Morgunblaðið - 24.04.1985, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985
Kveöjuorö:
Kristín Þorvalds-
dóttir Arason
Kædd 12. marz 1888
Dáin 10. aprfl 1985
Látin er í hárri elli, sú kona,
sem ég leyfi mér að kalla ein-
hverja hina síðustu „old grand
lady“ íslands. Var það Kristín
Þorvaldsdóttir, kennari, frá
Flugumýri/Víðimýri í Skagafirði.
Af kunningjum kölluð Stína Ara.
Andaðist hún í svefni i hjúkrun-
arheimilinu í Hafnarbúðum. Þar
hafði hún dvalið við og við í boði
yfirlæknisins þar, en að mestu frá
sl. hausti. Hún fékk jafnan þaðan
heimfararleyfi, þegar hún óskaði.
Starfsfólk Hafnarbúða dáði hana
fyrir elskulega framkomu og gerði
allt fyrir hana, sem í valdi þess
stóð og var hún jafnan uppáhald
allra þar. Til síðasta dags var hún
ern, stálminnug og vel á sig kom-
in, jafnt hress líkamlega sem and-
lega. Ókunnugir hefðu getað talið
hana aðeins á sjötugsaldri. Þegar
ég sá hana síðast, 8. apríl sl.,
hlakkaði ég til að eiga von á að
taka þátt í aldarafmæli hennar.
Hún átti glæsilegt heimili, á
Seljavegi 27, og naut sín þar. Ann-
aðist sig að mestu sjálf, las mikið
ævisögur og þjóðlegan fróðleik.
Var mikið fyrir ættfræðirit. Frá
slíku hvíldi hún sig, inn á milli,
með lestri skáldsagna og
skemmtibóka. Hafði mikið af
blómum hjá sér, sem hún af natni
hugsaði vel um. Eftir að heilsa
hennar leyfði ekki útivinnu í garði
hússins, sem hún áður hafði rækt-
að af alúð, þá kom órækt í garðinn
og hafði hún viss leiðindi af því, að
blóm í garðinum voru orðin nær
engin, hrörnun komin í trjágróð-
urinn, allt með vaxandi villigróðri.
í heimvistarleyfum frá Hafnar-
búðum var jafnan gestkvæmt hjá
henni. Voru það ýmist gamlir
nemendur hennar, börn og barna-
börn fyrri vina hennar, sem síðar
verður vikið að, svo og ættingjar
og vandamenn.
Kristín fæddist á Flugumýri og
fluttist síðan að Víðimýri og varð
þriðja elzta barn hjónanna, Þor-
valds Ara Arasonar, bónda og
póstafgreiðslumanns og konu
hans Onnu Vigdísar Steingríms-
dóttur. Af sjö börnum þeirra eru
nú öll látin, nema yngsti bróðir-
inn, sem nálgast nírætt. í föður-
karllegg var Kristín alskagfirsk,
afkomandi Ásbirninga með for-
föðurnum, Höfða-Þórði, land-
námsmanni. Móðurætt hennar má
kenna við Hraun í Öxnadal. Krist-
ín sótti jákvæð einkenni sín mun
meira í föðurætt og blöndunar
góðra stofna í henni, eins og í
Þorvalds- og Bólstaðarhlíðarætt-
ina. Indriði Einarsson, rithöfund-
ur, og Sigurður Nordal, prófessor,
hafa báðir látið það frá sér fara,
að hafi verið uppi á tslandi sannur
enskur „gentleman", hafi það ver-
ið faðir Kristínar. Ari yngri,
læknir á Flugumýri, afi Kristínar,
var kvæntur Helgu Þorvaldsdótt-
ur Böðvarssonar. Helga var dóttir
Þorvalds af þriðja hjónabandi
hans með Kristínu Björnsdóttur
Jónssonar prests í Bólstaðarhlíð.
Kristín bar nafn þessarar formóð-
ur sinnar og var stolt af.
Vel þykir mér á því fara, til
minningar um hina látnu, að
minnast á elzta sálm, sem talinn
er ortur á íslandi, af Ásbirningn-
um Kolbeini Tumasyni, Víðimýri.
