Morgunblaðið - 24.04.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985
29
Sjónyarpsþáttur í BBC:
Ekkert annað en
stöðug fjárkúgun
- sagði Helmut Kohl um greiðslurnar fyrir fólk frá Austur-Þýskalandi
London, 23. aprfl. AP.
PENINGARNIR, sem Austur-Þjóðverjar krefjast af Vestur-Þjódverjum fyrir
hvern þann mann, sem fær aö flytjast úr landi, eru ekkert annað en „stööug
fjárkúgun“, sagöi Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, í viötali við
breska sjónvarpiö BBC í gær, mánudag.
Helmut Kohl kom fram í sjón-
varpsþætti sem hét „Er skipting
Þýskalands varanleg", og var þar
fjallað um líkurnar á því, að þýsku
ríkin fengju að sameinast á ný.
Kom þar m.a. fram, að fyrir
óbreyttan verkamann krefjast
ráðamenn í Austur-Þýskalandi
10.000 punda (524.000 ísl. kr.), fyrir
andófsmann er gjaldið 14.000 pund
(734.000 ísl.) og fyrir lækni 25.000
pund (1310.000 ísl.)
„Ég lít svo á, að við séum sið-
ferðilega skyldugir til að inna þess-
ar greiðslur af hendi en ég vil taka
fram, svo ekkert fari á milli mála,
að þetta er ekkert annað en stöðug
fjárkúgun," sagði Kohl þegar hann
var spurður um þessar greiðslur.
„Þetta fólk, þessir landar okkar,
hafa verið neyddir til að búa í sum-
um löndum Austur-Evrópu og þess
vegna borgum við fyrir, að það fái
að fara frjálst ferða sinna. Pen-
ingar skipta auðvitað miklu en
samkenndin með fólki er þó þyngra
á metunum."
f þessum sama sjónvarpsþætti
var viðtal við Horst Brasch, sem
sæti á í miðstjórn austur-þýska
kommúnistaflokksins, og neitaði
hann því, að kommúnistastjórnin
tæki við nokkrum peningum fyrir
fólkið.
Vopnahlésbrot í
Suður-Líbanon
Sidon, 23. aprfl. AP.
PALESTÍNSKUR skæruliöi og líb-
anskur hermaöur féllu í skotbardaga
viö kristna þjóövaröliöa skammt frá
Sidon í dag þegar þjóövaröliöarnir
hörfuðu frá nokkrum hæöavígjum
eftir 25 daga bardaga viö múham-
eöska stríðsmenn.
Bardaginn geisaði í flóttamanna-
búðunum Mieh Mieh, 4 km suðaust-
ur af Sidon. Þar áttu palestínskir
skæruliðar, múhameðskir þjóð-
varðliðar og líbanskir hermenn f
höggi við bakvarðarlið liðsafla
kristinna Líbana.
Bardaginn stóð í hálftíma og
beitt var vélbyssum og sprengju-
vörpum. Átökin voru brot á vopna-
hléi, sem yfirmaður líbanska liðs-
aflans, Samir Geagea, lýsti yfir í
Suður-Líbanon í gær áður en
brottflutningurinn hófst.
Fresta varð í minnst sólarhring
áformum um að flytja stríðsmenn-
ina burtu með vöruflutningaskip-
inu „Charlie 1“ til kjarna byggðar
kaþólskra Maróníta umhverfis
Beirút, þar sem skipið gat ekki
lagzt að bryggju vegna sjógangs.
Hinn „líbanski liðsafli" Maróníta
umhverfis Sidon er skipaður 350
striðsmönnum og embættismenn
segja að flestir þeirra fylki nú liði
skammt frá Jieh, 10 km norður af
Sidon, eftir takmarkaðan brott-
flutning.
Fréttamaður AP segir að nokkr-
ar sveitir kristinna manna haldi
kyrru fyrir í stöðvum á hæðum
austan við borgina.
Útvarpsstöðvar múhameðstrú-
armanna herma að nokkrir kristn-
ir menn sæki í átt til bækistöðvar
Maróníta í Kfar Falous, 10 km
austur af Sidon.
Eftir bardagana í dag hafa 113
fallið síðan 29. marz. Rúmlega 450
hafa særzt í bardögunum í og um-
hverfis Sidon.
Svíþjóð:
Lítill drengur
látinn úr AIDS
Stokkhólmi, 23. iprfl. AP.
NÍU ÁRA gamall drengur, sem var haldinn dreyrasýki og sýktist af áunni
ónæmisbæklun, AIDS, fyrir nokkrum árum, er látinn í sjúkrahúsinu í
Lundi. Skýröi sænska fréttastofan frá þessu í dag.
