra mætti gjarna reyna að efla. Fundir — erindrekstur Á ráðstefnunni um flokksstarf var einnig rætt um nauðsyn er- indrekstrar frá flokksskrifstof- unni. Erindrekstur sem rekinn er frá skrifstofu miðstjórnar hlýtur fyrst og fremst að felast í því að aðstoða félög og flokkssamtök, að ferðast sé um á milli félaganna og trúnaðarmanna flokksins, þeim veittar upplýsingar og leitað eftir því hvar flokksskrifstofan getur komið að gagni. Reynt hefur verið eftir mætti að halda uppi slíkum erindrekstri en vissulega má þar bæta um betur. Menn ræða oft um það með hvaða hætti stjórnmálamenn nái sem best til kjósenda sinna. Fund- ir, útgáfa dreifirita, smáblöðung- ar, ráðstefnur, blaðagreinar, blaðaviðtöl, þættir í útvarpi og sjónvarpi. Þetta eru líklega nú um stundir helstu aðferðirnar sem stjórnmálamenn geta notað til að komast í samband við kjósendur sína. Fyrir nokkrum árum ruddi Sjálfstæðisflokkurinn brautina í kosningum með því að efna til svokallaðra vinnustaðafunda. Fundir þessir gáfust mjög vel. Frambjóðendur fóru á vinnustaði í matartímum eða kaffitimum, fluttu stuttar framsöguræður, svöruðu fyrirspurnum og tóku þátt í umræðum. Þetta er starfs- þáttur sem halda þarf við árið um kring en ekki einungis rétt fyrir kosningar. Fundir kjörinna for- ystumanna á vinnustöðum eða með litlum hópum eru mjög heppi- leg aðferð til þess að ná til kjós- enda beint og milliliðalaust. í ársbyrjun 1984 fóru t.d. for- maður og varaformaður flokksins í langa og mikla fundaferð um allt land, héldu fjölmarga almenna stjórnmálafundi í öllum kjördæm- um, en auk þess aragrúa smærri funda með trúnaðarmönnum flokksins á mörgum stöðum og hittu þannig persónulega að máli nokkrar þúsundir flokksmanna. Það er samdóma álit allra sem ég hef talað við og tóku annaðhvort þátt í þessum fundum eða hafa tekið þátt í öðrum svipuðum trún- aðarfundum með fyrri forystu- mönnum flokksins, að þeir séu af- ar mikilvægir. Hið beina og milli- liðalausa samband sem verður á slíkum fundum, möguleikinn til tafarlausra skoðanaskipta, er ómetanlegt. Kosningar 1986 í lok þessarar umfjöllunar um verkefnin framundan vil ég drepa stuttlega á þær kosningar sem ör- ugglega er vitað um að framundan eru, sveitar- og bæjarstjórnar- kosningarnar vorið 1986 eftir rétt ríflega ár. Sjálfstæðisflokknum vegnaði vel í síðustu bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum, ekki sist hér í Reykjavík. Raunar virðist það svo af siðustu skoðanakönnunum að dæma að vart verði nokkrar kosn- ingar í Reykjavík 1986, þar verði allir aðrir flokkar en Sjálfstæðis- flokkurinn horfnir ef flokkurinn heldur áfram að bæta við sig at- kvæðum í sama mæli og hann virðist hafa gert síðan 1982. En það er sýnd veiði en ekki gefin. Það er nauðsynlegt að sjálf- stæðismenn fari strax á þessu vori að búa sig undir sveitarstjórnar- kosningarnar 1986. Að mörgu þarf að hyggja varðandi stefnumótun og kosningaundirbúning og nauð- synlegt er að sjálfstæðismenn komi vel undirbúnir til þeirra kosninga, hafi forystu f kosn- ingabaráttunni, marki sér sjálfir þann málefnagrundvöll sem þeir vilja berjast á. í þessu efni er nauðsynlegt að hyggja vandlega að því sem ég hef nefnt hér áður, hvernig flokkurinn getur sem heild stuðlað að enn markvissara og betra starfi í sambandi við sveitarstjórnarmálin og sveitar- stjórnarkosningarnar. I því efni hlýtur m.a. mikið starf að leggjast á herðar málefnanefndar flokks- ins um sveitarstjórnarmál. Skipulagsreglur í þessu yfirliti mínu hef ég ekki fjallað sérstaklega