Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985 29 Sjónyarpsþáttur í BBC: Ekkert annað en stöðug fjárkúgun - sagði Helmut Kohl um greiðslurnar fyrir fólk frá Austur-Þýskalandi London, 23. aprfl. AP. PENINGARNIR, sem Austur-Þjóðverjar krefjast af Vestur-Þjódverjum fyrir hvern þann mann, sem fær aö flytjast úr landi, eru ekkert annað en „stööug fjárkúgun“, sagöi Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, í viötali við breska sjónvarpiö BBC í gær, mánudag. Helmut Kohl kom fram í sjón- varpsþætti sem hét „Er skipting Þýskalands varanleg", og var þar fjallað um líkurnar á því, að þýsku ríkin fengju að sameinast á ný. Kom þar m.a. fram, að fyrir óbreyttan verkamann krefjast ráðamenn í Austur-Þýskalandi 10.000 punda (524.000 ísl. kr.), fyrir andófsmann er gjaldið 14.000 pund (734.000 ísl.) og fyrir lækni 25.000 pund (1310.000 ísl.) „Ég lít svo á, að við séum sið- ferðilega skyldugir til að inna þess- ar greiðslur af hendi en ég vil taka fram, svo ekkert fari á milli mála, að þetta er ekkert annað en stöðug fjárkúgun," sagði Kohl þegar hann var spurður um þessar greiðslur. „Þetta fólk, þessir landar okkar, hafa verið neyddir til að búa í sum- um löndum Austur-Evrópu og þess vegna borgum við fyrir, að það fái að fara frjálst ferða sinna. Pen- ingar skipta auðvitað miklu en samkenndin með fólki er þó þyngra á metunum." f þessum sama sjónvarpsþætti var viðtal við Horst Brasch, sem sæti á í miðstjórn austur-þýska kommúnistaflokksins, og neitaði hann því, að kommúnistastjórnin tæki við nokkrum peningum fyrir fólkið. Vopnahlésbrot í Suður-Líbanon Sidon, 23. aprfl. AP. PALESTÍNSKUR skæruliöi og líb- anskur hermaöur féllu í skotbardaga viö kristna þjóövaröliöa skammt frá Sidon í dag þegar þjóövaröliöarnir hörfuðu frá nokkrum hæöavígjum eftir 25 daga bardaga viö múham- eöska stríðsmenn. Bardaginn geisaði í flóttamanna- búðunum Mieh Mieh, 4 km suðaust- ur af Sidon. Þar áttu palestínskir skæruliðar, múhameðskir þjóð- varðliðar og líbanskir hermenn f höggi við bakvarðarlið liðsafla kristinna Líbana. Bardaginn stóð í hálftíma og beitt var vélbyssum og sprengju- vörpum. Átökin voru brot á vopna- hléi, sem yfirmaður líbanska liðs- aflans, Samir Geagea, lýsti yfir í Suður-Líbanon í gær áður en brottflutningurinn hófst. Fresta varð í minnst sólarhring áformum um að flytja stríðsmenn- ina burtu með vöruflutningaskip- inu „Charlie 1“ til kjarna byggðar kaþólskra Maróníta umhverfis Beirút, þar sem skipið gat ekki lagzt að bryggju vegna sjógangs. Hinn „líbanski liðsafli" Maróníta umhverfis Sidon er skipaður 350 striðsmönnum og embættismenn segja að flestir þeirra fylki nú liði skammt frá Jieh, 10 km norður af Sidon, eftir takmarkaðan brott- flutning. Fréttamaður AP segir að nokkr- ar sveitir kristinna manna haldi kyrru fyrir í stöðvum á hæðum austan við borgina. Útvarpsstöðvar múhameðstrú- armanna herma að nokkrir kristn- ir menn sæki í átt til bækistöðvar Maróníta í Kfar Falous, 10 km austur af Sidon. Eftir bardagana í dag hafa 113 fallið síðan 29. marz. Rúmlega 450 hafa særzt í bardögunum í og um- hverfis Sidon. Svíþjóð: Lítill drengur látinn úr AIDS Stokkhólmi, 23. iprfl. AP. NÍU ÁRA gamall drengur, sem var haldinn dreyrasýki og sýktist af áunni ónæmisbæklun, AIDS, fyrir nokkrum árum, er látinn í sjúkrahúsinu í Lundi. Skýröi sænska fréttastofan frá þessu í dag. Drengurinn hafði verið í hugsanlegar AIDS-veirur. sjúkrahúsinu frá því í desember Vegna þess hve veikin er lengi og er hann sá niundi sem deyr úr að búa um sig varð hennar ekki AIDS af þeim 22 Svíum, sem hafa vart í drengnum fyrr en á síðasta tekið veikina frá