Sálmurinn virðist hafa verið til
gæfu fyrir hina látnu, jafnvel
mótað hana, veitt henni mjúka
miskunn himnasmiðsins, skapað
henni mildi, gætt hennar hverja
stund, hjálpað henni og jafnan
verið hjarta hennar nær. Þó kvæði
Hannesar Hafstein, ráðherra, til
Guðlaugar föðursystur Kristínar,
myndi nægja sem tæmandi eftir-
mæli um hana, þá hefi ég svo mik-
ið um hana að segja til viðbótar,
að ég get ekki stöðvað penna minn,
en kvæðið leyfi ég mér þó að taka
upp:
„Nei, smáfrið er hún ekki
og engin skýjadís,
en enga samt ég þekki,
sem ég mér heldur kýs.
Þótt hún sé holdug nokkuð,
er höndin ofursmá.
Hún er svo íturlokkuð
með æskulétta brá.
Við eldblik augna kátra
skín andlit glatt og Ijóst.
Við hljóðfall léttra hlátra
sem hrannir lyftast brjóst.
Hún er svo frjáls og ítur,
svo æskusterk og hraust,
að hver sem hana lítur,
til hennar festir traust.
Og ef ég er með henni
ég eld í hjarta finn.
Það er sem blóðið brenni
og bálist hugur minn.“
Árið 1896 fluttist Kristín frá
Víðimýri til föðursystra sinna
þeirra, Kristínar íslenskukennara
við Barnaskólann og Önnu Sigríð-
ar. Bæði þá og síðar var hún mikið
hjá frænku sinni og alnöfnu, sem
setti hér upp fyrstu listmuna-
verzlun með nafninu „Kúnst". Enn
þann dag í dag er Kúnst talin hafa
verið sú fullkomnasta, sem nokkru
sinni hafi verið hér á landi, með
fjölbreytt úrval allskonar list-
muna eftir þáverandi frægustu
listamenn. Telja ýmsir, að sú
verzlun hafi átt þátt í eflingu inn-
lendrar listsköpunar.
Kristín lauk námi við Barna-
skóla Reykjavíkur næstu fjögur
árin, undir skólastjórn Mortens
Hansens.
Minnisstæð voru Kristínu alda-
mótahátíðarhöldin, þegar allir
Reykvíkingar sameinuðust um að
fegra hús sín og gera allt sem há-
tíðlegast.
Kristín taldi unglingsár sín
mjög skemmtileg, sem og
bernskuár sín. Eftir, að hún flutti
til Reykjavíkur þessi fyrstu ár,
var hún þar aðeins að vetrunum,
fór með vorinu með skipi til Sauð-
árkróks, en suður að haustinu á
hestum í ánægjulegri fylgd föður
síns. Á vetrunum var þá all
skemmtilegt í Reykjavík og marga
ánægjustundina átti hún dansandi
á tréskautum, þegar Tjörnin var
ísi lögð. Þá voru oft til skemmtun-
ar á Tjörninni listskautasýningar
Sigurðar Thoroddsen, verkfræð-
ings, sem þá var talinn snjallasti
skautamaður Reykjavíkur.
Hún lauk kvennaskólanámi árið
1905 undir skólastjórn frú Þóru
Melsted og naut þar einnig
kennslu Ingibjargar Bjarnason.
Bekkjarsystir og vinkona Kristín-
ar í Kvennaskólanum var Laufey
Valdimarsdóttir, sem lagði sig
fram um að fá Kristínu með sér í
menntaskóla, en til þess var Krist-
ín of hlédræg.
Kristín hélt tvívegis smábarna-
skóla í Reykjavík, fyrst skólaárið
1906—7 og síðan aftur skólaárið
1908—9. Kenndi hún þar ýmsum
mönnum, sem síðan náðu miklum
frama og urðu hinir mætustu ís-
lendingar. Á einu skólaári lauk
Kristín kennaraprófi, vorið 1906,
frá Flensborgarskóla. I Flensborg
voru með henni Jóhannes S.