um skipulags- reglur flokksins, en sérstök nefnd starfar að venju um skipulagsregl- urnar á þessum fundi. Og mun hún meðal annars taka til um- ræðu þau atriði, sem nefnd, er miðstjórn fól að endurskoða skipulagsreglur og prófkjörsregl- ur flokksins, hefur fjallað um. Nefnd þessi hefur skilað tillögum að nýjum prófkjörsreglum og hef- ur miðstjórn afgreitt þær en hún er enn að fjalla um skipulagsregl- urnar. Skipulagsreglurnar eru fast- mótaðar og fátt í þeim, ef það er þá nokkuð, sem á nokkurn hátt heftir starfsemi flokksins, en auð- vitað þurfum við ávallt að vera vakandi fyrir því að skipulagið er aðeins tæki, það er aðeins rammi utan um hugsjónir, en ekki til- gangur í sjálfu sér. AUir sem einn Við komum saman til þessa fundar hér í Reykjavík á mildum vordögum eftir einn veðursælasta vetur sem menn minnast í langan tíma. Formaður flokksins hvatti okkur til þess í ræðu sinni í gær að horfa bjartsýnum augum til fram- tíðarinnar. Hann minnti okkur á að ólund og vil færi okkur ekki fram á við. „Sporin fram á við stígum við aðeins með bjartsýnum huga og áræði í sál og sinni," sagði hann. Undir þetta vil ég af ein- lægni taka. Það er ekki að ástæðu- lausu að fundur þessi er haldinn undir yfirskriftinni „Allir sem einn“. Með því móti er ætlunin að minna sjálfstæðismenn á, og minna þjóðina á, að eigi okkur vel að farnast, þá þurfum við öll að sameinast i átökum okkar, að sameinast í baráttu okkar fyrir bættu þjóðfélagi réttlætis og djarfhuga framfara. Að lokum vil ég ekki láta hjá líða að færa öllum þeim alúðar- þakkir sem tekið hafa þátt i að undirbúa þennan fund, bæði sam- starfsfólki í Sjálfstæðisflokknum og sjálfboðaliðum, einkum og sér í lagi úr Heimdalli, samtökum ____________________________23_ ungra sjálfstæðismanna í Reykja- vík og fjölmörgum öðrum sem til- kvaddir og ótilkvaddir hafa lagt okkur lið við að undirbúa þennan fund og þó sérstaklega þennan fundarstað. Þessi landsfundur er langfjöl- mennasti landsfundur sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur haldið. í gær höfðu skrifstofu flokksins borist tilkynningar um 1.189 kjör- na og sjálfkjörna fulltrúa sem rétt eiga til fundarsetu og sýnir það eitt út af fyrir sig reginkraft Sjálfstæðisflokksins og yfirburði hans yfir alla aðra íslenska stjórnmálaflokka. Virkjum þenn- an kraft til farsældar þjóð vorri. Höfundur er framkræmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Morgunblad- ið birtir bér i heild ræðu þá sem hann flutti um starfsemi flokksins á landsfundi hans, 12. apríl síðast- liðinn. með Jjölda stórravinmnga Umboð í Reykjavík ognágrenni Reykjavík Aðalumboðið Vesturueri Sparisjóður Heyhjavíkur og nágr. SKólavörðustíg 11 Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. Austurströnd 17 Fieskjör, Hesvegi 33 Úlfarsfell, Hagamel 67 Sjóbúðin, Grandagarði Passamyndir, Biðskýlinu tllemmi Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. Hátúni 2 A Bókabúð Safamýrar, Háaleitisbraut 58-60 Hreyfill, benzínafgr. Fellsmúla 24 Paul Heide, Glæsibæ Rafvörur, Laugarnesvegi 52 Hrafnista við Laugarás Verzl Réttarholt, Réttarholtsvegi I Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7 Bókabúð Breiðsholts, Amarbakka 2 Verzl. Straumnes, Vesturbergi 76 Kópavogur Blómaskálinn, v/Kársnesbraut Bókavetzl. Veda, Hamraborg5 Borgarbúðin, Hófgerði 30 Garðabær Bókaverzl. Gríma, Garðaflöt 16—18 Hafnarfjörður Hrafnista, Hafnarfirði Kári- og Sjómannafélagið, Strandgötu 11—13 HAPPDRÆTTI Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.