því hennar varð ári. fyrst vart árið 1982. Læknar segj- Margir aðrir sænskir dreyra- ast vissir um, að drengurinn hafi sjúklingar hafa fengið sama sýkst árið 1979 þegar honum var bandaríska blóðvökvann en sam- gefinn blóðvökvi, sem fluttur var kvæmt rannsóknum í Bandarikj- inn frá Bandarikjunum. I Svíþjóð unum fær aðeins einn af þúsund er nú gætt sérstakrar varúðar sjúkdóminn þótt finna megi veir- með blóðvökva frá Bandaríkjun- una eða mótefni við henni í blóði um og hann hitaður til að drepa 70% blóðþeganna. Vill móta afstöðu til geimvarnaáætlunar Vestur-Evrópusambandið: Bonn, 23. aprfl. AP. VESTUR-Evrópusambandiö (WEU) samþykkti í dag að stuöla að því að sam- eiginleg afstaða verði tekin til rannsókna Bandaríkjamanna á varnarkerfi í geimnum, svokallaðrar „stjörnustríös"- eöa geimvarnaáætlunar. Utanríkis- og landvarnaráðherr- ar sjö aðildarríkja WEU sögðu í tilkynningu, sem gefin var út í lok tveggja daga fundar þeirra, að þeir mundu reyna að samræma við- brögð sín við boði Bandarikja- manna um þátttöku í geimvopna- rannsóknum. Utanríkisráðherra Vestur- Þjóðverja, Hans-Dietrich Gensch- er, sagði á blaðamannafundi eftir fundinn í dag að ráðherrarnir hefðu ekki sett sér tímamörk til að móta sameiginlega afstöðu. Banda- ríkjamenn fóru þess á leit í síðasta mánuði að bandalagsríki þeirra svöruðu boðinu um þátttöku í geimvarnaáætluninni innan 60 daga. Landvarnaráðherra Breta, Michael Heseltine, sagði, að yfir- lýsing WEU táknaði að Evrópu- rnenn væru enn að kanna hvernig þeir gætu tekið þátt í geimvarna- rannsóknum Bandaríkjamanna. Hann sagði að um það væri ekkert hægt að segja hvort orðið gæti af þátttöku. í lokayfirlýsingunni sagði að WEU mundi reyna að efla „tækni- getu“ Evrópu í von um að álfan gæti orðið „tæknisamfélag", sem gæti keppt við Bandaríkin. Francois Mitterrand Frakk- landsforseti hvatti í síðustu viku til sameiginlegra tæknirannsókna Evrópuþjóða, að því er virðist til að reyna að mynda mótvægi gegn geimvarnaáætlun Bandarikja- manna. Heimildir í Bonn herma að allir ráðherrarnir hafi fagnað tillögu Mitterrands, einkum þó þeir vest- ur-þýzku og hollenzku. Hlutabréf Til sölu eru hlutabréf í Bæjarleiöum hf. Lysthafendur leggi nöfn sín inn á augl.deild Mbl. fyrir 29. apríl merkt: „H — 8752“. SOVÉSKIR DAGAR MÍR 1985 Rússneskir tónleikar Ljúdmíla Zykina, frægasta þjóölagasöngkona Sovótríkjanna, og þjóölagasveitin „Rossía" undir stjórn Viktors Gridin, koma fram á tónleikum MÍR, Menningartengsla islands og Ráöstjórn- arríkjanna, í næstu viku sem hér segir: Þjóðleikhúsinu mánudaginn 29. apríl kl. 21. Neskaupstaö þriðjudaginn 30. apríl. Egilsstöðum miövikudaginn 1. maí. Akureyri (Sjallanum) fimmtudaginn 2. mai. Húsavík föstudaginn 3. maí. Missiö ekki af þessum einstæöu tónleikum. Sala aögöngumiöa aö tónleikunum í Þjóöleikhúsinu í miöasölu leikhússins. MÍR. TÖLVUMAM5KEIÐ WORD5TAR Ritvinnslukerfið Wordstar er tvímælalaust útbreiddasta ritvinnsluKerfið sem fram hefur Komið. Hérlendis er það m.a. notað á Televideo tölvur. EFÍ1I: • V/almyndir kerfisins • Skipanir útskýrðar • Staðlar • Skjalavarsla • Stýrikerfið rtámsKeiðið er að langmestu leyti í formi verKlegra æfinga og miðast við að þátttaKendur geti staðið á eigin fótum við vinnu í Wordstar að námsKiði loKnu. TIMI: 29. apríl—2. maf hl. 13.30-17.30 LEIÐBEiriAHDI: Ragna Sigurðardóttir Quðjohnsen Ath! Starfsmannafélag Reykjavíkur, Starfsmenntunarsjóður starfsmannafélags ríkisstofnana og Verslunarmannafélag Reykjavíkur styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeið- inu. B STJÓRNUNARFÉIAG ÍSLANDS l»o23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.