Kjarval og Oscar Clausen, ásamt
ýmsum fleirum, en á þá tvo
minntist hún oft og hélzt vinátta
þar á milli.
Til náms í tungumálum fór
Kristín síðan í Verzlunarskólann
og lauk honum á skólaárinu
1907—8 og lærði þar dönsku,
ensku og þýsku. Hélt hún þessari
málakunnáttu sinni við til síðustu
stundar og las jafnt bækur á þess-
um málum, s'em móðurmálinu.
Aðalkennari Verslunarskólans var
þá Ágúst Bjarnason, síðar pró-
fessor, sem virðist hafa haft mikil
áhrif á Kristínu til fræðiiðkana og
víðsýni.
Skólaárið 1908—9 kenndi Krist-
ín við Barnaskóla Reykjavíkur.
Haustið 1909 varð Kristín skóla-
stjóri á Hesteyri og jafnframt far-
kennari í Sléttuhreppi vestra. Að-
alaðsetur hennar var á Hesteyri
og bjó hún þar á meðal skyld-
menna, sem þá voru þar og á ísa-
firði mörg. Því starfi gegndi hún
til vorsins 1914. í farkennslu-
starfinu þurfti hún mikið að ferð-
ast, því kennslustaðir voru margir
og langt á milli þeirra. Þegar ald-
ur fór að færast yfir hana, og hún
að þrekna, þá sagði hún oft frá,
með glettni í augum, að fáir
mundu nú trúa, að áður fyrr hefði
hún dansað á skautum á Tjörninni
og farið á skíðum, alein, í hvaða
veðri sem væri, frá Hesteyri til
Staðar í Grunnavík og einnig
Staðar í Aðalvík. Bæði á Hesteyri
og í Sléttuhreppi var hún mjög
vinsæl og eftir að Hesteyri var
farin í eyði, þá heimsóttu hana
ýmsir gamlir nemendur þaðan
með skemmtilegum nöfnum, Betú-
elar, Tímóteusar og fleiri.
Fyrst íslenskra kvenna hóf hún,
árið 1915, matreiðslunám við
„Statens Lærer Höjskole" í Kaup-
mannahöfn og lauk þaðan prófi,
árið 1916, með mjög góðum vitn-
isburði, bæði fyrir stuttan náms-
tíma og mjög háar einkunnir.
Dvaldist síðan í Kaupmannahöfn
til ársins 1917. Fékk þar vinnu og
stundaði samhliða framhaldsnám
í „Professor Jacobsens Clinik",
þ.e.a.s. matreiðslu sjúkrafæðis svo
og lúxusrétta. Sjúkrafæðisnámið
kom henni síðar vel, þegar hún i
sumarleyfum sínum leysti iðulega
af ráðskonurnar, bæði á Kleppi og
Vífilsstöðum.
Kristín var fyrst íslenskra
kvenna til að rita kennslubók í
matreiðslu, sem fjölrituð var fyrir
nemendur hennar. Sú bók hefir
siðan verið aðaluppistaðan í síðar
útgefnum matreiðslubókum hér á
landi. Af látleysi sínu var henni
sama um höfundarétt sinn.
Eftir námsdvöl sína í Kaup-
mannahöfn var hún fyrsti og eini
kennari landsins, sem bæði hafði
próf sem matreiðslukennari og
fullkomin almenn önnur kennslu-
réttindi.
Á Kaupmannahafnarárum sín-
um vann hún fyrir sér og varði
afgangi tekna sinna til kaupa á
vönduðu húsgagnasetti, sem hún
sendi að gjöf heim til foreldra
sinna á Víðimýri. Á allan hátt
naut Kristín Kaupmannahafnar-
áranna, stundaði leikhús og list-
sýningar og ferðaðist nokkuð um
Mið-Evrópu.