Drengurinn hafði verið í hugsanlegar AIDS-veirur.
sjúkrahúsinu frá því í desember Vegna þess hve veikin er lengi
og er hann sá niundi sem deyr úr að búa um sig varð hennar ekki
AIDS af þeim 22 Svíum, sem hafa vart í drengnum fyrr en á síðasta
tekið veikina frá því hennar varð ári.
fyrst vart árið 1982. Læknar segj- Margir aðrir sænskir dreyra-
ast vissir um, að drengurinn hafi sjúklingar hafa fengið sama
sýkst árið 1979 þegar honum var bandaríska blóðvökvann en sam-
gefinn blóðvökvi, sem fluttur var kvæmt rannsóknum í Bandarikj-
inn frá Bandarikjunum. I Svíþjóð unum fær aðeins einn af þúsund
er nú gætt sérstakrar varúðar sjúkdóminn þótt finna megi veir-
með blóðvökva frá Bandaríkjun- una eða mótefni við henni í blóði
um og hann hitaður til að drepa 70% blóðþeganna.
Vill móta afstöðu til
geimvarnaáætlunar
Vestur-Evrópusambandið:
Bonn, 23. aprfl. AP.
VESTUR-Evrópusambandiö (WEU) samþykkti í dag að stuöla að því að sam-
eiginleg afstaða verði tekin til rannsókna Bandaríkjamanna á varnarkerfi í
geimnum, svokallaðrar „stjörnustríös"- eöa geimvarnaáætlunar.
Utanríkis- og landvarnaráðherr-
ar sjö aðildarríkja WEU sögðu í
tilkynningu, sem gefin var út í lok
tveggja daga fundar þeirra, að þeir
mundu reyna að samræma við-
brögð sín við boði Bandarikja-
manna um þátttöku í geimvopna-
rannsóknum.
Utanríkisráðherra Vestur-
Þjóðverja, Hans-Dietrich Gensch-
er, sagði á blaðamannafundi eftir
fundinn í dag að ráðherrarnir
hefðu ekki sett sér tímamörk til að
móta sameiginlega afstöðu. Banda-
ríkjamenn fóru þess á leit í síðasta
mánuði að bandalagsríki þeirra
svöruðu boðinu um þátttöku í
geimvarnaáætluninni innan 60
daga.
Landvarnaráðherra Breta,
Michael Heseltine, sagði, að yfir-
lýsing WEU táknaði að Evrópu-
rnenn væru enn að kanna hvernig
þeir gætu tekið þátt í geimvarna-
rannsóknum Bandaríkjamanna.
Hann sagði að um það væri ekkert
hægt að segja hvort orðið gæti af
þátttöku.
í lokayfirlýsingunni sagði að
WEU mundi reyna að efla „tækni-
getu“ Evrópu í von um að álfan
gæti orðið „tæknisamfélag", sem
gæti keppt við Bandaríkin.
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti hvatti í síðustu viku til
sameiginlegra tæknirannsókna
Evrópuþjóða, að því er virðist til að
reyna að mynda mótvægi gegn
geimvarnaáætlun Bandarikja-
manna.
Heimildir í Bonn herma að allir
ráðherrarnir hafi fagnað tillögu
Mitterrands, einkum þó þeir vest-
ur-þýzku og hollenzku.
Hlutabréf
Til sölu eru hlutabréf í Bæjarleiöum hf. Lysthafendur
leggi nöfn sín inn á augl.deild Mbl. fyrir 29. apríl
merkt: „H — 8752“.
SOVÉSKIR DAGAR MÍR 1985
Rússneskir
tónleikar
Ljúdmíla Zykina, frægasta þjóölagasöngkona Sovótríkjanna,
og þjóölagasveitin „Rossía" undir stjórn Viktors Gridin, koma
fram á tónleikum MÍR, Menningartengsla islands og Ráöstjórn-
arríkjanna, í næstu viku sem hér segir:
Þjóðleikhúsinu mánudaginn 29. apríl kl. 21.
Neskaupstaö þriðjudaginn 30. apríl.
Egilsstöðum miövikudaginn 1. maí.
Akureyri (Sjallanum) fimmtudaginn 2. mai.
Húsavík föstudaginn 3. maí.
Missiö ekki af þessum einstæöu tónleikum. Sala aögöngumiöa
aö tónleikunum í Þjóöleikhúsinu í miöasölu leikhússins.
MÍR.
TÖLVUMAM5KEIÐ
WORD5TAR
Ritvinnslukerfið Wordstar er tvímælalaust útbreiddasta
ritvinnsluKerfið sem fram hefur Komið. Hérlendis er það
m.a. notað á Televideo tölvur.
EFÍ1I: • V/almyndir kerfisins
• Skipanir útskýrðar
• Staðlar
• Skjalavarsla
• Stýrikerfið
rtámsKeiðið er að langmestu leyti í formi verKlegra
æfinga og miðast við að þátttaKendur geti staðið á
eigin fótum við vinnu í Wordstar að námsKiði loKnu.
TIMI:
29. apríl—2. maf
hl. 13.30-17.30
LEIÐBEiriAHDI:
Ragna Sigurðardóttir Quðjohnsen
Ath! Starfsmannafélag Reykjavíkur, Starfsmenntunarsjóður
starfsmannafélags ríkisstofnana og Verslunarmannafélag
Reykjavíkur styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeið-
inu.
B
STJÓRNUNARFÉIAG
ÍSLANDS l»o23