Eftir heimkomuna frá Kaup-
mannahöfn þráði hún átthagana,
foreldra og systkini sín og kenndi
þar almenna kennslu skólaárið
1917—18. Meðal nemenda hennar
þá var Stefán Á. íslandi, sem þá
var Guðmundsson, en Kristín tók
fram, að hún hefði ekki kennt hon-
um söng.
Næstu fimm árin kenndi hún í
Kvennaskólanum í Reykjavík og
einnig í Miðbæjarbarnaskólanum.
Þá aðstoðaði hún Guðjón Sam-
úelsson, húsameistara, við skipu-
lagningu skólaeldhúss Austurbæj-
arbarnaskólans. Eftir að sá skóli
tók til starfa starfaði hún þar
langt fram yfir sjötugt.
Með áðurnefndri kennslu, rak
hún um tíma matsölu fyrir stúd-
enta á efri hæð hússins á horni
Lækjargötu og Austurstrætis
undir nafninu Mensa. Mun það
hafa verið ca. á árunum 1922—26.
Var það mjög ánægjulegur tími
fyrir Kristínu og minntist hún
þess oft. Helztu gestir voru stúd-
entar úr hinum alþekkta „skálda-
árgangi" MR. Þeirra minntist hún
jafnan með aðdáun. Oftast minnt-
ist hún á Sigurð Einarsson, Tómas
Guðmundsson, Thor Thors, Sigurð
Grímsson og fleiri. Þar var einnig
tíður gestur Halldór Laxness.
Mensugestirnir héldu tryggð og
vináttu við hana.
Af stöðugum hlaupum milli
kennslustaða, kvað hún síðar, að
hún hafi ofboðið sér með þeim af-
leiðingum, að á efri árum varð
hún nokkuð stirð til gangs.
Aðalprófdómari var hún í Hús-
mæðraskóla íslands á meðan hann
var rekinn í kjallara Háskólans og
fékk orð fyrir að vilja gefa þar
háar einkunnir.
Við kennslu fékkst Kristín sam-
fellt í nær 55 ár.
Af félagsmálum hafði Kristin
lítil afskipti og hafði oft orð á því,
að hún væri engin „kvenréttinda-
kona“. Eini félagsskapurinn, sem
hún starfaði f var „Hringurinn",
og það frá 1920 og aílt fram á átt-
ræðisaldur. Þar var hún bæði virt
og virk.
Kristín var mikil ferðakona og
fór á hestum um flesta fjallvegi
landsins og öræfi þess, hér á árum
áður.
Þrátt fyrir marga göfuga biðla,
gekk Kristín ekki í hjúskap fyrr
en 28. maí 1938, að hún giftist
Helga Guðmundssyni, málara-
meistara, frá Brekkum í Mýrdal.
Hann var ellefu árum eldri, ekkju-
maður og fjögurra uppkominna
barna faðir. Hann andaðist eftir
farsælt hjónaband þeirra 5. maí
1942. Hann var dugandi málara-
meistari, en sem margir aðrir,
hafði hann farið fremur illa út úr
rekstri sínum á kreppuárunum
fyrir stríðið. Á sama tíma hafði
hann kostað son sinn til lækna-
náms og verðandi tengdason til
tannlæknanáms í Þýskalandi, sem
reyndar lauk ekki námi. Af þeim
sökum voru miklar skuldir í búi
Minning:
Steinunn Guðmunds
dóttir frá Norðfirði
Fædd 14. janúar 1906
Dáin 14. aprfl 1985
Nú opnar fangið fóstran góða
og faðmar þreytta barnið sitt,
hún býr þar hlýtt um brjóstið móða
og blessar lokað augað þitt.
Hún veit hve bjartur bjarminn var
þótt brosin glöðu sofi þar.
Með þessu Ijóði góðskáldsins
okkar vil ég kveðja Steinunni Guð-
mundsdóttur frá Norðfirði.
Hún var um margt sérstæð
kona og sjálfstæð, hennar vilja
varð vart haggað um menn og
málefni, en öllum vildi hún vel.
Tónlist og fögur ljóð voru hennar
yndi, enda var henni listhneigð
mjög í blóð borin. Söngrödd hafði
hún góða og mun á yngri árum
hafa starfað með kórum á Norð-
firði og víðar. Lög samdi hún einn-
ig og frumsamda stöku gat hún
sent kunningjum við góð tækifæri.
Steinunn var bæði góð og
skemmtileg heim að sækja, og
margar góðar stundir áttum við
saman á Hverfisgötu 35 er við
ræddum um lífið og breytileik
þess.
Hún fæddist 14. janúar 1906 á
Norðfirði. Ung að árum giftist hún
Ólafi Ingvarssyni verslunarmanni
frá Minna-Hofi á Rangárvöllum,
sem látinn er fyrir allmörgum ár-
um, en einkadóttir þeirra, Erla,
býr á Hellu, hún er gift Rudolf
Stolzenwald. Barnabörn eru þrjú,
Sólveig, Gústaf og Ólafur EgiII.
Síðustu mánuðirnir urðu henni
mjög erfiðir en nú mun „fóstran
góða faðma þreytta barnið sitt“.
Guð blessi minningu Steinunnar
Guðmundsdóttur. Erlu dóttur
hennar og öðrum vandamönnum
sendi ég innilegar samúðarkveðj-
ur.
Jakobína Erlendsdóttir
Steinunn Guðmundsdóttir frá
Neskaupstað verður jarðsungin
frá Hallgrímskirkju í dag, mið-
vikudaginn 24. apríl, eftir erfiða
sjúkdómslegu. Steinunn var fædd
á Ýmastöðum í Vaðlavík, Helgu-
staðahreppi, Suður-Múlasýslu,
hinn 14. janúar 1906. Foreldrar
Steinunnar voru hjónin Guð-
mundur Magnússon, bóndi og
trésmiður á Ýmastöðum og Sól-
veig Benjamínsdóttir. Þau hjón
brugðu búi á Ýmastöðum og fluttu
til Neskaupstaðar árið 1911 með
börn sín sex að tölu.
Steinunn var næst yngst þeirra
systkina, en ólöf elst og er ein á
lífi af þeim systkinum og dvelur
nú á sjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Hér fara á eftir nöfn þeirra systk-
ina í aldursröð: Ólöf, Ölver, Benj-
amín, Marteinn, Steinunn og Stef-
anía.
Steinunn ólst upp í Neskaup-
stað. Hún fór til Vestmannaeyja
ung stúlka, innan við tvítugsaldur
og réðst þar í vist. í Vestmanna-
eyjum kynntist hún Ólafi Ingva-
syni, ungum verslunarmanni sem
ættaður var frá Minna-Hofi á
Rangárvöllum. ólafur starfaði þá
við verslun Georgs Gíslasonar í
Eyjum. Steinunn giftist ólafi árið
1926. Ólafur stofnaði sitt eigið
verslunarfyrirtæki í Vestmanna-
eyjum, sem hann rak um stund en
þar sem heimskreppan óx ört á
þessum árum gekk verslunin ekki
sem skyldi. Þau hjónin Ólafur og
Steinunn eignuðust eitt barn, Erlu
sem fædd er í Vestmannaeyjum
1932. Sama ár og Erla fæddist
fluttu þau til Neskaupstaðar þar
sem Ólafur vann fyrst verka-
mannavinnu og síðan hóf hann
störf hjá kaupfélaginu Fram í
Neskaupstað. Árið 1944 fluttust
þau suður á land að Hellu á Rang-
árvöllum og þar vann Ólafur við
kaupfélagið Þór þar á staðnum
næstu fjögur árin. Síðan fluttu
þau hjón að Selfossi, þar sem
ólafur hóf störf hjá kaupfélagi
Árnesinga. Erla dóttir þeirra
fluttist ekki með þeim frá Hellu,
þar sem hún var gift Rudolf Stols-
enwald syni þeirra hjóna Stols-
enwald klæðskera á Hellu og
Ragnhildar Þórarinsdóttur, sem
ættuð er frá Vestmannaeyjum.
Erla og Rudolf búa á Hellu þar
sem þau reka saumastofu. Þeirra